Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1990, Blaðsíða 24
32
;'MANfffiíÁ'G'tyáyí?. NÓyfeMSÉÍC-Mo,
Smáauglýsingar - Sími 27022
Dráttarbeisli, kerrur. Dráttarbeisli með
ábyrgð (Original), ISO staðall, ásetn-
ing á staðnum, ljósatenging á dráttar-
beisli og kerrur, allar gerðir af kerrum
og vögnum, allir hlutir í kerrur, kerru-
hásingar með eða án bremsa. Aratuga
reynsla, póstsendum. Víkurvagnar,
Dalbrekku, s. 91-43911 og 91-45270.
W 4
Barna-apaskinnsgallarnir eru komnir.
Verð frá 3.900. Einnig frottesloppar,
náttfatnaður, blússur, pils og margt
fleira. Frábært verð. Sendum í póst-
kröfu. Nýbýlavegur 12. sími 44433.
MORGUNN
I \KK W\m »KN \
I \t,s |M \\|)
Timarit um dulræn málefni.
Síðara hefti 1990 er komið út. Meðal
efnis er eftirfarandi: .
• Að hafa hugrekki til að syrgja.
• Hvernig getum við sjálf fengið
skilaboð að handan?
• Andlegir hæfileikar notaðir í nei-
kvæðum tilgangi.
• Hátíðir fvrir handan.
• Kennarar lífsins í kringum okkur.
• Óvenjuleg flugferð.
• Sköpunarmáttur bænarinnar o.fl.
Afgreiðsla og pöntun áskrifta hjá Sál-
arrannsóknafélagi* Islands, Garða-
stræti 8, 2. hæð, sími 91-18130.
n
jj# VsÆ.
ttj'-'y ■>; •
’ IN i
líÁÁ
Rýmlngarsala á eldri gerðum af sturtu-
klefum, hurðum og baðkarsveggjum.
Mikil verðlækkun. A & B, Bæjar-
hrauni 14, Hf, sími 651550.
Isiensk húsgögn. Höfum sófasett og
hornsófa í leðri, taui og leðurlúx, get-
um einnig uppfyllt'séróskir, kjör við
allra hæfi. Visa/Euro. GB-húsgögn,
Bíldshöfða 8, s. 686675 og 674080.
JSiQa
LAUGAVEGI 19
0 689666
a 17480
Við rýmum, við breytum. Allt á að selj-
ast á algjöru tombóluverði, buxur,
skyrtur peysur, úlpur, bolir, blússur,
pils, buxnapils og kjólar. Allt að 70%
afsláttur. Allt nýjar vörur.
Lilja, Laugavegi 19, sími 91-17480.
Jólasendingin komin. Dömu- og herra-
sloppar, silkináttföt, 8.500.
Gullbrá, Nóatúni 17, sími 624217.
Konur, karlar og hjónafólk. Við leggjum
áherslu á yndislegra og fjölbreyttara
kynlíf, höfum geysilegt úrval af hjálp-
artækjum ástarlífsins f. dömur og
herra. Einnig úrval af æðislegum nær-
fatnaði á frábæru verði á dömur og
herra. Verið veikomin, sjón er sögu
ríkari, ath. póstkr. dulnefnd. Opið
10-18 virka daga og 10 14 laugard.
Erum á Grundarstíg 2 (gengið inn frá
Spítalastíg), sími 14448.
TELEFAX
ARMULA 8 - SIM/ 67 90 OO
Verð frá 68.500 kr. með vsk., fullkomin
tæki. Hafðu samband eða líttu inn.
Optima, Armúla 8.
Körfugerðin, Ingólfsstræti 16, Rvík.
Okkar vinsælu barna- og brúðukörfur
ávallt fyrirliggjandi. Körfugerðin,
sími 91-12165.
t
Kynningarverð á glæsilegum hurðar-
handföngum og skrám frá FSB og CES
f V-Þýskalandi. A & B, Bæjarhrauni
14, HF, sími 651550.
Stórar Stelpur
Sérverslun
með kvenfatnað í
yfirstærðum
■5? 16688
Hvcrlisíiata 105 — 101 Reykjavik
Sérverslun. Mikið úr\’al af tækifæris-
fatnaði og kvenfatnaði í yfirstærðum.
Tískuverslunin Stórar stelpur, Hverf-
isgötu 105, Reykjavík. Næg bílastæði
á bak við.
■ Bílar tQ sölu
*
M. Benz 230e, árg. ’90, metallic litur,
reyksilfur, driflás, sjálfskiptur, centr-
allæsingar, þjófavarnarkerfi, rafdrifn-
ar rúður, litað gler, léttmálmsfelgur,
leður á stýri og gírstöng, höfuðpúðar
í aftursæti, armpúði, gúmmímottur,
skíðabogi, ekinn 21 þús. km. Reyklaus
bíll. Uppl. gefur Stefán í Ræsi.
