Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1990, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1990, Blaðsíða 2
2 MÁNUDAGUR 9. JÚLÍ 1990. Fréttir Norðurlandamótinu 1 bridge 1 Færeyjum lokið: íslenska kvennat veitin varð Norðuriandameistari - landslið karla lenti í 4. sæti í opnum flokki tslensku Norðurlandameistararnir í kvennaflokki við komuna til Reykjavíkur í gær. Frá vinstri: Sigmundur Stefánsson fyrirliði, Hjördís Eyþórsdóttir, Anna Þóra Jónsdóttir, Esther Jakobsdóttir, Valgerður Kristjóns- dóttir og Helgi Jóhannsson, forseti Bridgesambands íslands. DV-mynd S íslenska kvennasveitin kom mjög á óvart er hún náöi að vinna næsta öruggan sigur á Norður- landamótinu í bridge sem haldið var í Færeyjum. Sigurinn er eink- um athyghsverður fyrir þær sakir að Norðurlandaþjóðimar hafa jafnan verið taldar með sterkari þjóðum heims í bridge. íslenska sveitin í opna flokknum náði ekki að veija NM-titil sinn frá því 1988 í Reykjavík en sveitin endaði nú í fjórða sæti af 6 þátttökuþjóðum. Síðasta umferðin á Norðurlanda- mótinu var spiluð síðasthðinn laugardag og áttu íslendingar leik við Færeyinga í síðustu umferð- inni. Landshðið í opna flokknum átti ekki möguleika á sigri en gat með góðum sigri gegn Færeyingum náð þriðja eða öðru sæti. Sigur vannst, 20-10, en hann nægði ekki til að komast upp fyrir dönsku sveitina sem endaði í þriðja sæti. íslenska kvennasveitin stóð öhu betur fyrir síðustu umferðina. Sveitin hafði 7 stiga forystu og þurfti aðeins 18-12 sigur gegn Fær- eyingmn til að guhtryggja Norður- landameistaratitílinn. Hún gerði gott betur, vann stærsta sigur, eða 25-0. Það voru því heh 11 stig sem skUdu að íslensku sveitina og þá sem næst kom. Lokastaðan í báðum flokkum varð þannig. Opinn flokkur: 1. Svíþjóð.................182 2. Noregur..................170 3. Danmörk..................167 4. ísland...................163 5. Finnland.................133 6. Færeyjar.................68 Kvennaflokkur: 1. ísland..................192 2. Danmörk.................181 3. Noregur.................181 4. Svíþjóð..................150 5. FimUand..................114 6. Færeyjar..................58 „Þær voru einfaldlega bestar“ „Ég tel að sigur íslensku kvenna- sveitarinnar hafi verið fylhlega sanngjam, þær voru einfaldlega bestar,“ sagði Sigmundur Stefáns- son, fyrirhði sveitarinnar. „Sigurinn vannst fyrst og fremst á því hve íslenska kvennasveitin var áberandi harðari í allri sagn- baráttu heldur en andstæðingar þeirra. Mótið fór í aha staði vel fram undir öraggri stjóm Færeyinga sem vora þama að halda sitt fyrsta Norðurlandamót í bridge. Aðstæð- ur allar vora ákjósanlegar til spila- mennsku. Við voram með fjögurra manna lið í keppninni eins og Finnar og Norðmenn en leyfilegt er að hafa 6 spUara í hverri sveit. Það mæddi því mikið á spUurunum fjóram að spUa nær sleitulaust í heUa viku en þær stóðust fylhlega álagið og efldust frekar en hitt er á leið rnótið," sagði Sigmundur og var að vonum ánægður með.sigur sveitarinnar og fyrsta Norður- landameistaratitihnn í kvenna- flokki. íslendingar hafa aðeins einu sinni áður orðið Norðurlanda- meistarar í bridge og var það fyrir tveimur árum í opnum flokki er mótið var haldið hér í Reykjavík. Ekki tókst þó að veija titUinn í opnum flokki þótt íslenska sveitin hafi verið í baráttunni um verð- launasæti allan tímann. Gekk illa gegn Svíum „Ef leikurinn gegn Svíum í síðari umferð mótsins hefði ekki fariö svona Ula, og við hefðum náð góð- um sigri gegn þeim, hef ég trú á að okkur hefði tekist að verja titU- inn,“ sagði Hjalti Ehasson, fyrirhði sveitarinnar í opnum flokki. „Slæmt gengi sveitarinnar síðast- liðinn fimmtudag, þar sem aðeins fengust 13 stig samtals úr tveimur leikjum, olh því að við náðum ekki verðlaunasæti. Lokastaðan bendir þó ótvírætt tU þess að við séum í hópi bestu þjóða á NM þar eð ekki munar svo miklu á fjóram efstu sætunum," sagði Hjalti í samtah við DV. Sigur sveitarinnar í kvennaflokki vakti mikla athygh þar sem ís- lenskt landslið í kvennaflokki hef- ur aldrei náð góðum árangri áöur á alþjóðlegu móti í