Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1990, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1990, Qupperneq 4
4 FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 1990. Fréttir Ingi R. Jóhannsson: Höfum yfir í hálfleik „Ég segi tiú bara eíns og knatt- spyrnumennimir.-Við höfum yfir í hálfleík. Síöah bíður raaður eftir áfrýjuninni," sagði Ingi R. Jó- hannsson, fyrrverandi endur- skoöandi Útvegsbankans. - Þú telur að þið hafið ekki gert út um leUdnn í fyrrí hálfleik? „Það er alltaf betra að hafa und- irréttinn með sér. Ég segi það ekki. En óg œtía að sjá hvertúg saksóknari bregst við þessu en hann hefur þtjá mánuði til þess. Ég held að menn megi vara sig á að fara of geyst í sakimar,“ sagöi Ingi. -gse Ólafur Helgason: „Ég er auðvitaö ánægður með dóminn. Ég bjóst nú satt segja alitaf við þessari niðurstöðu," sagði Ólafur Helgason, fyrrver- andi bankastjóri Utvegsbankans. „Ég vil nú ekkert frekar um þetta segja. Ég hef ekki lagt þaö í vana minn að ræða þessi mál frekar. Ég ætía að halda því áfram,“ sagði Ólafur. -gse Sigurþór C. Guömundsson: Kýs að tjá mig ekki „Ég held ég kjósi aö tjá tnig ekkert um þennan dóm,“ sagði Sigurþór Cbarles Guðmundsson, fyrrverandi aðalbókari Hafsklps. -gse Garðar Sigurðsson: Er rólegur yf ir þessu „Ég hef nú lítiö um þetta aö segja. Ég er ósköp rólegur yfir þessu. Þetta em niðurstöður sem ég er ánægður með ög bjóst viö,“ sagöi Garðar Sigurðsson, fyrr- verandi bankaráðsmaður Út- vegsbanka. Axel Kristjánsson: Þakklátur fyriraðtil skuli vera svona fólk „Ég er fegiim að komin er sú niðurstaða sem ég vissi alltaf að var sú rétta. Ég ber viröingu fyr- ir því fólki sem kveður upp þenn- an dóm og lætur ekki ailt mold- viðriö og ruglið, sem er búið að vera í kríngum þetta allt saman, rugla sig í mati sínu á málinu. Ég er afskaplega þakklátur fyrir að til skuli vera fólk sem lætur ekki gemingaveðrið, sem stjóm- málamenn og fjölmiðlar komu af stað á sínum tima, mgla sig,“ sagðí Axel Krístiánsson, fyrrver- andi aðstoðarbankasfjórí Ötvegs- bankans og forstöðumaður lög- fræðideildar bankans. -gse Alla tíð viss um að ég gerði rétt sagði Þórður H. Hilmarsson eftir sýknudóminn „Varðandi sjálfan mig þá var ég ákærður fyrir atriði sem ég hef aldr- ei nokkurn tíma neitað að hafa fram- kvæmt. Ég hef alla tíð verið viss um að það sem ég gerði var rétt og ég myndi gera þaö aftur. Ég hef hins vegar ekki þorað að vona, frekar en aðrir í þessu máh, að allir væm því sammála og skildu þetta þrátt fyrir allan hamaganginn," sagði Þórður H. Hilmarsson, fyrrverandi deildar- stjóri hagdeildar Hafskips og núver- andi framkvæmdastjóri Glóbusar. „Þetta er mikill léttir og ég er þakk- látur öllum þeim sem hafa trúað á mig og alla þessa menn ailan þennan tíma. Það er ótrúlega margt fólk sem hefur greint þetta mál í réttu ljósi þrátt fyrir allt þetta fár sem hefur veriö í kringum þetta. Það hefur gíf- urlega mikið legiö á fjölskyldunni en hún hefur staðið eins og klettur á bak við mig. Þessi dómur sýnir að þrátt fyrir þetta ofurfár, sem skapaðist kringum þetta mál, þann almenn- ingsdóm, sem kveðinn var upp, og ummæh margra merkra manna í þjóðfélaginu á sínum tíma þá hefur dómurunum tekist að dæma algjör- lega óháð öllu öðru en réttlætinu,“ sagði Þórður. rgse Ragnar Kjartansson og Lárus Jónsson takast í hendur i Sakadómi Reykjavíkur. Þeir voru báðir sýknaðir af öllum kröfum ákæruvaldsins. Jón Magnússon hæstaréttarlögmaður og verjandi Ragnars er lengst til hægri. Jón Steinar Gunnlaugsson: Lýsi yfir mikilli ánægju „Ég lýsi mikilh ánægju með dóms- niöurstööuna. í dóminum er alfarið sýknað af öllum ákæruefnum í þeim þætti málsins sem er kallaður Haf- skipsmál, það er blekkingar í við- skiptum við Útvegsbankann,“ sagði Jón Steinar Gunnlaugsson, hæsta- réttarlögmaður og verjandi Helga Magnússonar. „Minn sKjólstæðingur er sakfelld- ur fyrir að hafa ekki gætt ýtrustu varfærni í áritun á milliuppgjör og ársreikning. Þetta er algjört smáat- riði og skiptir í sjálfu sér engu máh. Það sem skiptir öllu er að hann og aðrir eru sýknaðir af öllum ákærum tun hegningarlagabrot sem voru höfð uppi.