Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1990, Side 4
4
MÁNUDAGUR 17. SEPTEMBER 1990.
Fréttir
DV
Ný lög sem þýða að fjöldi lögreglumanna þarf að fara í skóla:
Löggæsla skerðist í haust
í nokkrum umdæmum
- rannsóknarlögreglumaður fer á vaktlr á ísafirði
Pétur Hafstein, bæjarfógeti á
ísafirði, segir að sex lögreglumenn
þaðan fari í Lögregluskóla ríkisins í
vetur og muni það koma niður á lög-
gæslu að einhveiju leyti.
„Þær kröfur að ekki megi fá afleys-
ingamenn nema þeir hafi lokið námi
úr lögregluskólanum valda ákveðn-
um erfiðleikum. Viö þurfum því að
leysa afleysingaþörfina með tíltæk-
um yfirvinnustundum, með því að
fækka á vöktum - eða hvoru tveggja.
Um tíma getur þetta þýtt skerðingu
á löggæslu á tilteknum sviðum.
Vandamálið verður aðallega fram að
áramótum hér,“ sagði Pétur.
DV greindi frá því í síðustu viku
að slæm staða væri fyrirsjáanleg
vegna mannfæðar í nokkrum lög-
regluembættum, sérstaklega á
ísafiröi, í Vestmannaeyjum, Keflavík
og Kópavogi. Ekki má fastráða lög-
reglumenn, samkvæmt nýjum lög-
um, ef þeir hafa ekki lokið námi í
lögregluskólanum. Þetta kemur illa
við ofangreind lögregluembætti og
reyndar fleiri sem þurfa að senda
menn úr sínum röðum í skólann í
vetur. Vandamálið felst helst í því
að ekki má ráða ófaglærða menn tíl
að leysa skólamennina af.
Pétur sagði að verið væri að skoöa
hvemig málið yröi leyst en hann
væri sannfærður um að það tækist
án þess aö leita þyrftí út fyrir um-
dæmið. Eitt væri inni í myndinni,
sagði Pétur, að ráð væri fyrir gert
að rannsóknarlögreglumaður færi á
vaktír um tíma. Pétur sagðist ekki
telja að til þess þyrftí að koma að
setja þyrftí hömlur á dansleikjahald
vegna mannfæðar í lögreglunni.
„Niðurstaöa fundarins var sú að
við munum fara að lögunum," sagði
Jóhannes Jensson hjá Landssam-
bandi lögreglumanna að loknum
stjómarfundi þar sem ástandið var
rætt:
„Ég held að það hafi legið ljóst fyr-
ir að framkvæmd þeirra myndi kosta
vandamál á ákveðnum stööum. Samt
sem áöur tel ég að menn hefðu mátt
átta sig fyrr og nota aðlögunartím-
ann betur. Það má vera að þessi
vandamál séu eitthvað verri en fyrir-
sjáanlegt var. Lögreglumenn hafa
verið að flosna úr starfi á ákveðnum
stöðum að undanförnu.
Það má hins vegar benda á að lög-
reglumenn em ekki ráðnir nema
þeir sýni fram á að þeir hafi ekki
lent í neinni fjármálaóreiðu. Það
skýtur því skökku við þegar menn
sjá sig knúna til að hverfa í önnur
störf vegna þess að þeir sjá ekki ann-
að fyrir sér en að lenda í fjármálaó-
reiðu vegna bágra kjara,“ sagði Jó-
hannes.
-ÓTT
Suðurhlíðaskóli, nýr grunnskóli og menningarsetur, var opnaður við hátíðlega athöfn í gær. Það eru sjöunda
dags aðventistar sem reka skólann en hann er til húsa að Suðurhlið 36 í Reykjavík. Skólinn var settur 12. sept sl.
en nemendur eru 33. Einnig verður námskeiðahald í hinu nýja húsi þegar fram líða stundir en sjöunda dags
aðventistar hafa á undanförnum árum staðið fyrir námskeiðum i andlegum málefnum og þvi er lýtur að heilsusam-
legu líferni. DV-mynd Brynjar Gauti
550 króna greiðsla til launþega?
