Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1990, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1990, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 1990. Veiðivon Veiðimaðurirai kom mínútu of seint og varð af fiskinum Veiðimenn leika sér ekki að þvi að setja i fiska í ánum en það kemur stund- um fyrir eins og við segjum frá hér á siðunni. DV-mynd G.Bender Sumir veiðimenn eru óheppnari en aðrir í veiðinni. Við fréttum af sendibílstjóra sem fékk túr vestur á firði með leiktjöld í bíómynd sem verið er að taka upp þessa dagana. Sendibílstjórinn er mikill dellukall í veiði og hugsaði sér gott til glóðar- innar að renna fyrir fisk. Flugu- stöngin var með í skottinu og allar flugumar sem höfðu verið hnýttar í vetur. Túrinn hjá vininum átti að vera einn dagur en lengdist heldur betur. Þetta var vinna í þrjá daga en á fyrsta degi tók. hann eftir fimm punda bleikju fyrir neðan brú eina rétt hjá tökustaðnum. Þennan fisk ætlaði hann að ná í á flugustöngina sem íjöl- skyldan hafði nýlega gefið honum. Fyrsti dagurinn, er hann kom á staöinn með leiktjöldin, leið, síðan annar dagurinn og ennþá var bleikj- an á sama stað. Á þriðja degi var komið langt fram á kvöld er gert var smáhlé og nú skyldi kastað fyrir bleikjuna. Vinurinn drífur sig í veiði- gallann og þræðir línuna og fluguna á stöngina. Setur á flugu sem hann hafði sjálfur hnýtt og nú skyldi fisk- urinn tekinn. Þetta var fiskur í töku- stuði, hann fann það á sér, enda hafði hann athugað um morguninn hvort fiskurinn væri ekki á sínum stað. En viti menn, þetta var alls ekki eins og það átti að vera. Einni mín- útu áður en hann kemur á bílnum að brúnni og ætlar að kasta fyrir fisk- inn rennir annar bíll að brúnni á móti og út stígur veiðimaður með maðkinn. Bleikjan tók um leið og maðkurinn kom í vatnið. Þetta var fimm punda sjóbleikja en sendibíl- stjórinn kom „aðeins“ of seint. En það munaði ekki nema mínútu. Húkkaði fiskinn í sporð- inn en hann kvaddi skömmu seinna Húkk hefur aldrei verið tahn skemmtilegt iðja. Veiöimaðurinn var fyrir fáum dögum í Laxá í Leirár- sveit að veiöa í Laxfossinum. Eitt- hvað var af laxi í fossinum og helhng- ur af sjóbirtingi. Veiðimaðurinn kastar flugunni og sjóbirtingurinn tekur ótt og títt. Allt í einu er tekið feiknavel í flug- una og er þetta greinilega lax. Fisk- urinn er lengi á og tekur vel í. Veiði- félaginn mætir á staðinn og fylgist spenntur með baráttunni við fiskinn. Fiskurinn er farinn að þreytast og er dreginn að landi. En það var ekki allt sem sýndist, fiskurinn var húkk- aður í sporðinn og veiðimaðurinn varð ekki lítið illur. Og líklega hefur fiskurinn heyrt það því hann losar sig af og syndir út í hylinn, laus við veiðimanninn. Stærsti lax sumarsins á þurrt Veiðisumarið hefur gefið nokkra stórlaxa í sumar og um daginn var dreginn á land einn sem lítið hefur frést af ennþá. Veiðimenn voru að veiöa í Laxá í Kjós, sem var í miklum vexti, og höfðu veitt lax. Einn þeirra veður út í hyl ofarlega í ánni þar sem hann hafði oft vaðið áð’ur. En hylur- inn hafði dýpkað verulega þar sem vaðið var út í veiðistaðinn og fór veiðimaðurinn á kaf. Félagi hans óð út í hylinn og rétti honum toppinn á