Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1990, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1990, Blaðsíða 15
ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 1990. 15 Stóriðja í Eyjafirði: Um Ivf eða dauða að tefla? Um þessar mundir hafa íslend- ingar þungar áhyggjur aö mengun sjávar og ekki að ófyrirsynju: Hafið er lífgjafi þjóðarinnar. En hvað um mengun lands og lofts? Getum við treyst því að 200 þúsund tonna ál- ver í Eyjafirði hafi enga mengun í för með sér? Ef illa færi væri það þá í stakasta lagi, bara af því að margir vilja trúa því að stóriðja leysi vandann í efna- hagsmálum Eyfirðinga til lang- frama - að um hf eða dauða sé að tefla hvað varðar lífsafkomu fólks- ins í þessu búsældarlega héraði. Ferðin til Quebec Mér er það enn í fersku minni þegar um það var rætt fyrir fáein- um árum að kanadíska álfélagið Alcan reisti verksmiðju við Eyja- fjörð. Ýmsum hraus þó hugur við þeirri hugmynd. Alcan bauð þá aU- mörgum frammámönnum Akur- eyrar og nágrennis vestur um haf tU þess að skoða eitt af álverum sínum í Quebec-fylki - að þeir gætu séð með eigin augum hversu vel _ væri þar á öllum mengunarvörn- um haldiö. Ferðin þótti takast vel. Flestum ferðalanganna leist ágætlega á það sem fyrir augu þeirra bar: Álver í blómlegum byggðum, búpeningur á beit á næstu grösum við stóriðj- una. Ég man ekki betur en sumum þeirra, sem verið höfðu tortryggnir gagnvart álvershugmyndinni, hafi hreinlega snúist hugur í ferðinni og fengið trú á því að öllu væri KjáUarinn Alice J. Sigurðsson húsmóðir á Akureyri óhætt þótt í stóriðjuframkvæmdir yrði ráðist hér í firðinum. En öflugar mengunarvarnir kosta mikla peninga og reynast þvi miður sjaldan pottþéttar. Þrátt fyr- ir fögur fyrirheit um hreina og ómengaða starfsemi virðast stór- iðjuverin, hverju nafni sem þau nefnast, halda áfram að eitra út frá sér. Um það má lesa umhugsunar- verðan vitnisburð í nýjasta hefti af Intemational Wildlife, sem gefið er út af National Wildlife Federati- on í Bandaríkjunum. Það er eitt- hvert virtasta og vandaðasta tíma- rit um náttúruvernd og umhverfis- mál í heiminum. Frásögn mína hér á eftir byggi ég á grein í þessu tíma- riti. Uggvænleg niðurstaða Fyrir um það bil einum áratug fór að bera á því að dauða hvah, eink- um mjaldra, ræki á land við ósa St. Lawrence-fljótsins í Kanada. Voru brátt mikil brögð að þessu og málið sannkölluð ráðgáta. Árið 1982 hóf National Institute of Ecotoxicology (eins konar holl- ustuvernd ríkisins þar vestra) rannsókn á hræjum hvalanna. Komust vísindamennirnir brátt að raun um að hvalirnir höfðu þjást og líklega drepist af völdum marg- víslegra meinsemda. Nefna þeir hfrarbólgu, krabbamein í nýrum, lungnabólgu, ihkynjuð kýh og æxli í lungum, banvæn magasár og al- varlegar heilaskemmdir. Aht sjúk- dómar sem eins vel gætu hrjáð mannfólk sem hvali. Einn hval- anna var meira að segja með krabbamein í þvagblöðru, sjúk- dóm, sem aldrei áður haföi fundist í hvölum, en er ekki óalgengur hjá verkamönnum í Alcan-álbræðslu um 100 km ofar við fljótið. í hvölunum fundu vísindamenn- irnir mikið