Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1990, Blaðsíða 37
LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 1990.
49
Andlát
Torfi Guðmundsson frá Drangsnesi,
til heimilis að Hlíð 2, ísafirði, lést á
Sjúkrahúsi ísafjarðar 12. september.
Tapað fundið
Kvenmannsúr fannst
Fíngert kvenmannsúr fannst í grennd við
Leikskólan á Eiríksgötu sl. frmmtudag.
Upplýsingar í síma 625207.
Tilkyriningar
Handknattleiksdeild FRAM
Æfingatafla 17.-23. sept.
Æfingar handknattleiksdeildar Fram eru
hafnar en vegna húsnæðisskorts fram til
1. október er aðeins hægt að setja æfinga-
töflu í eina viku í senn.
Æfmgar 17.-23. september eru sem hér
segir:
2. fl. karla: Þriðjud. 18/9 kl. 21.45
2. fl. karla: Fimmtud. 20/9 kl. 21.05
2. fl. karla: Laugard. 22/9 kl. 14.15
2. fl. kvenna: Þriðjud. 18/9 kl. 20.30
3. fl. karla: Mánud. 17/9 kl. 20.30
3. fl. karia: Miövikud. 19/9 kl. 21.45
3. fl. karla: Fimmtud. 20/9 kl. 18.00
3. fl. kvenna: Mánud. 17/9 kl. 21.45
3. fl. kvenna: Fimmtud. 20/9 kl. 22.05
3. fl. kvenna: Sunnud. 23/9 kl. 14.40
4. fl. karla: Miðvikud. 19/9 kl. 20.30
4. fl. karla: Laugard. 22/9 kl. 15.30
4. fl. karla: Sunnud. 23/9 kl. 13.25
4. fl. kvenna: Fimmtud. 20/9 kl. 20.15
4. fl. kvenna: Föstud. 21/9 kl. 18.00
4. fl. kvenna: Sunnud. 23/9 kl. 10.55
5. fl. karla: Fimmtud. 20/9 kl. 17.10
5. fl. karla: Föstud. 21/9 kl. 17.10
5. fl. karla: Sunnud. 23/9 kl. 15.55
5. fl. kvenna: Mánud. 17/9 kl. 17.10
5. fl. kvenna: Laugard. 22/9 kl. 18.00
5. fl. kvenna: Sunnud. 23/9 kl. 17.10
6. fl. karla: Þriðjud. 18/9 kl. 17.10
6. fl. karla: Laugard. 22/9 kl. 16.45
6. fl. karla: Sunnud. 23/9 kl. 9.40
Allar frekari upplýsingar eru veittar í
símum 680344 og 31303 (e.kl. 17.10).
Innritun í skátafélagið
Vífil í Garðabæ
Nú fara skátar í Garðabæ að hefja vetrar-
starfið og er undirbúningur þegar hafinn
af fullum krafti. í dag, laugardag, 15. sept-
ember, fer fram innritun milli kl. 14 og
17. Eldri félagar sem nýir eru hvattir tii
að koma í Skátaheimilið og skrá sig í fé-
lagið. Einnig er hægt aö hringja í síma
51989 og 52820. Þátttakendur af ævintýra-
og útilífsnámskeiði félagsins nú í sumar
eru sérstaklega velkomnir. Inntökuskil-
yrði í Skátafélagið Vífil er einungis aö
vera orðinn 8 ára.
ITC deildin Irpa
verður með kynningu í Kolaportinu í
dag, laugardag frá kl. 10-16.
Félag eldri borgara
Opið hús í Goðheimum, Sigtúni 3, á morg-
un, sunnudag, kl. 14 frjálst spil og tafl,
kl. 20 dansað. Ath.: dansnámskeið á veg-
um Félags eldri borgara og Nýja danskól-
ans, Ármúla 17, hefst laugardaginn 22.
september nk. kl. 16.30. Upplýsingar í
Nýja danskólanum.
Hafnarfjarðarkirkja
Guðsþjónusta kl. 14, vænst er þátttöku
fermingarbarna og foreldra þeirra.
Afrnæli
Rannveig Guðmundsdóttir
Rannveig Guðmundsdóttir alþingis-
maöur, Hlíðarvegi 61, Kópavogi, er
fimmtugídag.
