Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1990, Síða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1990, Síða 3
ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 1990. 3 dv Viötalid * Keilisnesiðbesti staðurinn Nafn: Jóhanna Reynisdóttir Aldur: 32 ára Starf: Sveitarstjóri í Vogum „Starfið leggst vel í mig. Þetta er fjölbreytt og áhugavert starf. Það er gott fólk sem býr hérna í Vog- unum og samstarfiö við það hefur gengið vel,“ segir Jóhanna Reyn- isdóttir sem nýverið tók við stööu sveitarstjóra í Vogum á Vatns- leysuströnd. Timafreksr álviðræður „Það er margt sem liggur fyrir og þarf að gera. Það þarf að byggja leikskóla, byggja við grunnskólann, klára smábáta- bryggju og gera vatnsveitu. Síðan eru álviðræöurnar tíma- frekar. Ég tel Keilisnes tvímæla- laust hagstæðasta staðinn og það er flest sem bendir til þess að ál- verið verði reist hér.“ Heima er best Jóhanna er feedd og uppalin í Keflavík. Hún tók verslunarpróf frá Verslunai-skóla íslands árið 1977. Síðan flutti hún til Svíþjóðar í eitt ár þar sem hún vann hjá Volvo-verksmiðjunum. Að því búnu sneri hún heira til Keflavikur aftur í tvö ár og vann á skrifstofu. Eftir þann tíma tók Jóhanna sig upp á nýjan leik og flutti aftur út í eitt ár. í þetta skiptið varð Noregur fyrir valinu og þar vann hún í fiskvinnslu. „Mér líkaði ágætlega þessi ár sem ég var úti. Þetta var nauð- synleg reynsla en ég á sterkar rætur á Islandi og maður snýr alltaf aftur á Suðumesin.“ Ekki pólitísk Áriö 1981 byrjaði Jóhanna aö vinna í Verslunarbankanum í Keflavík. Á sjö árum vann hún sig upp í útibússtjórastöðu sem hún gegndí í tvö og hálft ár áður en hún sótti um sveitarstjóra- stöðuna í Vogum þar sem hún var valin úr hópi átján umsækjenda. Það er H-hstinn, flokkur óháðra, sem myndar meirihluta í Vogum. Jóhanna segist ekki vera pólitísk. „Éghef mínar skoð- anir en ég er ekki flokksbundin." Ferðast um á véisleðum „Áhugamái mín eru mörg. Ég er mikið fyrir ýmsar íþróttir og stunda bæði sund, skíði og tenn- is. Það er góð sundlaug í Keflavik en því miöur vantar ennþá sund- laug í Vogana. Svo hef ég mikinn áhuga á því að ferðast og fer í mörg ferðalög bæði innanlands sem utan, sumar sem vetur. Ég og maðurinn minn eigum snjósleða og förum í hálendis- ferðir á vetuma með vinum og kunningjum. Við fengum bakter- íuna fyrir þremur ámm og höfum verið í þessu síöan. Þegar maður er byrjaður á þessu þá hættir maður ekki svo auðveldlega. Það er alveg ófrúlega gaman að ferö- ast í óspilltri náttúrunni uppi á jöklum landsins. Þetta er ólýsan- leg tilfinning.“ Jóhanna er gift ÓlafiE. Ólasyni múrarameistara. -BÓl Segulbandstæki Geislaspilarar i Örbylgjuofnar k Bílhátaiarar I Símar | Vasaúr f Símboðar Heyrnartól Tónjafnarar Kraftmagnarar Sjónvarpstæki Útvarpstæki Hljómtæki Á Bíltæki 1 Hátalarar t* Ferðatæki 1 Yasaútvörp ’ Útvarpsvekjarar Myndbandstæki Mynd- og hljómbönd Allt að afsláttur greiðslukjör til allt að 12 mán SKIPHOLT119 SÍMI 29800 \ hhhhbh VISA WHHEHBk

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.