Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1990, Qupperneq 26
34
FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 1990.
Afmæli
Þónrnn Elfa Magnúsdóttir
Þórunn Elfa Magnúsdóttir rithöf-
undur, Ljósheimum 16B, Reykjavík,
er áttræö í dag. Þórunn Elfa er fædd
í Reykjavík og ólst upp hjá Einari
Sigurðssyni, b. í Klifshaga í Axar-
firði í N-Þingeyjarsýslu, og konu
hans, Marenu Magnúsdóttur (móð-
ursystur sinni). Hún var tvo vetur
í lýðskóla Ásgríms Magnússonar á
Bergstaðastræti og var í námi í
Drammen og Osló þar sem helstu
greinar voru bókmenntir og tungu-
mál. Þórunn fékk styrk til háskóla-
náms í Uppsölum í Svíþjóð 1946-
1947. Hún hefur verið húsmóðir í
Reykjavík og rithöfundur. Þórunn
vann fyrir hannyrðaverslun við
áteikningar o.fl. og prjónaði að auki
lopafatnað til útflutnings. Hún hef-
ur verið í nefndum í Kvenréttinda-
félagi íslands og fulltrúi á tveimur
landsþingmn félagsins. Þórunn hef-
ur verið fulitrúi Rithöfundasam-
bands íslands í Bandalagi ísl. lista-
manna. Hún hefur starfað mikið á
vegum IOGT, m.a. í söngkór og leik-
félagi þess. Þórunn tók þátt í leik-
starfi á þess vegum, lék m.a. aðal-
hlutverkið, Önnu, í Syndum ann-
arra eftir Einar H. Kvaran og lék
einnig hjá L.R. Hún er lieiðursfélagi
Lestrarfélags kvenna í Rvík. Þór-
unn hlaut verðlaun í verðlauna-
samkeppni Ríkisútvarpsins fyrir
minningaþátt 1962 og verðlaun úr
Rithöfundasjóði Ríkisútvarpsins
1973. Verk Þórunnar Elfu eru: Dæt-
urRéykjavíkur, I—III, 1933,1934 og
1938; Að Sólbakka, 1937; Líf annarra,
1938; Draumur um Ljósaland, I—n,
1941 og 1943; Evudætur, átta sögur,
1944; Lilli í sumarleyfi, 1946; Snorra-
braut 7,1947; í biðsal hjónabands-
ins, 1949; Dísa Mjöll, 1953; Sambýlis-
fólk, 1954; Eldliljan, 1957; Fossinn,
1957; Litla stúlkan á snjólandinu,
1957; Frostnótt í maí, 1958; Anna
Rós, 1963; í skugga valsins, 1964;
Miönætursónatan, 1966; Kóngur vill
sigla, 1968; Elfamiður, ljóö, 1976; Frá
Skólavörðustíg að Skógum í Axar-
firði, endurminningar, 1977; Vorið
hlær, skáldsaga, 1979; Hver var frú
Bergsson?, sögur, 1981, og Á leik-
velh lífsins, 1985. Þómnn hefur auk
þess skrifað: Ljósaskipti (leikrit),
1950; Sverðið (leikritsgerð eftir sög-
unni Dísu Mjöll, þættir úr lífi lista-
konu), 1954 eða 1955, og Maríba
Brenner (framhaldsleikrit), 1967.
Hún hefur annast flutning útvarps-
efnis um nær hálfrar aldar skeið og
hefur auk þess ritað greinar og þýtt
sögur í blöð og tímarit. Þórunn gift-
ist 25. október 1941 Jóni Þórðarsyni,
f. 11. júlí 1902, kennara og rithöf-
undi. Foreldrar Jóns voru: Þórður
Pálsson; b. í Borgarholti í Mikla-
holtshreppi í Hnappadalssýslu, og
kona hans, Sesselja Jónsdóttir. Þór-
unn og Jón skildu 1966. Böm Þór-
unnar og Jóns em: Einar Már, f. 12.
