Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1990, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1990, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1990. Fréttir Láviðstórslysi: Stjórnlaus dráttarvél með átta ára pilt undir stýri Magnús Ólafeson, DV, Húnaþingi; Dráttarvél með átta ára pilt innan- borðs rann stjómlaust niður brattar brekkur um hálfs kílómetra leið fyr- ir skömmu. Óhappið varð að Hnjúki í Vatnsdal. Segja má að það hafi verið lán í óláni fyrir Sigurö á Hnjúki að sleppa með handleggsbrot og mar. Hraðinn á dráttarvéhnni var orðinn svo mik- ill að hún hentist yfir stóran skurð og hafnaði á hvolfi. Höggiö var svo mikið að öryggisgrindin lagðist sam- an og mótorinn skekktist og er véhn því talin ónýt. Drengurinn fór upp í véhna þar sem hún stóð skammt frá bænum. Skömmu síðar rann hún af stað. Hæöarmunurinn frá bæ og að skurð- inum er nálægt hundraö metrum. Farið var með drenginn tU Reykja- víkur þar sem gert var að handleggs- brotinu. Fékk hann að fara heim aö þvi loknu. Sigurður má teljast heppinn að hafa sloppið með handleggsbrot en dráttarvélin er illa útleikin eins og sjá má. DV-mynd Magnús Ólafsson Einkaframtak í vegagerð: Ný leið að opnast inn á Vatnajökul Sigrún Björgvinsdóttir, DV, Egflsstöðum; „Það mætti segja mér að þarna væri að opnast ný ferðamanna- paradís með ísheUum, lóni til sigl- inga, skíðalandi og greiðri leið inn á Vatnajökul," sagði Dagur Krist- mundsson á EgUsstöðum. Dagur hefur nú í sumar unnið ásamt fleiri að vegagerð frá SnæfelU inn að Vatnajökh. Þama voru famar að myndast margar slóðir og íshleyp- ur. Dagur, sem er félagi í Ferðafé- lagi Fljótsdalshéraðs, sá að við svo búið mátti ekki sitja. Þeir Ferðctfé- lagsmenn sóttu um fjárveitingu tU Vegagerðar ríkisins (fjaUvegasjóðs) tU aö laga veginn en fengu engin svör nema hvað þeir fengu einn hólk og stikur eftir ítrekaða beiðni. Engu að síður fór Dagur í það að gera þessa leið færa og lagði til verksins vömbU, hjólaskóflu og jeppa. Með honum í framkvæmd- unum vora þeir Víðir Sigbjöms- son, Benedikt Blöndal og Krist- mundur Dagsson. í eina viku var unnið að þessu verkefni. Þeir félagar keyrðu í verstu staðina og settu þrjá hólka, þar af lögðu þeir sjálfir til tvo. Nú era 15 km af leiðinni inn að jökU sæmUega færir vel búnum bílum. Eftir er að laga þrjá km en Ferðafé- lagið stikaði aUa leiðina. „Ég hef haft samband við Naust (Náttúravemdarsamtök Austur- lands) og þau styðja okkur í þessu máli á þann hátt aö við fáum að minnsta kosti greitt fyrir útlagðan kostnað. Þetta er hið þarfasta verk fil að koma i veg fyrir eða minnka líkur á aö landið skemmist vegna umferðar. MikU brögð voru orðin aö því að menn keyrðu nýja og nýja slóð,“ sagði Dagur. Hann sagði að fyrsta daginn, sem leiðin var fær, hefði rúta með 17 franska ferðamenn farið inn eftir. Komið er að jöklinum við Búða- hrauk, vestan við lónið við Háöldu, en hún er vestan Eyjabakkajökuls. „Draumur minn er sá að koma tog- braut upp við SnæfeU til að auð- velda mönnum uppgöngu á fialUð. Þama inn frá er 50 gráða heitt vatn og ótæmandi möguleikar á að skapa góöa aðstöðu fyrir ferða- menn,“ sagði Dagur að lokum. Flugleiöirá Noröurlandi: Gísiiráðinn Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii „Þær breytingar, sem era að eiga sér stað, miöa einfaldlega að því að auka og bæta þjónustu Flugleiöa, ekki síður á Norður- landi en á öðram stööum á landinu, og það má segja að ráðn- ing mín í þetta starf sé hluti af þeirriþróun,“ segir GísU Jónsson, forstjóri Ferðaskrifstofu Akur- eyrar, en hann hefur verið ráöinn umdæmisstjóri Flugleiða á Norð- urlandi og hefur tekið við starfi Gurmars Odds Sigurðssonar sem gegnt hefur því undanfarin ár. GísU sagði í samtaU viö DV að eignaraðild Flugleiða að Feröa- skrifstofu Akureyrar hefði aukist er Ferðaskrifstofan Úrval keypti Feröaskrifstofuna Útsýn en Ut- sýn var eignaraöiliað Ferðaskrif- stofu Akureyrar. Þá hefði sú breyting orðið hjá Flugleiðum að innanlandsflugið heyrði nú undír þróunarsvið félagsins. í kjölfar þessa hefði verið taliö rétt að gera þær breytingar á starfseminni á Norðurlandi sem nú hafa átt sér stað. „Akureyri er sá staður þar sem umsvif Flugleiða eru langmest utan Reykjavíkur og þvi ekki nema eðUlegt að þær breytingar sem fyrírhugaö er að gera úti á landi, og miða að því að bæta og efla þjónustu við farþega, hefiist á Akureyri áður en kemur -aö öðrum stöðum á Norðurlandí." GísU nefndi sem dæmi að síma- málin á AkureyrarflugvelU væru langt frá því að vera í lagi og mjög erfitt fyrir ferþega að 'ná þangað á álagstímum. Eins væri á álagstímum of löng bið þegar farþegar væru