Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1990, Page 19
MÁNUDAGUR 17. SEPTEMBER 1990.
31
Fréttir
Ólafsfjörður:
Bæjarstjórnarfundur í beinni út-
sendingu í kapalkerfi bæjarins
Helgi Jónsson, DV, Ólafefiröi:
Fundur í bæjarstjórn Ólafsíjarðar
var nýlega sýndur í beinni útsend-
ingu hjá Videó-Skann sem er kapal-
kerfi bæjarins. Þaö var Skúli Pálsson
stjónvarpsstjóri sem sá um tæknihhð
útsendingarinnar.
Það er nokkuð um liðið síðan þessi
hugmynd fæddist en ekkert hefur
orðið úr fyrr en nú. Þetta var til-
raunaútsending. Það eru aöeins fáir
áskrifendur Stöðvar 2 sem geta séð
þessa útsendingu hjá Videó-Skann
því Stöð 2 er sýnd í kapalkerfi Skúla.
Skúli hefur sérstaka rás í kapalkerf-
inu sem hann hefur hingaö til notað
fyrir auglýsingar.
Á umræddum fundi var meðal ann-
ars rætt um kauptilboð í hlutabréf
Hraðfrystihússins og nýtt aðalskipu-
lag bæjarins. Óskar Þór Sigurbjörns-
son, forseti bæjarstjórnar og oddviti
sjálfstæðismanna, sagði að hér væri
um merka tilraun að ræða en greini-
legt væri að gera þyrfti margar
tæknilegar lagfæringar svo sem á
hljóði og lýsingu. Hann sagði að þetta
væri ein þeirra leiöa sem bæjarfull-
trúar gætu farið til aö nálgast bæj-
arbúa nánar en aðsókn að bæjar-
stjórnarfundum hefur verið nánast
engin.
Björn Valur Gíslason, oddviti
vinstri manna, lýsti ánægju sinni
með þessa nýjung. Þuríður Astvalds-
dóttir, sem einnig sat fundinn, sagði
að því væri ekki að neita að skiptar
skoðanir væru á meðal bæjarfulltrúa
um beinar útsendingar frá bæjar-
stjórnarfundum. Sagðist hún vonast
til að þær gerðu meiri kröfur til bæj-
arfulltrúa.
Snæfellsnes:
Aðeins ein kona með
í sjóstangaveiðimóti
Stefin Þór Sigurösson, DV, Hellissandi:
Sjóstangaveiðifélag Snæfellsness,
SJÓSNÆ, hélt innanfélagsmót í sjó-
stangaveiði nýlega.
Haldið var frá bryggju frá hinni
miklu veiðistöð, Rifi, snemma morg-
uns. Veðrið var ekki eins og best
verður á kosið, suðvestan 6-7 vind-
stig. Aflaklær SJÓSNÆ létu það ekki
á sig fá heldur héldu ótrauðar á sjó-
inn. Eftir hádegi lygndi og afli manna
jókst. í land var svo komið seinni-
part dags og aflinn þá skoðaöur, vigt-
aður og flokkaður. Alls komu 900 kg
á land eftir daginn.
Róið var á tveimur bátum frá Rifi,
Þorsteini SH, skipstjóri Kristján
Jónsson, og Kára SH, skipstjóri Lúð-
vík Ver Smárason sem einnig tók
þátt í mótinu.
Aflahæsti einstaklingurinn reynd-
ist vera Ágúst Sigurðsson með 147
kg. í öðru sæti lenti Lúðvík Ver
Smárason og í þriðja sæti voru þeir
Ómar Lúðvíksson og Sigurður Arn-
fjörð Guðmundsson.
Stærsta fiskinn, 5,5 kg þorsk, veiddi
ofangreindur Ágúst Sigurðsson.
Annan stærsta fiskinn dró Eysteinn
Gunnarsson og þann þriðja stærsta
veiddi Ómar Lúðvíksson.
Þátttaka í mótinu var góð en aðeins
ein kona, Sigurbjörg Kristjánsdóttir,
var meöal þátttakenda. Hún aflaði
ekki síður en karlmennirnir, dró 106
kg úr sjó yfir daginn. Um kvöldið var
haldið hóf og verðlaun afhent.