Rannveig fæddist á ísafirði og ólst
þar upp. Hún lauk landsjirófi frá
Gagnfræðaskólanum á Isafirði 1956.
Rannveig var starfsmaður Pósts og
síma á ísafirði 1956-62, stundaði
skrifstofu- og verslunarstörf 1962-63
og 1967-68, var starfsipaður tölvu-
deildar Loftleiða 1972-76 og aðstoð-
armaður félagsmálaráðherra
1988-89. Hún var búsett í Noregi
árin 1963-66 og 1969-71.
Rannveig sat í bæjarstjórn Kópa-
vogs 1978-88, var forseti bæjar-
stjómar 1980-81,1982-83 og 1986-87.
Hún var formaður bæjarráðs
1987-88, sat í félagsmálaráði Kópa-
vogs 1978-86 og var formaður þess
1982-86. Hún var stjórnarformaður
vemdaða vinnustaðarins Örva
1982-86, sat í stjórn Launanefndar
sveitarfélaga 1986-88, í stjórn Spari-
sjóðs Kópavogs 1981-83,1984-85 Og
1987-89 og hefur setið í flokksstjórn
Alþýðuflokksins síðan 1978.
Rannveiggiftist25.9.1960, Sverri
Jónssyni, f. 9.7.1939, tæknifræðingi
hjá íslandsbanka en hann er sonur
Jóns H. Guðmundssonar, fyrrv.
skólastjóra, og Sigríðar Jóhannes-
dótturhúsfreyju.
Böm Rannveigar og Sverris eru
Sigurjóna Sverrisdóttir, f. 7.5.1959,
leikkona, gift Kristjáni Jóhannssyni
óperusöngvara en þau eru búsett á
Ítalíu og eiga tvo syni; Eyjólfur Orri
Sverrisson, f. 7.7.1965, flugvirki í
Kanada en sambýliskona hans er
Geirný Sigurðardóttir og eiga þau
tvo syni, og Jón Einar Sverrisson,
f. 21.3.1976.
Systkini Rannveigar eru Guðrún
Sæmundsen, f. 1.8.1926, skólaritari
og ekkja eftir Pétur Sæmundsen
bankastjóra og eignuðust þau þrjá
syni; Margrét Guðmundsdóttir, f.
8.2.1928, bankastarfsmaður í
Reykjavík og ekkja eftir Finn
Thordarsen Jónsson bókara og
eignuðust þau sex dætur; Hulda
Guðmundsdóttir, f. 12.2.1930, versl-
unarmaður á ísafirði, gift Hákoni
Bjarnasyni vélstjóra og eiga þau
fimm börn; Marta B. Guðmunds-
dóttir, f. 9.11.1932, stöðvarstjóri á
Varmá og landsþekkt skíðakona,
ekkja eftir Geir Jónasson skipstjóra,
á þrjár dætur, búsett í Kópavogi en
sambýlismaður hennar er Þorvarð-
ur Guðjónsson, framkvæmdastjóri
Norðurleiða; Jónas Þ. Guðmunds-
son, f. 6.11.1934, sendibílstjóri í
Kópavogi, kvæntur Þórhöllu Þór-
hallsdóttur húsmóður og eiga þau
tvö börn; Helga Guðmundsdóttir, f.
6.8.1937, fulltrúi í Reykjavík, gift
Ólafi Ágústssyni, starfsmanni hjá
ísal og eiga þau þrjú börn, og Gunn-
björn Guðmundsson, f. 23.2.1944,
prentari í Reykjavík, kvæntur Jón-
ínu Auðunsdóttur, starfsmanni hjá
Sjóvá- Almennum og eiga þau tvö
börn.
Foreldrar Rannveigar voru Guð-
mundur Kristján Guðmundsson, f.
15.8.1897, d. 12.1.1961, bóndií
Stakkadal og síðan skipstjóri á
ísafirði, og kona hans, Sigurjóna
Guðmundína Jónasdóttir, f. 14.1.
1903, d. 9.9.1954, húsfreyja.
