Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1990, Page 32
44
MÁNUDAGUR 17. SEPTEMBER 1990.
Menning
Hinn eini hreini tónn
Gunnar Guöbjömsson tenórsöngvari og Jónas Ingi-
mundarson píanóleikari héldu tónleika í Norræna
húsinu í gær. Flutt var Malarastúlkan fagra eftir Franz
Schubert við ljóö Wilhelms Muller. Húsfyllir var og
listamönnunum innilega þakkað í lokin. Tónleikarnir
veröa endurteknir í kvöld.
Séra Jóhann í Brekkukotsannál hélt því fram að til
væri einn tónn og hann hreinn. Gunnar Guðbjömsson
hefur komist nær því að finna þennan tón en flestir
ef dæma má af frammistööu hans á þessum tónleikum.
Hinn hreini tónn þótt einn sé er samanslunginn úr
mörgum þáttum. Með sama hætti er söngur Gunnars
niðurstaða af samspili margra eiginleika. Má þar fyrst
nefna ríka tónlistarhæfileika og smekkvísi til viðbótar
við óvenjulega eðlisfagra rödd sem hefur verið þjálfuð
af þekkingu og skynsamlegu viti. Þótt hlustaö sé með
fyllstu gagnrýni er erfitt að finna veikan blett á list
Gunnars. Textaframburður hans er góður og skýr.
Framkoman látlaus og kurteisleg. Flutningurinn sér-
lega blæbrigðaríkur og fjölbreyttur. Það tekur nokkuð
á aðra klukkustund að syngja Malarastúlkuna. Til
þess að halda fullri athygli áheyrenda svo lengi þarf
mikla hugmyndaauðgi og sköpunargáfu og það sýndi
Gunnar að hann á ríkum mæli. Gildir það einnig um
Tónlist
Finnur Torfi Stefánsson
píanóleik Jónasar Ingimundarsonar sem spilaði yfir-
leitt mjög vel og átti mikinn þátt í að gera þessa tón-
leika svo ánægjulega. Gunnar er eins og margir aðrir
íslenskir söngvarar og tónlistarmenn önnum kafinn
við að gera garðinn frægan erlendis og skal honum
óskaö alls velfarnaöar í því.
Um Malarstúlkuna fögru er það að segja að hún er
einhver sú fegursta perla tónlistarinnar sem samin
hefur verið. Fegurð laglínanna og hljómfræðileg auðgi
þessa verks, sem þó er jafnan látin þjóna dramatísku
inntaki textans, á sér varla nokkurn lika. Síðan geta
menn tekið ofan fyrir höfundinum í minningu þess
að hann hafði um það bil fimmtíu áheyrendur að ljóða-
tónhst sinni í lifanda lífi eftir því sem fróðir menn
hafa fundið út og hefði örugglega aldrei komist í sjón-
varpið hefði það verið til á hans tíð.
/:---------------\
.Ií< held ég gMgi heím “
Urval
HRINGDU OG FÁÐU
SENT EINTAK.
freeMouftz
BÆJARHRAUN114, 220 HAFNARFJÖRÐUR
PÖNTUNARLÍNA
91-653900
Andlát
Guðlaug Kristmundsdóttir frá Rauö-
barðaholti, til heimiUs í Suðurhólum
26, Reykjavik, andaðist í Borgar-
spítalanum 14. september.
Anna Guðmundsdóttir, Nóatúni 32,
Reykjavík, lést í Borgarspítalanum
aðfaranótt föstudagsins 14. septemb-
er.
Hafdís S. Alfreðsdóttir, Gnoðarvogi
30, andaðist í Landakotsspítala 13.
september.
Pétur Berndsen lést í Landakotsspít-
ala að kvöldi 13. september.
Regína Sigurlaug Metúsalemsdóttir
andaðist 12. september í elUheimil-
inu Grund.
Jarðarfarir
Bjarni Pálsson frá Seljalandi, sem
andaðist á Sólvangi 9. september,
verður jarðsunginn frá Kapellu
kirkjugarðsins í Hafnarfirði í dag, 17.
september, kl. 13.30.
Útfor Margrétar D. Hálfdánardóttur,
Rauðarárstíg 22, verður gerð frá
Fossvogskirkju þriðjudaginn 18.
september kl. 15.
Andrés Fjeldsted Sveinsson síma-
málafuUtrúi, Ægisíðu 72, Reykjavík,
lést í Borgarspítalanum 10. septemb-
er. Útfór hans fer fram frá Dómkirkj-
unni í Reykjavík þriðjudaginn 18.
september kl. 13.30.
Gísli Ágústsson frá Hofsstöðum,
Lindargötu 62, Reykjavík, sem lést
5. september, verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju miðvikudaginn 19.
september kl. 15.
Karl J. Eiríks, RjúpufelU 17, Reykja-
vík, sem lést 9. september, verður
jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju
þriðjudaginn 18. september kl. 13.30.
