Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1990, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1990, Síða 8
8 FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 1990. Útlönd Samkvæmt nýrrl skoðanakönnun viil meirihiuti ibúa kanadíska fylkisins I ullveldi. Stmamynd Reuter Rúmur helmingur íbúa Quebec vill fullveldi fyrir fylkiö að þvi er fram_ kom í nýrri skoðanakönnun. Sextíu prósent íbúa þessa eina frönskumæl-" andi fylkis Kanada vill fullveidi, tuttugu prósent eru því andvíg en hinir óákveðnir. Þessar niðurstöður eru svipaöar niöurstööum annarra kann- ana um afstöðu ibúanna til stöðu fylkisins innan Kanada. Kónnunin var gerö aðeins örfaum dögum eftir að ekki náðist samkomu- lag í öllum fylkjum landsins um aö staöfesta Meech Lake sáttmálann en þar var kveðiö á um sérstööu Quebec innan ríkjasambands Kanada. Bush Bandarikjaforseti, lengst til vinstri, ásamt Manfred Wörner, framkvæmdastjóra NATO, og Margaret Thatc- her, breska forsætisráðherranum, i London þar sem ieiðtogar aðildarríkja NATO funda. Símamynd Reuter Leiðtogar NATO funda: Vaxandi spenna í Austur-Þýskalandi Vamarmálaráðherra Austur-Þýskalands sagði í gær aö vaxandi spennu væri farið að gæta í samskiptum sovéskra hermanna í landinu og Austur- Þjóðverja. Sovésku hermennirnir haía aldrei staðið nærri hjarta Austur- Þjóövetja en nú, í kjölfar hruns kommúnista í landinu, láta Austur- Þjóðverjar í æ meira mæli í ljósi óánægju sína. Að sögn ráðherrans er vitað um að minnsta kosti eitt ofbeldisverk í tengslum viö veru sovésku hermannanna í landinu en það var þegar Austur-Þjóðverjar hentu flöskum og grjóti að hermönnum. Hryðjuverkamaður framseidur Susan Albrecht, félagi í hryðju- verkasamtökunum Rauðu her- deildinni, var í gær framseld til Vestur-Þýskalands í kjöifar þess aö hún ákvaö að áfrýja ekki handtöku sinni að þvi er ríkissaksóknara- skrifstofa Austur-Þýskalands skýrði frá í gær. Talsmaður sak- sóknara sagöi að Albrecht heföi þegar verið flutt vestur. Hún var eftirlýst iyrir aðild að morði á vest- ur-þýskum bankamanni árið 1977. Albrecht var handtekin í Aust- ur-Þýskalandi í síðasta mánuöi eft- ir aö hafa dvalist þar árum saman með, að því að talið er, vitneskju og hjálp fyrrum valdhafa landsins, komraúnistanna. Auk hennar voru átta félagar í Rauðu herdeildinni handteknir. AUir voru eftirlýstir í Susan Albrecht, félagi í Raudu Vestur-Þýskalandi fyrir aðild aö herdeildinnl, var framseld til Vest- morðum og hryöjuverkastarfsemi. ur-Þýskaiands. Bjóða Varsjárbanda- laginu friðarsáttmála Aðildarríki NATO, Atlantshafs- bandalagsins, samþykktu í morgun friðaryfirlýsingu til hinna sjö ríkja Varsjárbandalagsins sem og boö til Gorbatsjvos Sovétforseta að heim- sækja höfuðstöðvar NATO í Brussel. Þetta er merki hins vestræna hern- aðarbandalags um að í augum aðild- arríkjanna sé nú kalda stríðinu formlega lokið. Breskir embættismenn sögðu á fundi með fréttamönnum í London, þar sem leiðtogar aðildarríkja NATO sitja nú fund aö utanríkisráöherrar hinna sextán aðildarríkja Atlants- hafsbandalagsins heföu komið sér saman um yfirlýsingu sem næsta víst er talið að leiðtogar ríkjanna fall- ist á síðar í dag. Þar er þvi lýst yfir að bandalögin séu „ekki lengur óvin- ir“. Þá komu leiðtogarnir sér einnig saman um leiðir til aö setja þak á her sameinaðs Þýskalands en það hefur verið undirrótin að andstöðu Sovétmanna við hugsanlega aðiid sameinaðs Þýskalands að NATO. Samþykktin gerir ráð fyrir að í kjöl- far yfirstandandi viðræöna í Vín, þar sem stefnt er að fækkun heföbundins herafla, verði frekari viðræður þar sem takmark yrði sett á herafla sam- einaðs Þýskalands sem og annarra ríkja. Fundur leiðtoganna í London nú er haldinn til að endurskoða stefnu og markmið NATO í ljósi breyttra aðstæðna í Evrópu í kjölfar falls kommúnismans. Þessi fundur er mikilvægasti fundur bandalagsins frá stofnun þess áriö 1949. Bandalag- iö hefur verið að leita leiða til að breyta stefnu þess, draga úr hemað- arlegu mikilvægi NATO en auka hið pólitíska. Markmið bandalagsins nú er ein- falt, að sögn heimildarmanna. Það er að fullvissa Sovétmenn um að kalda stríðinu sé lokið, þeim stafi engin hætta af bandalaginu. Þá von- ast þeir einnig til að sýna almenningi á Vesturlöndum að NATO gegni enn mikilvægu hlutverki á alþjóðavett- vangi. Á fundinum í gær lagði Bush Bandaríkjaforseti fram tillögur sem munu verða lagðar