Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1990, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1990, Blaðsíða 32
mrm ■—» r~ n -1 Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstfórn - Augiýsingar - Áj 5krift - Oreifing: Simi 27022 ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 1990. Sjómanni bjargað: Varorðinn kaldurog þrekaðureftiraustur - hafðisigltárekald ' Áhöfn Sjafnar ÞH 142, sem er 200 tonna rækjubátur, bjargaði litlum Sómabát austur af Siglunesi í nótt. Báturinn heitir Lilja EA og hafði hann siglt á rekald. Leki kom að bátnum við olíutank og lúkar stjóm- borðsmegin að framan. „Við vorum rétt hjá bátnum þegar við heyrðum í honum í talstöðinni. Við vorum austur af Siglufirði, það var myrkur og frekar hvasst. Sóma- báturinn var á leið frá Þórshöfn til Akureyrar og var hann nýbúinn að fara fram úr okkur. Þetta var rétt fyrir klukkan þrjú í nótt. Við tókum hann síðan í tog og það gekk ágæt- lega að koma taug á milli. Lilja hafði lent á einhverjum rekaviðardrumb eða kubb og fékk gat á botninn viö lúkarinn og ohutankinn og við það drapst á vélinni,“ sagði Haukur Gunnarsson, skipstóri á Sjöfn ÞH, í samtali við DV í morgun. „Maðurinn á Lilju EA, sem er eig- andi bátsins, var einsamall á ferð. Hann var að sögn Hauks orðinn kald- ur og þrekaður þegar Sjöfn kom með bátinn í togi til Ólafsfjarðar snemma í morgun. Hann var þá búinn að ausasjóallalandleiöina. -ÓTT Biskupstungnabraut: Femtslasaðistí Femt slasaðist, þar af einn alvar- lega, þegar Pontiac Trans am bifreið var ekið út í skurð við T-gatnamót við Biskupstungnabraut og Suður- landsveg skömmu fyrir miðnætti í gærkvöldi. Granur leikur á að öku- maður hafi verið undir áhrifum áfengis. Framendi bílsins lenti handan við veginn á skurðkantinum íjær en aft- urendinn hékk á brúninni nær. Að sögn lögreglunnar á Selfossi var bif- reiðin V-laga að sjá þar sem hún hékk á milli skurökantanna. Enginn í bílnum var í öryggisbelti. Fólkið er um og yfir tvítugt. Karlmaður, sem var farþegi í fram- sæti, hryggbrotnaði og telur lögregl- an að ekki hefði farið svo illa ef hann hefði verið í belti. Maðurinn kastað- ist fram við höggið en hentist svo á sætið í bakfallinu og braut það. Sjúkraflutningamenn höfðu sérstakt belti meðferðis sem gerði flutninginn á manninum mun haganlegri fyrir þann slasaða. Tveir aðrir í bílnum skárast töluvert í andliti en kona hlaut eymsl í hálsi, var marin á öxl og fann til í fæti. Lögreglan segir að ofangreind gatna- mót séu varhugaverð þar sem merk- inga sé ábótavant. Engu að síður segir hún að um of hraðan akstur hafi verið aðræðaerslysiðvarð. -ÓTT LOKI Þeir ráða eldhuga í lögguna! Lagði vísvitandi old að bensíni vi%l Ifvllvllll Sýslumaður A-Skaftafellssýslu hefur ákveöiö að lögregluþjónn á Höfii í Homafirði fái ekki starfs- samning sínn endurnýjaðan um næstkomandi mánaðamót sökum afglapa í starfi. Viðkomandi maöur lagði nýlega vísvitandi eld aö bensíni sem hafði lekið niður viö bensínstöð Ohs á Höfn. Þar stofnaði hann lífi sínu og aö minnsta kosti tveggja ann- arra, þar á meðal var annar lög- regluþjónn, í hættu. Litlu munaði að eldurinn næði aö komast í bens- íntank bifreiðar. Maðurinn lagði eldinn að bensíninu án nokkurrar annarrar ástæðu en að storka þeim sem voru nærstaddir. Lögregluþjónninn hefur hætt störfum. í fyrrasumar ók maður- inn vörubfl og stórskemmdi þegar hann keyrði hann á brú. Hann hafði þá ekki hlotið réttindi til aö aka slíku farartæki. Ekki er ijóst hvort maðurinn fær starf aftur í lögreglunni. Ákveðið hefur þó verið að starfssamningur mannsins, sem átti að renna út 1. september, verði ekki endurnýjað- ur. Hann er þvi kominn í annað starf. Lögregluþjónninn hafði á þessu ári lokiö tilskihnni menntun í lögregluskólanum. Ekki náðist í sýslumann