af eitruðum efnasam- böndum, m.a. ósköpin öh af svo- köhuðum fjölhringa arómatískum kolvetnissamböndum, oft nefndum PAH, (skammstöfun á enska heit- inu: polycychc aromatic hydrocar- bon). Um 600 tonn af þessum baneitr- uðu efnasamböndum berast tíl lofts úr reykháfum Alcan-álversins í Arvidahérðainu við St. Lawren- cefljótið. Vísindamönnum datt nú í hug að rannsaka heilsufar verka- fólksins sem vann í nábýh við þessi efni. Niðurstaðan rannsóknanna reyndist uggvænleg. Rúmlega 100 fyrrverandi og núverandi starfs- menn Alcan-álversins í Arvida þjáöust af krabbameini í þvag- blöðru. Þótti hklegast að um at- vinnusjúkdóm væri að ræða af völdum PAH-efnasambandanna í umhverfi verkamannanna enda kom í ljós viö víðtækari athugun að shkt krabbamein er um 60% al- gengara í Arvida-héraðinu heldur en í nokkru öðru byggðarlagi í Quebec-fylki. Spor í rétta átt Alcan-fyrirtækið vefengir þessar niðurstöður, telur að engar sönnur hafi verið færðar á það að PAH- útblásturinn úr verksmiðjum þeirra hafi komist.inn í vistkerfi á St. Lawrence-svæðinu og valdið mönnum og hvölum hehsutjóni. Það segir þó sína sögu að Alcan hefur gengist undir að kosta rann- sóknirnar á hvölunum að einum þriðja, jafnframt þvi sem sam- steypan hefur heitið að draga smám saman úr útblæstri eitur- efnasambandanna og að hafa úti- lokað þá mengun til fuhnustu árið 2015. Fyrir tveimur árum setti Kanadaþing stranga löggjöf um meðferð PAH-efnasambanda th þess að koma í veg fyrir mengun af þeirra völdum. Þrátt fyrir þung viðurlög, ef út af er brugðið, hður áreiðanlega langur tími uns já- kvæðum árangri er náð. Eigi að síður mun Kanada vera fyrsta ríkið í heiminum sem setur strangar reglur um meðferð þessara vara- sömu PAH-efnasambanda. Spor í rétta átt en skyldi þá nokkuð vera að gerast í þessum efnum í öðrum löndum? Stóriðja getur verið dýru verði keypt og stundum hreinlega um líf eða dauða að tefla. Alice J. Sigurðsson Heimild: Wendy Penfleld: Message from the Belugas. Intemational Wildlife mai- júní 1990. „Þrátt fyrir fögur fyrirheit um hreina og ómengaða starfsemi virðast stór- iðjuverin, hverju nafni sem þau nefn- ast, halda áfram að eitra út frá sér.“ Heimilið okkar I fimm þúsund mhljóna mann- 'nafi heimsbyggðarinnar er þjóðar- heimhi okkar íslendinga ósköp smávaxið. Það er líka nánast það eina, sem smávaxið er við okkur. Hver íslendingur býr í tíu sinnum stærra landi en sérhver Banda- ríkjamaður og þrisvar sinnum stærra landi en hver Rússi, sem þó byggir fimmtung alls landmassa veraldarinnar. Við notum ósköpin öh af orku, eigum fleiri bíla en flestir aðrir og framleiðni sjómannanna okkar er sú mesta í veröldinni og svo verð- um við allra karla og kerlinga elst- ir. íþróttamenn okkar eru sigur- sæhr í öllum greinum íþrótta, hvar sem er í veröldinni, og svo erum við svo sterkir, að enginn stenst samjöfnuð við okkur á mihi þess sem við hoppum í fegurðarsam- keppni og hkamsrækt þar sem eng- inn stenst samjöfnuð við okkur heldur. Þetta er nú bara hið ytra en hver þorir að kafa ofan í þjóðarsáhna þar sem mörlandinn þiggur í vöggugjöf aðdáun á þeim