til grundvallar lokayfirlýsingu leiðtoganna. í þeim er gert ráð fyrir breytingum á vam- arstefnu bandalagsins og sagt að kjamorkuvopnum verði ekki beitt nema í síöustu lög. Embættismenn innan NATO sögðu aö nær engin andstaða væri meðal aöildarríkjanna við tillögum forsetans. Embættismenn innan NATO segja að í lokayfirlýsingu fundarins sé gert ráð fyrir að RÖSE, ráðstefna um ör- yggi og samvinnu í Evrópu, verði styrkt á þann veg að á vegum þess starfi fastanefnd, haldnir verða reglulegir leiðtogafundir sem og ráð- herrafundir allra þrjátíu og fimm aðildarríkjanna. Farþegaf lugvélar saknad Panamískrar farþegaflugvéiar með tíu manns innanborðs er saknað. Svo kann að vera að vélinni hafi verið rænt að sögn panamísks embætt- ismanns. Vélin var í innanlandsflugi á leið frá borginni Colon til Panama- borgar. Einn farþeganna er bandarískur en flestir em panamískir. Engin merki em þó um að vélinni hafl verið rænt að sögn fyrrnefnds embættismanns. Veður var gott á flugleið vélarinnar og flugstjórinn til- kynnti ekki um bilanir. Moi herðir tökin í Kenýa Daniel arap Moi, forseti Kenýa. Damel arap Moi, forseti Kenýa, heröir nú mjög tökin og reynir að tryggja eins-flokks stjóm sína í sæti þvert á þá lýöræðisbylgju sem geng- iö hefur yfir heiminn síðustu vikur og mánuði. Eftir heitar umræður um framtíð eins-flokks kerftsins í Kenýa voru tveir helstu andstæöingar for- setans og fyrrum ráðherrar handteknir í gær. Ekki er ljóst hvort mennirn- ír, Kenneth Matíba og Charles Rubia, hafa veriö ákæröir né hvar þeir eru í haldl Þeir hafa veriö framarlega í flokki þeirra sem vflja koma á fiöl- flokkakerfi í landinu á ný. Vaxandi spenna í Júgóslavíu Aö minnsta kosti fimmtíu manns, flestir Albanir, hafa látið lifið í blóðugum átökum og baráttu fyrir auknu frelsi siðustu átján mánuði. Simamynd Reuter Yfirvöld í Serbíu, stærsta og fjöl- mennasta lýðveldi Júgóslavíu, leystu upp þing og stjóm sjálfstjórnarhér- aösins Kosovo í gær. Þessar aðgerðir komu í kjölfar sjálfstæöisyfirlýsing- ar héraösins frá því á mánudag. Þá réðust vopnaðir serbneskir hermenn inn í byggingar sjónvarpsstöðvar héraðsins í gær. Fréttamenn neituðu að starfa undir slíkum kringumstæð- um og stöðvuðust útsendingar. Þá réðst lögregla einnig inn í höfuð- stöðvar dagblaös Albana í Kosovo og óljóst er hvort blaðið kemur út í dag. Lögregla stendur nú vörð við allar opinberar byggingar í héraðinu og hefur sett vegatálma við alla vegi til höfuðborgarinnar, Pristinu. Stjóm- málamenn í Kosovo, sem og blaða- menn, hafa hvatt íbúa héraðsins til að sýna stillingu og vonast þannig til að koma í veg fyrir að átök hefjist. Ríkjasamband Júgóslavíu stendur nú æ hallari fæti í kjölfar sjálfstæðis- yfirlýsingarinnar sem og yfirlýsinga Slóveníu fyrr í vikunni um fúllt full- veldi. Þessar yfirlýsingar eru áfall fyrir stjómina í Belgrad og einingu landsins að mati fréttaskýrenda. Yfirvöld í Serbíu, fjölmennasta lýð- veldis Júgóslavíu, hafa harðneitað aö faflast á eða innleiða nokkrar þær breytingar sem kunna að hafa í fór með sér aukna sjálfstjóm lýðvelda og héraða Júgóslavíu og hafa enn ekki heimilað frjálsar kosningar. Þá hafa þau hert baráttu sína fyrir því að íbúar Kosovo, sem flestir rekja sínar ættir til Albaníu, gefi upp sjálf- stjóm sína. Ottast er að aðgerðir yfirvalda í Serbíu kunni að verða kveikjan að enn frekari róstum í héraðinu þar sem að minnsta kosti fimmtíu manns, flestir Aibanir, hafa látið liíið í blóðugum átökum og baráttu fyrir auknu frelsi síðustu átján mánuði. Slóvenía, eitt vestrænasta lýðveldi Júgóslavíu, vill einnig aukin völd ráðamanna þar. Slóvenska þingið samþykkti yfirlýsingu um fullveldi en gekk ekki svo langt að lýsa yfir sjálfstæði. Spurningin þar er nú hvort lýðveldið vilji einungis breyta Júgóslavíu eða segja skiflð við ríkja- sambandið. Að sögn eins fréttamanns í lýðveld- inu vonast Slóvenar til að yfirlýsing þingsins gefi þeim meira svigrúm til samningaviöræðna við stjórnvöld í Belgrad um stöðu lýðveldisins innan ríkjasambands Júgóslavíu þegar fram líða stundir. Slóvenskir ráða- menn segja að samþykkt þingsins þýði ekki að Slóvenar vilji standa á eigin fótum. Vestrænir stjómarer- indrekar telja að yflrlýsingunni sé ætlað að vera prófraun á hvernig stjórnvöld í Belgrad, og ekki síst her- inn, bregðist við hræringum í sjáif- stæðisátt. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.