Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1990, Page 2
2
FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1990.
Fréttir
Gífurleg óánægja sjómanna úti á landi með fiskverð:
„Eins og pottur sem enginn
veit hvenær springur“
- segir Guðjón A. Kristinsson, formaður Farmanna- og fiskimannasambandsins
„Astandið núna er eins og pottur
sem enginn veit hvenær springur.
Þetta er orðið þannig að það er farið
að muna helmingi á tekjum sjó-
manna eftir því hvort þeir landa á
mörkuðum fyrir sunnan eða eru
bundnir því að landa í sínum ver-
stöðvum eftir föstu verði,“ segir Guð-
jón A. Kristinsson, skipstjóri og for-
maður Fannanna- og fiskimanna-
sambands íslands, en gífurleg óán-
ægja er meðal sjómanna úti á landi
sem verða að búa við verðlagsráðs-
verð á meðan sjómenn á suðvestur-
horninu fá allt að helmingi meira
fyrir fiskinn á fiskmörkuöum. Telja
þeir að frjálst fiskverð hjá sumum
sé að leiða stéttaskiptingu yfir sjó-
mannastéttina sem ekki verði við
unað.
Þrátt fyrir aö sums staðar hafi ver-
ið reynt að spyma við þessum launa-
mun með því að greiða álag á verð-
lagsráðsverðið virðist ekki viö neitt
ráöið.
„Ég tel óhjákvæmilegt að allur fisk-
ur, sem veiðist, verði seldur á fisk-
mörkuðum og það á að lögfesta slíkt
sem fyrst. Menn á verðlagsráðsverði
keppa einfaldlega ekki við fiskmark-
aðina,“ sagði Reynir Traustason,
skipstjóri og formaður skipstjórafé-
lagsins Bylgjunnar á Vestfjörðum.
Reynir segist telja ástandið orðið
óviðunandi og menn verði að játa það
sem fyrst að öll þróun mæli með
frjálsu fiskverði um land allt. Hann
sagði að sjómenn væra orðnir leiðir
á að búa við falskt fiskverð sem sé
skammtað af þeim sem sitji báðum
megin borðs, það er að segja þeim
sem sjá bæöi um útgerð og fisk-
vinnslu.
Reynir sagðist einnig verða var við
þá þróun að það væri farið að verða
erfitt að manna skipin úti á landi
góðum sjómönnum, þeir sæktu á
suðvesturhomið og frystiskipin.
Guðjón sagðist geta tekið undir
skoðun Reynis um það að allur fiskur
færi á markaðina. Hann taldi þó
tvennt til ráða í augnablikinu: „í
fyrsta lagi mætti íjölga mörkuðunum
hér á landi og þá mætti einnig taka
mið af verði þar gagnvart þeim fiski
sem ekki er seldur á mörkuðum.
Þetta verð gæti verið eitthyert hlut-
fall afvikumeðaltali," sagði Guðjón.
-SMJ
Stj ómarformaður Aílamiðlunar:
Tollurinn nái tökum
á útflutningi ísfisks
Þeir voru hressir, fjórmenningarnir i þungarokkssveitinni Whitesnake, þeg-
ar þeir spjölluðu við blaðamenn í gærkvöldi. Þessi fræga hljómsveit mun
halda tvenna tónleika í Reiðhöllinni um helgina. Fremst á myndinni er
höfuðpaurinn David Coverdale. Hann er lengi búinn að vera í eldlinunni
og þekktur meðal allra þungarokksaðdáenda. í dag er hvildardagur hjá
hljómsveitinni og er ætlunin að reyna fyrir sér í laxveiði. DV-mynd BG
Fulltrúi ríkissaksóknara um forræðismáliö:
Þetta er ekki
sakamál
- beiðnilögreglustjóravisaðfráembættinu
Rikissaksóknari hefur vísað frá sér
beiðni lögreglustjóra um að taka
ákvöröun um framkvæmd innsetn-
ingarbeiðni vegna níu ára gamallar
stúlku, í forræðisdeilu sem staðið
hefur yfir að undanförnu. Beiðni lög-
reglustjóra var á þá leið að fram færi
opinber rannsókn á hvar stúlkan en
niður komin. Móðirin hefur neitað
aö láta hana af hendi.
