Dagblaðið Vísir - DV - 09.07.1990, Side 6
6
MÁNUDAGUR 9. JÚLl 1990.
Fréttir
Sandkom dv
MeðferðarheimHi fyrir krabbameinssjúklinga fyrirhugað að Sogni:
SÁÁ missir aðstöðu
fyrir 30 sjúklinga
Um næstu áramót ætlar Náttúru-
lækningafélag íslands aö setja á lagg-
irnar eftirmeðferöarheimili fyrir
krabbameinssjúklinga. Heimili þetta
veröur það fyrsta sinnar tegundar
hérlendis. Því hefur verið fundinn
staður að Sogni í Ölfusi.
NLFÍ á bæði jörðina og húsnæðiö
að Sogni. Þar rekur SÁÁ nú með-
ferðarheimili fyrir drykkjusjúka.
SÁÁ leigir Sogn af NLFÍ og hefur
leigusamningnum verið sagt upp frá
1. október á þessu ári.
Að sögn Jónasar Bjamasonar, for-
manns NLFÍ, hafa krabbameinsmál
verið ofarlega á dagskrá félagsins og
hjá aðstandendum þess. „Snorri
Ingimarsson, læknir á Heilsuhælinu
í Hveragerði, er sérhæfður í málefn-
um krabbameinssjúklinga og hann
verður okkar sérfræðingur við nýja
heimiliö. Á Heilsuhæhnu hefur verið
almenn meðferö fram að þessu en
stofnunin hefur nú verið greind í
sérsvið. Ein deild þess verður heimil-
ið að Sogni. Það kemur til með að
lúta yfirstjórn Heilsuhælisins 1
Hveragerði. Það er enginn vafi á því
að þörf er á heimili sem þessu og við
emm bjartsýn á að þetta gangi.“
Af hálfu NLFÍ hefur þegar verið
tekin ákvörðun um heimilið en að
sögn Jónasar á eftir að sjá hvort
stjórnvöld vilja taka þátt í þessu.
Fyrir fólk sem er á
leið út í lífið aftur
„Starfsemi hins nýja heimilis hefur
ekki verið mótuö í smáatriðum en
er hugsuð sem styttri meðferð, bæði
eftir nýgreiningu krabbameins og
eftir krabbameinsmeðferð. Þetta er
hugsað sem meðferð fyrir fólk sem
er á leið út í lífið aftur,“ sagði Jónas
Bjamason.
Sem fyrr segir hefur SÁÁ veriö
sagt upp húsnæðinu að Sogni í Ölf-
usi frá 1. október. Nýtt húsnæði hef-
ur ekki fundist ennþá. Að sögn Þór-
arins Tyrfmgssonar, formanns SÁÁ,
er ekki ljóst hvað verður ef nýtt hús-
næði finnst ekki fyrir þann tíma.
„Við erum ekki farnir að hugsa svo
langt. Þau 30 rúm, sem við höfum
að Sogni, eru helmingurinn af þvi
sem við höfum í landinu fyrir endur-
hæfingu áfengissjúklinga," sagöi
Þórarinn.
-hmó
Vigdís Finnbogadóttir gróðursetti tré fyrst gesta en alls voru um 700 tré gróðursett i Vigdísarlundi á laugardag.
DV-myndir Hanna
Biskup íslands, herra Ólafur Skúla-
son, blessaði krossinn og gróður-
setti tré að Úlfljótsvatni.
Fremur kalt var í veðri en gestir létu
það ekki á sig fá. Um 700 manns
voru saman komin að Úlfljótsvatni
á laugardag.
Landsmóti skáta að Úlíljótsvatni lokið:
Forsetinn gróðursetti
tié í Vigdísarlundi
Landsmóti skáta lauk nú um helg-
ina. Á laugardag var margt um
manninn að Úlfljótsvatni. Biskup ís-
lands, herra Ólafur Skúlason, kom
og blessaði krossinn stóra sem páf-
inn vígði á Landakotstúni fyrir rúmu
ári. Ætlunin er að blessun krossins
verði árlegur viöburður.
Eftir það gróðursetti Vigdís Finn-
bogadóttir, forseti íslands, tré í svo-
kölluðum Vigdísarlundi. Var það
fyrsta tréð í gróðurreitnum sem
kenndur er við forsetann. Allir við-
staddir gróðursettu svo eitt tré hver
og urðu trén alls um 700. Meðal við-
staddra voru Gunnar Eyjólfsson
skátahöfðingi svo og ráöherrar.