Guðrún Þ. Sigurðardóttir frá ísafirði,
Jökulgrunni 1,, Reykjavík, verður
jarðsungin frá Áskirkju í dag, mánu-
daginn 17. september, kl. 13.30.
Ólöf Helgadóttir, Sólheimum 30,
verður jarðsungin frá Langholts-
kirkju þriöjudaginn 18. september
kl. 15.
Erla Falkvard Friðgeirsdóttir,
Grjótaseli 5, lést á barnadeild Landa-
kotssjiítala laugardaginn 8. septemb-
er. Utför hennar verður gerð frá
Langholtskirkju í dag, 17. september,
kl. 15.
Tapað fundið
4 mánaða kettlingur týndur
Lítill svartur kettlingur, hvitur á löppum,
bringu og hálfu trýninu, týndist úr vest-
urbæ Kópavogs sl. föstudag. Hann var
með þósbláa ól með tunnu. Fólk er beðið
að gá í bílskúra og geymslur og hafi ein-
hver keyrt yfir hann að láta þá vita. All-
ar upplýsingar eru vel þegnar í síma
44736.
Tilkyimingar
Öðruvísi ferming
Nú í haus hefst undirbúningur að borg-
aralegri fermingu í þriðja sinn. Alls hafa
26 ungmenni verið fermd sl. tvo vetur og
nokkru fleiri sótt námskeiðin. Ráðgert
er aö hefja starfið nú með ferðalagi í einn
til tvo daga. Síðan tekur við námskeið
með svipuðu sniði og veriö hefur. Er það
einu sinni í viku í um 15 skipti og verða
eftirtalin efni rædd, m.a. siðfræði, lífs-
skoðanir, samskipti foreldra og unglinga,
réttur unglinga í samfélaginu, jafnrétti,
mannréttindi, samskipti kynjanna, frið-
armál, umhverfismál og vímuefni. Lögð
er áhersla á að fá sem hæfasta fyrirlesara
um þessi efni og hefur það tekist mjög
vel. Þátttakendur greiða námskeiösgjald
og er það haft í lápiarki. Ungmennin og
aðstandendur þeirra sjá síðan um að
skipuleggja fermingarathöfnina í sam-
ráði við undirbúningshóp. Öll ungmenni
fædd 1977 og fyrr geta tekið þátt í nám-
skeiðinu og síðan ákveðið hvort þau vilji
fermast. Áhugagólk um borgaralegar at-
hafnir stofnaði í febrúar sl. með sér sam-
tök, sem nefnast Siðmennt og hafa þau
veg og vanda af námskeiðshaldinu nú.
Vegna skipulagningarinnar er mjög mik-
ilvægt að fá sem fyrst nokkra mynd af
þeim fjölda sem verður á námskeiðinu
og því er þeim sem hafa áhuga eða vilja
skrá sig bent á að hafa samband við Hope
Knútsson í síma 91-73734. Þar eru einnig
veittar allar upplýsingar.
Fimdir
Kynningarfundur
Flugbjörgunarsveit-
arinnar í Reykjavík
Mánudagskvöldið 17. september verður
haldinn kynningarfundur Flugbjörgun-
arsveitarinnar í Reykjavik. Fundurinn
verður í hinu nýja félagsheimili sveitar-
innar v/Flugvallarveg (vegurinn að Hótel
Loftleiðum) kl. 20 stundvíslega. Flug-
björgunarsveitin er kjönn vettvangur
fyrir hvem þann sem vill stunda heil-
brigða útiveru, gott félagsstarf og síðast
en alls ekki síst að vera tilbúinn til þess
að bjarga mannslífum við leitarstörf og
fleira þess háttar. Allar nánari upplýs-
ingar verða gefnar á mánudagskvöldið
og em allir velkomnir á þennan kynning-
arfund.
Aðalfundur Bridgefélags
Reykjavíkur
Aðaífundur félagsins var haldinn mið-
vikudaginn 12. september. Ný stjóm var
kosin fyrir næsta ár og hana skipa: for-
maður Sævar Þorbjörnsson, varaformað-
ur Jón Baldursson, gjaldkeri Eiríkur
Hjaltason, ritari Björgvin Þorsteinsson
og fjármálaritari Bragi Hauksson.
Fréttir
-----------------------3--------------
Hólmaborg frá Eskifirði:
Fann enga loðnu
Emil Thorarensen, DV, Eskifirði:
Loðnuskipið Hólmaborg SU-11 frá
Eskifirði kom inn til Eskifjarðar á
sunnudag án þess að hafa oröiö
vart við veiðanlega loðnu. Skipið
var á loðnumiðunum norður af
landinu í síðustu viku. Nótinni var
aldrei kastað í veiðiferöinni.