Niðurstaöa launanefndar Alþýðu-
sambands íslands og vinnuveitenda
vegna 0,27% hækkunar framfærslu-
vísitölu umfram viömiðunarmörk
kjarasamninganna í febrúar er að
vænta á fimmtudag.
Að sögn Þórarins V. Þórarinsson-
ar, framkvæmdastjóra VSÍ, er ein
þeirra hugmynda, sem fram hafa
komið, að 550 króna eingreiösla komi
til launþega í október vegna verðbóta
í október og nóvember og að taxtar
hækki síðan í desember um áður-
nefnd 0,27% auk 2% samningsbund-
innarlaunahækkunar. -GRS
Óhapp í sláturhúsi á Héraði:
Ammoníak-
leiðslur urðu
fyrir hnjaski
Sigrún Björgvmsdóttir, DV, Egilsstöðum;
Það óhapp varð á fimmtudag í slátur-
húsinu á Fossvöllum á Héraði að
festingar í lofti frystiklefa gáfu sig
meö þeim afleiðingum að kjötið seig
niður á gólf.
Nýbúið var að fylla klefann með
900 skrokkum en það er dagslátrun.
Björn Ágústsson, fulltrúi hjá Kaup-
félagi Héraösbúa, sagði að það hefði
verið lán í óláni að leiðslur bognuðu
en fóru ekki í sundur. Hefðu þær
opnast og ammoníak streymt út hefði
getað orðið slys á fólki, að minnsta
kosti ef einhverjir hefðu verið í klef-
anum þegar óhappið varð. Kjötið
skemmdist ekki og var unnið fram á
nótt við að flytja það í frystigeymslur
í frystíhúsinu á Egilsstöðum. Björn
sagðist vonast til að viðgerö lyki um
helgina.
Slátrun mun halda áfram á Foss-
völlum og verður kjöt flutt á Egils-
staði á meðan viðgerð á frystiklefan-
um stendur yfir.
I dag mælir Dagfari
Þaö virðist ekkert lát á heimtu-
frekjunni í þessu fólki sem er að
kaupa og selja íbúðir. Það er kvart-
andi og kveinandi út og suður alla
daga ár og síð og ekki bætir það
úr skák þegar víðlesin dagblöð eins
DV taka undir þennan söng og
leyfa sér að koma á framfæri gagn-
rýni á Húsnæðisstofnun ríkisins.
Sérstaklega út af þessari húsbréfa-
deild. Það er staðreynd aö það er
ekkert að hjá þessari stofnun,
hvorki húsbréfadeild né heldur
Húsnæðisstofnun yfirhöfuð. Ef
eitthvert vandamál kemur upp þá
þarf fólk ekki annað en koma á
staðinn og ræða við Sigurð sjálfan
eins og hann bendir réttilega á í
DV á laugardaginn. Gagnrýni á
þessa stofnun er því út í hött og
vill Dagfari vara fólk við að kvarta
undan þjónustustofnun sem þess-
ari er leggur sig í líma við að þjóna
almenningi. Hér hlýtur að vera um
samsæri að ræða. En hvemig byij-
ar þetta írafár?
Einfaldlega með því að Jóhanna
félagsmála ákveöur að svissa yfir i
húsbréf til að auðvelda almenningi
að kaupa og selja íbúðir. Með því
að nota húsbréfin eru jafnt kaup-
endur sem seljendur gulltryggðir
fyrir öllum óhöppum og áfóllum
Húsbréf í sumarfríi
og vita nákvæmlega hvar þeir
standa frá degi til dags. Þetta renn-
ur allt í gegnum húsbréfadeildina
eins og bráðið smjör og þar er
stimplað uppá alla pappíra sem
þarf jafnóðum og þeir berast. En
það er eins og það megi aldrei rétta
lýðnum htla fingur án þess að hann
vilji helst taka alla höndina og
handlegginnn líka alveg upp að
olnboga. Þetta fólk kann sér ekkert
hóf í þessum efnum frekar en ööru.
