Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1990, Qupperneq 27
FÖSTUDAGUR 6. JÚLÍ 1990.
35
Lífsstm
KARTOFLUR
to
3
C
'O
0Q
129 89.50
SVEPPIR
780 460
Allt grænmeti hefur hækkað í verði frá því í síðustu viku. Nemur hækkunin allt frá 4,9% upp í 56,7%.
DV kannar grænmetismarkaðinn:
Grænmeti
hækkar í verði
- 57% hækkun á tómötum
Allt það grænmeti, sem DV kannar
reglulega, tómatar, gúrkur, sveppir,
græn vínber, græn paprika, kartöfl-
ur, blómkál, hvítkál og gulrætur,
hefur hækkað mikið frá því í síðustu
viku. Að vanda var verð fimm versl-
ana kannað. Þær verslanir, sem nú
voru athugaðar, eru Bónus í Faxa-
feni, Fjarðarkaup í Hafnarfirði, Hag-
kaup í Skeifunni, Mikhgarður í vest-
urbænum og Matvörubúðin, Gríms-
bæ, plúsmarkaður.
í síðustu viku höfðu tómatar lækk-
að um 42% í verði en sú verðlækkun
stóð stutt við. Núna er meðalverð
þeirra 140,4 krónur en var í fyrri viku
89,60 krónur. Hækkunin er gífurleg
eða um 57%.
Bónus er að vanda með lægsta kíló-
verðið á tómötunum eða 80 krónur.
Matvörubúðin, Grímsbæ, plúsmark-
aður er með hæsta verðið, 229 krón-
ur. Munurinn á hæsta og lægsta
verði á tómötunum er því rosalegur
eða 186,3%. í Grímsbæ er hægt að
kaupa tómata í kílópokum og er kfló-
verðið þá 195 krónur. Fjarðarkaup
eru með næstlægsta verðið á tómöt-
unum, 97 krónur. Síðan koma Hag-
kaup og Mikligarður sem selja tóm-
atana á 148 krónur kílóið.
Gúrkur hafa hækkað um 10%.
Meðalverð á kflói af gúrkum var
214,8 krónur en er nú komið í 226,8
krónur. Lægst er verðið í Bónus en
hæst í Grímsbæ og munar 109% á
verði í þessum tveimur verslunum.
Gúrkumar eru langlægstar í Bónus
því næstlægsta verðið var 219 krónur
í Hagkaupi, 225 krónur í Fjarðar-
kaupum og 248 krónur í Miklagarði.
Meðalverð á sveppum hefur hækk-
að úr 539,4 krónum í 565,80 krónur.
Bónus selur sveppina í 250 gramma
öskjum á 115 krónur. Kílóverðið í
Bónus er því 460 krónur. í Mikla-
garði kostar kflóið 525 krónur, í Hag-
kaupi 529 krónur, í Fjarðarkaupum
kosta sveppimir 535 krónur og í
Grímsbæ eru seldir erlendir sveppir
á 780 krónur.
Græn vínber fást hvorki í Bónus
né í Grímsbæ. í Miklagaröi eru græn
og blá vínber á tilboðsverði og þar
eru grænu vínberin ódýrust, 185
krónur kflóið. Síðan kemur Hagkaup
með vínber á 289 krónur og dýrust
eru grænu vínberin í Fjarðarkaup-
um, 308 krónur kflóið. Meðalkflóverð
grænu vínbeijanna er 260 krónur.
Græna paprikan hefur hækkað um
30% í verði frá því í síðustu viku.
Meðalverðið er 333,75 krónur kílóið
en var 257,40 krónur. Gífurlegur
verðmunur er á hæsta og lægsta
verði papriku eða 101,6%. Þessi mikh
munur virðist vera tilkominn vegna
þess aö Bónus selur paprikumar á
mun lægra verði en allir aðrir. Þar
kostar kílóið af fallegum paprikum
191 krónu. Næst kemur svo Hagkaup
með kílóið á 379 krónur, Fjarðarkaup
á 380 krónur og Mikligarður með
papriku á 385 krónur kílóið. Grænar
paprikur voru ekki til í Matvömbúð-
inni, Grímsbæ.
