Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1990, Blaðsíða 32
'm
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt-
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn.
Frjaist,oháö dagblað
MÁNUDAGUR 19. NÓVEMBER 1990.
Akureyri:
„Skallaði“
út 5 tennur
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Ég þurfti aö vísa tveimur piltum
út og þegar búið var aö koma þeim
út á götu geröi annar þeirra sér lítið
fyrir og skallaði mig í andlitiö með
þessum afleiðingum," sagði Zophon-
ías Árnason á Akureyri en hann varð
fyrir þeirri óskemmtilegu reynslu
um helgina að missa 5 tennur í viður-
eign sinni við drukkinn ungling.
Zophonías starfar á Billiardstof-
unni í Kaupangsstræti og þurfti að
setja piltana tvo út vegna óláta. Ann-
ar þeirra, sem er 16 ára gamall, sýndi
mótþróa en þegar tekist haföi að
koma honum út á götu „stangaði“
hann Zophonías með höfðinu þannig
að hann missti tennurnar fimm.
„Ég var með eina tilbúna tönn á
brú og það skipti engum togum að
hún spýttist út úr mér og tók með
sér fjórar framtennur sem losnuðu í
heilu lagi. Mér tókst að finna tenn-
urnar strax og komast til tannlæknis
mjög fljótlega á eftir. Honum tókst
að koma tönnunum fyrir aftur og það
virðist sem ég muni halda þeim þrátt
fyrir allt,“ segir Zophonías.
Steingrímur án eftirlits:
Málið rætt við
ráðuneytið
segir ríkissaksóknari
LOKI
Þetta hefur í það
minnsta verið álskalli!
„Ekki nokkur fót
ur fyrir þGSSti“
y-j * / |
„Eg held að það sé ekki nokkur
fótur fyrir þessu. Ég hef aldrei
heyrt um þetta talað á einn eða
neinn veg. Hitt er svo annaö mál
að ég veit að fulltrúar erlendra
sendiráða hafa miög oft samband
við þingménn, ekki síst við fufltrúa
í utanríkismálanefnd. Þarpa er gef-
ið til kynna að menn hafi þegið gjaf-
ir og jafnvel feröalög fyrir veittar
upplýsingar og ég trúi því ekki að
íslenskir þingmenn, hvorki í mín-
umflokki né öðrum, hafi komið sér
í slíka aðstöðu að þjóðarhagur
gangi ekki fyrir,“ sagði Jóhann
Einvarðsson, formaður utanríkis-
málanefndrar Alþíngis, við DV.
Haft er eftir Oleg Gordijevskij,
fyrrum foringja í sovésku leyni-
þjónustunni KGB, í Morgunblað-
inu um helgina að 1981 hafi útsend-
urum KGB á íslandi tekist að koma
á leynilegu trúnaðarsambandi við
þrjá íslenska stjómmálamenn úr
Sjálfstæðisflokki, Alþýðubandalagi
og Framsóknarflokki.
„Ef enn eru menn í sovéska
sendiráðinu hér sem hafa tengst
þessum málum hlýtur að vera hægt
að afla sér nánari upplýsinga um
sannleiksgildi þessara upplýs-
inga,“ sagði Jóhann.
„Þeir sem fylgst lrafa með þessum
málum vita að þetta hefur viðgeng-
ist árum saman, allt frá því Rúss-
arnir komu liingað. Þetta kemur
mér því alls ekkert á óvart. Hins
vegar er spurning hvernig taka eigi
þessum ummælum manns sem
hoppaði fyrir 1985 og riflar upp
samtal um þessi mál sem hann
heyrði á skrifstofu. Starfsmenn
sendiráösíns hafa tilhneigingu til
að mikla sambönd sin fyrir yíir-
mönnum sinum í von um starfs-
frama, þeir vilja sýna árangur. Því
getur venjulegt og alvanalegt upp-
lýsingasamtal orðið að trúnaðar-
sambandi,“ sagði Magnús Þórðar-
son, framkvæmdasfjóri skrifstofu
NATO á íslandi, við DV.
„Ég get ekkert um þetta sagt þar
sem ég veít ekki meira um málið
en ég hef lesið eftir þessum fyrrum
foringja KGB. Maður fer að spyrja
sjálfan sig hvort í lagi sé að heim-
sækja sovéska sendiráðið," sagöi
Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálf-
stæðisflokksins.
„Þeir leita sjálfsagt alls staðar eftir
slíku sambandi. Það er þeirra starf.
Ég geri ráð fyrir að þetta só svona
í velflestum löndum. Ég þekki hins
vegar ekki nein slík tengsl,“ sagði
Eiður Guönason, formaður þing-
flokks Alþýðuflokksins.