“ Að öðru leyti vil ég segja að með- ferð þessa máls fyrir dómi sé til mik- illar fyrirmyndar og þessum dóm- stóh til sóma. Alveg frá því málsmeð- feröin hófst hefur hún verið hlutíaus af hálfu dómsins. Dómararnir stýrðu þessu með miklum sóma þannig að ég er mjög ánægður með þetta ailí saman,“ sagði Jón Steinar Gunn- laugsson. -sme Davíð Scheving Thorsteinsson: Hver er ábyrgð þeirra sem ollu þessum hörmungum? „Ég varð afskaplega ánægður þeg- ar ég las þetta í DV. Ég var viss um að réttiæti myndi sigra. Það á kannski eftir aö sigra enn ef málinu verður áfrýjað," sagði Davíð Schev- ing Thorsteinsson en hann átti lengi sæti í stjóm Hafskip. „Það er ein spurning. Þeir voru sýknaðir. Hvað verður um þá menn sem ollu þeim hörmungum sem mennimir hafa gengið í gegnum? Hvað verður um þá menn? Hver er þeirra ábyrgð? Ég vona að þú takir þetta ekki til þín. Menn vora fangels- aðir, settir í einangrun. Hver er ábyrgð þeirra sem ollu því? Hvenær verða þeir teknir fyrir?“ sagði Davíð SchevingThorsteinsson. -sme Kristmann Karlsson: Sól í heiði og sól í sinni „Það er sól í heiði og sól í sinni, það er ekki hægt annað,“ sagði Krist- mann Karlsson, fyrrverandi banka- ráðsmaður Útvegsbankans. „Ég leyfði mér alltaf að hafa þá trú á íslensku réttarfari sem nú hefur komið í ljós.“ -gse Jóhann Einvarðsson: Óánægður með sviptingu þinghelgi „Auðvitað varð ég afar ánægður þegar ég frétti af niðurstöðum dóms- ins. Eins og ég sagði í upphafi máls- ins, þegar ég fékk ákæmna, þá treysti ég íslenska dómskerfinu og sú von mín til þess hefur ræst. Fyrir hönd okkar ailra er ég mjög ánægð- ur,“ sagði Jóhánn Einvarðsson, al- þingismaður og fyrrverandi banka- ráðsmaður Útvegsbankans. „Fyrir mig sjálfan get ég sagt að mín staöa er nokkuð sérstök, án þess að ég sé á nokkum hátt að gera lítið úr félögum mínum. Ég var sviptur þinghelgi fyrir löngu og það hjó nærri mér að sjálfsögðu'. Reyndar kom í ljós að það ekki var mjög brýnt aö gera það á þeim tima og hefði vel mátt fresta því. Ég er að sjálfsögðu ánægður með að niðurstöður dóms- ins en ég er alls ekki ánægður með að vera fyrsti og eini maður íslands- sögtmar sem hefur verið sviptur þinghelgi fyrir brot sem komið hefur í ljós að ég var saklaus af eins og ég var alltaf sannfærður um,“ sagöi Jóhann. -gse Helgi Magnússon: Hafskipsmálið var ekkert mál „Ég fagna þessari niðurstöðu. Hún er eins og ég bjóst viö. Það er komin viðurkenning á því sem ég hef sagt í þau fjögur ár sem þetta mál hefur staðið yfir. Ég hef alltaf sagt að Hafskipsmáhð væri ekkert mál. AUavega ekki sakamál eða svikamál. Með þetta höfum við þurft aö druslast í fjögur ár. Ég hef þurft að sætta mig við ænuneið- andi ummæli, atvinnuróg og sví- virðingar. Vömum hefur verið haldiö uppi. Nú er loks komin við- urkenning á því að Hafskipsmálið var aldrei neitt mál,“ sagði Helgi Magnússon sem var endurskoð- andi Hafskips. „Varðandi þessa 100 þúsund króna sekt vil ég segja að það er algjört aukaatriði í þessu s'am- hengi. Þama er um að ræða ákveð- ið formsatriði sem menn era ekki sammála um. Þetta er smáatriði. Þessi niðurstaða er ekki einungis miktíl sigur fyrir mig og aðra sem hafa verið bornir þungum sökum heldur einnig fyrir réttarfarið í landinu. Eftir að máhð komst til meðferðar hjá Sakadómi Reykja- víkur fékk það fyrst réttiáta og æsingalausa meðferð. Eftir að það komst í þann farveg hlaut hið sanna að koma í ljós eins og raun er orðin á og niðurstaðan er í sam- ræmi við þaö. Þetta er tnikUl styrk- leiki fyrir réttarfarið í landinu og það er mikið gleðiefni." - Saksóknari gerði kröfu um að þú yrðir sviptur réttindum sem lög- gjltur endurskoðandi. Þeirri kröfu var hafnað. Ferð þú aftur tU fyrri starfa? „Ég er í góðu starfi og mjög áhugaveröu. Ég hef ekki gert nein- ar áætianir um annað en að vera áfram í þvi starfi sem ég gegni nú,“ sagði Helgi Magnússon. -sme

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.