Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1990, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1990, Page 12
12 MÁNUDAGUR 17. SEPTEMBER 1990. BÍLAGALLERÍ Opiö virka daga 9-18. Laugardaga 10-16. Suzuki Alto ’84, hvítur, 4 gira, tram- drif, ek. 75.000. Verð 195.000,- Toyota Carina II '89, hvítur, 5 g., vökvast, útv./segulb., centrallæs., ek. 11.000 aöeins. V. 1.050.000,- Volvo 340 DL ’87, Wár met, 4 gira, útv./segulb., ek. 38.000. Verð 560.000,- Honda Accord '84, síilurgrár, 5 gíra, vökvastýri, útv./segulb., ek. 72.000. Verö 520.000,- Lada Sport ’90, hvítur, 5 gira, létt- slýri, útv./segulb., ek. 5000 aðeins. Verö 710.000,- Voivo 740 GLE '84, blár meL, ssk. m/yfirg., vökvast., rafdr. ruður, állelg- ur, útv./sb., ek. 85.000. V. 980.000,- Lada Sport '87, hvitur, 5 gira, lélt- stýrl, útv./segulb., ek. 34.000. Verð 480.000,- Volvo 245 GL ’86, blár met, sjálfsk., vökvasL, útv./seguib., ek. 50.000, ekki skipti. Verð 925.000,- Volvo 240 GL '88, vfnr., sjálfsk. m/yfirgir, vökvast., útv./segulb., ek. 30.000. V. 1.130.000,- Fjöldl annarra úrvals notaðra bila á staðnum og á skrá. Brimborg hf. Faxafeni 8, s. (91) 685870 Uflönd Fréttir af útbreiðslu eyðni meðal rúmenskra barna vöktu mikinn óhug þegar ástandið varð lýðum Ijóst eftir fall Ceusescu einræðisherra um síðustu jól. Nú hefur mönnum dottið í hug að nota þessi sömu börn í tilraunir með eyðnilyf. Tilraunir með nýtt undralyf gegn eyðni stóðu fyrir dyrum 1 Rúmeníu: Ætluðu að nota rúmensk börn ffyrir tilraunadýr - hætt var við tilraunina í síðustu viku vegna mótmæla rúmenskra lækna Hætt hefur verið við áform um að reyna nýtt eyðnilyf á ungum börnum í Rúmeníu. Nokkrir læknar frá Vest- urlöndum höfðu fengið leyfi rúm- enskra stjónvalda til að reyna lyfið á hópi rúmenskra munaðarleysingja, sem höfðu sýkst af eyðni á bama- heimilum. Máhð hafði náð það lagt að um 60 eyðnisjúkum börnum hafði verið komið fyrir á Colentina sjúkrahús- inu í Búkarest. Þar átti að hefja til- raunir með lyfið á börnunum í síð- ustu viku. Heilbrigðisráðuneytið hafði ekkert við hugmyndina að at- huga en yfirlæknir sjúkrahússins mótmælti henni og krafðist þess að hætt yrði við allt. Efasemdir um kosti lyfsins Eyðnisérfræðingar frá Bretlandi og Bandaríkjunum voru komnir til Rúmeníu og höfðu með sér lyf sem kallað er FLV23/A. Miklar efasemdir eru uppi meðal lækna um hvort þetta lyf er til nokkurs gagns. Þar að auki hefur ekki hingaö til verið talið rétt- lætanlegt að gera tilraunir á börnum. Margir læknar á Bretlandseyjum segjast hneyksíaðir á þessari hug- mynd starfsbræðra sinna. Undanfar- in ár hafa ýmis lyf oft verið reynd fyrst í þriðja heiminum þar sem fólk er tilbúið til að taka lyfin gegn greiðslu. Sú aðferö sætir vaxandi gagnrýni og nú þykir skörin vera farin að færast upp í bekkinn þegar gera á tilraunir á ómálga börnum. Framleitt með leynd í Dubai Nýja eyðnilyfið hefur hvergi fengið viðurkenningu og ekki hefur enn verið skýrt frá hvernig það er saman sett. Framleiöendur