„Svona ásakanir eru auðvitað
mjög alvarlegt mál. Hins vegar
sfleyma yfir Vesturlönd fréttir af
þessu tagi. Maður veit ekki hvort
þetta er sölumennska hjá þessum
manni eða hvað þarna er á ferð-
inni. Ég tel víst að þaö sem hann
er að tala um sé mikið eldra en 10
ára. Ég gæti trúað aö þarna væri
verið að tala um 20 til 30 ára gam-
alt mál,“ sagði Svavar Gestsson
menntamálaráðherra. -hlh/-S.dór
„Af hálfu ákæruvalds var í máli
þessu vísað til þeirra lagaúrræða
sem felast í 67. grein samanber 66.
grein almennra hegningarlaga - það
er að beitt yrði gæslu að refsingu
lokinni. Dómstólar meta hvort efni
eða skilyrði séu til slíkrar gæslu. Það
er ekki í verkahring ákæruvalds að
kveöa á um framkvæmd slíkrar
gæslu eða hvernig að henni skuli
staðið. Önnur stjórnvöld, dóms- og
heilbrigðismála, annast slíkt. Að
öðru leyti talar dómurinn sínu máli,“
sagði Hallvarður Einvarðsson ríkis-
saksóknari er hann var spurður út í
dóm Hæstiréttar sem hafnaði kröfu
ákæruvaldsins um gæslu á Stein-
grími Njálssyni að lokinni refsingu
hans.
- Mun ákæruvaldið aðhafast frek-
ar í þessu máli?
„Strax á föstudag vakti ég athygli
dómsmálaráðuneytisins sérstaklega
á þessum dómi og niðurstöðum um
þennan þátt málsins. í öðru lagi hef
ég rætt þessa niðurstööu við rann-
sóknarlögreglustjóra ríkisins. Ég á
von á að við munum ræða það frekar
með starfsmönnum embættanna,"
sagði Hallvarður. -ÓTT
-sjáeinnigbls. 2
Ekki kom til átaka þegar byssumenn hittust á Öxnadalsheiði um helgina. Hér eru tvær rjúpnaskyttur frá Akur- -
eyri, Ágúst Ásgrímsson og Gisli Ólafsson, á heiðinni ásamt Skagfirðingunum Kára Gunnarssyni og Árna Bjarna-
syni sem skráðu nöfn þeirra og hyggjast kæra. Sjá nánar á bls. 6 DV-mynd gk
Veörið á morgun
Frost um
allt land
Norðanáttin verður ríkjandi á
landinu á morgun með tilheyr-
andi frosti. Það verður norðan og
norðaustan gola, él um landið
norðanvert en víða bjartviðri
syðra. Frostið verður á bilinu 0-5
stig.
Mál Steingríms Njálssonar:
„Það þarf að
bregðast við“
„Við erum ekkert yfir það hafnir
að hlýða Hæstarétti. En það þarf að
bregðast við í þessu máli. Sem betur
fer er ennþá tími til stefnu. Það verð-
ur reynt nú á næstunni að leita leiða
til að finna lausn,“ sagði Hjalti Zóp-
honíasson, skrifstofustjóri í dóms-
málaráðuneytinu, aðspurður um
viðbrögð ráðuneytisins vegna dóms
Hæstaréttar yfir Steingrími Njáls-
syni. Samkvæmt dómi Hæstaréttar
verður Steingrímur látinn laus í fe-
brúar. Kröfu ríkissaksóknara um
gæslu að lokinni refsingu var hafnað
í dóminum.
„Fólk er farið að hugsa til þess
þegar viðkomandi fer út á götumar
aftur. Við erum meðvitaðir um al-
menningsálitið og skiljum það. Viö
munum því leita leiða til að bregðast
við þessu máli og kanna hvernig
næstu skref verða. Við erum ekki
farnir að ræða hvernig það verður
gert en þetta verður skoðað," sagði
HjaltiZóphoníasson. -ÓTT
Ólympíuskákmótið:
Tap og sigur
hjá íslendingum
Byrjunin hjá íslensku skáksveit-
inni á ólympíuskákmótinu í Júgó-
slavíu var ekki sem best þvi hún tap-
aði fyrir indversku sveitinni, hlaut
1,5 vinning gegn 2,5 vinningi Ind-
verja. Helgi Ólafsson tapaði, Jón L.
gerði jafntefli, Jóhann Hjartarson
vami en Margeir Pétursson tapaði.
Það gekk svo betur í annarri um-
ferð. Þá tefldu íslendingarnir gegn
Úrugvæmönnum og sigruðu 4-0.
Alls eru 107 skáksveitir mættar til
leiks í Novi Sad í Júgóslavíu. Þriðja
umferð verður tefld í dag. -S.dór
E-listinn fékk
flmm kjörna
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
E-listi, sem borinn var fram af fyrr-
verandi hreppsnefndarmönnum úr
Öngulsstaðahreppi, Hrafnagils-
hreppi og Saurbæjarhreppi, fékk 5
menn kjörna í Eyjafjarðarsveit um
helgina.
Kjörsókn var rétt rúmlega 70% og
fékk E-listinn 286 atkvæði en N-listi
fékk tvo menn kjörna.
Hreppsnefndarmenn eru þessir:
Af É-lista: Birgir Þórðarson bóndi,
Ólafur Vagnsson ráðunautur, Sigur-
geir Hreinsson bóndi, Jóhannes Geir
Sigurgeirsson bóndi, Pétur Helgason
bóndi og af N-lista: Atli Guðlaugsson
skólastjóri og Jón H. Eiríksson
bóndi.
Freyja hf.
Simi: 91-41760
t
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i