Málið hefur veriö sent aftur til lög-
reglustjóra til þeirrar meðferðar sem
beiðni borgarfógetaembættisins um
aðstoð við framkvæmd innsetning-
arinnar gefur tilefni til. Stúlkan er á
óþekktum stað hér á landi en er í
tengslum við móður sína. Móðirin
neitar að láta hana af hendi til fógeta
og lögregluyfirvalda. Faðirinn hefur
forræðið en bamið hefur verið í sum-
arfríi á íslandi hjá móöur sinni í
sumar.
Guðjón Magnússon, fulltrúi hjá
ríkissaksóknara, segir að forræðis-
málið sé ekki sakamál. Svar þess efn-
is hefur verið sent til lögreglustjóra
og lögmanns föðurins. Ný gögn vora
nýlega send frá lögfræöingi móður-
innar til dómsmálaráðuneytisins í
málinu.
„Við teljum ekki að hér sé um saka-
mál að ræða. Þessu eigum við ekki
að koma nálægt og höfum einfaldlega
bent á aö þetta sé ekki sakamál,"
sagði Guðjón Magnússon í samtali
við DV.
„Við töldum að erindi lögreglu-
stjóra, sem sent var hingaö, væri
fyrst og fremst að framfylgja ákveðn-
um úrskurði sem var upp kveðinn
af borgarfógeta um innsetningu
barnsins. Við skiptum okkur ekki af
því hvernig borgaréttarleg yfirvöld
haga sínum málum. Máliö var á sín-
um tíma sent þaðan til lögreglustjóra
í samræmi við beiðni lögmanns föð-
urins og úrskurð fógeta. Lögregla
hefur samkvæmt lögum veitt borgar-
fógeta atbeina við þessar aögerðir.
Ríkissaksóknaraembættið hefur
hins vegar tekið þetta mál fyrir núna,
samkvæmt ósk lögreglustjóra. Nið-
urstaðan er að hér sé ekki um lög-
reglumál að ræða. Þetta á heima á
öðram vettvangi og kemur okkur
ekki við,“ sagði Guðjón Magnússon.
Ekki náðist í fulltrúa hjá dóms-
málaráðuneytinu vegna forræðis-
málsins. Eftir því sem DV kemst
næst era þó hin nýju gögn í málinu,
sem lögfræðingur móðurinnar hefur
lagt inn, nú í athugun þar.
Lögmaður föðurins hefur kært kon-
una fyrir ætlað brot á almennum
hegningarlögum fyrir að láta ekki
stúlkunaafhendi. -ÓTT
„Við höfum í sjálfu sér ekkert ann-
að tæki til framkvæmda en aö
minnka úthlutanir til þessara aðila
en það er ekki nógu gott ef þeir síðan
komast upp með að flytja út meira
en við heimilum. Minnkun heimilda
er bitlaust vopn meðan það heldur
ekki. Við leggjum því áherslu á að
tollurinn nái tökum á þessu og ráðu-
neytið konú inn í þær hliðar sem að
því snýr. Útflutningur ísfisks er til
fyrirmyndar á Vestíjörðum og Aust-
fjörðum en í Vestmannaeyjum og
Reykjavík virðast menn geta flutt út
Grimsamlegir menn:
Sprungiðáhjól-
barðaog hljóð-
kúturðróstmeð
Lögreglan veitti mjög grunsam-
legri bifreið eftirtekt á Miklu-
brautinni á ellefta timanum í
gærkvöldi. Ökulagiö var skryk-
kjótt, sprangiö var á einum hjól-
barðanum, hljóökúturinn dróst
með götunni og á bilnum var
töluvert af skellum.
