Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1990, Síða 26
34
FIMMTUDAGÍÚR 6. SÉPTEMBER 1990.
Andlát
Friðjón Sveinbjömsson
Friðjón Sveinbjömsson, spari-
sjóðsstjóri í Borgarnesi, er látinn.
Friðjón fæddist að Snorrastöðum
í Hnappadalssýslu 11.3.1933. Hann
var sparisjóðsstjóri við Sparisjóð
Mýrasýslu í Borgamesi í tuttugu og
níu ár en starfaði þar í þrjátiu og
þijúár.
Friðjón gegndi fjölmörgum trún-
aðarstörfum. Hann sat í stjóm
Tryggingasjóðs sparisjóða og í
stjórn Sambands íslenskra spari-
sjóða og var formaður þess í fjögur
ár.
Friðjón var í forsvari fyrir Tónlist-
arfélag Borgarfjarðar í u.þ.b. tutt-
ugu ár. Hann starfaði í ungmennafé-
laginu í Borgarnesi og tók virkan
þátt í mörgum sýningum leikdeildar
þess. Þá sat hann í stjórn Minning-
arsjóðs Guðmundar Böðvarssonar
skálds og var í byggingarnefnd
heilsugæslustöðvarinnar í Borgar-
nesi. Fréttaritari Ríkisútvarpsins
var Friðjón í fjöldamörg ár og virk-
ur þátttakandi í kórastarfi.
Eftirlifandi eiginkona Friðjóns er
Björk Halldórsdóttir og eignuðust
þau þrjár dætur. Þær eru Sigríður,
f. 16.11.1961, húsmóðir og skrifstofu-
maður, gift Andrési Gunnlaugssyni
húsasmið og eiga þau tvö böm, Frið-
jón Snorra og Guðnýju; Margrét, f.
19.6.1965, í foreldrahúsum, og Hall-
dóra Björk, f. 20.9.1974, í foreldr-
ahúsum.
Hálfbróðir Friðjóns er Kristján
Benjamínsson, skrifstofumaður í
Reykjavík, kvæntur Huldu Guö-
mundsdóttur skrifstofumanni.
Alsystkini Friðjóns em Haukur
Sveinbjörnsson, f. 6.2.1932, búfræð-
ingur og bóndi á Snorrastööum,
kvæntur Ingibjörgu S. Jónsdóttur
húsfreyju; Jóhannes Baldur Svein-
björnsson, f. 29.6.1935, fram-
kvæmdastjóri; Kristín Sólveig
Sveinbjörnsdóttir, f. 17.3.1941, af-
greiðslustúlka, gift Grétari Haralds-
syni markaðsstjóra; Helga Steinunn
Sveinbjörnsdóttir, f. 20.1.1943, af-
greiðslustúlka, gift Indriða Aberts-
syni mjólkurbússtjóra, og Elísabet
Jóna Sveinbjörnsdóttir, f. 20.12.
1946, fóstra, gift Baldri Gíslasyni
kennara.
Foreldrar Friðjóns: Sveinbjörn
Jónsson, f. 4.9.1894, kennari og odd-
viti að Snorrastöðum, og kona hans,
Margrét Jóhanna Sigríður Jóhann-
esdóttir, f. 30.6.1905, húsfreyja.
Sveinbjörn var sonur Jóns, b. í
Friðjón Sveinbjörnsson.
Mýrdal í Kolbeinsstaðahreppi og á
Snorrastöðum, Guðmundssonar, b.
í Súlunesi í Leirársveit, Sveinsson-
ar. Móðir Sveinbjörns var Sólveig
Magnúsdóttir, b. í Mýrdal, Guð-
brandssonar.
Margrét var dóttir Jóhannesar, b.
í Skjálg í Kolbeinsstaðahreppi,
Jónatanssonar og Kristínar Benja-
mínsdóttur.
