Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1990, Side 5
5
MÁNUDAGUR 17! SEPTEMBER 1990.
Fréttir
Blönduvirkjim:
Raforka frá virkjun
inni eftir rúmt ár
Nfels Hermannsson var ánœgð-
ur með dagsveiðina í Flókadalsá
fyrir skömmu enda náði hann
þremur löxum, 13-18 punda, á
iand.
DV-mynd örn Þórarinsson
Laxveiðin:
Meðal-
veiði
í Flóka-
dalsá
Öm Þórarinsson, DV, fljótam;
Ágæt veiði hefur veriö í Flóka-
dalsá í Fljótum í sumar. í síðustu
viku voru liðlega hundrað laxar
komnir á land. Vantaöi þá aöeins
tuttugu til þrjátíu laxa til að veið-
in væri jafnmikil og í fyrra. Það
ár var besta veiði í Flókadalsá
um margra ára bil.
Veiöin hefur verið nokkuð jöfn
í allt sumar. Mest hefur veiðst i
Flókadalsá milli vatna en einnig
hefur fengist talsvert af laxi i
Hópsvötnum og Flókadalsvötn-
um. Mest hefur þetta verið veriö
stór fiskur, 10-20 pund, enda hef-
ur Flókadalsá löngum verið
þekkt fyrir aö gefa vænan lax,
Veiöitimabilinu lýkur ekki fyrr
en 25. þessa mánaðar. Veiöi gæti
því hæglcga orðið meiri en sum-
ariö 1989. í rigningunum undan-
farið hefur veiðin heldur aukist
og virðíst mikið af laxi á veiðí-
svæðinu.
Silungsveiði í Flókadalsá
fremri hefur einnig verið ágæt
og veiðimenn fyllt leyfilegan
kvóta nær daglega.
Fiskurinn gekk frekar seint í
ána að þessu sinni en nu er þar
mjög mikill silungur, að sögn
veiðimanna.
- segir staðarverkfræðingur
Þórhallur Ásmundsson, DV, Sauöárkröki:
„Hér er allt á fullu og viö reiknum
með aö halda áfram fram á haustið.
Vonandi gerir tíðarfar11 okkur kleift
að vinna útiverk til ovemberloka.
Stíflugerðinni miöc v vel og verkið í
heild stenst ágætkga áætlun. Við
gerum ráð fyrir að byrja síðan á loka-
sprettinum í útiverkunum í mars-
mánuði," sagöi Sveinn Þorgrímsson,
staðarverkfræðingur við Blöndu-
virkjun, í samtali við DV.
Blöndustíflan, sem verður hæst
stíflugarða Blönduvirkjunar, er nú
komin upp í tæpa 35 metra en í þess-
um áfanga virkjunarinnar verður
hún 40 metra há. Möguleikar eru síð-
an á því að hækka garðinn um fjóra
metra og stækka lónið úr 220 gígaiítr-
um í 400, eða um tæpan helming.
Kolkustífla, sem Hagvirki vinnur
einnig að, er langt komin. Gerð Gils-
árstíflu miðar vel hjá þeim Fossvirk-
ismönnum en sú stífla myndar inn-
takslón virkjunarinnar. Þetta eru
þrjú stærstu stíflumannvirkin við
Blöndu og verður gerð þeirra langt
komin í haust.
Að sögn Sveins staðarverkfræð-
ings verður unnið á Blöndusvæðinu
í allan vetur. Innan dyra verður feng-
ist við niðursetningu véla, sem þegar
er hafin, og unnið í stöðvarhúsinu.
Vatnsvegir og stíflur eiga samkvæmt
verksamningum að verða klár 1.
ágúst á næsta ári og bendir allt til
að það standist. „Viö ætlum okkur
að byrja að senda raforku frá
Blönduvirkjun eftir rúmt ár eða 1.
október 1991,“ segir Sveinn.
Um 500 manns hafa unniö á
Blöndusvæðinu í sumar, flestir á
vöktum allan sólarhringinn. Tíðar-
far hefur veriö hagstætt og nætur-
frost hefur aðeins verið eina nótt.
Ef frysta tekur eða rigningar gerir
marga daga í röð getur það tafið
vinnu við stíflugerð.
CNinlendcQ
Veitingahúsið á Öskjuhlíð:
Samið við Skúla
á Hðtel Holti
„Það voru 10 aðilar sem sóttu um
rekstur veitingastaðarins á hita-
veitutönkunum á Öskjuhlíð þegar
hann var auglýstur laus til umsókn-
ar síðastliðið vor. Af þeim tíu sem
sóttu um hefur borgin fyrst og fremst
átt í viðræðum við Skúla Þorvalds-
son, hótelstjóra á Hótel Holti, um að
hann taki við rekstri alls hússins.
Við væntum þess að þeim samning-
um verði lokið eftir 7 til 10 daga,“
segir Hjörleifur Kvaran, verkfræð-
ingur hjá Reykjavíkurborg.
„Við höfum verið að semja um það
við Skúla að hann taki að sér rekstur
alls hússins, ekki bara veitingastað-
arins, og hann verði ábyrgur gagn-
vart borginni á öllum þáttum rekstr-
arins. Hann yrði svo að íinna fólk til
að reka húsið með sér. Það er eftir
að ganga frá samningum um leigu-
verð og hvað Skúli eigi aö leggja með
sér, til að mynda hvort hann eigi að
eiga allan húsbúnað, og þar með
verður samið um lægri leigu eða
hvort Hitaveitan leggur hann til gegn
hærri leigu. Það verður að fara að
ljúka þessum samningum svo unnt
verði að opna húsiö í byrjun maí eins
og ætlunin er.“
-J.Mar
NUTILLEIGU
Nú getur þú tekið á leigu
frábæra NINTENDO
sjónvarpsleiktækið og leiki.
Þú getur leigt tækið sér, leikina
sér eða leiktækin og leikina
saman, allt eftir þörfum.
Yfir40 leikjaúrval
.WIDil
Fákafeni 11 - sími 687244
CNintendcQ
aítarskóli
*^"“ÖLAFS GAUKS
SÍÐASTA INNRITUNARVIKA
Innritun virka daga kl. 14-17 í síma 27015.
Skírteinaafhending laugardaginn 22. sept. kl. 14-17
í skólanum, Stórholti 16. Kennsla hefst 24. sept.
V etr artímimi
hjá SJÓVÁ-ALMENNUM
er frá níu til fímm
Haustið er komið og veturinn nálgast óðum.
Hjá SJÓVÁ-ALMENNUM skiptum við yfir í
vetrarafgreiðslutíma sem er frá
klukkan níu til fimm. Vetrartíminn gildir
frá 15. september til 1. maí.