Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1990, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1990, Blaðsíða 7
LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 1990. 7 Fréttir Víxlum Vogalax breytt og nöfn máð af Rannsókn á bókhaldsgögnum þrotabús Vogalax hefur leitt í ljós að reynt hefur verið að afmá undir- skriftir á víxlum og öðrum fylgiskjöl- um í bókhaldinu. Að sögn Inga H. Sigurðssonar, annars bústjóranna, er ekki hægt að fullyrða á þessu stigi að hér sé um að ræða brot á hegning- arlögum. Ef svo reynist vera munu bústjórarnir gera réttum yfirvöldum aðvart eins og skylt er samkvæmt lögum. Eins og DV hefur greint frá óskaði einn af stærri kröfuhöfunum í búið eftir rannsókn á því hvort einhverju hafi verið skotið undan skiptum á búinu síðustu mánuðina sem Voga- lax var rekinn. Samkvæmt lögum geta bústjórar rift gerðum forsvars- manna fyrirtækisins allt frá sex mánuðum og upp í tvö ár áður en fyrirtækið fór á hausinn. Rannsókn- in nú beinist fyrst og fremst að þessu ári þar sem jafnhliða henni er verið að loka reikningum fyrirtækisins frá áramótum og fram til 16. ágúst að það var lýst gjaldþrota. Þessari rann- sókn er ekki lokið. Að sögn Inga H. Sigurðssonar er áætlað að kröfur í búið verði rúmur hálfur milljarður. Allt er óvíst hvað fæst fyrir eignirnar þar sem framboð á eignum gjaldþrota fiskeldisstöðva er nú miklu mun meira en eftir- spurnin. í versta falli getur svo farið að aðstaða fyrirtækisins í Vogum sé í raun verðlaus. Þrotabúið rekur starfsemina áfram á ábyrgð Fiskveiðasjóðs út október næstkomandi. -gse Félagsvísindastofnun: Sjálfstæðisflokkur með 51,7 prósent Miðað við birtar niðurstöður í skoðanakönnun Félagsvisindastofn- unar fengi Sjálfstæðisflokkurinn um 51,7 prósent atkvæöa sé miðað við landið ef gengið yrði til þingkosninga nú. Framsókn fengi 16,7 prósent, Al- þýðuflokkurinn 11,9 prósent, Al- þýðubandalagið 9,9 prósent og Kvennahstinn 9,7 prósent. Niðurstöður könnunarinnar hafa verið birtar í Morgunblaðinu þannig að fylgi flokkanna er skipt eftir kjör- dæmunum Reykjavík og Reykjanesi og síðan landsbyggðinni í heild. Sam- kvæmt þessu er Sjálfstæðisflokkur- inn stærsti flokkurinn í Reykjavík með um 57,7 prósent fylgi. Kvenna- listinn nýtur 12,8 prósent fylgis, Al- þýðubandalagið 11,2 prósenta, Al- þýðuflokkurinn 10,2 prósenta og Framsókn 8,0 prósenta. Sjálfstæðis- flokkurinn er enn stærri á Reykja- nesi þar sem hann fékk 61,6 prósent fylgis. Alþýðuflokkurinn er næst- stærstur með 17,9 prósent, þá Fram- sókn með 8,9 prósent, Kvennalistinn með 8,0 prósent og loks Alþýðuflokk- urinn með 3,6 prósent. Sjálfstæðis- flokkurinn er einnig stærstur á landsbyggðinni þótt það sé ekki jafn afgerandi og í þéttbýlinu en hann fékk 39,4 prósent fylgis þar. Fram- sókn fékk 30,6 prósent landsbyggðar- fylgisins, Alþýðubandalagið 12,4 pró- sent, Alþýðuflokkurinn 10,0 prósent og Kvennalistinn 7,6 prósent. Ef þessar niðurstöður eru bornar saman við síðustu kjörskrá í þing- Bamaskák: íslendingar í öðru sæti íslenska sveitin í skákkeppni barnaskólasveita varð í öðru sæti á Norðurlandamótinu með 8 og hálfan vinning á eftir sænsku sveitinni sem sigraði með 9 og hálfan vinning. Islensku sveitina skipuðu íslands- meistararnir úr Æfingadeild Kenn- arskólans; þeir Amar E. Gunnars- son, Bragi og Bjöm Þorfinnssynir og Freyr Karlsson en varamaður var Oddur Ingimarsson. íslenska sveitin var sú yngsta á mótinu en enginn strákanna er eldri en tólf ára. Strák- arnir í sænsku sveitinni voru hins vegar alhr orðnir þrettán. Danska sveitin var reyndar enn eldri og það gömul að henni var vísað úr keppni. Mótið var mjög sviptingasamt sem sést á því að sigursveitin fékk 9 og hálfan vinning af sextán mögulegum. -gse kosningum verður niðurstaðan á landinusemaðframangreinir. -gse #SUHDAKAFFI V/SUNDAHÖrri Sími: 56520 Höfum opnað nýjan matsal í vesturenda hússins m/ölkrá. Allar veitingar. Matseðill laugardaginn 15/9 Skelfisksúpa Jurtakryddað lambaftllet m/villibráðarsósu og bökuðum kartöfium Kr. 1,150,- Heilsteiktur silurtgur m/sitrónusmjöri og kartöfium kr. 850,- Einnig er boðiö upp á sérrétti Borðapantanir í síma 36320 Opið föstudaga 18-01 laugardaga 18-01 Þjónað til borðs, þú heyrir bara ijúfa, lága tónlist Sundakaffi - ölkrá - bar - Sundahöfn SUMIR ERU EINFALDLEGA BETRIEN AÐRIR Enn einu sinni hefur verið leitt í Ijós, aö Mitsubishi Colt/Lancer hafa meira rekstraröryggi en aðrir bílar í sama stærðarflokki. í árlegri könnun, sem hinn virti félagsskapur ADAC (Félag bifreiðaeig- enda í V-Þýskalandi) láetur gera á bilanatíðni bifreiða af öllum tegund- um og gerðum, kom fram að í flokki smærri fólksbíla reyndust Mitsu- bishi Colt/Lancer hafa lægsta bilanatíðni. Athuganir náðu yfir fyrstu þrjú notkunarár þeirra bifreiða, sem valdar voru í könnunina, en tals- verð aukning er nú á bilanatíðni bifreiða almennt á þýsku vegunum og sinntu hjálparsveitir ADAC 1,3 milljónum beiðna um aðstoð sl. ár. Á sama tíma lækkaði enn bilanatíðni bilanna frá Mitsubishi, og er þetta í sjöunda sinn, sem áðurnefnd samtök setja Mitsubishi bifreiðir í efsta sæti á lista sinn yfir rekstraröryggi bifreiða. MITSUBISHI COLT/LRNCER A MITSUBiSHI MOTORS Mitsubishi Colt HEKLAHF Laugavegi 170 -174 Simi 695500

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.