Hunangstunglið í Casablanca:
Hljómsveitin Hunangstunglið er nú að
hefja hljómleikaferð vítt og breitt um
landið. Byrjað verður í kvöld í Casa-
blanca. Á meöal áheyrenda þar verður
fulltrúi frá A&M plötufyrirtækinu en
Hunangstunglið var nýlega í Englandi
og voru tekin upp tvö lög sem A&M fyrir-
tækið hefur nú til athugunar. Ef fulltrú-
anum líst vel á leik strákanna í Hunangs-
tunglinu í kvöld gæti það leitt til útgáfu
á lögum með þeim í Englandi. Tónlistin,
sem Hunangstunghð mun leika í kvöld
og þar sem þeir koma fram á næstunni,
er að mestu leyti ný en eitthvað mun
sjálfsagt fylgja af eldra efni en tvær plöt-
ur hafa komiö út með hljómsveitinni.
Hljómsveitin er skipuð þeim Geira Sæm,
sem leikur á gítar og syiigur, Kristjáni
Edelstein, gítar, Styrmi Sigurðssyni,
hljómborð, Þórði Guðmundssyni, bassa,
og Halla Gulla sem leikur á trommur.
Bakraddir sjá þær Eva og Ema um.
Andlát
Bergþór N. Magnússon, Nökkvavogi
1, andaðist að morgni 5. september í
Borgarspítalanum.
Kjartan Gissurarson flsksali frá
Byggðaholti í Flóa, Sæviðarsundi 38,
Reykjavík, andaðist í Vífilsstaðaspít-
ala þann 5. september.
Jarðarfarir
Jónína Magnúsdóttir, Fjólugötu 15,
Akureyri, andaðist 27. ágúst. Jarðar-
forin hefur farið fram í kyrrþey að
ósk hinnar látnu.
Esther Guðmundsdóttir, Suðurgarði
22, Keflavík, verður jarðsungin frá
Keflavíkurkirkju í dag, fimmtudag-
inn 6. september, kl. 14.
Friðjón Sveinbjörnsson sparisjóðs-
stjóri, Borgarnesi, verður jarðsung-
inn frá Borgameskirkju laugardag-
inn 8. september kl. 14.
Kjartan Jóhannesson, Karfavogi 34,
verður jarðsunginn frá Langholts-
kirkju fostudaginn 7. september kl.
13.30.
Ragnheiður Þórólfsdóttir, Skipa-
sundi 60, Reykjavík, lést á Borgar-
spítalanum þriðjudaginn 4. septemb-
er. Jarðarförin fer fram frá Lang-
holtskirkju mánudaginn 10. sept-
ember kl. 13.30.
Leiðrétting
Vegna mistaka endaði tónlistar-
gagnrýni Finns Torfa Stefánssonar í
gær á annan veg en ætlað var. í grein
um píanóleikarann David Tutt átti
lokasetningin að vera svona: David
Tutt sýndi mikla fæmi og dug í að
glíma við þetta allt saman og hefur
margt til bmnns að bera sem píanó-
leikari.
Leiðrétting
í grein um makróbíótíska fæðu í
DV í gær er Þuríður Hermannsdóttir
titluð hússtjómarkennari og mat-
vælafræðingur. Hið rétta er að Þur-
íður er hússtjórnarkennari en ekki
matvælafræðingur.
Ástvaldur Jónsson rafvirkjameistari
lést 27. ágúst. Hann var fæddur á
Svanavatni í Stokkseyrarhreppi 23.
júlí 1923. Foreldrar hans vom Jón
Jónsson og Margrét Sigurðardóttir.
Ásvaldur lauk sveinsprófi í rafvirkj-
un 1948 og vann við hana til dauða-
dags. Eftirlifandi eiginkona hans er
Guðlaug Helga Ámadóttir. Þau hjón-
in eignuðust þrjú börn. Útfór Ást-
valds verður gerð frá Fossvogskirkju
í dag kl. 13.30.
Jón Jónasson jámsmiður, Eskihhð
22, Reykjavík, verður jarðsunginn
frá Háteigskirkju föstudaginn 7. sept-
ember kl. 13.30.
Svava Valdimarsdóttir frá Súganda-
firði, Kleppsvegi 50, verður jarðsung-
in frá Fossvogskirkju fóstudaginn 7.
september kl. 10.30.
Erla Brynjólfsdóttir, Suðurgötu 24,
Sauðárkróki, verður jarðsungin frá
Glaumbæjarkirkju laugardaginn 8.
september kl. 14. Jarðsett verður í
Sauðárkrókskirkj ugarði.
