Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1990, Qupperneq 24

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1990, Qupperneq 24
32 FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 1990. Smáauglýsingar Mazda 929, árg. '82, til sölu, tveggja dyra, hardtop, sjálfskiptur, cruise- control, vökvastýri, sóllúga, rafmagn í öllu. Á sama stað er til sölu MMC L200 árg. ’81, 4x4, upphækkaður, stór dekk, krómfelgur, rafmagnsspil. Uppl. í síma 75242. 70 Camaro RS 454. Einstakur á Is- landi, óhemjumikið af sérstökum bún- aði, ekinn aðeins 36 þús. mílur. Til sýnis og sölu í kvöld kl. 18-20 á Skemmuvegi 22, Kópavogi, sími 91-73287. Mercedes Benz 280 GE, árg. ’85, tií sölu, ekinn 100 þús. km, skipti á skuldabréfi. Uppl. í síma 96-24443 eða 96-24646. Til sölu: Plymouth Reliant, árg. ’83, ekinn 65 þús. míl., beinskiptur, vökva- stýri, öll skipti á ódýrari ath. Uppl. í síma 53931 e. kl. 17. Mercedes Benz 230E, árg. ’86, til sölu, ekinn 44 þús. km, sjálfskiptur, vökva- stýri, topplúga, álfelgur, leðurinnrétt- ing. Uppl. í síma 74182. ■ Ymislegt ffúsfreyjxm. ? Atvinnumal kvenna Jurtafæöí T3uörvkk Ferð30janu$ta bænrto Fosfot i þvottaefnl Sumarblað Húsfreyjunnar er komið út með uppskriftum af jurtafæði, grein- um um þvottaefni, Ferðaþjónustu bænda, auk margs annars. Á handa- vinnusíðunum eru mn.a. stuttir og síð- ir peysujakkar í stærðum 38 og 42. Sniðörk fylgir. Áskriftargjald fyrir árið 1990 er kr. 1200 og fá nýirkaup- endur 2 blöð frá því í fyrra í kaup- bæti. Áskriftarsími er 17044. Tímaritið Húsffeyjan. Torfærukeppni JR verður haldin í Jós- efsdal lau. 14/7 kl. 13. Keppt verður í tveimur flokkum, götubílaflokki og flokki sérútbúinna bíla. Skráning keppenda fer fram í s. 689945, Addi, og 672407 eða 673771, Árni. Skráningu keppenda lýkur lau. 7/7 kl. 22. Fréttir Glæsilegir gæðingar og háar eink- unnir setja svip sinn á landsmótið á Vindheimamelum. í A-flokkskeppn- inni setti Svartur frá Högnastöðum (Fákur), sem Sigurbjörn Bárðarson sýndi heimsmet er hann fékk 9,27 í einkunn. Muni frá Ketilsstöðum (Hörður), sem Trausti Þór Guð- mundsson sýndi, hafði skömmu áður slegið heimsmetsmetið og þá um leið íslandsmet og landsmótsmet er hann fékk 9,26 í einkunn. Hæsta einkunn til þessa var 9,24, en þá einkunn fékk Núpur frá Kirkjubæ á landsmótinu á Vindheimamelum 1974. Sýningarnar á Svarti og Muna voru einstaklega glæsilegar. Svartur var með jafnar og háar einkunnir. Muni fékk 10,0 hjá tveimur dómur- um fyrir tölt og 10,0 hjá einum dóm- ara fyrir fegurð í reið. Einkunnir annarra A-flokks gæð- inga voru einnig háar. Til dæmis fékk tíundi hæst dæmdi gæðingur- inn 8,64 í einkunn, en sú einkunn nægði til að komast í úrslitakeppn- ina. Efstu hestamir voru: Svartur og Muni en í þriðja sæti var Gímir (Fák- ur), sem Trausti Þór Guðmundsson sýndi, með 8,99. Fengur (Sörli), sem Sigurbjöm Bárðarson sýndi, var fjórði með 8,89. Þorri (Funi), sem Jóhann G. Jóhannesson sýndi, var fimmti með 8,74. Hugmynd (Frey- faxi), sem Bergur Jónsson sýndi, var sjötta með 8,70. Sörli (Faxi), sem Olil Amble sýndi, var sjöundi með 8,70. Mímir (Sleipnir), sem Einar Öder Magnússon sýndi, var áttundi með 8,68. Fjölvi (Andvari), sem Hinrik Bragason sýndi var níundi með 8,64. Dagfari (Fákur), sem Aðalsteinn Að- alsteinsson sýndi var tíundi með 8,64 í einkunn. Edda Rún fékk 9,04 í unglinga- keppninni Unghngamir fengu einnig háar einkunnir fyrir gæðinga sína. Edda Rún Ragnarsdóttir (Fákur) var efst á Sörla með 9,04 í einkunn. Reynir Aðalsteinsson (Dreyri) var annar á Dreyra með 8,72. Gísli Geir Gylfason (Fákur) var þriðji á Ófeigi með 8,71. Hesturinn Blettur er glæsilegur enda afkvæmi Gáska frá Hofsstöðum. Strákarnir Stefán Hilmir Stefánsson og Þorkell Bjarnason yngri suðuðu i Þorsteini Vigfussyni, hestamanni frá Húsatóftum á Skeiðum, þar til hann leyfði þeim að fara á bak. Bjarni Bjarnason stendur stendur hjá og ræðir við Blett. DV-mynd EJ Daníel Jónsson (Fákur) var fjórði á Geisla með 8,68. Gríma Sóley Gríms- dóttir (Gustur) var flmmta á Sikli með 8,68. Theodóra Mathiesen (Hörð- ur) var