Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1990, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1990, Blaðsíða 5
ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 1990. 5 I>V Fréttir Steingrímur landbúnaðarráðherra: Kynnir drög að búvöru- samningi í næstu viku - nánastekkertsamráðhaftviðsamstarfsflokkana Steingrímur J. Sigfússon land- búnaðarráöherra stefnir að því að leggja fram drög að búvörusamningi fyrir aðalfund Stéttarsambands bænda sem hefst um miðja næstu viku. Þetta hefur fallið í misjafnan jarð- veg og meðal annars sagöi Sighvatur Björgvinsson, fuUtrúi Alþýðuflokks- ins í samstarfsnefnd ríkisstjórnar- innar um búvörusamninginn, að þetta kæmi sér mjög á óvart. Sam- starfsnefndin hefði nánast ekkert kynnst fyrirætlunum ráðherrans. Hún hefði aðeins haldið einn fund þar sem ráðherra kynnti lauslega þær hugmyndir sem kastað hefði verið fram. Samstarfsnefndin mun halda fund síðar í þessari viku. Þar mun Stein- grímur líklega kynna frekar þau drög sem unnið hefur verið að í samningum bænda og landbúnaðar- ráðuneytisins. Ef nýr búvörusamningur verður gerður mun hann byggjast á búvöru- lögum. Þau renna hins vegar út um áramótin 1991 og 1992. í viðræðum ráðuneytisins og bænda hefur hins vegar verið gengið út frá samningi allt til ársins 1996 eða jafnvel til 1998. Það er því ljóst að til þess að sá samn- ingur standist lög þarf að framlengja búvörulögin á næsta þingi. Það er síður en svo víst að fyrir því sé þing- meirihluti. Þrátt fyrir þetta er það mat sumra að ráðherra þurfi ekki að framlengja lögin til að framlengja verðábyrgð ríkisins. Ljóst sé að óheimilt sé að veija 9 prósent af heildarverðmæti búvara til útflutningsbóta og til Framleiðnisjóðs eftir að lögin renna út en hins vegar sé ekkert fjallað um verðábyrgð ríkissjóðs 1 lögunum. Þau veita ráðherra einungis heimild til að ganga til samninga við bændur. Eins og áður sagði hefur samstarfs- nefnd stjórnarflokkanna einungis haldið einn fund. Samstarfsflokkar Steingríms hafa því lítil áhrif haft á viðræður hans við bændur. Það hef- ur því valdið miklum titringi hjá stjórnarliðum að Steingrímur hygg- ist kynna drög að samningnum inn- an rúmrar viku. -gse Það viðraði vel á brúðhjónin við Landakotskirkju í gær. Hér standa þau utan við kirkjuna, með presti sinum, að athöfn lokinni. DV-myndir JAK Júgóslavneskt brúðkaup í Landakotskirkju: Völdu Reykjavík frekar en Singapore „Þetta var hálfgerð tilviljun að þau ákváðu að gifta sig hér. Mér skilst að þau hafi hugsað sér að gifta sig í Singapore en ákveðið að skella sér í hjónband hér úr því þau voru kom- in,“ sagði Uros Ivanovitc en í Landa- kotskirkju var í gær haldið brúðkaup að júgólavneskum sið. Hjá Uros dvelja nú þrír júgóslavneskir tann- læknar. Tvö gengu í hjónaband í gær en þriðji tannlæknirinn var svara- maður. Uros er úr Slóveníu í Júgóslavíu og hefur búið hér á landi í 9 ár. Sagði hann að algengt væri að landar sínir bönkuðu upp á en hann sagðist ekki hafa þekkt fólkið áður. Það gisti reyndar ekki alit hjá Uros því Janni Zilnic, knattspyrnumaður í Víkingi, tók einnig þátt í að hýsa það. Brúðhjónin halda til írlands á morgun en þau komu hingað til lands álaugardaginn. -SMJ Hringur dreginn á fingur brúðarinnar við giftinguna. Craiglitlilátinn: um15 milljón batakort Craig Sheregold, htli drengurinn með ólæknandi heilaæxli sem DV sagði frá á dögunum, er látinn. Craig hafði sett sér það takmark áður en hann lést að komast í heimsmetabók Guinness sem sá einstaklingur sem fengið hefði flest batakort (get well cards) send. Heiimikil bréfakeðja var sett í gang til að ná þessu marki og bar hún tilætlaðan árangur. Craig fékk um 15 milljón batakort send hvaðanæva að úr heiminum og mun verða skráður í næstu heimsmeta- bók fyrir vikið. Umfjöllun DV setti miklar bréfa- skriftir af stað hér á landi. Ástæða er því til að ítreka að Craig hth náði takmarki sínu áður en hann lést. -hlh KÆLISKAPAR FRYSTISKÁPAR OG MARGT FLEIRA ELDAVELAR OG OFNAR UPPÞVOTTA VÉLAR ÞVOTTAVELAR ÞURRKARAR KAUPFELOGIN UM LAND ALLT SAMBANDSINS HÓLTAGÖRÐUM SÍMI 68 55 50 VIÐ MIKLAGARD auknecht ÞÝSK GÆÐATÆKIÁ GÓÐU VERÐI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.