Oddný Ingveldur Tómasdóttir frá
Efri-Presthúsum, Mýrdal, sem and-
aðist 3. september, verður jarðsungin
frá Reyniskirkju í Múrdal laugardag-
inn 8. september kl. 15.
Ólafur P. Stefánsson, fyrrverandi
prentsmiðjustjóri, Bólstaðarhlíð 45,
andaðist föstudaginn 17. ágúst. Jarð-
arfórin hefur farið fram.
Tapaðfundið
Leðurjakki tapaðist
á Gauk á stöng
Brúnn leðurjakki tapaðist á Gauk á Stöng
sl. laugardagskvöld. Finnandi vinsamleg-
ast skih honum á Gauk á Stöng.
Læða tapaðist
Svört og hvít læða tapaðist frá Hamra-
borg í Kópavogi á fostudaginn sl. Hún er
eymamerkt ELF 019. Ef einhver hefur
séð hana eða veit hvar hún er niðurkom-
in, þá vinsamlegast hringið í síma 641195.
Tilkyimingar
Félag eldri borgara
Opið hús í Goðheimum, Sigtúni 3, í dag,
fimmtudag. Kl. 14 frjáls spilamennska,
kl. 19.30 félagsvist, kl. 21 dansað.
Flóamarkaður FEF
Flóamarkaður Félags einstæðra foreldra
verður haldinn í Skeljahehi, Skeljanesi
6, næstu laugardaga, þann 8., 15. og 22.
september. Hitt og þetta á góðu verði.
Leið 5 að húsinu.
Húnvetningafélagið
Félagsvist á laugardag kl. 14 í Húnabúð,
Skeifunni 17. Fyrsti dagur í þriggja daga
keppni. Allir velkomnir.
Jöklarannsóknafélag íslands
Hin árlega haustferð í Jökulheima verð-
ur farin helgina 7.-9. september 1990.
Lagt verður af stað á föstudagskvöldi kl.
20 frá Guðmundi Jónassyni hf. við Borg-
artún. Komiö verður aftur í bæinn á
sunnudagskvöldi. Þátttaka thkynnist th
Stefáns Bjarnasonar, sími 37392, eða Ást-
valds Guðmundssonar, vinnusími 686312.
Fundir
Junior Chamber á Islandi
JC Árbær heldur sinn fyrsta kynningar-
fund á starfsárinu í kvöld, fimmtudag,
kl. 20.30 að Laugavegi 178 (gengið inn
Bolholtsmegin). Junior Chamber er fé-
lagsmálaskóli fyrir fólk á aldrinum 18^10
ára. Á fundinum mun Valdimar Her-
mannsson kynna markmið og tilgang ís-
lensku hreyfingarinnar og félagar í JC
Árbæ munu segja frá starfsemi félagsins.
Boðið verður upp á léttar veitingar og er
ungt fólk sérstaklega hvatt til að mæta.
Hvað er að gerast á Kúbu?
í kvöld, 6. september, kl. 20 verður hald-
inn umræðufundur um ástand mála á
Kúbu. Fundurinn er haldinn í bóksölu
Pathfmder að Klapparstíg 26,2. hæð. Þar
mun Gylfi Páh Hersir segja frá ferð sinni
th landsins í júlí sl. Gylfi tók ásamt 5
öðrum íslendingum þátt í árlegri vinnu-
ferð til Kúbu á vegum Vináttufélaga
Norðurlandanna og Kúbu. Á fundinum
verður sagt frá ferðinni og hvernig kúb-
anskt samfélag kom þátttakendum fyrir
sjónir. Sýndar verða litskyggnur og á eft-
ir verða almennar umræður. Að fundi
loknum gefst tækifæri th óformlegra
umræðna yfir kaffiboha og meðlæti. Þýtt
verður á ensku og dönsku fyrir þá sem
þess óska.
Organistastarf
Organista vantar í Bjarnanesprestakall, Hornafirði, í
fullt starf. Um er að ræða tvær kirkjur. Að auki eru
möguleikar á stundakennslu við Tónlistarskóla A-
Skaftafellssýslu. Húsnæði er til staðar. Upplýsingar
veittar í síma 97-81178 á kvöldin.
