Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1990, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1990, Blaðsíða 9
FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 1990. 9 Utlönd Erlend sendlráð í Albaníu: Þrýsta á albönsk stjórnvöld Frá Tirana í gær þar sem hundruð pólitiskra flóttamanna hafast við i erlend- um sendiráðurn. Símamynd Reuter Ríkisstjómir margra Evrópuþjóöa hafa þrýst á albönsk stjómvöld um aö leyfa hundmðum póhtískra flótta- manna aö flytja úr landi. En flótta- menn streyma enn til erlendra sendi- ráöa í höfuðborginni, Tirana. Evrópubandalagiö hefur einnig hvatt stjómvöld Albaníu til þess sama og segir í yfirlýsingu aö al- mennum mannréttindum sé ekki fylgt í landinu. Vestur-þýsk stjórnvöld hafa til- kynnt aö um 200 flóttamenn hafi í gær komið í þýska sendiráðið í Alba- níu. Frá Frakklandi berast fregnir um að hundraö manns hafi komið í franska sendiráðið og hundmð streyma til sendiráða ítahu og Tékkóslóvakíu. Póhtískir flóttamenn hafa einnig fengið inni í gríska sendi- ráðinu. Vestur-þjóðverjar sendu í morgun í annað sinn farþegaþotu th Albaníu til að flytja flóttamennina til Bonn en véhn fékk ekki lendingarleyfi. Albönsk stjómvöld hafa reynt að stöðva flóttamenn á leið í erlend gendiráð og hafa borist fregnir af því að til blóðugra átaka hafi komið af því tilefni. Ekki hefur þó verið stað- fest að nokkur hafi látist í átökum við öryggissveitir. í-frétt í útvarpi Tírana var haft eft- ir starfsmanni albanska utanríkis- ráöuneytisins að flóttamönnum í sendiráðunum yrðu fengin ný vega- bréf þegar opinber fyrirskipun kæmi þar um. Reuter Verkföll í Nicaragua Stuöningsmenn sandínista taka þátt i mótmælum í Managua f gær. Stmamynd Reuter Verkaiýðsfélög hhðhoh sandínistum í Nicaragua hafa staðið fyrir íjög- urra daga verkfalh í landinu sem leiddi til þess aö í gær vora bankar og flestar opinberar stoihanir lokaðar. Mikhl þrýstingur er á Violetu Chamorro, forseta landsins, að hefja samníngaviðræður. Samkvæmt heimhdum verkalýösfélaganna eru um 65.000 manns i verkfalli og er með því verið að mótmæla stefnu forsetans í ýmsum málum. Einkum er mótraælt reglulegum gengisfellingum, kraf- ist minnst 12.000 íslenskra króna i laun fyrir verkamann á mánuði og hvatt er th þess að jörðum, sem sandínistar tóku eignamámi er þeir vora við stjóm, verði ekki skilaö. Borguð laun en vann ekkert Mariu Agache, systur hins alræmda Nicolae Ceausescu fyrrum forseta Rúmeníu, voru greidd laun í fjölda ára, sem yfirmanni í rafmagnsvörufyr- irtæki án þess að mæta nokkum tíma th starfa eða sinna þvi á annan hátt. Maria hefur veriö sökuð um að hafa misnotað rikisvaldiö og notað að- stöðu sina th að komast yfir rafmagnsvörar fyrirtækisins sem hún seldi síðan. Talið er að hún hafi tekiö sér sjónvarpstæki, frystiskápa og fleira og selt fyrir andvirði um tveggja mhljóna íslenskra króna. Líberíu Hermenn lögðu í rúst verslanir í Monróvíu, höfuðborg Líberíu, í gær. Hermenn skutu sér leið inn í verslanir, vörahús og veitingahús snemma í gærmorgun í kjölfar þess að yfirmaður hers landsins flýði land. Enn era engin merki þess að Samuel Doe, forseti Líberíu, hygg- ist