Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1990, Side 25

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1990, Side 25
ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 1990. 21 Sviðsljós Ólyginn sagði... ElísabetTaylor er tiltölulega nýútskrifuö af sjúkrahúsi eftir níu vikna legu. Læknamir hafa sagt henni aö taka það rólega fyrst um sinn. Aðeins fimm dögum eftir út- skriftina óhlýðnaðist Lísa lækn- isráðum og efndi til blaðamanna- fundar þar sem hún tilkynnti að hún ætlaði að gefa 2,5 milljónir Bandaríkjadala til hjálpar eyðni- sjúklingum. Læknarnir urðu æf- ir en almannarómur sagði að Lísa hefði bara Utið vel út. Linda Evans trúir á anda og leitar iðulega ráða hjá þeim. Aö sögn fylgir Lindu sérstakur andi að nafni Ramtha sem hjálpar henni í gegn- um lífið. Núna hefur Ramtha sagt Lindu að hún og kærasti hennar, Yanni, hafi verið kærustupar í Grikklandi einhvern tíma í forn- eskju. Að fengnum þessum upp- lýsingum telur Linda óhætt að ganga í það heilaga með Yanni og nú stefna þau á giftingu í Hell- as í Grikklandi í september. Ekki er öll vitleysan eins. Paul McCartney komst í tæri við manninn með ljáinn þegar seglbátnum hans hvolfdi í miklum stormi rétt fyrir utan Rio í Brasilíu fyrir skömmu. Litlu munaði aö Palh týndi þar lífinu en á síðustu stundu tókst honum að skreiðast upp á kjöl bátsins þar sem hann tolldi þang- að til björgunarmenn komu á vettvang. Alls fórust 17 manns í storminum. Vaclav Havel leysti Rollingana út með gjöfum í Prag: Fengu pýramídastyttu með rúllandi steinum Um eitt hundrað þúsund manns, þar á meðal Vaclav og Olga Havel, voru á tónleikum Rolling Stones á Strahov leikvanginum í Prag á laug- ardagskvöldiö. Áhorfendur, sem voru frá barnsaldri og upp í sextugt, skemmtu sér hið besta þrátt fyrir rigningu - veifuðu, dönsuðu og klöppuðu í þá tvo og hálfan tíma sem tónleikarnir stóðu yfir. Fólkið tók vel undir þegar Rolling- amir sungu: Miss You, Honky Tonk Woman, You Can’t Always Get What You Want og fleiri lög. Hinn 47 ára gamla kempa, Mick Jagger, talaði dáhtla tékknesku þegar hann ávarp- aði áhorfendur: „Slæma tímanum er lokið - gott tímabh er gengið í garð,“ sagði Jagger. A meðal áhorfenda voru hundruð fatlaðra í hjólastólum og fjöldi Pól- verja sem fengu að fara yfir landa- mærin á tónleikana án nokkurra formsatriða - þeir þurftu aðeins að sýna miðann á tónleikana. Rohing Stones komu til Tékkósló- vakíu eftir að hafa fengið persónulegt boð frá Vaclav Havel forseta en hann bauðst th aö standa straum af ferð þeirra þangað. Hljómsveitin tók ekk- ert fyrir að halda tónleikana en ágóð- inn af tónleikunum rann th fatlaðra og bama. Havel og Olga eiginkona hans tóku á móti Rohing Stones í forsetahöll- inni. Þar færði forsetinn þeim pýra- mídastyttu úr kristal að gjöf. Á stytt- Keith Richards og Mick Jagger ásamt Vaclav Havel virða fyrir sér tugi þúsunda aðdáenda frá svölum forsetahall- arinnar í Prag. Á minni myndinni standa Jagger og Olga Havel fyrir framan fiskveitingahús nálægt heimili Havel- hjónanna í Prag. Þar var Jagger boðið til kvöldverðar á föstudagskvöldið. Reuter unni rúha steinar niður hhðar pýra- Jagger og félagar halda til London þar næstkomandi íostudag og laug- mídans. í vikunni og verða þeir með tónleika ardag. Kóngar, prinsar og prinsessur í löngum röðum. Karl Bretaprins og hans ektakvinna, Diana, eru nú i frii á Mallorca með sonum sínum, Harry og William. Þau eru hér að leggja i siglingu um eyjarnar á spænsku glæsi- skipi. Með þeim er Jóhann Karl Spánarkonungur. Maraþonlega í björgunarbáti - krakkar á Flateyri söfnuðu 60 þúsund krónum Reynir Traustason, DV, Flateyri; Félagar í Sæunni, sem er unghnga- dehd björgunarsveitarinnar á Flat- eyri, háðu maraþonlegu í gúmmí- björgunarbáti um helgina. Báturinn var dreginn út á fjörð meö þremur krökkum innanborðs og síðan var þorpsbúum gefinn kost- ur á að heita á krakkana ákveðinni upphæð fyrir hverja klukkustund sem þau héldu út. Öll héldu þau út í fjóra tíma en þá lagði sjóveikin tvö þeirra að vehi. Sá þriðji hélt út í sjö klukkustundir en þá gafst hann upp vegna vosbúðar. Ágóöinn af ævintýrinu var hvorki meira né minna en 60 þúsund krónur sem notaðar verða til að fjármagna för Sæunnarfélaga á landsmót ungl- ingadeildanna sem haldið verður á Vopnafirði á næstunni. Róbert, Svana og Þórir meðan allt lék i lyndi. Síðar með vaxandi vindi kárnaöi gamanið og sjóveikin gerði vart við sig. DV-mynd Reynir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.