að skrá sig í flug. „Þetta era einungis tvö atriði sem þarf að taka á og bæta. Þeim úr- bótum mun fylgja aukm tækni- væðing en það er reyndar ekki fullmótað með hvaða hætti verð- ur ráðist í þessi verkefm," sagði Gisli. Bergþór ErUngsson og Sigurð- ur Kristinsson verða afgreiðslu- stjórar Flugleiða á Akureyrar- flugvelU eins og hingað til. Gísli sagði að völd þeirra ykjust verð- andi daglegan rekstur starfsem- ínnar á flugvelUnum en starf hans yrði fyrst og fremst að vinna að frekari uppbyggingu þjón- ustunnar og sölu- og markaðs- málum, a.m.k. fyrst í stað. í dag mælir Dagfari Misskilningur hjá Mitterrand Mitterrand Frakklandsforseti sótti okkur heim á dögunum. Hélt veislu og sótti veislu, fór til ÞingvaUa, kom frá Þingvöllum og flaug og sá Gullfoss og Geysi eins og ferða- manna er siður. Mitterrand kann vel sig á íslandi og íslendingar kunna vel við hann. Eins er ekki ónýtt að fá forsetann í heimsókn enda er hann einn valdamesti mað- ur Evrópu og ræður miklu um þró- un heimsmálanna. Það er gott til þess að vita að hann man eftir garminum honum KatU. Mitterrand hélt blaðamannafund og flutti ræður á meðan á íslands- heimsókninni stóð. Þar hjuggu menn eftir því að forsetinn ráðlagði íslendingmn að taka upp viðræður við Evrópubandalagið. Hann lét meira að segja þau orð faUa að ís- lendingar væra svo fáir og smáir að þeir gætu áreiðanlega fengið undanþágur með fiskveiðamar. Augljóst var að með þessum um- mælum sínum vUdi Mitterrand sýna gestgjöfum sínum vináttuvott og þakka þeim fyrir gestrisnina. Ekki vissi Mitterrand að þessi orð hans mundu vekja upp nýjar deilur um hugsanlegt samstarf Islendinga við Evrópubandalagiö. Hvað þá að Mitterrand hefði gert íslensku rík- isstjórninni og gestgjöfum sínum hinn mesta óleik. Mitterrand gekk nefnilega í Uð með stjórnarand- stöðunni þegar hann ráðlagði ís- lendingum að hefia samningavið- ræöur við bandalagið. Hann gekk til Uðs við Sjálfstæðisflokkinn og þær röksemdir sem sá flokkur hef- ur haldið uppi í þessu máli. Sjálfstæðisflokkurinn vill beinar viöræður við Evrópubandalagið. Ríkisstjómin, með utanríkisráð- herra í broddi fylkingar, hefur hins vegar lagt áherslu á viðræður í gegnum EFTA og vUl ekki taka upp beinar viðræður fyrr en útséð er með árangur af samningum EFTA og EB. Enda var utanríkisráðherra fljótur að segja að Mitterrand hefði mismælt sig eða þá að ummæU hans væra á misskilningi byggð. Þetta kom forsætisráðherranum okkar einnig afar Ula því að hann hafði áður og nýlega sagt í viðtaU viö Morgunblaðið að aðild að Evr- ópubandalaginu væri það versta sem fyrir íslendinga gæti komið. Það reyndist að visu létt verk fyr- ir Steingrím að útskýra það fyrir blaðamönnum að hann hefði ekki sagt það sem hann sagði og meint annað en það sem hann meinti. Steingrímur er sérfræðingur í aö segja eitt og meina annað og þegar hann segir að eitthvað sé verst fyr- ir ísland meinar hann að það sé ekki endUega verst heldur slæmt en gæti þó orðið betra ef það væri ekki verra. Steingrímur er sem sagt þeirrar skoðunar að ísland eigi ekki að ganga í Evrópubandalagið en það sé margt verra sem geti hent og það þýði auðvitað ekki að íslendingar geti ekki sótt um aðUd eða átt viðræður við Evrópubanda- lagið ef það geti verið betra fyrir íslendinga heldur en það sem mundi verða verra ef við væram ekki með aðUd. í raun og vera er það merkUegt í sjálfu sér að fiölmiðlar séu aö gera mikið með það sem Steingrímur segir, vegna þess að hann meinar ekki aUt sem hann segir og segir ekki alltaf það sem hann meinar. Þetta verða fiölmiðlamenn að fara að læra svo að þeir séu ekki alltaf að misskilja Steingrím. Eins er það með Mitterrand. Hann er veraldarvanur stjórn- málamaður sem fer víða eins og Steingrímur og meinar þess vegna ekki alltaf það sem hann segir. Menn segja margt í viðhafnarvið- tölum og á blaöamannafundum og það er barnaskapur hjá fiölmiðla- mönnum og sjálfstæðismönnum að taka mark á öllu því sem sagt er. Þetta veit Jón Baldvin sem hefur verið utanríkisráðherra og hlustað á margan sjóaðan stjórnmála- manninn og þjóðarleiðtogann gefa yfirlýsingar sem ekki er ætlast til að tekið sé mark á. Þar af leiðandi hefur Jón Baldvin rétt fyrir sér þegar hann segir að Mitterrand hafi mismælt sig. Það er kurteisleg útskýring á því að Mittrerrand hafi ekki vitað hvað hann var að tala um. Og svo er hitt: ef Mitterrand talar við Steingrím og Steingrímur við Mittterrand, hvaða gagn er þá af beinum viðræðum þegar báðum er ljóst og allir vita að hvorugur mein- ar það sem hann segir né heldur segir það seift hann meinar? Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.