mars 1942, lektor, starfar í París;
Magnús Þór, f. 7. apríl 1945, laga-
smiður, böm Magnúsar em: Þórð-
ur, f. 25. febrúar 1973, og Gísh, f. 9.
maí 1974; Anna Margrét, f. 3. nóv-
ember 1952, aðstoðarmaður tann-
læknis, gift Guðmundi Hahvarðs-
syni tónhstarkennara, böm hennar
frá fyrra hjónabandi: Vala Baldurs-
dóttir, f. 13. október 1972 og Þórólfur
Baldursson, f. 27. febrúar 1974. Börn
Önnu og Guðmundar eru: LUja
Dögg, f. 9. júlí 1986, og Hahvarður
Jón, f. 7. ágúst 1989. Systkini Þór-
unnar em: Magnea IngUeif, f. 1.
nóvember 1905, d. mars 1958, gift
Óskari Sigurðssyni, smiö í Rvík;
Laufey Björg, f. 26. júlí 1908, versl-
unarmaður í Rvík, gift Grími EngU-
berts, er látinn, ritstjóra, og Gunnar
Aöalsteinn, f. 13. júní 1913, d. 29.
júní 1990, klæðskeri og kaupmaður
í Rvík, kvæntur Þórunni Evu Eiðs-
dóttur, hún er látin.
Foreldrar Þómnnar vom: Magnús
Magnússon, sjómaður og verka-
maður í Rvík, og kona hans, Mar-
grét Magnúsdóttir. Magnús var son-
ur Magnúsar, b., smiðs og
„rokkadrejara" á Beitistöðum, afa
Skeggja Ásbjarnarsonar kennara.
Magnús var sonur Ásbjarnar, hús-
manns á GrímarsstÖðum í Andakíl,
Magnússonar og konu hans, Krist-
ínar Magnúsdóttur, b. í Hamrakoti,
Magnússonar. Móðir Kristínar var
Barbára Þórðardóttir, b. í Mýrar-
húsum á Seltjamamesi, Einarsson-
ar og kona hans, Guðlaug Jóns-
dóttir, prests í Arnarbæh, Andrés-
sonar. Móðir Magnúsar Magnús-
sonar var Þórunn, systir Guðrúnar,
ömmu Hahdórs Laxness og
langömmu Böðvars Guðmundsson-
ar skálds. Þómnn var dóttir Sveins,
b. á Beigalda í Borgarhreppi, og
konu hans, Sigríðar Sigurðardóttur.
Margrét var dóttir Magnúsar, b. í
Þórunn Elfa Magnúsdóttir.
Efrahreppi í Skorradal, Magnússon-
ar, b. í Neðrahreppi, Gíslasonar.
Móðir Magnúsar í Neðrahreppi var
Þuríður, systir Amdísar, langömmu
Finnboga, íoður Vigdísar forseta.
Þuríður var dóttir Teits, vefara í
Rvík, Sveinssonar og Guðríðar
Gunnadóttur, ættforeldra Teitsætt-
arinnar. Móðir Margrétar var Ing-
veldur Þórðardóttir, b. í Tunguhálsi
í Andakíl, Magnússonar og konu,
hans, Margrétar Sigurðardóttur.
Þórunn Elfa dvelur nú á Landakoti
en mun taka á móti gestum á heim-
ih dóttur sinnar, Sólheimum 15,
laugardaginn21. þ.m. kl. 16-18.
Þorsteinn Jónsson
Þorsteinn Jónsson skipstjóri, Efsta-
simdi 20, Reykjavík, er sjötugur í
dag.
Þorsteinn fæddist í Bolungarvík
og ólst þar upp í Þjóðólfstungu.
Hann byijaði ungur til sjós og
stundaði sjómennsku, lengst af sem
stýrimaður, m.a. á fiskibátum, tog-
urum og varðskipum. Eftir að Þor-
steinn kom í land hefur hann starfað
hjá Hafrannsóknastofnun við hum-
ar- og skelfiskrannsóknir.
Foreldrar Þorsteins vom Jón J.