flugustönginni sinni. Sá sem var á kafi greip í stöng- ina og skömmu seinna komst hann á land. í gríni á eftir var talað um að þetta væri stærsti fengur sem veiðst hefði fyrr og síðar í veiðiám landsins og það á fluguna. Um 200 punda ferliki og tók... Dorgveiðifélag íslands með landshlutakeppni Þó að ennþá sé langt í veturinn eru félagsmenn Dorgveiðifélags íslands komnir á fullt með vetrarstarfið. Það er farið að skipuleggja landshluta- keppni í dorgveiði og sá sem vinnur verður íslandsmeistari. Þetta verður í febrúar og mars. Þaö liggur í loftinu að taka þátt í heimsmeistarakeppn- inni í dorgveiði seinna í vetur líka. -G.Bender Þjóðarspaug DV Fórí... Þjónar og matreiðsluraenn í veitíngahúsi einu í Reykjavík þykja frekar seinir að koma með umbeönar pantanir til matar- gesta. Einhveiju sinni var gestur þar margbúinn aö spyija einn þjóninn hvort maturinn, sem hann pantaði, færi nú ekki að koma. Alltaf svaraði þjóninn þvi til að maturinn væri alveg að koma. Er þjónninn kom loks með matinn að boröi áðurnefnds gests var gesturinn horfinn en á borð- inu var lítill miði sem á stóð: „Fór í mat. Kem aftur klukkan flögur.“ Bölvuð gleymskan Það henti eitt sinn grafara í gamla kirkjugaröinum að grafa of ákaft því allt í einu áttaði hann sig á þeirri staðreynd að hann komst bara alls ekki upp úr gröf- inni. Tók hann því að kalla á hjálp en þaö var sama hvað hann kallaði enginn heyrði til hans. Er hann hafði hírst þarna í gröfmni þó nokkurn tíma bar þar að dauðadrukkinn mann. „Hjálpaðu mér nú, vinur, mér er orðið svo hrikalega kalt,“ sagði grafarinn. Sá drukkni horfði góða stund á grafarann en sagöi því næst: „Þaö er nú kannski engin furða að þér skuli vera kalt. Það hefur nefnilega gleymst að moka yfir þig.“ Fiskurinn Líffræðikennari í sveitaskóla spurði eitt sinn ungan nemanda sinn að því hvaða flsktegund væri lífæð okkar íslendinga. Strákurinn hugsaði sig vel um og sagði: „Ætli það sé ekki bara plokk- fiskur.“ Ófullur Drykkfelldur maður sagði kunningja sínum frá því að hann væri að hugsa um að bregða sér á grímudansleik þá um kvöldið en vandinn væri bara sá að hann vissi ekkert í hverju hann ætti að vera svo að hann þekktist ekki. „Blessaður, vertu bara ófull- ur,“ sagði kunninginn þá. 4 Finnur þú fimm breytingai? 72 Viltu gjöra svo vel að fjarlægja glasið þitt.. . Nafn:......... Heimilisfang: Myndirnar tvær virðast við fyrstu sýn eins en þegar betur er að gáð kemur í ljós að á myndinni til hægri hefur fimm atriðum verið breytt. Finnir þú þessi fimm atriði skaltu merkja við þau með krossi á hægri myndinni og senda okkur hana ásamt nafni þínu og heimilisfangi. Að tveimur vikum liðnum birtum við nöfn sigurvegara. 1) Hitateppi fyrir bak og hnakka, kr. 3.900,- 2) Svissneska heilsupannan, kr. 2.990,- Vinningamir koma frá Póst- versluninni Príma, Hafnar- firði. Merkið umslagið með lausninni: Finnur þú fimm breytingar? 72 c/o DV, pósthólf 5380, 125 Reykjavík Sigurvegarar fyrir sjötu- gustu getraun reyndust vera: 1. Kristín Eva Sigurðar- dóttir, Selfossi I, 800 Selfoss. 2. Kristín Sveinbjörns- dóttir, Akralandi 1, Reykjavík. Vinningarnir verða sendir heim.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.