Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1990, Blaðsíða 7
MÁNUDAGUR 9. JÚLÍ 1990.
7
PV________________________________________________________________________________Viðskipti
Hagstofan:
28 prósent samdráttur
í innflutningi timburs
Fyrstu fjóra mánuðina var um 28
prósent samdráttur í innflutningi á
timbri, samkvæmt upplýsingum
Margrétar Káradóttur, deildarstjóra
hjá Hagstofunni. Það er fyrst og
fremst timbur til nýbygginga sem
hefur dregist saman. Hins vegar vek-
ur það athygli að timbur sem garða-
efni er að aukast í sölu.
Fyrstu fjóra mánuðina í fyrra voru
fluttir inn um 14.600 rúmmetrar af
timbri en aðeins um 10.500 rúmmetr-
ar á sama tímabili í ár. Þetta er um
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækurób. 3,0 Allir
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 3-4 Ib.Sb,- Sp
6mán. uppsögn 4-5 Ib.Sb
12mán. uppsögn 4-5,5 Ib
18mán. uppsögn 11 lb
Tékkareikningar.alm. 0,5-1 Allir nema ib
Sértékkareikningar 3.0 Allir
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1.5 Allir
6 mán. uppsögn 2,5-3,0 Lb.Bb,- Sb
Innlán meðsérkjörum 2.5-3,25 Ib
Innlán gengistryggð
Bandaríkjadalir 7-7,25 Lb.Sb
Sterlingspund 13,6-14,25 Sb
Vestur-þýskmörk 6,75-7,5 Lb
Danskarkrónur 9,25-10,75 Sb
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennirvíxlar(forv.) 13,5-13,75 Bb.Sb
Viðskiptavíxlar(forv.)(1) kaupgengi
Almennskuldabréf 14,0 Allir
Viðskiptaskuldabréf(l) kaupgengi Allir
. Hlaupareikningar(yfirdr.) 16,5-17,5 Bb
Utlán verðtryggð
Skuldabréf 7,5-8,25 Lb.Bb
Utlántilframleiðslu
Isl. krónur 13,75-14,25 Bb
SDR 10,75-11 Bb
Bandaríkjadalir 10,10-10,25 Bb
Sterlingspund 16,8-17 Sp
Vestur-þýskmörk 9,9-10,5 Bb
Húsnæðislán 4.0
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 23,0
MEÐALVEXTIR
óverðtr. júní 90 14,0
Verðtr. júní 90 7,9
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitalajúlí 2905 stig
Lánskjaravisitala júní 2887 stig
Byggingavísitala júli 549 stig
Byggingavísitala júlí 171,8 stig
Framfærsluvísitala júní 145,4 stig
Húsaleiguvísitala hækkar 1,5% l.júli.
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Einingabréf 1 4,963
Einingabréf 2 2,706
Einingabréf 3 3,267
Skammtímabréf 1,679
Lífeyrisbréf
Gengisbréf 2,157
Kjarabréf 4,915
Markbréf 2,613
Tekjubréf 1,973
Skyndibréf 1,470
Fjölþjóðabréf 1,270
Sjóðsbréf 1 2,388
Sjóðsbréf 2 1,759
Sjóðsbréf 3 1,668
Sjóðsbréf 4 1,417 ^
Vaxtarbréf 1,6865
Valbréf 1,5850
Fjórðungsbréf 1,028
Islandsbréf 1,028
Reiðubréf 1,017
Sýslubréf 1,029
Þingbréf 1,028
Óndvegisbréf 1,027
HLUTABRÉF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. lOO.nafnv.:
Sjóvá-Almennar hf. 650 kr.
Eimskip 462 kr.
Flugleiöir 180 kr.
Hampiðjan 162 kr.
Hlutabréfasjóður 154 kr.
Eignfél. Iðnaðarb. 160 kr.
Eignfél. Alþýðub. 115 kr.
Skagstrendingur hf. 367 kr.
Islandsbanki hf. 157 kr.
Eignfél. Verslunarb. 135 kr.
Olíufélagið hf. 467 kr.
Grandi hf. 168 kr.
Tollvörugeymslan hf. 107 kr.
Skeljungur hf. 500 kr.
(1) Viö kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge.
- á sama tíma hefur salan aukist á timbri sem garðaefni
A sama tíma og almennur samdráttur er í timburinnflutningi hefur sala á
timbri sem garðaefni, í sólpalla, skjólveggi og girðingar, aukist frá í fyrra.
28 prósent samdráttur á milli ára.
Örlítil aukning varð á innflutningi
á krossviði þessa mánuði. Sam-
kvæmt upplýsingum Hagstofunnar
voru um 1.260 rúmmetrar af kross-
viði fluttir inn í fyrra en um 1.400
rúmmetrar í ár.