Um 12% hækkun hefur orðið á
kartöflum frá fyrri viku. Meðalverð-
ið er núna 108,90 krónur fyrir kílóið
en var 97,20 krónur. Bónus er með
ódýrastu kartöflurnar. Þær era
þýskar og kosta 89,50 krónur kílóið.
Fjarðarkaup eru hins vegar með dýr-
ustu kartöflurnar sem eru búlgarsk-
ar og kosta 128,50 krónur kflóið. Hag-
kaup er með þýskar kartöflur á 99,50
krónur kílóið og Mikilgarður selur
franskar kartöflur á sama verði. í
Matvörabúðinni, Grímsbæ, plús-
markaði kostar kílóið af kartöflun-
um 127 krónur.
-BÓl
Sértilboð og afsláttur:
Ávaxtasafi, kiwi og kol
Appelsínur verða á tilboðsverði í
Miklagarði vestur í bæ um helgina
og munu þá kosta 109 krónur kflóið.
Þar er einnig hægt að fá ódýrar gular
melónur á 185 krónur kflóið. 1 'A lítri
af RC Cola er á 98 krónur og 1 'A lítri
af Sinalco kostar 99 krónur. 700 ml
af Spar uppþvottalegi með sítrónu-
ilmi kosta 69 krónur og grihkolin era
á tilboðsverði. 2,3 kflóa pokar kosta
199 krónur og pokar með 4,5 kflóum
kosta 389 krónur.
í Hagkaupi, Skeifunni, era íjögur
vikutilboð í gangi. Hrís, Malta og
Óðalsbitar í 400 gramma poka kosta
269 krónur og 'A dós af Malee mangó-
sneiðum (425 grömm) kostar 49 krón-
ur. 400 gramma Dahli sítrónukaka
kostar 129 krónur og Palmohve rak-
gel í 200 ml dunk kostar 199 krónur.
Af öðrum tilboðum má nefna krydd-
aðan grillborgara á 44 krónur stykk-
ið, morgunveröarkornið Ota Havre
Fras í 375 gramma pökkum á 159
krónur og Pfanner eplasafa á 85
krónur lítrann.
Á tilboðstorgi Fjarðarkaupa er ný-
komið sérlega ódýrt Honig spaghetti
í 500 gramma pökkum á 59 krónur.
Þar er einnig mikið úrval af kexi á
tilboðsverði. Tuc kex með ýmsum
bragðtegundum, svo sem með salti
eða úr heilhveiti, með beikon-, pitsu-
eða karríbragði, kostar 39 krónur
pakkinn. Le Prince kex, 200 grömm
með vanfllu- eða súkkulaðikremi
kostar 77 krónur. í Fjarðarkaupum
er einnig hægt aö gera góð kaup í
ávaxtasafa. Þar kostar epla- og app-
elsínusafi frá Sól 91 krónu htrinn og
Trópíkal nektar, einnig frá Sól, kost-
ar 93 krónur htrinn.
í Bónus í Faxafeni má kaupa 2 htra
af Fanta á 95 krónur og Nektar-safa
frá Sól á miklum afslætti eða á 59
krónur því að 5% vantar upp é lítr-
ann í fernunum. Bónus er einnig með
nýjung á boðstólum sem er A kók-
lítri í dós á 54 krónur. Kiwi er sér-
staklega ódýrt í Bónus og kostar þar
18 krónur stykkið eða því sem næst
189 krónur kflóið. Kelloggs Korn
Flakes í 750 gramma pakka kostar
243 krónur. Grihvörurnar eru mjög
ódýrar í Bónus. 4,5 kflóa poki af Roy-
al Oak kolum kostar 269 krónur og
1 lítri af uppkveikivökva frá Ohs
kostar 138 krónur.
-BÓl
Vínber
Verð í krónum
Nóv. D»*. Jan. Fab.MertAprHtleí Júnf Júlí
C-