bridge. Sigurinn kom flestum á óvart og ekki hvað síst spUurunum sjáifum í sveitinni. „Við erum himinlifandi“ „Mig og spilafélaga minn dreymdi drauma fyrir upphaf keppninnar sem tengdust óneitan- lega NM í Færeyjum þar sem talan fimm var áberandi. Er við ræddum þessa drauma á æfingum, og reyndum að spá í þýðingu þeirra, þótti okkur hklegt að við myndum enda í 5. sæti á mótinu en okkur kom aldrei til hugar að við mynd- um skUja hinar þjóöimar fimm eft- ir fyrir aftan okkur að loknu móti,“ sagði Anna Þóra Jónsdóttir, einn spUaranna í kvennasveitinni, í við- tali viö DV. ' „Við erum auðvitað himinlifandi með árangurinn eins og nærri má geta en geta verður þó þess að danska sveitin, sem er núverandi ólympíumeistari í bridge, mætti 'ekki með sterkasta lið sitt til keppni. Hinar þjóðimar stílltu þó upp sterkasta hði og sigurinn því mjög ánægjulegur fyrir okkur sem hingað til höfum ekki riðið feitum hesti frá alþjóðamótum í bridge. Við vonum að nú veröi breyting á. Ég tel að liðsheildin og góður andi innan sveitarinnar hafi öðru fremur orðið tU þess að við náöum þessum árangri," sagði Anna Þóra. Spilararnir í kvennasveitinni eru Esther Jakobsdóttir, Valgerður Kristjónsdóttir, Anna Þóra Jóns- dóttir og Hjördís Eyþórsdóttir. Þær Hjördís og Anna Þóra era einungis 24 og 26 ára gamlar og eiga því framtíðina fyrir sér í bridge. Esther Jakobsdóttir er móðir Önnu Þóru en það þykir ekki óalgengt að bridgeíþróttin haldist mikið innan fjölskyldna. SpUarar í landsliði íslands í opn- um flokki voru Guðmundur Páll Amarson, Þorlákur Jónsson, Sæv- ar Þorbjörnsson, Karl Sigurhjart- arson, Guðlaugur R. Jóhannsson og Örn Amþórsson. AUt eru þetta reyndir landsliðsspUarar sem hafa náð góðum árangri á alþjóðamót- um í bridge. ÍS Ferjuflugvél fór í sjóinn með tvo menn innanborðs - mikll leit að vélinni um 250 kílómetra vestan Reykjaness árangurslaus Ferjuflugvéhn N-756 MC, eins hreyfiis íjögurra sæta vél, fór í sjóinn með tvo menn innanborðs rúmlega 250 kílómetra vestur af Reykjanési rétt fyrir hálfníu á laugardagskvöld. Víðtæk leit að véhnni hefur engan árangur borið. Flugstjómarmiðstöðinni í Reykja- vík barst tilkynning frá flugvéhnni N-65 FF, sem var á svipuðum slóðum, um að flugvéhn N-756 MC ætti í erf- iðleikum þar sem hún var stödd rúm- lega 250 kflómetra vestur af landinu. Skömmu síðar heyrðist sending frá neyðarsendi í stutta stund en efidr það hafa engar fregnir borist af flug- vélinni. Leit hófst þegar í stað þar sem fjór- ar vélar tóku þátt og tvö skip. Frá í gær hefur flugvél Landhelgisgæsl- unnar leitaö aö flugvélinni. Aðstæð- ur tíl leitar vora slæmar á laugar- dagskvöld og aðfaranótt sunnudags en vora betri í gær. Véhn fór frá Gæsaflóa í Kanada klukkan 11.04 á laugardag áleiðis til Reykjavíkur. Báðir mennimir um borð vora bandarískir. Ekki er vitaö nánar um tíldrög slyssins, hvort vél- in fór í sjóinn vegna bUunar eða elds- neytisskorts. -hlh fluttur suður Jeppabifreið valt á veginum Jeppinnfórútafveginumábein- skammt frá Reykhólum á Baröa- um kafla og eftir því sem lögreglan strönd á föstudagskvöld. BUsijór- á Patreksiirði kemst næst hlupu inn var eiim í bíinum og slasaöist kindur snögglega upp úr skurði, ílla á fæti. Hann var fluttur með yfir veginn og í veg fyrir jeppann. sjúkraflugvél til Reykjavíkur þar Við það mun bílstjóranum að hafa sem gert var aö meiðslum hans á brugðiö Ula með fyrrgreindum af- Borgarspitalanum.__________leiðingum.__________-hlh Ógnaði fólki með byssu TUkynnt var um mann sem ógn- skömmu síðar í Þverholti. Kom þá aði vegfarendum við Hlemm með í ljós að maöurinn haíði verið meö byssu eftir hádegi á sunnudag. Þeg- leikfangabyssu. Var hann færður á ar lögregla kom á vettvang var lögreglustööina og byssan gerð maöurinn á bak og burt en náðist upptæk. -hlh Akureyri: Maður fór í sjóinn viö Strandgöt- vel. una á Akureyri á laugardagskvöld Þá var einn tekinn ölvaður við og var kominn eitthvað frá iandi aksturogtvoirfyrirofhraöanakst- I þegar lögregla komst til hans á ur. -hlh báfi. Tók maðuiinn björguninni

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.