en hann er nú fjarver- andi. Ríkistogarinn: 15 aðilar vilja Hafþór Á milh 15 og 20 aðilar sýndu áhuga á aö kaupa togarann Hafþór, að sögn Jóns B. Jónassonar, skrifstofustjóra í sjávarútvegsráðuneytinu. Tilboðs- frestur hefur verið framlengdur til vikuloka en mörg tilboðanna munu vera ákaflega óformleg. Einn þeirra sem sendu tfiboð er útgerðarfyrir- tækið Eldey á Suðumesjum. Hafþór hefur um 600 tonna rækjukvóta og 160tonnaþorskkvóta. -SMJ Flugumferöarstj órar: Ógildabráðabirgða- lögin samninginn? Samningur flugumferðarstjóra við ríkið, sem undirritaður var 13. júlí síðásthðinn, er nú til skoðunar í fjár- málaráöuneytinu með tilliti til ný- settra bráðabirgðalaga. Er tahð að bráðabirgðalögin geti ógilt samning- inn. Breytingar um starfslok og launaflokkahækkanir munu ganga til baka verði niðurstaðan sú -hlh íslensku gíslamir: Fara liklega til Tyrklands - í hópi Svía á morgun t i i i i i i i i i i í Islensku gíslarnir í Kúvæt fóru ekki með sænsku gíslunum, sem lögðu af stað til landamæra íraks og Tyrklands 1 morgun, samkvæmt upplýsingum sem fengust í utanrík- isráðuneytinu í morgun. Svíar munu hins vegar flytja ríkisborgara sína í burtu í tveim hópum og er gert ráð fyrir að seinni hópurinn leggi af stað á morgun, einnig tfi tyrknesku landamæranna. Allar líkur eru tald- ar á því að íslendingarnir fari með þeim. Ekki er vitað nákvæmlega fyr- ir um brottfarartíma á morgun. „Ég geri ráð fyrir að hópnum hafi verið tvískipt vegna vandamála meö rútur og ég veit til dæmis að Finnarn- ir fóru með einkabflum. Svíarnir, sem lögðu af stað í morgun, fóru í rútum en hópurinn, sem eftir er, er tiltölulega litfil," sagði Finnbogi Rút- ur Arnarson, sendiráðsritari í utan- ríkisráðuneytinu. -SMJ í i i Sýn samþykkir allar kröf ur Stöðvar 2 i i Það var heldur óvenjulegt brúðkaup í Vestmannaeyjum á laugardag. Brúð- hjónin Steinunn Guðmundsdóttir og Jón Ingi Guðjónsson héldu ásamt nán- ustu ættingum með ferðamannasnekkju Páls Helgasonar í Klettshelli þar sem sóknarpresturinn í Vestmannaeyjum, séra Kjartan Örn Sigurbjörns- son, gaf þau saman á sjó um borð í bátnum. Hellirinn var upplýstur með blysum og eftir vigsiuna var boðið upp á sjókælt kampavín. Tæplega 30 manns voru viðstaddir þarna í Klettshelli en á laugardagskvöld var veisla í heimahúsi á Heimaey. Á myndinni eru brúðhjónin ásamt brúðarmeynni, Steinunni Jóhannsdóttur, barnabarni brúðarinnar, í landgangi PH Viking. DV-mynd Ómar Garðarsson Þremenningarnir sem seldu Stöð 2 hlut í Sýn, Árni Samúelsson, Lýður Björnsson og Þorgeir Baldursson, hafa falhst á ahar meginkröfur Stöðvar 2 sem settar voru fram í kjöl- far þessara kaupa. Þremenningarnir munu tryggja það að engar þær kröf- ur leggist á Stöðina sem ekki voru fyrirséðar þegar kaupin fóru fram. í því felst að þremenningamir mimu greiða inn í Sýn þær 20 mfiljónir af hlutafé sem Frjáls fjölmiðlun var leyst undan á sínum tíma, þeir munu taka á sig hugsanlegar kröfur sem kunna að verða lagðar fram vegna pantana á afruglurum og þeir munu auk þess taka á sig ábyrgðir Sýnar í Búnaðarbankanum. Eins og komið hefur fram í DV gáfu Stöðvarmenn þremenningun- um tíu daga frest til að leysa þann ágreining sem kom upp í kjölfar kaupa þeirra á hlut í Sýn. Hann rann útígær. -gse Veðriðámorgun: Heldurkóln- andiveður Vestan og suðvestan strekking- ur á landinu fyrri hluta dags með rigningu eða skúrum um allt sunnan og vestanvert landið, en þurru og tiltölulega björtu veðri á Norðausturlandi. Er hða tekur á daginn snýst vindur smám saman til norðaust- lægrar áttar, fyrst á Vestfjörðum, og þykknar þá upp norðanlands og austan. Heldur kólnandi veður. Einn sá i i i i ódýrasti í bænum * W ' ISVAL v/Rauðarárstig rohjiTesNAHe 17 DAGAR i í

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.