Toyota Lite Ace, árg. ’87, lítið ekinn,
sendiferðabíll til sölu, bíll í topp-
standi, nýskoðaður. Uppl. í síma 91-
666667 eða 985-22607.
Meiming
Með vatni skal illt út reka
A undanfórnum árum hefur nokkrum sinnum verið
efnt til leiklestra hér í borg og hefur mælst vel fyrir.
Þetta form hentar meðal annars vel til þess að kynna
ný leikrit eða að flytja röð verka til kynningar á ein-
stökum höfundum, eins og leikhúsið Frú Emilía gerði
með leiklestrum á verkum Tsjekhovs og Gorkis.
Leiklesturinn er ekki fullkomin leiksýning. Sviðs-
búnaður er lítill sem enginn og leikarar lesa textann
af handriti. En engu að síður tekst góðum leikstjóra
og leikurum oft að gefa allgóða mynd af verkinu og
einstökum persónum þess. Að sumu leyti líkist leik-
lesturinn útvarpsflutningi, ímyndunarafl áhorfandans
verður að vinna úr flutningum og fylla í eyöurnar.
í Borgarleikhúsinu er um þessar mundir efnt til leik-
lestra á nýjum íslenskum verkum. Síðastliöinn laugar-
dag var sá fyrsti af þremur, og var þar frumfluttur
nýr íslenskur einþáttungur eftir Björn Th. Björnsson.
Hann er byggður á sagnfræðilegum grunni og lýsir
dvöl Konráðs Gíslasonar málfræðings á vatnslækn-
ingastöð í Þýskalandi fyrir miðja síðustu öld. Konráð
var mikils metinn fyrir vísindastörf sín og er hans
löngum minnst sem eins af Fjölnismönnum.
ímynd hans í íslandssögunni er tengd fremur þurr-
um og fálátum fræöimanni. Hann menntaðist í Kaup-
mannahöfn, lagði fyrst stund á lögfræði, en sneri sér
fljótlega alfarið að norrænni málfræði og bókmennt-
um. Fræðistörf og kennsla við háskólann í Kaup-
mannahóTn varð hans ævistarf og hann sneri ekki
heim til íslands aftur.
Björn Th. Björnsson vinnur leikritið, Konráð í
Kreischa upp úr bréfum, sem Konráð skrifaði vinum
sínum, Jónasi Hallgrímssyni og fleirum. Árið 1844 var
hann orðinn illa haldinn af augnveiki (nærsýni) og fór
þá til dvalar á einum af hinum vinsælu vatnslækninga-
stöðum í Þýskalandi.
í bréfum Konráðs frá Kreischa birtist önnur mynd
af manninum en þessi viðtekna úr fræðibókunum.
Bréfin bera vott um það að hann hefur bæði haft ríku-
lega kímnigáfu og auga fyrir skoplegu hliðunum á
samborgurum sínum. Björn Th. vinnur upp úr þessum
bréfum hlýlega smámynd af manninum og skondna
aldarfarslýsingu sem sýnir lífið og lækningatflburðina
á vatnslækningastöðinni.
Sögumaöur (Vilborg Halldórsdóttir) leggur til sögu-
þráð og tengir saman efni sendibréfanna en í þeim
lýsir Konráð meðferðinn, sem hann sætir í höndum
Atriði úr leikritinu.
Leiklist
Auður Eydal
strangra lækna og hjúkrunarliðs sem trúir statt og
stöðugt á lækningamátt vatnsins.
Margir leikarar tóku þátt í leiklestrinum, sem Sigríð-
ur Margrét Guðmundsdóttir stjórnaði, og létt tónlist
leikin á píanó (Jóhann G. Jóhannssson) lífgaði upp á
flutninginn. Af leikurum má nefna Sigurð Skúlason,
sem mótaði hlutverk Konráðs skilmerkilega, Sigríði
Hagalín, sem var eins og fædd í hlutverk barónessunn-
ar, og það sópaði að Valgerði Dan í hlutverki starfs-
konu á hælinu.
Næstu laugardaga gefst færi á að kynnast fleiri verk-
um í þessu formi í Borgarleikhúsinu því að þar eru
fyrirhugaðir leiklestrar á nýjum leikritum eftir þá Jón
Hjartarson og Jónas Árnason.
Leiklestur i Borgarleikhúsinu:
KONRÁÐ í KREISCHA
Höfundur: Björn Th. Björnsson
Tónlist: Jóhann G. Jóhannsson
Leikstjóri: Sigríöur Margrét Guómundsdóttir
Þegar Strompleikurinn var fyrst frumsýndur fyrir
hartnær þrjátíu árum vissu menn varla hvernig þeir
áttu að taka verkinu. Sumir litu fyrst og fremst á kald-
hæðið skopið og skemmtu sér konunglega. Aðrir urðu
reiðir ádeilunni, sem þeir þóttust greina í verkinu (og
tóku kannske sumir til sín), og þótti verkið ekki hæfa
Nóbelsskáldinu. Og svo voru einhverjir sem skildu
hvorki upp né niður og þótti verkið mesta bull en klöpp-
uöu samt með, bara til að vera eins og hinir.