Að gróðursetningu lokinni gekk
Vigdís forseti um svæðið og spjaUaði
viö skáta. Hún átti ekki í vandræðum
með að tala við þá erlendu og brá
meðal annars fyrir sig frönsku. Að
kvöldi laugardagsins var stór varð-
eldur. Var þaö lokakvöld mótsins.
Hannes Hilmarsson mótstjóri
kvaðst mjög ánægöur með mótið.
„AIls tóku 2500 manns þátt í mótinu
um helgina auk gesta. Þetta gekk
allt mjög vel. Veðrið var gott, skipu-
lagningin, maturinn og gestirnir.
Allt gekk eins og í sögu.“
Mótinu var slitið á sunnudag.
-hmó
Halldór
Nú.þegar
dómur-saka-
dómsíHaf-
skipsmálinu
hefurverið
kveðimntpp,.
leysast tnörg
málsombeðið
háfáúrlausnár
mnlanganald-
ur. Eitfjteirra
erráðningað-
stoðarframkvæmdastjóra Fram-
kvæmdasjóðs en henni var frestaö á
sínum tíma þó að staðan væri aug*
lýsL Samkvæmt heimildum Sand-
kornsritaravar ástæðan sú að beðið
var úrskurðar sakadóms um hvort
Halldór Guðbjamason, fyrrverandi
bankastjóri Útvegsbankans, yrði sak-
felldur. Nú þegar liggur fyrirað hann
var sýknaður getur stjórn Fram-
kvæmdasjóðs tekiö málið upp að
nýju.
, Verðlagning
sakadómsá
tlmaHelga
Mngnússonar,
fyrrverandi
endurskoðanda
Hafskips.erdá-
litiðraögnuð.
Helgi var
dæmdurtillOO
þúsuttdkróna
_________sektar.Hann
þarfhins vegar ekki að borga hana
þarsem dómurinn taidi að hún væri
að fuliu greidd með tuttugu daga
gæsluvarðhaldi. Helgi hefur því unn-
ið sér inn fimm þusund krónur á dag
í Síðumúlafangelsinu. Það eru lág
laun þar sem menn, sem eru stans-
laust í vinnu og fá ekki hvíld, eru
venjulega á tvöföldu næturvinnu-
kaupi. Miðað við jtað var dagvinnu-
taxönn hjá Heiga um 56 krónur á tím-
ann. Þó að blaðamenn séu ekki ofald-
iraflaunum sínum er nokkuð víst
að Heigi hefur hækkað í launum þeg-
ar hann fór til Frjálsrar verslunar
eftlrgæsluvarðhaldið.
Hiðversta mál
Hafskipsmál-
iðhefurmeitt
fleirienþásem
voruákærðir
oghafandver-
iðsýknaðir. ;
Þannigmissti
AlbertGuö-
tmmdssonráð-
horrastólinn á
sinumtimaog
Sjálfslæðis-
flokkurinn missti fimm þingmenn.
Ingólfur Margeirsson missti rit-
stjórastólinn hjá Helgarpóstinum
vegna viðskipía sinna viö Hafskip.
Þá var Hallvarður Einvarðsson
dæmdur óhæfur sem saksóknari í
málinuog hefur vart náð sér aftur.
Nú virðist Jónatan Þórmundsson
hafa sett niður sem fræöimaður en
afsautján mönnum, sem hann
ákæröi, voru fjórtán sýknaðir og þeir
sem fengu dóm fengu þá fyrir smá-
vægileg brot miðað vlð það sem þeir
voru ákærðir fyrir. Haískipsmálið
virðist því hafa verið hið versta mái
fyrir ílesta þá sem komu nærri því.
Mávanesveikin
ímálsskjöl-
um Hafskips-
málsinskemur
fyrireittnýyrði
semvarðtilhér
ISandkomi.
Þannigvaraö
þeirPétur
Björnssoní
KókogJón
HelgiíBykó
bárufyrirsig
minnisleysi i vitnaleiðslum um fjöl-
mörg atriöL Þeir búa báðir í Máva-
nesi og eru þvi nágrannar Steingrims
Hermannssonar forsætisráðberra.
Hann hafði einmitt borið fyrir sig
minnisley si í vitnaleiðslum í Magn-
úsar Thoroddsen-málinu í borgar-
dómi, eíns og svo oft áður. Sandkom
greindi þetta minnisleysi nágrann-
anna ogkaUaði „Mávanesveiki". Þeg-
ar Davíð Scheving Thorsteinsson í
Sólkomí vitnastukuna síðar sagðist
hann ekki muna ákveðið atriði, sem
hann var spurður um, og bar fyrir
sig, ,Mávanesveiki“ en hann er ein-
mitt nágramn Stemgríms í Mávanes-
inu.
Umsjón:
Gunnar Smári Egilsson