Bjarni Gunnarsson skipstjóri
sagði í samtali við DV á sunnudags-
kvöld að haldið hafi veriö réttvís-
andi norður af Sléttu í upphafi
veiðiferðar, út undir miðlínu og
síðan farið suðvestur með miðlínu
suður í Víkurál. „Leituðum við
loðnu í kantinum frá Víkurál og
norður fyrir Hala. Svo sigldum við
á hefðbundinni slóð, austur með
kantinum fyrir Norðurlandi og
kringum Kolbeinsey. Eftir það fór-
um við allt í það aö vera 100 mílur
norðaustur af Langanesi og héld-
um þaðan í suöur. En allt kom fyr-
ir ekki, við fundum enga veiðan-
lega loðnu.“
Bjarni kvað yfirborðshita sjávar
mestmegnis hafa verið á bilinu 5
til 7 gráður norður og austur af
landinu en heldur kaldari djúpt
vestan og norðan Vestfjarða eöa 2
til 3 gráður.
Bjarni kvaðst ekki vera svart-
sýnn á að loðnan kæmi. Þetta
ástand væri ekki óþekkt þar sem
fyrri partur september hafi í gegn
um árin oft reynst dyntóttur.
Ástandið væri í raun ekki ósvipað
og það hafi verið í fyrra. Aldrei er
að vita hvort loðnan finnst allt í
einu í veiðanlegu ástandi.
Bjarni sagðist ekki hafa orðið var
við neitt annað loðnuskip á sinni
miklu siglingu, hvorki innlent né
erlent. Hins vegar vissi hann af
Bjarna Sæmundssyni sem hafi ver-
ið í einhvers konar rannsóknar-
leiðangri við Grænlandsstrendur.
Urðu þeir ekki heldur varir viö
loðnu.
alla daga kl. 9-9
Fjölmiðlar
> ■
Oðruvisi tonlist
HOPNAMSKEIÐIN
„Byrjun frá byrjun" og
„Áfram" að hefjast!
EINSTAKLINGAR -
PÖR - FORELDRAR
STARFSFÉLAGAR -
KLÚBBAR - FÉLÖG
Kennsla á dag- og kvöldtímum alla
daga fyrir einstaklinga, pör og smá-
hópa.
Helstu efni grunn- og framhalds-
skóla o.fl.
Biðjið um kennslu og nám-
skeið eftir eigin höfði!
Verð eftir fjölda / hóflegt
verð.
T.d. íslenska, réttritun, málfræði,
stærðfræði grunnskóla, verslunar-
enska, símaenska, verslunarreikn-
ingur, verslunarbréf.
Sú einhæfni í dagskrárgerð sem
einkennir langflestar útvarpsstöðv-
amar þegar heildin er skoðuö er
rryög þreytandi til lengdar, sérstak-
lega á þetta við um tónlistarstefnu
þessara stöðva. Stór lúuti þessarar
einhæfni stafar af þekkingarleysi
plötusnúöanna því ekki er hægt að
kalla þetta unga fólk annað en
plötusnúða þótt sömu aðilar vilji
kalla sig dagskrárgerðarmenn.
Undantekningar eru þó til og er það
sérstaklega ura helgar sem nokkrir
tónlistarþættir eru sem áhugavert
eraðhlustaá.
Fyrst vil ég geta tveggja dagskrár-
liða á rás 2 á laugardögum. Á
morgnana og fram yfir hádegi er
Þorsteinn J. Vilhjálmsson við
stjórnvölinn. Heyrt hef ég að ekki
kunni allir að meta hans framtak,
en hann er fyrst og fremst öðruvísi
og kemur hvað eftir annað á óvart.
Tónlistin sem hann leikur er einnig
fiölbreytt. Þá er þáttur síödegis sem
kallast Söngur villiandarinnar. Þar
má heyra í íslenskum tónlistar-
mönnum frá fyrri tíð, bæði af plöt-
um sem og af segulböndum sem eru
í geymslu útvarpsins. Yfirleitt tínir
umsjónarmaður þáttarins, Þórður
Arnason, fram eitthvað sem sjaldan
heyrist og þótt margt og j afn vel flest
af þessu efni sé rislítið þá er forvitni-
legt að hlusta á þessar gömlu upp-
tökur sem margar hverjar eru gerð-
ar við mjög svo frumstæð skilyrði.
í gær var svo á Aðalstöðinni þátt-
urinn Sigildir tónar. Jón Óttar
Ragnarsson er umsjónarmaður
þessa þáttar og þar leikur hann eins
og nafnið bendir til klassíska tón-
list. í gær fór hann mjúkum höndum
um viðfangsefhi sitt, lék nær ein-
göngu þekkt og vinsæl verk og var
nokkur kynningarbragur á tónlist-
inni sem meðal annars fólst í því
að aðeins smáhluti lengri verka var
leikinn.
Hilmar Karlsson