sjötta á Faxa með 8,67. Sig- urður Vignir Matthíasson (Fákur) var sjöundi á Bróður með 8,59. Edda Sólveig Gísladóttir (Fákur) var átt- unda á Janúar með 8,57. íris Svein- björnsdóttir (Sleipnir) var níunda á Þokka með 8,50 og Elín Rós Sveins- dóttir (Fákur) var tíunda á Rispu með 8,48. Kjarni efstur í töltkeppninni Tuttugu og fimm knapar voru skráðir í töltkeppni úrvalshesta. Ekki mættu allir knaparnir til leiks enda margir hestanna ofarlega í gæð- ingakeppninni og því vissara að fara varlega svo ekki henti slys. Sævar Haraldsson var efstur á Kjama, Rúna Einarsdóttir var önnur á Dimmu, Unn Kroghen þriðja á Kraka, Hinrik Bragason fjórði á Darra og Örn Karlsson fimmti á Golu. Fjórir þessara hesta eru í úr- slitum í B-flokki, en úrslit í tölt- keppninni fara fram á laugardags- kvöld. Toppur ekki sýndur vegna greddu Einn þeirra hesta sem var spáð miklum frama á landsmótinu var Toppur frá Eyjólfsstöðum en honum var spáð efsta sætinu í flokki fimm vetra stóðhesta. Toppur fékk geysi- háa einkunn, 8,46, á sýningu stóð- hestastöðvarinnar í Gunnarsholti í vor. Er Toppur var sýndur á landsmót- inu gekk hvorki né rak. Hann var eirðarlaus og lét ekki að stjórn. Að lokum var hann tekinn af sýningar- skrá og munu dómar á honum ekki gilda og hann ekki keppa til verð- launa. Skýringin á eirðarleysi Topps mun vera líffræðileg. Vegna of mik-. illar framleiðslu hormóna ruglaðist hann í ríminu og má því segja að greddan hafi orðið honum að falli. -EJ Landsmót hestamanna: Svartur setti heims- met í A-flokknum Dómur í Útvegsbankaþættinum: Björgunaraðgerðir í þágu Útvegsbankans - segir um þær ákvarðanir sem bankastjóramir voru ákærðir fyrir í dómi Sakadóms í Útvegsþætti Hafskipsmálsins segir að þær að- gerðir sem bankastjóramir flórir voru ákærðir fyrir hafi verið björg- unaraðgerðir sem voru ekki síður í þágu Utvegsbankans en Hafskips. Fyrri fyrirgreiðsla bankans til fyrir- tækisins hafi verið að mestu leyti veitt af annarri bankastjórn. Hinir ákærðu hafi því á vissan hátt staðið frammi fyrir gerðum hlut. Áhætta hafi verið tekin með aukinni fyrir- greiðslu en hún nægði ekki og leiddi til meira taps fyrir bankann. Dómur- inn telur hins vegar að þetta tap verði ekki skrifað á reikning bankastjóm- arinnar sem stórfelld og ítrekuö van- ræksla eða hirðuleysi. Bankastjórarnir voru sýknaðir af öllum ákæruatriðum, eins banka- ráðsmennirnir fimm og endurskoð- andi Útvegsbankans. Þeim Halldóri Guðbjamasyni, Ólafi Helgasyni og Lárasi Jónssyni bankastjórum og Axel Kristjánssyni aðstoöarbanka- stjóra var gefið að sök að hafa sýnt af sér stórfellda og ítrekaða van- rækslu og hirðuleysi í viöskiptum bankans við Hafskip. í ákærunni er þessi vanræksla talin hafa leitt til 422 milljóna tjóns fyrir bankann. Sakadómur sýknaði þá af öllum ákæmatriðum. Mest er flallað um þátt Axels Kristjánssonar aðstoðar- bankastjóra í dómnum enda var hann tengiliður Útvegsbankans og Hafskips. Dómaramir segja eina ákvörðun Axels vafasama og aðra óvarlega en að öðru leyti er fátt eitt fundiö að störfum hans og sumum ákvörðun hans hrósað þó ákæm- valdið hafi talið ástæöu til að ákæra hann fyrir þessar sömu ákvarðanir. Bankaráðsmönnunum, Valdimar Indriðasyni, Arnbirni Kristinssyni, Garðari Sigurðssyni, Jóhanni Ein- varðssyni og Kristmanni Karlssyni var gefið af sök að hafa hafa sýnt af sér saknæma vanrækslu við yfir- stjórn Útvegsbankans. Dómararnir taka fram að hafa beri í huga það bankakerfi sem var við lýði hér á landi á þessum árum og þau lögmál er þar giltu. Þeir telja að ekki verði tahð að bankaráðið hafi vanrækt að flalla um viðskipti bank- ans við Hafskip miðað við lagaskyld- ur þess og starfshætti. Bankaráöið hafi ekki haft tilefni til að ætla að þessi viðskipti væra áhættusamari en þau höfðu alla tíð verið. Inga R. Jóhannssyni, endurskoðanda Út- vegsbankans, var gefiö að sök að hafa látið undir höfuð leggjast að rækja eftirlitsskyldu sína en dómar- amir kvarta undan því að þess sé að engu getið í hvaöa atriðum utan einu semhannvarsýknaðuraf. -gse

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.