Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1990, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1990, Síða 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 1990. Afmæli Benedikt Kristjánsson Benedikt Kristjánsson. Benedikt Kristjánsson, fyrrv. sjó- maður, Barmahlíð 55, Reykjavík, er áttræður í dag. Benedikt er fæddur í Bolungarvík og ólst þar upp. Hann fór fyrst á sjóinn íjórtán ára og var sjómaður í Bolungarvík til 1935. Benedikt var sjómaður í Rvík 1935- 1945 og verkamaður í Rvík 1945- 1982. Hann var formaður Taflfélags alþýðu, söng í Kirkjukór Bolungar- víkur, Karlakór Bolungarvíkur, Hörpukórnum og Barðstrendinga- kórnum og var einsöngvari með Kirkjukór Bolungarvíkur. Benedikt kvæntist 25. janúar 1944 Gyðu Guð- mundsdóttur, f. 7. janúar 1917. For- eldrar Gyðu voru: Guðmundur Jónsson, b. og hreppstjóri á Fossi á Barðaströnd, og kona hans, Frið- gerður Marteinsdóttir. Börn Bene- afmælið 21. ágúst 90 ára 60ára Vilhjálmur Guðmundsson, Kirkjubraut 36, Höfn. 85 ára María Hallgrímsdóttir, Grundarstíg 17, Reykjavik. Arndís Sigurðardóttir, Austurtúni 16, Hólmavík. Lára Þorsteinsdóttir, Skaröshlíð 16D, Akureyri. Ólafur Herjólfsson, Hvammi, Vatnsleysustrandar- hreppi. Guðrún Pálsdóttir, Sunnuvegi 7, Hafnarfirði. Ástvaldur Steinsson, Brekkugötu 1, Ólafsíirði. 50ára 80 ára Sigríður Einarsdóttir, Hjailavegi 12, Flateyri. 75 ára Ögmundur Jóhannesson, Garöbraut 49, Garði. Sigríður Sigfúsdóttir, Gilsbakka 11, Ytri-Torfustaða- hreppí. ÞórarinnNíelsson, Oddagötu5, Akureyri. 70 ára Einar Þór Einarsson, Reykjavegi 86, Mosfellsbæ. Sigurður Benediktsson, Þórustíg22, Njarðvík. GunnarStefánsson, Einigrund 20, Akranesi. Hulda Guðmundsdóttir, Lækjarási 3, Reykjavík. Sigríður Eyþórsdóttir, Ásvallagötu 26, Reykjavík. Ásdís Magnúsdóttir, Staöarbakka 1, Ytri-Torfustaða- hreppi. Hulda Randrup, Hátúni 30, Keflavík. Sigurgeir Þorbjörnsson, Grettisgötu 33B, Reykjavík. Guðjón Sigmundsson, Dalskógum 4, Egilsstöðum. Pétur A. Pétursson, Hh'ðarbraut 21, Blönduósi. Hansína Jónsdóttir, Neðstutröð 6, Kópavogi. Sigriður Gunnarsdóttir, Birkigrund 42, Kópavogi. ERT ÞU VIÐBÚIN(N) ÓVÆNTUM „GESTI AF AKREININNI Á MÓTI? dikts og Gyðu eru: Kristján, f. 3. fe- brúar 1943, verkfræðingur í Rvík, hann á eina dóttur; Friðgerður Sig- ríður, f. 16. nóvember 1946, gift Jóni ísakssyni, stórkaupmanni í Rvík, og eiga þau þrjú böm, og Ársæll, f. 2. júní 1958, líffræðingur í Osló. Systk- ini Benedikts era: Salóme, f. 7. apríl 1896, d. 6. mars 1912; Hávarður, f. 26. nóvember 1897, d. í desember 1920; Kristín, f. 10. maí 1900, d. 25. maí 1900; Árni Bárður, f. 26. júní 1901, d. 18. júní 1911; Borghildur, f. 30. desember 1903, d. 13. apríl 1909; Gísh Sveinn, f. 25. nóvember 1906, sundhallarforstjóri