sem spúa framan í gestgjafa sinn ef honum mislíkar mjöðurinn ásamt því að höggva þann sem hggur vel við höggi. í ökla eða eyra Ýmist erum við ahra þjóða ríkust og setjum glæshegt hagvaxtarmet eins og á árunum 1971 th 1987 - efstir OECD ríkja eða við dettum niður í algjöra fátækt eins og í fyrra þegar við einir þjóða vorum með neikvæðan hagvöxt upp á mínus fiögur prósent. Þetta árið verður tekjuaukningin engin. Þriðja sumarið í röð hendum við sjúklingum út á götu yfir sum- arleyfistímann og má segja að þeim mun meira sem félagsmálasvipur- inn skín okkur úr andlitinu, þeim mun grimmari erum við th andans. Lottóvinningurinn Augljóst er að th þess að byggja KjaUarinn Guðlaugur Tryggvi Karlsson hagfræðingur okkar fagra land og stóra þurfum við góðar tekjur „Það er yfir höfuð talið mjög dýrt að vera íslending- ur“, sagði nóbelsskáldiö. Ef tekju- munur verður of mikih á milli okk- ar og umheimsins missum við allt hæfileikafólk úr landinu. Eftir verða t.d. nokkrir þjóðernissinnað- ir hestamenn með rollur og bátskel og svo auðvitað ríkisvald th þess að skattpína þá og henda þeim út á götu ef þeir lenda á spítala. Fyrir nokkrum árum duttum við í lukkupottinn. Nú orðið tala þó menn um þetta sem eina þá mestu ógæfu sem fyrir okkur hefur kom- ið. Á þremur árum jukust tekjur okkar ár frá ári - fiörutíu th fimm- tíu mihjarðar króna alls. Þetta var lottóvinningurinn, Svo kemur bara annað vers. Og það er ekki alveg eins. Öhum hömlum var létt af og þjóð- in fór á eitt ahsherjar eyðslustökk. Tekjustofnar ríkisins voru rústaðir og í þrjátíu th fiörutiu prósent óða- verðbólgu var tekin upp fastgengis- stefna sem er alveg óhugnanlega fahegt hugtak yfir gengisfölsun eins og aðstæðumar voru. Útflutn- ingsfyrirtækin söfnuðu skuldum og framleiðslugreinarnar fóru á hausinn. Sæist, einhver útlending- ur sem vildi fiárfesta í landinu vom hundamir óðara settir á hann. Sláttur og refabú í þessu mesta góðæri, sem yfir þetta land hefur gengið, voru yfir- leitt tvö ráð thtæk. Slá meiri lán og stofna refabú. Þetta vom vits- munir ríkisvaldsins. Eins og við værum ekki skuldugasta þjóð ver- aldar fyrir! Og enginn þorði að láta sjá sig í pjötlu úr skinni vegna að- gerða Greenpeace og Brigitte Bard- ot. Samt voru slegin meiri lán og farið í pelsaframleiðslu að boði rík- isins. Aht lóðbeint á hausinn. Faxaflóasvæðið borgaði björgunina Björgunaraðgerðirnar voru sár- ar. Farið var í víking og fundnir fimmtán til tuttugu milljarðar króna th bjargar útflutningsat- vinnuvegunum og hehum lands- hlutum. Fyrir Alþýðuflokkinn var þetta hrein blóðtaka þar sem meg- infylgi hans er hér í þéttbýlinu við Faxaflóa og allir ráðherrar flokks- ins eru úr Reykjavíkurkjördæmi. Víða finnst núna sú skoðun í Reykjavík og á Reykjanesi að þessi kjördæmi hafi verið látin greiða björgunaraðgerðirnar. Yfirvinna gersamlega horfm, heimilin á von- arvöl, ríkið í hehögu stríði við há- skólamenntaða sérfræðinga sem aðallega vinna á höfuðborgarsvæð- inu og fyrirtækin á hausnum svo tugum skiptir í hverri viku. Sjóða- sukk hefur aldrei verið ær og kýr Reykjavíkur enda