Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1990, Side 36
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstiórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifíng: Simi 27022
Olafsvík:
Þrír bræður lentu í sjónum
„Við vorum búnir aö taka trollið
inn í bátinn og vorum famir að
halda undan veðrinu. Ægir og Óð-
inn voru aö slaka bómunni niður
en Óöinn þurfti að rétta hana aí' til
að koma henni i statífið en siaer
herrni þvert yflr i stjór og hún lend-
ir á honum með þeim afleiðingum
aö hann féll íyrir borð,“ segir
Brynjar Kristinsson, skipstjóri á
Steinunni SH160,150 tonna rækju-
bát sem gerður er út frá Ólafsvík.
Það var um klukkan 19.30 á föstu-
dagskvöldið sem óhappið varð.
Báturiim var þá staddur 14 milur
vestur af Jökli í suðvestan hauga-
sjó og 8 til 9 vindstigum.
Pjögurra manna áhöfn var um
borðá Steinunni, bræðurnir Brynj-
ar, Óðinn, Sumarliði og Ægir og
fóm þrír þeirra í sjóinn áður en
lauk.
„Sumarhði sá þegar Óöinn féll
„Auðvitað er maður feginn að
þetta skyldi fá svo farsæian endi
og við skyldum allir komast iifs af
úr þeim haugasjó sem var vestur
af Snæfeilsnesi á föstudagskvöid-
ið,“ segir Brynjar Kristinsson,
skipstjóri á Steinunni SH 160.
DV-mynd sme
útbyrðis og hljóp upp en ég náði
að leggja bátnum að Óðni og kall-
aði um leið í Ægi og bað hann að
ná í Markúsarnetiö. Sumarliði var
fljótur að koma sér í flotgalla og
hann stökk útbyrðis til að reyna
að hjarga Óðni en þegar hann var
kominn í sjóinn flaut hann i burtu
frá bátnum. Ægir kastaði spotta
út til Óðins en hann náði ekki taki
á honum en bar aftur með bátnum.
Hann náði taki á trollinu sem lá
að hluta til aftur úr bátnum og
tókst að halda sér í það. Ég var í
vinnuflotgalla og sá að Sumarliði
myndi ekki geta komið Óðni til
bjargar svo ég ákvað að stökkva í
sjóinn með spotta og binda hann í
Oðin. Það tókst og Ægir kom aftur
á tókst að festa hinum enda spott-
ans í rekkverkið. Þegar þar var
komið sögu var ég orðinn ærið
þrekaður og flotgallinn orðinn full-
ur af sjó, ég kalla því tii Ægis að
koma með spotta sem ég batt utan
um mig og hann festi mig svo líka
við rekkverkið.
Honum tókst svo að hífa mig um
borð með gilsinum og mér tókst að
skriða aftur á bátinn og í samein-
ingu náðum við að hífa Óöin um
borð en hann var þá orðinn ærið
þrekaður. Þá var eftir að ná Sumar-
liða upp og þaö gekk vel. Hann
hafði rekið um 100 metra írá bátn-
um en þegar báturinn lagðist að
honum gat hann klifrað upp stiga
sem er utan á bátnum og komst
þannig að sjáifsdáðum um borð.
Sumarliði fór með Óðin niður i
klefa og klæddi hann úr blautu fót-
unum og fór að nudda lifi í hann.
Hann mundi allt í einu eftir því að
kvenfélagskonurnar hér á staðnum
höföu fyrir 10 árum geílð ullarfatn-
að í alla báta hér í Ólafsvík og hann
spurði mig hvort slíkur fatnaður
væri ekki um borð. Ég mundi þá
allt í einu eftir því að hann var
geymdur í kistu og fór og náði í
hann. Við klæddum svo Óðin í ull-
arfötin og eftir um 40 mínútur virt-
ist hann vera búinn að ná sér að
fullu og var kominn á ról.
Ég veit ekki nákvæmlega hvað
þetta tók langan tíma en við vorum
búnir að hífa um klukkan sjö um
kvöldið og lagðir af stað heim kort-
ér yfir átta.
Það varð engum meint af volkinu
og við vorum fljótir að ná okkur.
Auðvitað er maður, feginn að
þetta skyldi fá svo faísælan endi
og við skyldum allir komast lífs af
úr þeím haugasjó sem var vestur
af Snæfellsnesi á föstudagskvöld-
ið,“ segir Brynjar að lokum.
