Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1990, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1990, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 1990. Úflönd Svíar og Finnar a leið frá Kúvæt Allir Svíar í Kúvæt, um hundrað og tuttugu talsins, hafa-fengiö að yflrgefa landiö. Um var að ræöa starfsmenn sænskra fyrirtækja í Kúvæt og Qölskyldur þeirra. í morgun voru þeir í tólf langferða- bifreiðum á leið til landamæra Tyrklands. Þeir voru í sömu bíla- lest og þeir fmnsku ríkisborgarar sem fengið höföu fararleyfi. í morg- un var ekki vitað hvort aörir Norð- urlandabúar væru í fór með þeim. Fjölskyldur norskra starfsmanna á vegum Sameínuðu þjóðanna hafa fengið fararleyfi og norski sendi- herrann 1 Bagdad í írak, sem fékk hjartaáfall fyrir skömmu, er á leið- inni heim. Starfsmenn sænska sendiráðs- ins, sem gæta hagsmuna íslendinga í Kúvæt, ætla ekki aö fara úr landi nema þeir verði neyddir til. írösk yfirvöld hafa ítrekað að erlendum sendíráðum í Kúvæt verði lokað 24. ágúst. TT Bandariskir hermenn í eyðimörkinni í Saudi-Arabiu Simamynd Reuter Eignir Kúvæta erlendis BANDARlKIN 50-100milljarðar doliara í fasteignum, oliufyrir- JX .Æg- tækjum, bankairmistæð- ^ um og hlutabréfum í pen- ingastofnunum ASÍA EVRÓPA I eiga 14%>, jílaverksmiðjunum r9,8% I Kuwait Petroleumbilu- fyiirtækinu. 10,5% í Midland- bankanum í Bretlandi og 72% i " auk 6.500 bensínsölustöðva vlðs 8 milljarðar doll- ara í japönskum verðbréfum, fast- eignir í Hong Kong, Singaporeog Mal- Byslu r.. IS ■ I# ■ : Glfurlegur auöur Kúvæta: Ríkidæmið sem freistaði Saddams íraskar eldf laug- artilKúvæt Kúvætar hafa reynt að halda leyndu því sem Saddam Hussein ír- aksforseti hefur lengi vitað, það er umfangi eigna þeirra erlendis sem taldar eru nema hundrað til tvö hundruð milljörðum dollara. Síðan 1985 hafa tekjumar af íjárfestingum þeirra erlendis farið fram úr tekjum af olíuframleiðslunni. Það er áht sérfræðinga að Saddam Hussein hafi ekki bara sóst eftir Kúvæt sjálfu og olíulindunum þar heldur einnig eignum Kúvæta er- lendis. írakar búa við kröpp kjör eins og flestir aðrir arabar en í Kúvæt eru lífskjörin góð, ein þau bestu í heimi. Bandaríkin og bandamenn þeirra hafa nú séð til þess að eigur kúvæ- skra yfirvalda komist ekki í hendur Husseins og því fryst þær. Reyndar er deilt um hversu miklar eigur Kú- væta eru, sérstaklega vegna þess hve vandlega kúvæskir embættismenn hafa gætt þess að halda þeim leynd- um. Fjárlög í Kúvæt eru hagstæö um yfir tíu milljarða dollara á ári þrátt fyrir að heilbrigðisþjónustan sé ókeypis og einnig menntun. Olíulind- imar í Kúvæt em í eigu ríkisins og er tíu prósentum af árlegum olíutekj- um varið til fjárfestinga erlendis, aðallega í Evrópu, Bandaríkjunum og Austurlöndum fjær. Aætlað er aö eignir Kúvæta í Bandaríkjunum nemi fimmtíu til hundrað milljörðum. Árið 1981 keyptu yfirvöld í Kúvæt allt olíufyr- irtækið Santa Fe Intemational í Bandaríkjunum. Yfirvöld í Kúvæt eiga fasteignir í Scottsdale í Arizona, San Francisco, Boston, Philadelphia, New York, Houston og Los Angeles. Auk þess eiga þau ásamt einkaaðil- um í Kúvæt hlut í mörgum banda- rískum peningastofnunum. í Evrópu eiga Kúvætar hlut í ýms- um fyrirtækjum. Kuwait Petroleum Corp. á til dæmis 6.500 bensínstöðvar víðs vegar um Evrópu. í V-Þýska- landi eiga kúvæsk yfirvöld 14 prósent í stærsta fyrirtæki landsins, Daiml- er-Benz bílaverksmiðjunni, og í Bret- landi eiga þau 9,8 prósent af British Petroleum. Þau eiga einnig 10,5 pró- sent í Midland Bank í Bretlandi og 