á ísafirði, kvæntur Guðrúnu Vigfúsdóttur, og Salómon Borgar, f. 29. nóvember 1913, d. 3. september 1945, sjómaður í Rvík. Foreldrar Benedikts vora: Kristj- án Gíslason, f. 26. júlí 1865, d. 14. júlí 1941, sjómaður í Bolungarvík, og kona hans, Sigríður Hávarðs- dóttir, f. 3. desember 1873, d. í sept- ember 1950. Kristján var sonur Gísla, b. í Reykjafirði, Gíslasonar, þilskipaformanns á ísafirði, Sveins- sonar. Móðir Kristjáns var Salóme Kristjánsdóttir, dbrm. og varaþing- manns í Reykjarfirði, Ebenezers- sonar, b. í Innri-Hjarðardal í Önund- arfirði, Guðmundssonar, b. og hreppstjóra í Neðri-Arnardal, Bárð- arsonar, b. í Amardal, Illugasonar, ættfóður Amardalsættarinnar. Móðir Salóme var Kristín Pálsdótt- ir, b. og hreppstjóra í Neðri-Arnar- dal, Halldórssonar og konu hans, Margrétar Guðmundsdóttur, systur Ebenezers. Sigríður var dóttir Hávarðar, b. á Grundarhóli í Bolungarvík, Sig- urðssonar „proppa", b. í Hjöllum í Skötufirði, Þorsteinssonar, b. í Ögri; Sigurðssonar, b. í Ögri, Ólafssonar, lögsagnara á Eyri, Jónssonar, ætt- föður Eyrarættarinnar, langafa Jóns forseta. Móðir Sigríðar var Guðrún Guðmundsdóttir, b. á Eyri í Mjóafirði, Guðmundssonar og konu hans, Salvarar Þorvarðardótt- ur, b. í Eyrardal, Sigurðssonar, b. í Eyrardal, ættföður Eyrardalsættar- innar. Sigurður var sonur Þorvarð- ar, b. á Látrum í Mjóafiröi, Jónsson- ar, bróður Ólafs, lögsagnara á Eyri. Benedikt verður að heiman á af- mælisdaginn. Emma Amadóttir Emma Ámadóttir, þerna á Akra- borginni, Vallarbraut 5, Akranesi, nú til heimilis að Dvalarheimili aldraðra, Hlíð, á Akureyri, er sextíu ogfimmáraídag. Emma fæddist á Akureyri og ólst upp í Norðurgötu 30. Árið 1938 flutt- ist fjölskylda hennar til Ólafsfjarö- ar. Emma stundaði skíðaíþróttina af miklu kappi og varð hún skíða- drottning íslands árið 1940. Þann 4. maí 1946 giftist Emma Garðari Magnússyni frá Akurgerði á Akranesi. Þau bjuggu að Háholti 28 á Akranesi uns þau slitu sam- vistum. Emma og Garðar eignuðust sjö börn. Þau era: Ágústa Gíslína, f. 11. mars 1947, eiginmaður hennar er Henry Stefánsson og eiga þau einn son, Hafþór, þau eru búsett í Flórída í Bandaríkjunum; Árni Ingi, f. 30. september 1949, eiginkona hans er Ása Bryndís Garðarsdóttir og eiga þau tvö börn, Garðar Ágúst og Emmu, þau eru búsett í Mosfellsbæ; dóttir f. 18. apríl 1951, d. 19. apríl 1951; Edda Klingenberg, f. 15. febrú- ar 1953, eiginmaður hennar er Ame Lystrap og eiga þau þrjú böm, Mic- helle, Natascha og Martin, þau era búsett í Danmörku; Ásdís Þuríður, f. 23. febrúar 1956, eiginmaður henn- ar er Bjöm Guðmundsson og þeirra böm eru Guðmundur Örn og Emma Rakel, þau eru búsett á Akranesi; Hafdís, f. 14. nóvember 1959, eigin- maður hennar er