lyfsins hafa að- eins gefið upp heiti þess en ekki kynnt það að öðru leyti fyrir lækn- um. Sagt er það hafi verið framleitt með leynd í Miðausturlöndum af fyr- irtæki sem hefur höfuðstöðvar sínar í Lundúnum. Höfundur lyfsins heitir David Hug- hes. Hann státar af ýmsum gráðum í læknisfræði bg efnafræði en engin menntastofnum vill þó viðurkenna þær. Hughes hefur aösetur í Dubai og með honum vinna fléiri Vestur- landabúar. Hann sótti um leyfi til að gera tilraunina á rúmensku bömun- um og fékk það í maí. Menn á vegum Hughes fóra til Rúmeníu og ræddu þar við ráöamenn í heilbrigðisþjón- ustunni. Dr. Adrian Streinu, yfirlæknir á Colentina sjúkrahúsinu, samþykkti í fyrstu aö tilraunin yrði gerð. Hann ber ábyrgð á fjölda eyðnisjúkra barna á sjúkrahúsinu. Hann segir að dag hvern látist íjögur til fimm börn af völdum eyðni á sjúkrahúsinu og því hafi hann tahð réttlætanlegt að reyna allt tii að lina þjáningar ban- anna. Þegar reynt í Afríku Það var ekki fyrr en Streinu frétti af efasemdunum, sem læknar á Vest- urlöndum hafa um lyfið, aö hann ákvaö að hætt yrði við tilraunina. Lyfið var reynt í Malawi í fyrra og þaöan bárust fréttir um að hér væri á feröinni sannkallaö undralyf. Læknar, sem kynnt hafa sér tilarun- ina í Malawi, segja þó að ekkert sé að marka hana og yfirlýsingar um ágæti lyfsins séu aðeins sölu- mennska. Fyrir utan efasemdirnar um lyfið sjálft hafa læknar mótmælt því harð- lega að börn séu valin til að vera til- raunadýr. Dr. Patrick Dixon, einn fremsti eyðnisérfræðingur Breta, segir að það valdi læknum miklum áhyggjum að einhverjir óþrúttnir sölumenn skuh ætla sér að gera til- raunir á börnum í Rúmeníu. Sidlaus tilraun, segja læknar Hann segir að á Vesturlöndum fæö- ist árlega mörg börn með eyðni en þessir menn hafi ekki kjark til að biðja um aö fá að gera tilraunir á þeim. „Ef lyfið er þvílíkt töfralyf sem þessir menn segja, af hverju vilja þeir þá ekki gera tilraunir með það á börnum á Vesturlöndum,” spyr Dixon. Fleiri læknar taka undir með Dix- on og telja tilraunina siðlausa auk þess sem ekkert sanni að lyfið komi að gagni. Þá finnst þeim undarlegt að Hughes skuh ekki vilja upplýsa hvernig lyfið er gert. Fá eyðnisér- fræðignar að skoða samsetningu lyfsins megi fljótlega ganga úr skugga um hvort það er líklegt til að hafa áhrif eða ekki. Hughes hefur farið mjög leynt með Flest eyðnisjúku börnin i Rúmeníu eru munaðarleysingjar og eiga enga aðra að en stjórnir sjúkrahúsanna þar sem þau liggja. uppgötvun sýna og í viðtölum hefur hann neitað að hafa fundiö upp eyðnilyf. Samt fer ekkert milli mála að hann sótti um leyfi rúmenskra yfirvalda til að reyna lyfið. Mannúðarfélög á Bretlandseyjum hafa líka bragðist hart við fréttum um að reyna ætti lyfið á rúmenskum börnum. Hjálparstofnanir leggja mikið fé til að styrktar rúmenskum sjúkrahúsum og hafa eðlilega mót- mælt því að þessi sömu sjúkrahús verði notuð sem tilraunastofur fyrir einhveija ævintýramenn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.