Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1990, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1990, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 1990. Hafrannsókn: Lítið af þorsk- seiðum en mikið af karf a Frettir Astandlð að versna í Kúvætborg: Á fljótlega von á hinum frá Kúvæt segir Bima Hjaltadóttir, nýkomin frá Kúvæt „Ástæöan fyrir því að ég ákvað að fara núna var eiginlega sú að Gísli, maðurinn minn, skipaði mér að fara. Honum fannst ástandið vera aö versna, fleiri væru að koma inn á sjúkrahúsið slasaðir og spennan hjá fólkinu að aukast. Hann keyrir til og frá vinnu og sér meö eigin augum hvemig ástandið er. Hann tók því af skarið og sagöi við mig: Nú ferð þú á morgun og hringdi svo í banda- ríska sendiráðið og spurði hvort það væri pláss fyrir mig. Það reyndist vera,“ sagði Birna Hjaltadóttir sem kom til íslands frá Kúvæt á fimmtu- daggkvöldið. Birna er fyrst íslensku gíslanna til að sleppa frá Kúvæt en þar eru ennþá sjö Islendingar og þar á meðal GísÚ Sigurðsson læknir, eig- inmaður hennar. - En heldur þú að þau sem eru eft- ir í Kúvæt fái að fara? „Já, alveg örugglega, það tekur bara tíma. Það er ekkert vandamál með Kristínu og börnin en þau vilja helst fara landleiðina en það er bara of heitt ennþá.“ Bima sagði um fyrri tilboð, aö fara með Svíum, að þau hefðu verið á misskilningi byggö. „Fyrsti hópur- inn sem fór gat ekki tekið okkur með. Þeir hringdu í okkur og sögðu: Það em 90 Svíar að fara en því miður þá er ekki pláss fyrir ykkur,“ sagöi Birna. Hún sagði að það hefðu í raun ekki verið nein vonbrigði fyrir hana því hún heföi ekki verið tilbúin til að fara - hún hefði ekki verið búin að pakka niður. „Þegar næsti hópur fór var okkur sagt að við kæmust til Bagdad en ekki væri hægt að ábyrgjast að við kæmust lengra." Birna sagði að þau Það urðu miklir fagnaðarfundir þegar Birna hitti fjölskyldu sina í Leifsstöð en hér er hún ásamt Þorbjörgu, dóttur sinni. DV-mynd Ægir Már Nokkur hópur fólks safnaðist saman í dómsmálaráðuneytinu klukkan 14.00 í gær þegar undirskriftarlistar til stuðnings Hildi Hödd Stefánsdóttur voru afhentir. Það voru þau Eydís Ólafsdóttir og Jens Elíasson sem afhentu dómsmálaráðherra, Óla Þ. Guðbjartssyni, undirskriftarlistana. DV-mynd Brynjar Gauti Ráðherra af hentir undirskriftarlistar hafðu þá ákveðið að fara ekki enda búið við tiltölulega tryggar aðstæður í Kúvætborg. Litum á okkur sem gísla Birna sagði að íslendingarnir i Kúvæt hefðu litiö á sig sem gísla. Þó að þeir hefðu verið frjálsir ferða sinna inna takmarkaðs svæöis þá hefði verið Ijóst að íraksforseti hefði haft útlendingana þarna í ákveðnum tilgangi. Birna sagði að þau hefðu haft þaö prýðilegt í borginni enda verið inni á tiltölulega öruggu háskólasvæðinu sem hefði verið vaktað. „Þetta var auðvitað fábreytt og við styttum okk- ur stundir við að horfa á video en svo þurfti videotækið endilega aö bila.“ Að sögn Bimu voru þau aldrei í neinni hættu og engin atvik hefðu komið upp sem hefðu stofnað lífi þeirra í hættu. Hún sagði að Gish, maöur hennar, hefði verið meira á ferli og passað sig á því að vera í sloppi og með hlustunartæki. Þá sagði Birna að nóg hefði verið til af mat og nauðsynjum í borginni og þau hefðu ekkert orðið vör við að framboðið minnkaði af neinu nema grænmeti og ávöxtum. Það kom fram hjá Birnu að nú væri bara framundan hjá henni að reyna að fá sér vinnu því hún á ekki von á að fara út í bráð. „Þarna er þannig ástand að það tekur langan tíma að byggja upp aftur. Það var gott að vera í Kúvæt og við getum auðvitað hugsað okkur að fara þang- að þegar allt kemst í eðlilegt horf,“ sagði Birna. _SMJ Kalt stríð milli ís- lenskra og banda- rískra starf smanna Ég tel að fullnægjandi niðurstöðu sé vart að vænta nema að takist að sætta þá aðila sem hér deila. Þol- andinn, telpan, gerir sér fuUa grein fyrir þessu. Það er hennar ósk að hún eigi möguleika á hindrunarlausri dvöl hjá báðum foreldrum sínum, var meðal þess sem Óli Þ. Guðbjarts- son dómsmálaráðherra, sagði þegar hann tók á móti undirskriftarlistum sem safnað hafið verið til stuðnings Hildi Hödd Stefánsdóttur. Alls rituðu 9.022 nöfn sín undir svohljóðandi áskorun: „Við undirrit- uð óskum eftir því aö þér virðið vilja bamsins Hildar Haddar Stefánsdótt- ur ög brjótið ekki á henni mannrétt- indi aftur með því að senda hana nauðuga úr landi.