Ekki er fyrr búið að auglýsa kosti
húsbréfa en alls konar fólk fer að
braska með húsnæði. Það vill
kaupa nýtt, stækka við sig eða
minnka við sig. Allt á húsbréfum.
Og húsbréfadeildin þarf að fara
yfir alla þessa pappíra. En þegar
almenningur fékk þetta húsbréfa-
æði stóð svo á að húsbréfadeildin
var að fara í sumarfrí enda átti
enginn von á að almenningur ryki
upp til handa og fóta út af þessum
auglýsingum. Þess vegna fór hús-
bréfadeildin í sumarfrí og vissi ekki
betur en það sama gerðu allir þeir
sem hygðust breyta til með hús-
næði. En hvað skeður? Jú, ekkert
annað en þaö að þegar deildin er
komin í frí fara alls konar erindi
að streyma inn í stríðum straum-
um. Fólk fór aö krefjast viðtala við
starfsmenn húsbréfadeildar. Auð-
vitað var ekki hægt að veita viðtöl
við menn sem voru komnir í frí.
Því var ekki um annað að ræöa en
loka fyrir öll viðtöl og það strax í
júní. Þetta var gert í trausti þess
að fólk létí sér segjast og hætti að
angra Húsnæðisstofnun út af
smotteríi eins og íbúðakaupum.
Það lá alltaf fyrir að afgreiða þessi
mál þegar frí væru yfirstaðin og
tími gæfist til að kíkja á umsóknir
um húsbréf og stimpla. Æðibunu-
gangur hefur ekkert gott í fór með
sér og hefur aldrei haft.
Það verður hins vegar ekki á
landann logið. Hann kann enga
mannasiði eins og nú kom best í
ljós. í stað þess að sitja með hendur
í skauti og bíða eftir að húsbréfa-
deildin kæmi úr sumarfríi fór fólk
að hringja og hringja í deildina til
að reka á eftír sínum málum. Þetta
gekk svo langt að dag eftír dag
reyndu um sjö þúsund manns að
hringja í deildina. Og annar eins
Qöldi gerði sér erindi á staðinn og
ætlaöi að ná tali af starfsmönnum
sem voru að tínast heim úr fríum.
Heimtufrekjan á sér lítil takmörk.
Vitaskuld var ekki um annað að
ræða en taka símann úr sambandi
og læsa að sér. Það veröur nú að
vera kaffifriður fyrir þessu pakki
og svo þarf að glugga í ýmis skjöl
og pappíra og það tekur sinn tíma.
Allir vitibornir menn hljóta að
skilja þetta, en því var ekki að
heilsa. Fólk fór að kvarta eins og
smákrakkar og grenjaði utan í DV
sem eins og fyrri daginn kom þessu
á framfæri. En Dagfara er spum:
Hver sá fyrir aö fólk vildi húsbréf?
Hver sá fyrir að starfsmenn færu
í sumarfrí? Svari nú hver fyrir sig.
Svo tók nú steininn úr þegar for-
maður fasteignasala fer að gagn-
rýna þessa starfsháttu. Ég tek und-
ir með Sigurði E. þegar hann segir
í ÐV á laugardaginn að „fasteigna-
salar eins og Þórólfur Halldórsson
eigi ekki að gera sig mikið breiða
á almennum vettvangi“. Og eins
og Sigurður E. bendir líka á eru
hundrað fasteignasalar í borginni
með 300 manna starfshði. Þetta
pakk er auðvitað bara á eftír pró-
sentum og lætur sig engu skipta
að í húsbréfadeildinni starfa ekki
nema 10 manns og eru ekki á nein-
um prósentum. Vanþakklætið er
með eindæmum. Ekki gat Sigurður
E. farið að flytja sjálfan sig yfir í
húsbréfadeildina því hver hefði þá
átt að stjóma stofnuninni. Dagfari
vill bara biöja fólk um að gera sér
grein fyrir að það er ekki við Hús-
næðisstofnun að sakast.
Dagfari