-J.Mar
Reykjavlk:
Ekiðáátta
ára dreng
Átta ára drengur lenti fyrir bifreið
á móts við Hringbraut 48 um miðjan
dag á laugardag. Drengurinn var að
koma út úr strætisvagni og hljóp
hann fram fyrir hann og beint út á
götuna án þess að líta í kringum sig
og lenti framan á fólksbifreið á
vinstri akrein. Drengurinn fékk höf-
uðáverka við slysið og er hann nú á
Borgarsjúkrahúsinu en líðan hans
er talin góð eftir atvikum.
-J.Mar
Hálka á Breiða-
dalsheiði
Rúta lenti út af veginum á Breiða-
lalsheiði í gærmorgun. Engin slys
urðu á mönnum og greiðlega gekk
að ná rútunni upp á veginn aftur.
Vegkantur lét undan flutningabíl
sem var að flytja beltagröfu yfir
Breiðdalsheiði eftir hádegi í gær og
þurfti að kalla út nokkurn liðssafnað
og fá lánuð tæki hjá Vegagerðinni til
að ná bílnum upp á veginn aftur.
Að sögn lögreglunnar á ísaflrði er
orðið mjög hált á heiðinni og ættu
menn ekki að leggja á hana nema á
bifreiðum sem eru vel búnar til vetr-
araksturs.
-J.Mar
Dauöaslys í gærkvöldi:
Kona lést í
miklu slysi
við Sandskeið
- slysavaldiirinnökumaðuráeförlýstribifreið
Snemma beygist krókurinn... Þessir knáu sveinar voru í
Skeiðaréttum á fimmtudaginn og létu ekki sitt eftir liggja við
dráttinn. Og þegar menn eru ekki háir í loftinu er gott að hjálp-
ast að. DV-mynd EJ
Kona lést og þrír aðrir slösuðust í
slysi sem varð á móts við Sandskeið
á Suðurlandsvegi klukkan hálfellefu
í gærkvöldi. Þrír bílar lentu í
árekstrinum.
Lögreglunni haflö verið tilkynnt
um varhugaverðan ökumann bif-
reiðar á móts við Árbæjarhverfi um
15 mínútum áður en áreksturinn
varð. í þeim bíl voru tveir menn. Síð-
an spurðist ekkert til bifreiðarinnar
fyrr en tilkynnt var um mjög harðan
árekstur við Sandskeið. Hafði bíln-
um, sem var eftirlýstur, þá verið
ekið austur Suðurlandsveg og yfir á
öfugan vegarhelming og í veg fyrir
annan sem kom á móti. Bílarnir
skullu mjög harkalega saman og valt
sá sem varð valdur að árekstrinum.
Þriðja bílnum var ekið vestur Suöur-
landsveg og lenti hann á þeim sem
varð valdur að árekstrinum.
í bílnum, sem kom á móti, var kona
farþegi i framsæti og lést hún. Karl-
maður, sem ók bílnum, og kona, sem
sat í aftursæti, slösuðust verulega.
Meiðsl hafa ekki komið fram hjá
barni sem einnig sat í aftursætinu.
Bíll ijórmenninganna var mjög illa
útleikinn eftir áreksturinn.
Annar mannanna í bílnum, sem
varð valdur að árekstrinum, er al-
varlega slasaður. Hinn kenndi sér
ekki meins í fyrstu. í þriðja bílnum
urðu ekki meiðsl á fólki.
Ekki var vitað með vissu hver ók
hinum eftirlýsta bíl en sá sem slapp
við meiðsl var færður í fangageymsl-
ur. Hann kvartaði seinna yfir eymsl-
um og var hann þá fluttur á slysa-
deild.
Þetta alvarlega slys er nú í rann-
sókn hjá lögreglunni í Reykjavík.
-ÓTT
Veðrið á morgun:
Rigning á
Suöur- og
Austurlandi
Á morgun verður suðaustan
gola eða kaldi suðaustanlands í
fyrstu en annars norðaustan og
norðanátt, vaxandi vindur þegar
líður á daginn. Rigning á Suður-
og Austurlandi en þurrt í öðrum
landshlutum.
Hitinn verður á bilinu 5-10 stig
að deginum.
MANUDAGUR 17. SEPTEMBER 1990.
LOKI
KR-ingarnir blánuðu
í fram-an!
VIDE0 fteiMr
Fákafeni 11, s. 687244
Frjálst, óháð dagblað