Eyfirðingur, f. á Hofi í Svarfaðar-
d£il, formaður í Bolungarvík, síðar
kaupmaður þar og bóndi í Þjóðólfs-
tungu, og kona hans, Siguhna Ingi-
björg Þorleifsdóttir, f. í Kleifarkoti
við ísafiörð við Djúp, húsfreyja.
Þorsteinn verður heima á afmæl-
Þorsteinn Jónsson.
isdaginn og tekur á móti gestum
mhli klukkan 17 og 20.00.
85
60ára
Júiía Magnúsdúttir,
Fumgerði 1, Reykjavík.
75 ára
Bára Eyfiörð Jónsdóttir,
Ásgarði, Grýtubakkahreppi.
Kristján Þórhallsson,
Björk, Skútustaðahreppi.
Lilja Randversdóttir,
Dvergsstöðum, HrafnagilshreppL
Sigríður Jónsdóttir,
Kjartansgötu 3, Borgarnesi.
BragiErlendsson,
Stekkjarflöt 11, Garðabæ.
50ára
70ára
Hólmfríður Jónsdóttir,
Laufási, Þorkelshólshreppi.
Vilbergur Sveinbjörnsson,
Noröurgötu 8, Seyðisfirði.
írisBachmann Haraldsdóttir,
Engjavegi 38, Selfossi.
Þórunn Hanna Júlíusdóttir,
Nýbýlavegi 46, Kópavogi.
Ifi örtur Halldórsson,
Vegghömmm 10, Reykjavík.
Elísabet E. Weisshappel,
Freyjugötu 32, Reykjavík.
Jóhanna Guðjónsdóttir,
Grund, Skorradalshreppi.
Haukur Björnsson,
Brennihhö 9, Sauðárkróki.
Ásberg Sigurðsson
Ásberg Sigurðsson borgarfógeti,
Aragötu 7, Reykjavík, lést i Land-
spítalanum 14.7. sl. Hann verður
jarðsunginn frá Dómkirkjunni í
dag, föstudaginn 20.7., klukkan
13.30. Ásberg fæddist að Hvítár-
bakka í Borgarfirði 18.4.1917. Hann
lauk stúdentsprófi frá MR1937 og
embættisprófi í lögfræði 1944. Ás-
berg var bæjarstjóri á ísafirði
1946-48, ritstjóri Vesturlands á
ísafirði 1948-52 og stundaði þar
málflutningsstörf. Hann sat í stjóm
togarafélagsins ísfirðings hf.
1946-62, var formaður félagsstjóm-
ar 1948-53 og framkvæmdastjóri fé-
lagsins 1949-62. Hann var skrif-
stofustjóri Eimskipafélags íslands í
Kaupmannahöfn 1962-64, sýslu-
maður Baröstrendinga 1964-68 og
borgarfógeti í Reykjavík 1968-87. Þá
var hann deildarstjóri yfir hlutafé-
lagaskrá í viðskiptaráðuneytinu
1981-87. Ásberg átti sæti í stjórn
Samlags skreiðarframleiðenda
1953-62 og Félags íslenskra togara-
eigenda 1956-62. Hann var fyrsti
varafuhtrúi Sjálfstæðisflokksins í
bæjarstjóm ísafiarðar 1950-61 og
átti þar sæti í ýmsum nefndum. Auk
þess sat hann í yfirkjörstjóm við
alþingiskosningar og var formaöur
skólanefndar Húsmæðraskólans á
ísafirði 1950-58. Hann var formaður
Sambands íslenskra loðdýrarækt-
enda í nokkur ár, fyrsti varaþing-
maður Sjálfstæðisflokksins í Vest-
fiarðakjördæmi 1967-74 og fiórði
þingmaður Vestfiarða 1970-71.
Ásbergkvæntist31.1.1946 Sól-
veigu Jónsdóttur, f. 3.6.1923, dóttur
Jóns Jónssonar, bónda á Hofi á
Höfðaströnd, og konu hans, Sigur-
hnuBjömsdóttur.
Börn Ásbergs og Sólveigar: Ásdís,
f. 5.9.1946, kennari, sambýhsmaður
hennar er Sigurður Þórðarson er
stundar fiskútflutning og á Ásdís
þrjú börn; Sigurlína Margrét, f. 29.7.