Guðmundur var sonur Guðmund-
ar, b. í Stakkadal i Sléttuhreppi
Guðmundssonar, b. á Atlastöðum
og Látrum Þeófílussonar. Móðir
Guðmundar í Stakkadal var Karó-
lína Ólafsdóttir, b. á Atlastöðum
Jónssonar. Móöir Guðmundar skip-
stjóra var Sigríður Helga Sakarías-
dóttir, b. í Stakkadal, bróður Ingi-
bjargar, langömmu Kristjáns Sig-
urðssonar, læknis í Keflavík og rit-
höfundanna Jakobínu og Fríðu Sig-
urðardætra. Önnur systir Sakarías-
ar var Sigurfljóð, langamma Árna
Gunnarssonar alþingismanns. Sak-
arías var sonur Sakaríasar, b. í
Stakkadal Guðlaugssonar, og Bjarg-
ar Árnadóttur, hreppstjóra á Látr-
um Halldórssonar.
Móðursystir Rannveigar er Þor-
valdína, móðir Brynjólfs Sigurös-
sonar, prófessors við HÍ. Sigurjóna
var dóttir Jónasar, hreppstjóra á
Sléttu í Sléttuhreppi Dósóþeusson-
ar, b. í Görðum Hermannssonar.
Móðir Jónasar var Margrét Sturlu-
dóttir, hreppstjóra í Görðum í Aðal-
vík Bárðarsonar, b. á Hóli í Bolung-
arvík Sturlusonar. Móðir Bárðar
var Ingibjörg Bárðardóttir, b. í Arn-
ardal Illugasonar, ættföður Arnar-
dalsættarinnar. Móðir Sturlu í
Görðum var Steinunn Jónsdóttir,
b. í Meiri-Hlíð í Bolungarvík Jóns-
sonar, formanns í Arnarbæli á
Fellsstönd Arasonar, þess er náði
landi við Skor er Eggert Ólafsson
fórst á Breiðafirði. Móðir Sigurjónu
Rannveig Guðmundsdóttir.
var Þórunn Jóhanna Brynjólfsdótt-
ir, b. á Látrum, Búðum og á Sléttu
Þorsteinssonar, b. á Atlastöðum
Snæbjörnssonar, b. í Tungu í Skut-
ulsfirði Jónssonar, b. í Tungu Kol-
beinssonar, b. á Ósi í Bolungarvík
Snæbjarnarsonar, b. á Meiri-Bakka
Hákarla-Kolbeinssonar, b. í
Grunnavík. Móðir Þórunnar var •
Ingibjörg Hermannsdóttir, b. á
Sléttu Sigurðssonar, bróður Sigurð-
ar langafa Árna, fyrrv. fram-
kvæmdastjóra Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna og Jóns Hjartar,
fóöur Finnbjörns, prentara og fram-
kvæmdastjóra og Hjartar, fyrrv.
aðalféhirðis Ferðaskrifstofu ríkis-
ins, fóður Sveins Hjartar, hagfræð-
ings LÍÚ.
Landssamtök hjartasjúklinga
voru stofnuð 1983 og voru stofnfélagar
230. Nú eru félagsmenn orðnir um 1700
og eru 600-700 þeirra búsettir utan höfuð-
borgarsvæðisins. Verkefnin hafa vaxið
stöðugt og er því fyllilega orðið tímabært
að breyta skipulaginu, svo að samtökin
geti betur þjónað félagsmönnum sínum
um land allt. Árlegur fjöldi nýrra tilfella
hjarta- og æðasjúkdóma er talinn vera
400-500 manns. Það er þvi ástæða til að
ætla að félagsmannafjöldinn muni stór-
aukast áfram. Einnig geta allir sem vilja
styðja markmiö samtakanna gerast fé-
lagsmenn Samkvæmt hinu nýja skipu-
lagi munu samtökin skiptast í deildir eft-
ir landssvæðum. Stofnfundir fyrstu fé-
laga hjartasjúklinga hafa verið ákveðnir.