“ Einnig voru dómsmálaráöherra af- hentar 254 undirskriftir sem borist hefðu gegnum síma og auk þess und- irskriftir 119 lögregluþjóna sem skrifað höfðu undir áskorunina. Jafnframt sagði dómsmálaráðherra að hér væri um viðkvæmt mál að ræða og það væri nú til umfjöllunar í ráðuneytinu. -J.Mar Sigurjón Sigurðsson: Man ekki eftir lista sem þessum Sigurjón Sigurðsson, fyrrver- andi lögreglustjóri í Reykjavík, segist ekki muna eftir því að und- irskriftarlisti lögreglumanna um einstök mál hafi verið í gangi - eins og nú hefur gerst vegna for- ræöismáls þar sem fógeti óskaði eftir aðstoð lögreglunnar. Sigur- jón vildi ekki leggja mat á um- ræddan lista. Eins og fram hefur komið hafa á annaö hundrað lögregluþjónar í Reykjavík ritaö nöfn sín á lista. sem sendur veröur ráöherra. Þeir hafa meðal annars lýst yfir þeirri skoðun sinni að þeim fmnist ógeðfellt aö handtaka böm. Guðmundur M. Guðmundsson, starfsmannastjóri hjá lögregl- unni í Reykjavik, segist heldur ekki vita til-aö sambærilegur listi hafi áður verið í umferð. Að- spuröur um hvort listar sem þessir væru í trássi við Iög og reglur embættisins sagöi Guð- mundur: „Ég veit litið um þennan hsta en geri ráð fyrir aö menn hafi skrifað sig á hann sem einstakl- ingar en ekki lögreglumenn," sagði Guðmundur. Ekki náðist í Böðvar Bragason lögreglusfjóraíReykjavík. -ÓTT Sævar Lýðsson, fulltrúi lögreglu- stjóra á Keflavíkurflugvelli, segir að rannsókn vegna þjófnaðarmáls hjá Navy Exchange sé nýlega komin í hendur embættisins frá bandarísku lögreglunni. Eins og fram kom í DV í gær segj- ast íslenskir starfsmenn vera bornir sökum af bandarískum kollegum sínum um þjófnað úr versluninni. 38 íslendingar starfa í fyrirtækinu en 31 bandarískur. Yfirheyrslur hafa fariö fram af herlögreglu vegna bandarísku starfsmannanna. Tvær bandarískar konur voru staðnar að verki vegna undirstimplana í síðustu viku. Þær voru reknar úr starfi. ís- lendingamir sögðu við DV að sam- starfsgrundvöllur við Bandaríkja- mennina væri brostinn þar sem hin- ir síðarnefndu bera hina sökum. Sævar segist gera ráð fyrir aö yfir- heyrslur heíjist bráðlega vegna ís- lensku starfsmannanna hjá Navy Flak dönsku einkaflugvélarinnar, sem hvarf vestur af Grænlandi á þriðjudagskvöld, fannst í gær. Áhöfn leitarþyrlu sá flak vélarinnar á hafs- botni. Talið er víst að þeir átta sem Hinar árlegu seiða- og sjórann- sóknir á hafsvæðinu milli íslands og Grænlands og umhverfis ís- land á rannsóknarskipunum Árna Friðrikssyni og Bjarna Sæ- mundssyni fóru ffam dagana 8. ágúst til 3. september. Tilgangúr þessara rannsókna er að kanna ástand sjávar um- hverfis landið og fjölda og út- breiðslu seiöa helstu nytjastofna, einkum þorsks, ýsu, loðnu og karfa og fá þannig strax á fyrsta ári hugmynd um hvers megi vænta af þessum árgöngum og áður en hægt er að leggja mat á styrk þeirra með öðrum aðferð- um. Helstu niðurstöður rannsókn- anna eru þær að sumarið 1990 hafi verið mikil yfirborðshitun í sjónum umhverfis ísland og yfir- borðshitinn því óvenju hár. Aftur á móti gætti þe$sa ekkert í dýpri sjávarlögum. Innstreymi hlýsjáv- ar vestur og norður fyrir land hefur því verið mjög lítið og sjáv- arástand fyrir vestan, en einkum þófyrir norðan og austan, verður því að teljast hafa verið mjög óhagstætt sumarið 1990. Litið fannst af þorskseiðum og enda þótt seiðin hafl verið sæmi- lega á sig komin má telja nokkuö öruggt að þorskárgangurinn 1990 verði fimmti lélegi þorskárgang- urinn í röð. Fjöldi ýsu- og loðnuseiða var einnig undir meðailagi en ástand seiðanna var mjög gott. Meira var af karfaseiðum í Grænlandshafi en á undanföm- um árum og veröur 1990 seiðaár- gangurinn að teljast mjög góður. -J.Mar Exchange. „Það er þó ekkert hægt að segja frekar um rannsókn málsins enda er hún á frumstigi hjá okkur," sagði Sævar Lýðsson. „Þetta mál er í höndum banda- rískra rannsóknaraðila, hvað snýr aö þeirra mönnum, en í höndum lög- reglu á Keflavíkurflugvelli hvað snýr aö okkar fólki,“ sagði Róbert Trausti Árnason, skrifstofustjóri varnar- málaskrifstofu utanríkisráðuneytis- ins í samtali við DV um þá misklíð og tortryggni sem upp er komin hjá Navy Exchgnge. „Það er hins vegar fullt samstarf og samráð í gangi milli íslenskra og bandarískra yfirvalda um að laga samskiptin á milli þessara tveggja hópa. Það er ekki óeðlilegt að fulltrúi varnarmálaskrifstofu ræði við yfir- menn varnarliðsins um þetta enda er þar fullt samstarf í gangi,“ sagði RóbertTrausti. -ÓTT voru um borð í vélinni séu látnir. Leiðangur var skipulagður um leið og flakið fannst en mikil snjókoma hefur aftraö björgunarstörfum. -gse Flugslysið við Grænland: Flakið f undið h

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.