Rúnar Sigurðsson og eiga þau þijá syni, Tryggva, Þór og Inga, þau eru búsett í Flórída í Bandaríkjunum; Hörður, f. 31. ágúst 1970, sambýliskona hans er Þóranna Hildur Kjartansdóttir og eru þau búsettáAkranesi. Systkini Emmu eru Sverrir og Ragnar sem báðir eru búsettir á Akureyri, Haukur búsettur í Reykjavík og Unnur Berg búsett í Mosfellsbæ. Faðir Emmu var Árni Valdimars- son, f. 2. september 1896 í Garðsvík á Svalbarðsströnd, d. 2. september 1980, fyrrum kaupfélagsstjóri á Ól- afsfirði og skrifstofumaður KE A. Hann var sonur hjónanna Jónínu Jónsdóttur frá Hólkoti og Valdimars Grímssonar, bónda og hákarlaskip- stjóra frá Neðri-Dálksstöðum í Þing- eyjarsýslu. Móðir Emmu er Ágústa Gunn- Emma Arnadóttir. laugsdóttir, f. 1. ágúst 1895 á Stóru- Borg í Vestur-Húnavatnssýslu. Hún var dóttir hjónanna Þuríðar Bjarna- dóttur, sem kennd var við Mel- rakkadal, og Gunnlaugs Sigurðs- sonar, bónda og smiðs frá Kárdals- tungu í Vestur-Húnavatnssýslu. Emma verður að heiman á af- mælisdaginn. Þórarirai Bjömsson Þórarinn Björnsson, Laugarnes- tanga 9B, Reykjavík, er sextugur í dag. Þórarinn fæddist í Reykjavík en flutti á fyrsta ári til Trostansfjarðar í Amarfirði. Þar ólst hann upp og bjó til tvítugs er hann flutti aftur til Reykjavíkur. Þórarinn kom þó oft til Trostansfjarðar eftir það og dvaldi þar í skemmri tíma, meðal annars við refaveiði og silungsveiði. Eftir komuna til Reykjavíkur hóf Þórarinn trésmíðanám. Meistarinn lést eftir að Þórarinn hafði verið tvö ár í læri hjá honum. Söðlaði Þórar- inn þá um og fór að læra múrverk og lærði það í um eitt og hálft ár. Eftir það fór hann á sjóinh og var þar í sautján ár, ýmist sem bryti, háseti eða kokkur. Slys batt þá enda á sjósókn Þórarins. Þórarinn var kokkur hjá Land- helgisgæslunni í um þijú ár og tæp þijú ár var hann bryti á sama stað. Hann hefur einnig unnið við leigu- bílaakstur. Sambýliskona Þórarins er Guðrún Sóley Karlsdóttir, f. 11. september 1950. Foreldrar hennar era Karl Adolf Einarsson, sem er látinn, og Sigríður Sæmundsdóttir. Þórarmn á fjögur uppkomin böm, Sigurlaugu Guðrúnu, Jóhannes Ragnar, Þórunni Ragnhildi og BjarkaUnnar. Foreldrar Þórarins era Bjöm Jónsson og Sigurborg Bjamadóttir. Faðir Sigurborgar var Bjarni Am- grímsson „sterki", b. í Trostansfirði í Amarfirði, og móðir hennar var Sigríður Thorlacius en þau létust bæði árið 1929. Bjami var sonur Amgríms, prests á Bijánslæk, Bjamasonar, prests á Melum, Arn- grímssonar. Móöir Arngríms var Guðrún Sigurðardóttir, klaustur- haldara í Kirkjubæjarklaustri, Ól- afssonar, sýslumanns í Haga, Árna- Þórarinn Björnsson. sonar, bróður Guðrúnar, langömmu Jónsforseta. FYRSTU SKREFM ERU SMÁAUGLÝSMGAR!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.