I dag, 15. september verður fundur fyrir
félagsmenn á Reykjavikursvæðinu að
Hótel Sögu kl. 14. Sunnudaginn 16. sept-
ember verður fundur fyrir félagsmenn
við Eyjafjörð að Hótel KEA á Akureyri
kl. 15.30. Áformað er að stofna síðan félög
hjartasjúklinga í öllum kjördæmum
landsins í október og nóvember. Aðal-
fundur Landssamtakanna verður síðan í
mars 1991.
i pÁYITINN
ilistarhús mun rísa
ókn er hafin til að afla fjár til bygg-
r tónlistarhúss. Markmiðið er að
ífalda fjölda styrktarfélaga með því
ringja til fólks og bjóða því að leggja
i ákveðna upphæð mánaðarlega eða
;a. Samningur hefur verið gerður við
irkortafyrirtæki um innheimtu.
tök um byggingu tónlistarhúss hafa
ið til liðs við sig Raggý Bj. Guðjóns-
ir og Sigríði Pétursdóttur sem
na þessu fjáröflunarátaki og hafa
istöð að Laugavegi 18a, 5.. hæð s.
!. Þótt ekki séu margir dagar síðan
íð hófst hefur það nú þegar borið
gur umfram björtustu vonir. Þessi
kvæmd er hluti af enn stærra átaki
sem Samtök um byggingu tónlistarhúss
standa fyrir. í vor var stofnaður íslenski
tónhstarhússjóðurinn með það markmið
að gefa einstaklingum og fyrirtæHjum
hvar sem er í heiminum tækifæri til að
taka þátt í að koma þaki yfir íslenska
tónlistarmenningu. Nú í haust verður
fariö af stað með sérstakan áróður í ís-
lendingabyggðum í Kanada. Árið 1994
verður haldið upp á 50 ára afmæli fs-
lenska lýðveldisins og stefnt er að því að
einnig verði þá hægt að fagna sjálfstæði
tónhstarflutnings á íslandi með því að
taka tónlistarhúsið í notkun. Það tekur
3-4 ár að byggja húsið á lóðinni sem
Reykjavíkurborg hefur lagt til í Laugar-
dalnum.
Bækur frá íslenska
kiljuklúbbnum
fslenski kiljuklúbburinn hefur sent frá
sér fjórar nýjar bækur. Gangandi íkorni
er fyrsta skáldsaga Gyrðis Elíassonar og
kom fyrst út árið 1987. Möltufálkinn eft-
, ir bandaríska höfundinn Dashiell Ham-
mett er ein fyrsta og jafnframt ein fræg-
asta skáldsagan í anda hins svonefnda
harðsoðna reyfara. Síðara bindi hinnar
frægu skáldsögu Fávitinn eftir Fjodor
Dostojevski sem kom út í Rússlandi árið
1868.
Allar bækurnar eru prentaðar hjá Coll-
ins í Glasgow í Skotlandi.
Nauðungaruppboð
á eftirtöldum eignum
fer fram að Bjarnarbraut 2,
Borgarnesi, fimmtudaginn
20. september 1990 kl. 10.00:
Borgarbraut 33, Borgampsi, þingl.
eigandi Rafblik - Reynir Ásberg Ní-
elsson. Uppboðsbeiðandi er inn-
heimtumaður ríkissjóðs.
Fitjahb'ð 10, sumarhús í Skorradal,
þingl. eigandi Félag byggingariðnað-
arm. Ámessýslu. Uppboðsbeiðandi er
Ingimundur Einarsson hdl.
Hagamelur 7, Skilmannahreppi, þingl.
eigandi Ámi P. Baldursson. Uppboðs-
beiðandi er Guðjón Ármann Jónsson
hdl__________________________
Kveldúlfsgata 15, Borgamesi, þingl.
eigandi Agúst Guðmundsson. Upp-
boðsbeiðandi er Iðnlánasjóður.
Nauðungaruppboð
Eftir kröfu tollstjórans í Reykjavík, Skiptaréttar Reykjavíkur, Gjaldheimtunnar
í Reykjavík, ýmissa lögmanna, banka og stofnana, fer fram opinbert uppboð
í uppboðssal tollstjóra í Tollhúsinu við Tryggvagötu (hafnarmegin) laugar-
daginn 22. september 1990 og hefst það kl. 13.30. Seldar verða ýmsar
ótollaðar og upptækar vörur og bifreiðar, fjárnumdir og lögteknir munir,
ýmsir munir úr dánar- og þrotabúum.