láta af völdum. Doe, sem hefur verið við völd í landinu frá árinu 1980, sagði fyrr í vikunni að hann myndi segja af sér ef ættflokki hans yrði þyrmt. En hann hefur ekki sýnt nein merki þess að hann æth að standa við þau orð og hefur neit- að aðstoð Bandaríkjanna th að flýja land. Harðir bardagar mhh stjómar- hersins og skærahða, undir stjóm Charles Taylors, hafa geisað í landinu og fara þeir harðnandi. í úthverfum höfuðborgarinnar vora hörð átök, fjórða daginn í röð. Reuter Hermenn Sovéskir fahhlífarhermenn voru fyrr í vikunni sendir th Eistlands samkvæmt fyrirskipunum um að stöðva fund fyrram yfirmanna í flug- her Hitlers eins og yfirmenn hersins orðuðu það. Þetta kemur fram í yfir- lýsingum frá stjómvöldum Eistlands í gær. Yfirvöldum í bænum Tori, þangað sem hermennimir voru sendir, var ekki gefin nein viðvörun um komu þeirra. Yfirvöld Eistlands munu halda fund um málið og verður að öhum líkindum mótmælum vegna komu hermanna komið áleiðis. En stjóm- völd Eistlands og aðrir Eistlendingar era mjög óánægðir með að hermenn- irnir skuh hafa verið sendir þangað fyrirvaralaust þegar friður ríkir í landinu. Litið er á þessar aðgerðir sem ógn- un og að verið sé að undirstrika hernaðarmáttinn og völdin sem hon- um fylgja. Eistland sendir til mótmæla Eistland hefur lýst yfir vilja til sjálfstæðis sem hefur leitt til átaka við stjórn- ina í Kreml. Simamynd Reuter Eistland, líkt og nágrannaríki þess, stæði. En sú áhersla hefur leitt til hefurlagtmiklaáhersluáaðnásjálf- átakaviðKremlsijórnina. Reuter Harðnandi átök Charles Taylor, leiðtogi skæruliða i Liberíu. Simamynd Reuter Krefjast afsagnar Búlgaríuforseta Fulltrúar eins forystuflokks rik- issijórnar Búlgaríu komu saman í gær ásamt mörg hundrað öðrum mótmælendum og kröfðust þess að Petar Mladenov, forseti landsins, segði af sér. Helstu ástæðu þess segja þeir vera þá staðreynd að for- setinn hafi kahaö til skriðdreka og notað þá th að kveða niður mót- mæh gegn ríkisstjórninni í des- ember síðastliðnum. Til eru myndbandsupptökur af því þegar forsetinn kahaði á skriö- drekasveitir á vettvang cr andófs- menn mótmæltu þáverandi eins flokks stjórnarfari í landinu. Þegar myndbandsupptökumar vora gerðar opinberar fyrir þremur vik- um fullyrti forsetinn aö þær væru falsaðar. En hann stóð ekki við þær fuhyrðingar sínar í yfirheyrsium í Peter Mladenov, forseti Búlgariu. útvarpi og sjónvarpi síðasthðinn Teikning Lurje. miðvikudag. í gær safnaðist saman flölmenni fyrir utan skrifstofu forset- ans og mótmælti. Fjöldasamkomur bannaðar Fjöldasamkomur voru bannaöar í Kashmírhéraði á Norður-Indlandi i gær. Þá var lögreglunni veitt leyfi th aö nota skotvopn sín. Þessar sam- þykktir eru liður í nýjum aðgerðum th að kveða niður uppreisnir aðskiln- aðarsinna. Með þessum nýju lögum getur lögreglan skotið niður hvern þann semjekur þátt í samkomum eða aögerðum sem leitt gætu th ófrið- ar eftir aðv viðkomandi hefur fengið viðvörun. Síðasta hálfa áriö hafa fjöldasamkomur verið tíðar í Kashmir þar sem ófriðarseggir hafa verið í forsvari og hvatt th að Kashmir lýsi yfir sjálf- stæði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.