Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1990, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1990, Blaðsíða 11
MÁNUDAGUR 9. JÚLÍ 1990. 11 Utlönd Bandaríkin: Hefur útbreiðsla kókaíns náð hámarki? Ljósmyndarar taka myndir af 115 kilógrömmum af kókaíni sem gert var upptækt í Belgíu fyrir nokkrum árum. Símamynd Reuter Á íimm ára tímabili, frá árinu 1981 til ársins 1986, flölgaöi um meira en helming í heraíla íjög- urra Miö-Ameríkurílga; E1 Salvador, Nícaragua, Hondúras og Guatemala. Og þrátt fyrir þíðu á alþjóðavettvangi og vaxandi friðarhorfur i þessum heimshluta eru engin merki sjáanleg sem benda til þess að riki Mið-Amer íku hyggist fækka í heijum sin- um. Herinn er enn viö völd i mörgum rikjum og hefur víða síð- asta orðið um stefhu og markmið þjóða hvað sem liður borgaraleg- um stjórnum og forsetum. Þrátt fyrir aukna áherslu á frjálsar og heiöarlegar kosningar eru margir forsetar í Mið-Amer- íku einungis þjóðhöfðingjar að nafninu öL Þeir hafa jú áhrif á stefuumörkum þjóðar sinnar on eru næsta áhrifalausir ef þeir ætla að standa gegn kröfum sterkra og rótgróinna hagsmuna- : hópa, oftar en ekki ihaldssömum. Bandarískir sem og mið-amer- ískir embættismenn segia að margt standi í vegi breytinga í þessum heimshluta, ekki sist : yaldamiklir yfirmenn hersins. ■ „Ég get ekki séð að herinn gefi eflir völd sín. Ef átökum við skæruiiða (innanlands) linnir munu þeir einungis finna sér aðra afsökun, déilur við ná- grannaríkin eða stríðið gegn eit- urlyfjasmygH,‘' sagði einn stjóm- arerindreki. Nokkrir þjóðhöfðingjar í Míð- Ameríku reyna nú að draga úr völdum hersins,; s.s. Violeta Cha- morro í Nicaragua. En Ijóst er af ummælum sumra herforingja að það muni ekki ganga átakalaust. Arnuifo Cantarero, yfirmaður fjörutíu þúsunda manna hers Hondúras, sagði þingmönnum landsins nýlega, á kurteislegan hátt, aö blanda sér ekki í hermál þegar þing lagöi til að herkvaðn- ing yröi lögð niður. 'riUögunni var stungið undir stól. Svo mörg voruþauorð. Reuter Talið er að útbreiðsla kókaíns í Bandaríkjunum hafi nú náð há- marki. Þetta er áht ýmissa sérfræð- inga sem hafa á síðasta áratug unnið aö því að uppræta kókaínmisferli, fengist við mál tengd neyslu efnisins sem og útbreiðslu þess. í dagblaðinu The New York Times er bent á þessu til stuðnings að dauðsfollum af völdum kókaín- neyslu hefur fækkað í sumum borg- um landsins. NeyðartilfeUum á sjúkrahúsum, sem rekja má til neyslu kókaíns, hefur einnig fækkað. Þau tilfelh, sem koma til kasta lög- reglunnar og tengjast kókaíni á ein- hvem hátt, eru gífurlega mörg en þau hafa þó staðið í stað um nokkurn tíma. Þessar upplýsingar komu fram á ráðstefnu í síðustu viku sem haldin var á vegum ríkisstofnunar sem berst gegn ávana- og fíkniefnum. Fyrri upplýsingar og tölur, sem kom- ið höfðu fram, sýndu að almenn neysla efnisins hefur minnkað og sérstaklega á meðal menntamanna og háskólanema. Það versta sé að baki Yfirmaður fíkniefnalögreglunnar í Washington lætur hafa eftir sér í fyrrnefndu dagblaði að fíkniefna- neysla eigi ekki eftir að aukast og að það versta sé væntanlega að baki. En þrátt fyrir að sérfræðingamir áhti að kókaínneysla sé hætt að auk- ast þá er síður en svo að vandamál tengd því séu í rénun. Neyslan á efn- inu og afbrot, sem rekja má tíl fíkni- efnanotkunar, era svo gífurleg. Síðustu tölur rannsakenda gefa tU kynna að um átta miUjónir Banda- ríkjamanna séu ánetjaðar kókaíni. Þar af er rúmlega fjórðungur sem notar efnið daglega og era margir úr þeim hópi famir að nota krakk. Langflest afbrot og morð í Bandaríkj- unum má rekja til kókaínneyslu en efnið finnst í fórum flestra sem tekn- ir eru fastir fyrir ýmiss konar glæpi í stórborgunum. Þúsund börn ánetjaöra mæðra hafa fæðst sködduð vegna kókaín- neyslu móðurinnar á meðgöngu og fáir komast að í meðferðir sem standa eiturlyfjasjúkhngum til boða. Kemur annað efni í staðinn? Ef kókaínneysla raunverulega minnkar er aldrei að vita nema eitt- hvert annað efni verði þá notað í meiri mæh sem því nemur. En sér- fræðingar í þessum málum sjá ekki fyrir sér hvort og þá hvaða efni það gæti verið. Komið hafa fram tölur um aukna notkun á heróíni og am- fetamíni en ekkert í líkingu viö þá kókaínneyslu sem tíðkast hefur. Fyr- ir ári héldu sumir því fram að til- brigði af amfetamíni, sem væri reykt, myndi steypast yfir þjóðina. Efnið, sem er kadlað ís, hefur hins vegar einungis náð mikilh útbreiðslu á Hawaii. Á fyrmefndri ráðstefnu þökkuðu ráðstefnufulltrúarnir það forvamar- og fræðslustarfi að kókaínneysla virðist í rénun. Fræðslan hefur beinst að því að sýna stöðugt þá sem verst hafa orðið úti vegna neyslu á efninu. Svo hefur verið hamrað á því hversu eyðileggjandi og ávanabind- andi efnið er. En þrátt fyrir upplýsingar um að kókainneysla virðist hafa náö há- marki veit enginn hvert framhaldið verður. M M AL VORUBILL ■ LáS S fíUi Lágmúla 7, síml 91-84477. Flugstöð Leifs Eiríkssonar, sími 92-50300. EVROPU KOSTAR OTRULEGA LITIÐ \ Þegar ekið er um hraðbrautir Evrópu er geysilegur munur að vera á stórum, kraftmiklum og þægilegum bíl. Þetta vita allir. Það sem kannski ekki allir vita er að hjá Arnarflugi er ótrúlega lítill verðmunur á Citroen AX og Ford Scorpio. lí Flug og Ford Scorpio í fimm daga kostar frá kr. 26.600.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.