kjördæmamis- réttið öðrum í hag þótt togarar höfuðborgarsvæðisins hafi upp- runalega kortlagt fiskislóð úthaf- sveiða allt í kringum landið. Reykjavík á t.d. ekkert svar við þeim tekjum sem aflaskipin Akur- eyrin og Guðbjörgin bjóða hásetum sínum. Án tekjuauka á þéttbýhnu við Faxaflóa, þar sem þrír fiórðu þjóðarinnar búa, er samt borin von um nokkum hagvöxt í landinu th frambúðar. Ofstjóm í landbúnaði Ekki er heldur hægt að horfa framhjá því furðulega ráðslagi í landbúnaði að á framleiðslusvæði eitt í mjólk, þar sem 80% þjóðarinn- ar búa er Flóabúið aðeins með 30% framleiðslukvóta og Borgarnes- búið gersamlega vannýtt. ísland er frábært landbúnaðarland í mörg- um greinum en auðvitað getur of- stjórn skapað landbúnaðarvanda- mál. Seljum álverið-ekki meiri skattar Ein af vonum þjóðarheimhis okk- ar th þess að auka tekjur er að vel takist til með sölu álvers. Ekki þarf að fiölyrða um það að útlendingar eiga þetta álver og vilja setja það niður á hentugasta staðnum. Ef ríkisvaldið hleypur nú th og fer að skattleggja þjóðina enn um ein- hverja mhljarða th þess að færa álverið th er strax kominn mínus í tekjuáhrif álverssölunnar. Þriggja mihjarða skattlagning th að færa álverið þýðir þannig t.d. strax mínus eitt prósent á tekju- auka þjóðarinnar. Útkoman af öllu samamlögðu getur þýtt það að þjóðin bókstaflega verði af tekju- bata af álverssölunni. Okkar kostn- aður við orkuöflunina verður ær- inn þótt ekki verði farið út í niður- greiðslu á álverinu hka. Sérstak- lega ef stjómvöld ætla vísvitandi að gleyma þeirri hagkvæmni sem felst í hinum ódýru virkjunum í Tungnaá, Vatnsfehsvirkjun og Sultartangavirkjun þar sem aht er klárt nú þegar th virkjunar. Heldur leiða orkuna nógu langt að svo að hún verði okkur nógu dýr. Stórt atvinnusvæði - mikill hagvöxtur Þjóðin hefur tekjur af orkusölu til álversins, hún hefur líka tekjur af því að byggja álverið, fær að- stöðugjöld og vinnu við álverið. Máhð er að selja orku sem kostar okkur sem minnst til álvers sem kostar okkur ekki neitt. Þannig og aðeins á þann máta getum við feng- ið mesta tekjuaukningu fyrir þjóð- arheimihð okkar. Þar sem nóg vinnuafl er th staðar við bygging- arframkvædir og það nýtt th arð- bærrar vinnu er tekinn slakinn úr hagkefinu og batinn nýttur fyrir okkur öh. Þeim mun stærra sem atvinnu- svæðið er, þeim mun hagkvæmari er framkvæmdin og þeim mun meiri jákvæð áhrif verða á hag- vöxtinn. Þannigfær þjóðarheimhið okkar mestar tekjur. Þetta er allt hægt að eyðheggja með hreppríg, skattlagningu og heimsku. Tekju- batinn gagnast aftur á móti öhum, hann er hægt að nota í samgöngu- bætur og jákvæða byggðastefnu, raunsæja fastgengisstefnu og láta það ekki henda okkur enn einu sinni að bægja sjúkum og öldruð- um frá lífsnauðsynlegum heh- brigðisstofnunum, jafnvel þótt læknarnir okkar og hjúkrunarfólk þurfi sitt sumarfrí eins og aðrir. Guðlaugur Tryggvi Karlsson „Án tekjuauka í þéttbýlinu við Faxa- flóa, þar sem þrír fjórðu þjóðarinnar búa, er samt borin von um nokkurn hagvöxt 1 landinu til frambúðar.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.