F.h. Sóknarnefndar Hafnarkirkju,
Arngrímur Gíslason
Fjölmiðlar
t
Ragnheiður Þórólfsdóttir,
Skipasundi 60,
Reykjavík,
lést á Borgarspítalanum þriðjudaginn
4. september.
fíagnheiður fæddist í Viðey, fíeykja-
vik, 21. október 1915.
Foreldrar hennar voru Anna Teits-
dóttir og Þórólfur Jónsson.
Hún átti tvær systur, Önnu Sólveigu
og fíannveigu, sem báðareru látnar.
fíagnheiður giftist Guðmundi
Bjarnasyni 23. mai 1937 og lést hann
11. ágúst 1959.
Seinni maður Ragnheiðar var Kristján J. Einarsson húsasmíða-
meistari og hafa þau hjón starfað saman um áraraðir við Lang-
holtssöfnuð. Kristján lifir konu sína.
Sala á bókum og
sfjórnmálamönnum
Þaö er auöséð og -heyrt á öllu að
ákveönir einstaklingar, félög og fyr-
irtæki eru komin i stellingar. Nú er
nefnilega kominn september og ár-
legur skjálfti að komast í suma og
fjögurra áraskjálftií aðra, Jú, gat
það verið, jólabókavertiö og þing-
kosningar eruframundan. Fjölmiðl-
ar spila sífellt stærra hlutverk í
þessu hvorutveggja. Svo stóran að
sumum finnst um of.
Sú bók selst best sem fær sem
mesta umfjöllun í fjölmiðlum. Salan
á metsölubókinni, sem ör ugglega er
ævisaga eða uppgjör, hefst um leið
og hún er hugmynd ein á blaði. Þá
er tjölmiðlum sagt frá því aö vænt-
anlega muni þessi bók veröa skrif-
uö. Svo er sagt hver komi til með
aö skrifa hana. Langbest er ef viö-
komandi er fræg persóna, reyndar
nauðsynlegt. Næsta skrefið er yfir-
lýsingar höfundar eða bókaforlags-
ins um það hveroig skriftir gangi.
Þá er komiö að því að upplýsa um
línu og línu úr bókinni. Nú er fólk
oröið svo spennt að það getur ekki
annað en fylgst enn nánar með
framvindu mála. Svo kemur bókin
út og þá er lífsspursmál að fá viðtal
í einhverjum tjölmiðlinura. En fjöl-
miðlarnir hafa rey nst mjög fúsir til
að bjóða upp á þessi viðtöl og verða
reyndar einkar eftirsóttir af útgef-
endum og höfundum eftir því sem
nærdregurjólum.
' Salan á stjórnmálamönnum er
líka tyrir löngu hafin. Nú er að
koma í ljós aö þeir sem hafa verið
hvaö iðnastir við pennann undan-
farna mánuði hafa verið aö und-
irbúa prófkjör. Enn fleiri dæmi eiga
eftir aö skjóta upp kollinum á næst-
unni. Þáttur íjölmiðla í sölu á stjóm-
málamönnum er sist veigaminni en
þáttur þeirra í bókasölunni. Þetta
vita stjórnmálamennirnir. Og þeír
sem lengst hafa trónað á toppnum
hafa kunnað lag á fjölmiðlunum og
nýtt sér það óspart. Ungir, menn og
konur með þingmanninn í magan-
um kunna líka orðið á þetta nú.
Þeir fylgjast með og vita hvað það
er sem skiptir máli í sölu á þeim
sjálfum. Að hafa skoðun á hverju
sem er, og koma henni á réttan
máta á framfæri í sem flestum fjöl-
miðlum, er eitt af því. Ekki síður
þegar leikurinn tekur að æsast, að
koma vel fyrir í útvarpi og sjón-
varpi. Kunna að koma mikilvæg-
ustu atriðunum frá sér á sem
skemmstum tíma og allt það. Fylgj-
umst með, salan er komin á fullt
skrið.
Rósa Guðbjartsdóttir