Hins vegar er samdráttur í sölu
Timburinnflutn-
ingurinn
- fyrstu fjóra mánuðl árslns f
rúmmetrum -
1989
14,616
1990
10,503
1989 1990
Timbur Krossvl&ur
Um 28 prósent minni innflutningur
var á timbri fyrstu fjóra mánuði
þessa árs borið saman við sama
tíma í fyrra. Hins vegar hefur inn-
flutningur á krossviði aukist lítilega.
spóna- og byggingarplatna. Fyrstu
fjóra mánuðina í fyrra voru flutt inn
5.840 tonn samanborið við um 4.767
tonn í ár. Er það 18 prósent samdrátt-
ur.
Þrátt fyrir þessar tölur Hagstof-
unnar um almennan samdrátt í sölu
timburs hefúr orðið drjúg aukning í
sölu á timbri sem garðaefni. „Tilbúið
gagnvarið efni í sólpalla, skjólveggi
og girðingarefni sækir á,“ segir Jón
Snorrason, framkvæmdastjóri Húsa-
smiðjunnar hf.
Sömu sögu er að segja í Bykó. Jón
Helgi Guðmundsson, framkvæmda-
stjóri Bykó, segir að aukning sé á
garðaefni og sumarbústaðaefni.
Nokkrar ástæður eru taldar fyrir
því að sala á garðaefni sé að aukast.
Áhugi fólks á að hafa snyrtilega
garða með stórum og góðum skjól-
veggjum er að aukast. Gott veður í
vor og sömuleiðis bætt efnahags-
ástand hefur líka örugglega sitt að
segja.
Sumarið rólegt í ráðningum
- minna um að stjómunarstöður losni
Sumarið 1990 ætlar að verða eins
og önnur sumur, það er rólegt í
mannaráðningum hjá fyrirtækjum.
Aðalástæðan er sú að fólk tekur sér
yfirleitt fyrst sumarfrí og hyggur síð-
an að því að skipta um starf. Jafn-
framt er ákvarðanataka innan fyrir-
tækja rólegri á sumrin vegna sumar-
leyfa stjórnenda fyrirtækja.
„Það hefur alltaf verið rólegt í
mannaráðningum yfir hásumarið.
Það er ekkert nýtt. Sérstaklega er
júlí rólegur,“ segir Guðni Jónsson
sem annast bæði ráðgjöf og ráðn-
ingaþjónustu.
Að mati Guðna eru það fyrst og
fremst sumarleyfi sem valda því að
htið er um mannaráðningar á sumr-
in. „Bæði er það að þeir sem eru að
hugsa sér til hreyfings og skipta um
starf vilja gjarnan taka það sumarfrí
sem þeir eiga inni og þá spilar það
íslendingar
eiga
ekki bágt
í nýjasta hefti fréttabréfs Verð-
bréfaviðskipta Samvinnubankans er
greint frá vísitölu báginda á íslandi
og í nokkrum öðrum löndum. Vísi-
tala báginda er einfaldlega summa
atvinnuleysis og verðbólgu.
Samkvæmt þessari vísitölu virðast
bágindi víðast vera meiri en hér á
landi. Þannig mælast bágindi til
dæmis 10 stig í Bandaríkjunum, 12
stig í Bretlandi en aðeins 5 í Sviss.
Vísitala báginda árið 1990:
Sviss.................5 stig
ísland................9 stig
V-Þýskaland...........9 stig
Bandaríkin.........lOstig
Noregur..............10 stig
Bretland.............12 stig
Danmörk..............12 stig
Svíþjóð..............12 stig
ekki siður inn í að ákvarðanataka
innan fyrirtækja er minni vegna
sumarleyfa þeirra sem stjórna."
Um það hvort minna sé um ráðn-
ingar í stjómunarstörf en áður segir
Guðni að færri stjórnunarstöður inn-
an fyrirtækja losni nú en fyrir
nokknun árum.
„Þegar að kreppir í efnahagslífinu
eru menn varkárari. Samt sem áður
eru menn alltaf að líta í kringum sig
og athuga hvaða störf eru í boði, þó
það sé minna uppi á yfirborðinu en
áður vegna mikUs trúnaðar við ráðn-
ingar.“
-JGH
Minna er um að stjórnunarstörf losni nú en áður hjá fyrirtækjum. Þessir
tveir menn tóku þó við toppstöðum í byrjun þessa mánaðar. Kristinn Björns-
son, til vinstri, tók við starfi forstjóra Skeljungs hf. og Benedikt Sveinsson
tók við starfi framkvæmdastjóra Sjávarafurðadeildar Sambandsins.
Kawasaki vatnasleðar
Eigum fyrirliggjandi nokkrar gerðir Kawasaki vatnasleða til af-
greiðslu strax. Sýningarsleðar á staðnum.
Einstaklega hagstættverð.
■ HEKawasaki---------------------
SÍMI: 681500 - ÁRMÚLA 11