Þegar nánar var aö gáð var öku-
maðurinn greinilega mjögdrukk-
inn og farþegi svaf áfengissveíhi
í aftursæti bílsins. Ökumaðurinn
sagði að þeir félagar heföu verið
fyrir austan fjall. Grunur lék á að
bílnum heföi verið ekið utan í á
nokkrum stöðum á leiðinni.
Mennimir vora látnir sofa úr sér
áfengisvímuna í fangageymslum í
nótt og vora þeir síöan yfirheyrðir
i morgun. -ÓTT
Norðurlandaráð:
Péturtilnefndur
Pétur Jónasson, gítarleikari og
Blásarakvintett Reykjavikur era
tilnefhingar íslands til tónlistar-
verðlauna Norðurlandaráðs.
Ákveðið verður 14. nóvember
hver hlýtur verðlaunin sem af-
hent verða í Kaupmannahöfn 26.
febrúar næstkomandi, Nema
verðlaunin tæpri einni og hálíri
milljón íslenskra króna.
Það vekur athygli við tilnefning-
ar frá hinum Norðurlöndunum
aö Danmörk tilnefnir fyrir sína
hönd hinn þekkta djassmann, bas-
saleikarann Niels-Henning Örsted
Pedersen sem er íslendingum að
góðu kunnur. -HK
án heimilda. Við viljum að tollurinn
hleypi ekki ísfiski úr landinu án
heimilda að hann verði tollskoðaður
fyrir útflutning,“ sagði Sigurbjöm
Svavarsson, stjómarformaður Afla-
miðlunar, við DV.
Fjöldi ísfiskútflytjenda, aðallega af
Suður- og Suðvesturlandi, hafa sam-
tals flutt út 900 tonnum meira af ís-
fiski en heimildir voru fyrir frá Afla-
miðlun í júlí og þrjár fyrstu vikur
ágústmánaðar. Að sögn Sigurbjörns
era þetta sömu aðilar og fluttu út
umfram heimildir í vor en hann vildi
í
Mikið umferðaröngþveiti varð af
völdum glussaolíu úr vörubíl sem
haföi lekið á rúmlega eitt hundrað
metra svæði á mótum Bústaðavegar
og Flugvallarvegar um kvöldmatar-
leytið í gærkvöldi. Sex bílar skemmd-
ust í þremur óhöppum og Qórir sem
voru í þeim vora fluttir á slysadeild.
Loka þurfti Bústaöavegi um tíma
vegna ástandsins.
Slys urðu á fjórum, þó ekki alvar-
leg, þegar þrír bílar lentu í árekstn
af völdum hálkunnar á götunní. Á
ekki nafngreina þá sérstaklega.
- Seinkar það ekki fiskinum og
rýrir þá verðgildi hans að toll-
afgreiða hann allan fyrir útflutning?
„Tollafgreiðslan seinkar í sjálfu sér
engu en hún þýðir að menn verða
að vera fyrr á ferðinni með sína
pappíra. Auðvitað eru þetta óþæg-
indi en auðvitað á ekki að auka þæg-
indi yfir þá sem flytja út umfram
heimildir. Aflamiðlun snýst jú um
að útflutningur á ferskfiski verði
ekki aukinn.“
-hlh
svipuðum tíma var öðrum bíl ekið á
ljósastaur viö gatnamótin og
skemmdist hann nokkuð. Tveir aðrir
bílar lentu síðan í árekstri en þar
urðu ekki slys á fólki.
Glussarör hafði sprangið í vöra-
bílnum og lak olían eftir götunni.
Rétt áður haföi rignt og orsakaðist
af þessu mikil hálka. Starfsmenn
Reykj avíkurborgar komu síöan á
vettvang eftir að götunni var lokað
og smúluðu þeir olíuna í burtu.
-ÓTT
Lögreglan sópar glerbrot á vettvangi þar sem glussaolía hafði lekið niður
úr vörubíl og orsakað þrjú umferðaróhöpp og slys á fjórum sem voru í
bílum sem runnu í hálkunni. DV-mynd S
Umferðaröngþveiti á Bústaðavegi í gærkvöldi:
Fjórir slösuðust og
sex bílar skemmd-
ust vegna olíuhálku