Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1990, Side 31
MÁNUDAGUR 17. SEPTEMBER 1990.
43
Neytendur
Úðunarefnið Reglone:
Skaðlaust neytendmn
- segir Sigurgeir Ólafsson plöntusjúkdómafræðingur
óþvegnar, en vandamálið er að ar hægt er að kaupa hreinar. Þvott- kartöflurnar," sagði Sigurgeir Ólafs-
óþvegnar kartöflur seljast síður þeg- urinn er kjörin leið til að eyðileggja son plöntusjúkdómafræðingur. -hge
Kappsmál að selja góða vöru
- segir eigandi kartöflugámsins við Umferðarmiðstöðina
ekki að hafa neinar áhyggjur vegna
þessarar notkunar. Vandamálið er
þessi þvottur á kartöflunum, það er
ekki bara kartöflumygla sem hér um
ræðir, heldur líka stöngulsýki sem
nú er meiri en oft áður. Kartöflu-
myglan endar yfirleitt í votrotnun
sem kemur í kjölfarið á myglunni.
Sjálf mylguskemmdin á kartöflunni
er þurr skemmd, en mjög oft kemur
bakteríuvotrotnum í kjölfarið. Sama
er með stöngulsýkina, þar er bakter-
íuvotrotnunin líka vandamál og þá
er þvottur á kartöflunum náttúrlega
alveg eitur. Þetta væri allt annað ef
kartöflur væru hafðar óþvegnar, þá
yrði ekki eins slæm skemmd í pokun-
um eins og þegar 'kartöflur eru
þvegnar, settar rakar í plastpoka og
jafnvel geymdar í hita. Það er besta
leiðin til að þær rotni á mettíma.
Kartöflur geymast mun lengur
Við sögðum í síðustu viku frá
manni sem keypt haföi skemmdar
kartöflur í gámi við Umferðarmið-
stöðina. Nú er komið á daginn að um
kartöflumyglu var að ræða í því til-
viki.
Eigandi gámsins, Tryggvi L.
Skjaldarson, kartöflubóndi í Norð-
ur-Nýjabæ í Þykkvabænum, hafði
samband við neytendasíðuna og var
alveg miður sín yfir ástandinu. Hann
hefur nú lokað gámnum og hyggst
ekki opna hann aftur fyrr en hann
hefur fullvissað sig um að hann sé
aö selja fullkomlega heilbrigða og
gallalausa vöru.
Þetta er fjórða árið sem Tryggvi
selur kartöflur úr gámi við Umferð-
armiðstöðina. Þar selur hann nýupp-
teknar, óþvegnar kartöflur í 5 og 15
kílóa pokum, og gerði hann ráð fyrir
að kílóverðið hjá sér yrði einhver-
staðar á bilinu 60-65 krónur þegar
hann opnaði aftur. Sagði hann kart-
öflusjúkdóm þennan vera mikið áfall
fyrir sig því það væri honum mikið
kappsmál að selja góða vöru á góðu
•verði. Þeir sem hafa orðið fyrir því
að kaupa hjá honum gallaðar kartöfl-
ur geta komið eftir að hann opnar
aftur og valið um það hvort þeir vilja
fá nýjar kartöflur í staðinn eða end-
urgreiðslu.
-hge
Kartöflurnar geymast mun lengur óþvegnar, þvottur er auöveldasta leiðin til að eyöileggja þær, segir Sigurgeir Ólafsson plöntusjúkdómafræðingur.
Kartöflubændur á Suðurlandi hafa-
verið að úða garða sína með efni sem
fellir grösin og minnkar líkurnar á
því að kartöflumyglan margum-
rædda nái að skemma uppskeruna
enn frekar en orðið er. Fólk hefur
haft samband við neytendasíðuna til
að spyijast fyrir um hvaða efni þetta
sé, hvort þetta sé eitur sem hugsan-
lega komist í snertingu við kartöfl-
urnar og hvort sérstaklega þurfi að
þvo kartöflur af þessu svæði.
í framhaldi af þessum fyrirspurn-
um höfðum við samband við Sigur-
Neytendur
geir Ólafsson, plöntusjúkdómafræð-
ing hjá Rannsóknarstofnun land-
búnaðarins, og spurðum hann um
þetta efni.
„Þetta efni heitir Reglone ög er
notað mjög mikið í kartöflurækt er-
lendis en við höfum hins vegar getað
sparað okkur notkun þess hér á landi
þar til núna. Það er fastur liður í
kartöflurækt í nágrannalöndum
okkar að grös eru sviðin niður með
þessu efni. Efnið sem slíkt drepur
ekki kartöflumygluna heldur fellir
einungis grösin. í Danmörku er
heimild til að nota allt að fjóra lítra
af þessu efni á hvern hektara, en
kartöflubændur hér hafa einungis
notað tvo og hálfan lítra á hektarann
og það hefur dugað þeim vel.
Það má reikna með að þær inn-
fluttu kartöflur sem hér eru á mark-
aði séu undan grösum sem sviðin
hafa verið niður með þessu efni. Er-
lendis er það venjan að svíða grösin
niður hálfum mánuði fyrir upptöku.
Það er gert bæði til þess að verjast
myglu og eins til að fá ákveðinn
þroska í kartöflurnar. Gott ráð til
þess að verjast myglunni er að taka
ekki upp fyrr en grösin eru sviðin,
því smitið getur borist af grösunum
yfir í kartöflurnar í upptökunni,"
sagði Sigurgeir.
- En nú má gera ráð fyrir að efnið
geti komist í snertingu við þær kart-
öflur sem liggja efst í yfirborði mold-
arinnar. Þarf fólk að hafa áhyggjur
af þessu?
„Þær kartöflur sem liggja í yfir-
borðinu eru yfirleitt grænar og eru
flokkaðar frá þannig að fólk þarf
Verð á nýju dilkakjöti verður óbreytt.
Óbreytt verð á dilkakjöti
Verð á nýju dilkakjöti mun haldast
óbreytt á næstunni samkvæmt upp-
lýsingum frá Framleiðsluráði land-
búnaðarins. Heildsöluverð á úrvals-
flokki í heilum skrokkum er 394,37
krónur kílóið og flokkur sem nefnist
DlA, sem einnig er fyrsta flokks kjöt,
kostar 378,39 krónur m.v. að keypt
sé í heilum skrokkum.
Hámarks smásöluverð á heilum
skrokkum í úrvalsflokki er 430,80 kg
en hámarks smásöluverð á DlA
dilkakjöti í heilum skrokkum er
416,20 kg. -hge
RENAULT19
C H A M A D E
STYRKUR OC GLÆSILEIKI. Ríkulega búinn fólksbíll eins og þeir gerast bestir: vökva- og velti-
stýri, fjarstýrðar samlæsingar, litað gler, rafdrifnar rúður, tvískipt og fellanleg aftursæti (1/3-
2/3), öflug og sparneytin 92 hestafla vél, 5 gírar, framdrif og frábær fjöðrun. Sestu undir stýri á
Renault 19 TXE Chamade og njóttu ávaxta Parísar, háborgar tískunnar. Staðgreiðsluverð
1.098.000 kr. skv. tollgengi í september 1990.3ja ára ábyrgð og 8 ára ábyrgð á ryðvörn.
RENAULT
Bílaumboðið hf
Fer á kostum
KRÓKHÁLSI 1, REYKJAVlK, SlMI 686633