1948, d. 13.1.1983, fréttamaður í
Reykjavík, var gift Ólafi Hjaltasyni
verslunarmanni og eignuðust þau
þrjú börn; Jón Ólafur, f. 31.5.1950,
forstjóri Hagkaups, kvæntur Maríu
Dagsdóttur hjúknmarfræðingi og
eiga þau þijú böm, og Sigurður
Pálmi, f. 7.2.1959, arkitekt, en sam-
býhskona hans er Freyja Þorkels-
dóttir fóstrunemi og eiga þau einn
son.
Hálfsystir Ásbergs, samfeðra:
Kristín, alþingismaður í Reykjavík,
nú látin. Álsystkini Ásbergs: Þor-
grímur, prófastur á Staðastað, nú
látiim; Ánna, kvennasögufræðingur
og heiðursdoktor við HÍ, ekkja eftir
Skúla Þorsteinsson, námsstjóra á
Austurlandi; Guðrún, gift Jóni Ei-
ríkssyni, lækni í Rvík; Margrét,
ekkja eftir Þórð Guðmundsson,
verslunarmann í Rvík; Aðalheiður,
ekkja eftir Skarphéðin Magnússon,
stýrimann í Rvík; Áslaug húsfreyja,
gift Hauki Hafstað, b. í Vík í Skaga-
firði, og Valborg, fyirv. skólastjóri
Fóstruskólans, gift Ármanni Snæv-
arr, fyrrv. háskólarektor og hæsta-
réttardómara.
Foreldrar Ásbergs voru Sigurður
Þórólfsson, stofnandi og skólasfióri
lýðskólans á Hvitárbakka í Borgar-
firði, og kona hans, Ásdís Þorgríms-
dóttir. Sigurður var sönur Þórólfs,
b. á Skriðnafelh á Barðaströnd, Ein-
arssonar, skipsfióra og b. á Hreggs-
stööum á Barðaströnd, Jónssonar,
b. á Hreggsstöðum, Einarssonar.
Móðir Jóns var Ástríður Sveins-
dóttir, systir Guðlaugs, langafa Páls,
langafa Ólafs Ólafssonar landlækn-
is.
Móðursystir Ásbergs var Guðrún,
móðir Tómasar Á. Tómassonar
sendiherra. Ásdís var dóttir Þor-
Ásberg Sigurðsson.
gríms, b. á Kárastöðum á Vatns-
nesi, bróður Davíðs, afa Brynleifs
Steingrímssonar, læknis á Selfossi,
og langafa Daviðs Oddssonar. Þor-
grímur var hálfbróðir Sigurbjargar,
langömmu Guðrúnar Agnarsdóttur
alþingiskonu og Ástríðar Thorar-
ensen, konu Davíðs Oddssonar. Þor-
grímur var sonur Jónatans, b. á
Marðamúpi, Davíðssonar. Móðir
Jónatans var Ragnheiöur, systir
Sigríðar, langömmu Ingibjargar,
móður Siguijóns Péturssonar borg-
arfuhtrúa. Ragnheiður var dóttir
Friðriks, prests á Breiðabólsstað í
Vesturhópi, Þórarinssonar, sýslu-
manns á Grund í Eyjafirði, Jónsson-
ar, ættföður Thorarensenættarinn-
ar. Móðir Ragnheiöar var Hólm-
fríður Jónsdóttir, varalögmanns í
Víðidalstungu, Ólafssonar, lögsagn-
ara á Eyri, Jónssonar, ættföður Eyr-
arættarinnar, langafa Jóns forseta.
Móðir Þorgríms var Guðrún Benja-
mínsdóttir, b. í Túngarði, Þórarins-
sonar. Móðir Benjamíns var Stein-
unn Bjömsdóttir, systir Sigurðar,
langafa Stefáns frá Hvítadal.
SMÁAUGLÝSINGAR
s: 27022
Já... en ég nota
yfirleitt beltið!
u
UMFERÐAR
RÁÐ