Það er einmitt síðastnefndi hópurinn sem skáldið
hefur m.a. að skot.spæni þegar hann skopast að tilgerð
og gervimenningu hinnar ungu íslensku borgarastéttar.
Engu að síður ber Strompleikurinn í sér mörg höf-
undareinkenni Halldórs og þar sem verkiö sést ekki
oft á fjölunum er gaman að sjá frísklega og áræðna
útfærslu nemenda Verslunarskólans á því.
í leikritinu segir frá mæðgunum frú Patrinu Ólfer og
dóttur hennar Ljónu. Frú Patrína vill leggja allt í söl-
urnar til þess að tryggja framtíð Ljónu og beitir bæði
blekkingum og brögðum til þess að ná markmiði sínu.
Ljóna stundar söngnám, þó aö hæfileikar hennar séu
af skornum skammti.
Við sögu koma braskarar og fylgifiskar þeirra, ríkur
frændi frá útlöndum, Kúnstner Ölsen, sem er einfættur
spekingur meö tréfót og svo má ekki gleyma Gunnsu
frænku (heitinni). .
Sviðsbúnaður er fábreyttur og allir leikendur eru
inni á sviöinu á meðan sýningin stendur. Þeir eru svart-
klæddir og standa með andlit til veggjar hver sínu
megin á sviðinu, þegar viökomandi persóna tekur ekki
þátt í leiknum. En þegar þau snúa sér við kemur í ljós
aö persónurnar eru ekkert annað en framhliöin, eins
og segir i textanum, því framan á þær er tyllt eins kon-
Allt er blöff
Leiklist
Auður Eydal
ar dúkkulísufotum, ýktum og aíkárlegum búningum í
blönduðum stíl.
Þetta er sniðug lausn og Ingunn Ásdísardóttir, leik-
stjóri, heldur stílfærslunni út í gegn. Leikendur hreyfa
sig tiigerðarlega, það er framhliðin sem gildir og því
skal henni snúið að áhorfendum hvað sem tautar og
raular. Raddbeiting er vélræn og uppskrúfuð til þess
aö leggja enn frekar áherslu á fáránleikann.
Þær Jóna Valborg Ámadóttir og Jóhanna Viktoria
Sveinsdóttir leika mæðgurnar, Ljónu og frú Ólfer. Jóna
leikur sitt hlutverk mjög stílfært og heldur linunni út í
gegn, bæði í framsögn og hreyfmgum. Jóhanna túlkar
hina metnaðarfullu og ættstóru frú með miklum ágætum.
Leikhópurinn i heild stendur sig prýðilega og mörgum
fyndnum smámyndum bregður fyrir. Leikstjórinn hef-
ur lagt rækt við verkefniö og samhæft leikendur vel.
Og ekki ber á öðru en áhorfendur kunni vel að meta
þessa uppsetningu á Strompleiknum, þar sem æskufjör
og hugmyndaflug ræður ferð og fyndnin er í fyrirrúmi.
Leikfélag Verslunarskóla íslands sýnir:
STROMPLEIKINN
Höfundur: Halldór Laxness
Leikstjóri: Ingunn Ásdísardóttir
Umsjón með sviðsmynd og búningum: Erla Þórarinsdóttir
Sviðs- og búningargerðarmenn: Myndlistarnámskeið og hópurinn
Lýsing: Egill Árnason. -AE
Smáauglýsingar - Sími 27022 Þverholti 11
Trans Am 305 Fl ’86 til sölu, 4 gíra,
sjálfskiptur, T-toppur, rafmagn í rúð-
um, læsingum og sætum, hljómflutn-
ingstæki. Einn með öllu. Uppl. í sím-
um 91-672188 og 91-674305 eða 985-
25195.
Toyota Hilux extra cab ’89, vél 2,4 EFI,
ekinn 4.000 km. Bíllinn er vsk-bíll og
sem nýr. Uppl. í síma 91-52546.
Til sölu MMC Lancer, 4x4, árg. ’87,
ekinn 75 þús. Mjög góður bíll. Skipti
ath. á ódýrari. Uppl. í síma 91-41195.
Citroen BX 19 TRD '88, disil. Þessi
glæsibifreið með Pgnasonic síma er til
sölu á góðu verði. Til greina koma
skipti á ódýrari + skuldabréf. Uppl.
í síma 92-14461 og 92-14469.
LÁTTU EKKI 0F MIKINN HRAÐA A
VALDA ÞÉR SKAÐA!