Eftir kröfu tollstjórans í Reykjavík: Fiat 131 1978, Mazda 1975, Volvo
1974, plastmöppur, varahl. í bifreiðar, skip og flugvélar, blómafræ, alls
-konar húsgögn, alls konar fatnaður, vefnaðarvara, alls konar heimilisbúnað-
ur, varahl. í tölvur, hjólbarðar, flísar og hreinlætistæki, lampar, plastdreglar,
teppi, matvara, glervara, sjónvarpstæki, skófatnaður, net, leiktæki, pappír,
postulín, snyrtivara, reiðhjól, alls konar upptækar vörur og margt fleira.
Eftir kröfu skiptaréttar: Mikið magn af alls konar matvöru o.fl. úr þb. Kjör-
gæða hf„ Tölva og föndurvara, skrifstofubúnaður, símstöðvar og tæki, sport-
búnaður og margt fleira úr ýmsum þrota- og dánarbúum.
Lögteknir og fjárnumdir munir: áhöld, skrifstofubúnaður, sjónvarpstæki,
videotæki, hljómflutningstæki, alls konar húsgögn, alls konar heimilistæki,
trésmíðavélar, fræsivélar, borvélar, bandsög, handverkfræsari. Tæki til hljóð-
og myndbandagerðar (Audio-Video Equipment, svo sem Convergence
Corporation 200 Editor ásamt fylgihlutum, Abekas Edis digital Video-
effects, Ampex video recorder vpr-80, TBC 3 timebase corrector, U-matic
B.V.U. 800 video recorder og alls konar önnur tæki, allt talið eign isfilm hf.
Þá verða seld hlutabréf að nafnvirði kr. 4.970.000 í Kjörbúð Laugaráss hf.
og margt fleira.
Ávísanir ekki teknar gildar sem greiðsla nema með samþykki uppboðs-
haldara eða gjaldkera. Greiðsla við hamarshögg.
Spilda úr Laxeyri, Hálsahreppi, þingl.
eigandi Hálsahreppur, c/o oddviti
Hálsahr. Uppboðsbeiðandi er Veð-
deild Landsbanka íslands.
SÝSLUMAÐUR MÝRA-0G
BORGARFJARÐARSÝLU
Uppboðshaldarinn í Reykjavík
Nauðungaruppboð á eftirtöldum eignum fer fram að Austurvegi 4, Holsvelli, þriðjudaginn 18. september 1990 á neðangreindum tima. Um er að ræða fyrsta uppboð: Hraunalda 4, Hellu, kl. 15.30, þingl. eigandi er Óli Einar Adolfsson. Upp- boðsbeiðandi er Ólaíur Axelsson hrl. Leikskálar 4 og 6, Hellu, kl. 16.00, þingl. eigandi Sigurður Karlsson. Uppboðsbeiðandi er Óskar Magnús- son hdl.
Hlíðarvegur 14, Holsvelli, kl. 16.30. þingl. eigandi Ragnhildur Lárusdóttir. Uppboðsbeiðandi er Hróbjartur Jón- atansson hdl.
Búð I, Djúpárhreppi, kl. 13.30, þingl. eigandi Páll Haihðason. Uppboðs- beiðendur eru Ingvar Bjömsson hdl. og Sigurður G. Guðjónsson.
Kirkjulækjarkot, Fljótshlíðarhreppi, kl. 13.15, þingl. eigandi Gylfi Markús- son. Uppboðsbeiðandi er Stofnlána- deild landbúnaðarins.
Unhóll I, Djúpárhreppi, kl. 13.30, þingl. eigandi Pálmar Guðbrandsson. Uppboðsbeiðandi er Ólafur Axelsson hrl.
Lambalækur, Fljótshlíðarhreppi, kl. 17.00, þingl. eigandi Garðar Halldórs- son. Uppboðsbeiðendur em Sigríður Thorlacius hdl. og Valgarður Sigurðs- son hdl.
Laugar, Landmannahreppi, kl. 14.00, þingl. eigandi Búliskur h£, Holsvelli. Uppboðsbeiðandi er Ævar Guð- mundsson hdl.
Ás I, Ásahreppi, kl. 14.00, þingl. eig- andi Sigþór Jónsson. Uppboðsbeið- andi er Ólaíur B. Ámason hdl. UPPBOÐSHALDARINN í RANGÁRVALLASÝSLU, FRIÐJÓN GUÐRÖÐARS0N