SJÓSNÆ er ungt félag, stofnað í
júh á þessu ári, en hefur engu að síð-
ur starfað af miklum þrótti. Formað-
ur félagsins er Óskar Þór Óskarsson.
Knattspymumenn á Ólafsfirði:
Þrífa og leggja þökur
í fjáröf lunarskyni
Helgi Jónsson, DV, Ólafefirði:
Liðsmenn og forráðamenn knatt-
spymuhðsins Leifturs frá Ólafsfirði
hafa undanfarið farið ótroðnar slóðir
í fiáröflun fyrir félag sitt.
Það kostar mikla peninga að reka
knattspymulið í 2. deild og verða
forráðamenn félaganna því að grípa
til ýmissa aðgerða. Leiftursmenn
hafa síðustu vikurnar tekið að sér
nokkur verkefni sem hingaö til hafa
ekki þótt sérgrein stjórnar og stuðn-
ingsmanna félaga. Tóku þeir sig til
og þvoðu 2,5 kílómetra langan loft-
stokk sem notaður var í Múla-
göngum. Um þessar mundir eru þeir
svo að leggja þökur á lóðir tveggja
verkamannabústaða en hvor um sig
er um 600 fermetrar.
Það er greinilegt að fiárhagur
íþróttafélaganna er erfiður og eru
félögin i vaxandi mæli að taka að sér
verkefni af þessu tagi til að standa
undir rekstrinum.
Stykkishólmur:
Boðið upp á framhalds-
nám við grunnskólann
Ingibjörg Hinriksdóttir, DV, Stykkishólmi:
í fyrravetur var í fyrsta sinn boöið
upp á tveggja ára nám við framhalds-
deild Grunnskólans í Stykkishólmi.
Var þeirri nýbreytni vel tekið bæði
af nemendum og ekki síst foreldrum
sem með þessu geta minnkað kostn-
að við framhaldsnám barna sinna
sem þau hafa hingað til þurft að
sækja annað.
Við grunnskólann hefur verið
starfrækt framhaldsdeild um nokk-
urra ára skeið. Hefur hún jafnan
notið mikilla vinsælda meðal nem-
enda grunnskólans þar sem hún gef-
ur þeim kost á aö stunda framhalds-
nám í sinni heimabyggð.
Nemendur í framhaldsdeildum eru
um fiörutíu talsins og er það aukning
frá því í fyrra. Munar þar mestu um
nemendur sem koma frá nágranna-
byggðarlögunum af Snæfehsnesinu,
úr Dölunum og frá Patreksfirði.
Einnig hefur verið nokkuö um það
að íbúar í Stykkishólmi, sem ekki
hafa stundað nám um nokkurt skeið,
setjist á skólabekk að nýju í fram-
haldsdeildunum.
Markmið grunnskólans er að geta
útskrifað nemendur af tveggja ára
brautum og vantar aðeins herslu-
muninn á að svo geti orðið. Skóla-
stjóri Grunnskólans í Stykkishólmi
er Lúðvíg A. Halldórsson.
Við Grunnskólann í Stykkishólmi er nú starfrækt tveggja ára framhaldsdeild
i tengslum við Fjölbrautaskóiann á Vesturlandi. DV-mynd Ingibjörg
Ungir sem aldnir koma í réttirnar.
DV-myndir Þórhallur
Göngurogréttir:
Fjalllendið víða á floti
Þórhallur Ásmundsson, DV, Sauöárkróki:
Göngur og réttir standa nú sem hæst.
Þeir voru ekki öfundsverðir af veðr-
inu gangnamenn síðustu helgar. Að
sögn þeirra er fialllendiö víðast hvar
á floti eftir óskaplegar rigningar und-
anfarið.
En allt tekur enda og áöur en
gangnamenn vita af eru þeir komnir
í réttirnar. Þessar myndir voru tekn-
ar í Skarðsrétt við Sauðárkrók.
„Vertu ekki með þessa óþekkt góða mín,“ gæti þessi hugrakki, ungi maður
verið að segja við gimbrina. Sumir láta sér það hins vegar nægja að fylgj-
ast með þegar dregið er i dilka.