72 prósent í Torras sem er spænskt samsteypufyrirtæki. Auk japanskra verðbréfa að andvirði átta milljarða dollara eiga Kúvætar umtalsverðar eignir í Hong Kong, Singapore og Malaysíu. Erlendar eignir einkaaðila í Kúvæt hafa ekki verið frystar í Bandaríkj- unum þannig að þeir geta nálgast innstæður sínar og ráðstafað að vild. Heimild: USA Today írakar hafa flutt hundruð eld- flauga, sem hægt er að skjóta efna- vopnum með, til Kúvæt. Þetta kom fram í fréttum bresku sjónvarps- stöðvarinnar Sky News í morgun. Eru eldflaugamar í skotfæri við borgina Dhahran í Saudi-Arabíu þangað sem miklir liðsflutningar bandarískra hermanna eru. Fulltrúar þeirra fimm þjóða, sem eiga fastafulltrúa í Öryggisráði Sam- einuðu þjóðanna, héldu í gær áfram að ræða um hvort heimila ætti beit- ingu hervalds til að framfylgja við- skiptabanni Sameinuðu þjóðanna. Vill George Bush Bandaríkjaforseti fá formlega samþykkt Öryggisráös- ins. Bandaríkjaforseti sagði í gær íraka bera ábyrgð á öryggi þeirra Vestur- landabúa sem væru í Kúvæt og írak. íraskar eldflaugar hafa verið fluttar til Kúvæt og eru þær í skotfæri við við Dhahran í Saudi-Arabíu þar sem nú rikir mikil spenna. Forsetinn sagði engan vafa leika á því að Vesturlandabúarnir væru gíslar íraskra yfirvalda þar sem Saddam Hussein íraksforseti hefði boðist til að láta þá lausa gegn því aö bandarískir hermenn yrðu kallað- ir heim frá Persaflóasvæðinu. Var þetta í fyrsta sinn sem forsetinn not- aði orðið gíslar um Vesturlandabú- ana. Hann ráðlagði jafnframt banda- rískum ríkisborgurum í Jórdaníu að fara þaðan. írösk yfirvöld ítrekuöu í gær fyrir- skipun sína um lokun erlendra sendiráða í Kúvæt innan fjögurra daga. Sögðu þau að ef starfsmenn sendiráðanna neituðu að fara til ír- aks myndu þeir ekki lengur njóta diplómatískrar friðhelgi. Fjöldi ríkja hefur tilkynnt að þau muni ekki loka sendiráðum sínum. Bresk yfirvöld greindu frá því í gær að íraskir hermenn hefðu safnað saman áttatiu og tveimur Bretum af hótelum í Kúvæt. Sex Frakkar voru sagöir hafa verið gripnir af íröskum hermönnum á sunnudaginn og einn- ig tólf Bandaríkjamenn. írösk yfir- völd hafa staðfest að Vesturlandabú- ar hafi verið fluttir til hernaðarlega mikilvægra staða. Franskur sjón- varpsmaður, sem er í Bagdad, sagðist í gær hafa komist að því að Banda- ríkjamenn væru hafðir við raforku- ver utan viö höfuðborgina. Sovét- menn hafa fengið að fara frá írak og Kúvæt og í gær hvatti Edward Sé- vardnadze, utanríkisráðherra Sovét- ríkjanna, írösk yíiryöld til að sleppa Vesturlandabúum. írösk yfirvöld til- kynntu hins vegar að þau myndu láta lausa nokkra Indónesíubúa og Argentínumenn þar sem stjórnir þeirra hefðu ákveðið að senda ekki hermenn til Persaflóa. Vígvæðingin við Persaflóa er sú mesta frá síðari heimsstyrjöldinni. Um þrjú hundruð þúsund vestrænir og arabískir hermenn eru nú á svæð- inu. Sextíu þúsund hermenn eru á leiðinni til Persaflóa og gæti sú tala tvöfaldast skjótt ef til átaka kemur. Vestur-þýsk yfirvöld tilkynntu í gær að þau myndu ekki senda hermenn til Persaflóa þar sem slíkt bryti í bága við stjórnarskrá landsins. Talið er að íraskir hermenn í Kú- væt séu eitt hundrað og sjötíu þús- und. írösk yfirvöld segja að allt að þrjú hundruð þúsund hermenn verði fluttir frá íran vegna boðs íraks- forseta um friðarsamninga við írani. Reuter og TT Richard Cheney, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, heimsótti bandaríska hermenn i Dhahran í Saudi-Arabiu um helgina. Simamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.