Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1990, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1990, Blaðsíða 27
MÁNUDAGUR 19. NÓVEMBER 1990. 35 Lífsstm r mk'a «-CJ. Einu aðilarnir sem selja skafmiða hér á landi eru nú Happdrætti Háskóla íslands og björgunarsveitirnar. DV-mynd BG Eru skafmiðamir á undanhaldi? - aðeins tveir útgefendur eftir Skafmiðaævintýrið virðist vera á einhverju undanhaldi, allavega hafa flestir útgefendur gefist upp á þessu formi, og eftir standa þá einungis tveir aðilar sem gefa út skafmiða. Það eru Happdrætti Háskóla íslands og björgunarsveitimar. Aðilar eins og DAS, SÁÁ, HSÍ/Skáksamband ís- lands og Ferðaþristurinn, Hvera- gerði, virðast hafa gefist upp. Skafmiðaævintýrið byrjaöi árið 1987 þegar Happdrætti Háskólans byijaði með sína miða. Á eftir fylgdu björgunarsveitirnar en fyrstu skaf- miðarnir frá þeim komu haustið 1988. Síðan hafa margir bæst við og hafa reynt að ná í parta af kökunni. Sala var mjög mikil á þessum árum og virðist sem æði hafi runnið á landsmenn eins og oft gerist þegar eitthvað nýtt og ferskt er á boðstólum hér á landi. Síðan fór að draga úr, markaður- inn virðist hafa náð vissu jafnvægi og hann virðist ekki þola fleiri en tvo aðila. Ekkert uppgjafarhljóð er aftur á móti í þeim og þeir hyggjast halda ótrauðir áfram á sömu braut. Bæði Happdrætti Háskólans og björgunar- sveitirnar áforma nú á næstu dögum Sigurður Sverrisson, DV, Akranesi: Lagning heimtauga á vegum raf- veitna á landinu er hvergi ódýrari en á Akranesi. Þetta kemur fram í samantekt sem gerð hefur verið á þessum lið í gjaldskrám rafveitna landsins. Meðalstærö heimtauga í íbúðar- hús er 1X63 amper. Gjald fyrir slíka heimtaug hjá Rafveitu Akraness, þar sem það er ódýrast, er um 24 þúsupd krónur. Þar sem verðið er hæstj hjá Orkubúi Vestijarða, kost- ar sambærileg taug 62 þúsund krónur. Þarna munar tæplega 260%. að gefa út jólaþrennur. Stærstir á markaðnum Blaðamaður hafði samband við ínu Gissurardóttur hjá Happdrætti Há- skólans og hún sagði það fjarri lagi að salan væri eitthvað að minnka. Hjá þeim væri jöfn og örugg sala á þessum miðum, enda vær Happ- drætti Háskóla Islands vel kynnt á markaðnum og menn treystu miðun- um frá því. Það væri án efa með bestu söluna á þessum miðum og hefði allt- af haft. ína benti á að mikilvægt væri fyrir þá sem markaðssetja skaf- miða að bjóða alltaf upp á eitthvað nýtt og ferskt í hvert sinn sem ný þrenna fer á markaðinn. Þess hefði HHÍ alltaf gætt enda væru skaf- miðarnir trygg og góð tekjulind. Salan minni nú Birgir Ómarsson, framkvæmda- stjóri Lukkutríós hjá björgunarsveit- unum, sagði það rétt vera að Happ- drætti Háskólans væri stærst á Neytendur Sé verölagning á heimtaugum fyrir þjónustu eða iðnaðarrekstur skoðuð kemur einnig í ljós geysi- mikill verðmunur. í samantektinni var gengið út frá meðalstærðinni 3X200 amper. Þar er Rafveita Akra- ness aftur lægst með tæp 60 þúsund en Rarik hæst með tæp 199 þúsund. Þarna munar tæplega 331% á verði. markaðnum. Björgunarsveitirnar væru með frá 30-40% hlutdeild af markaðnum og hann hefði náð jafn- vægi í þeim tölum. Aðrir aðilar væru búnir að gefast upp. „Frá því að við byrjuðum höfum við gefið út um 10 flokka. Salan var að vísu meiri í byrjun en hún er þó jöfn og góð, nú tveimur árum síðar. Mikilvægt er að bjóða stanslaust upp á nýtt form fyrir neytandann svo takast megi að halda áhuga hans á þessari vöru vakandi. Við höfum allt- af verið með þessi venjulegu gíró- happdrætti og munum halda því áfram. Skafmiðarnir virðast lítil áhrif hafa á þau, allt annar hópur virðist kaupa sér gíróhappdrætti- smiða heldur en þeir sem kaupa skaf- miða. Hitt mætti þó benda á að Lottó- ið virðist taka eitthvað frá gíróhapp- drættinu,“ sagði Birgir að lokum. Eftir stendur að þó mesta æðiö sé runnið af landsmönnum, þá verði skafmiðar á boðstólum um ókomna framtíð hjá Happdrætti Háskóla ís- lands og björgunarsveitunum. -ÍS Farsímar: Hringjandi greiðir símtalið í Neytendablaðinu, sem kom út nýlega, er greint frá skrefatalningu í farsímakerfinu. Þar kom fram meinleg villa sem valdið hefur tölu- verðum usla hjá þeim sem nota far- símakerfið mikið og er hún hér með leiörétt. í blaðinu kom fram að skref er tal- ið á tólf sekúndna fresti og gildir það hvort sem talað er innanbæjar eða út á land. Hins vegar er það á mis- skilningi byggt að sá sem hringt er í úr farsíma þurfi að greiða fyrir sím- talið. Meginreglan er alltaf sú að sá sem hringir greiðir fyrir símtalið og gildir hún einnig í farsímakerfinu. Tilgangur fréttarinnar var að benda fólki á að það er mun dýrara að hringja úr farsíma en úr venjuleg- um síma.'Til dæmis er sama skrefa- talning allan sólarhringinn, 12 sek- úndur hvert skref í farsímakerfinu, en helgar- og kvöldtaxti innanbæjar- símtala telur skref á átta mínútna fresti. Heimtaugar rafveitna ódýr- astar á Akranesi HERRA- HÁRLITANIR Er hárið farið að grána? Er það upplitað eða viltu breyta til? Notum aðeins viðurkennd efni. Leitaðu upplýsinga. HÁRSNYRTISTOFAN IKÍAIÍÓ. Laugarnesvegi 52, s. 35204. BÍLASTÆÐI VIÐ DYRNAR. HJémmrm m MEIRIHÁTTAR MICHELIN MARKAÐUR STÓRKOSTLEGT GRIP FRÁBÆR ENDING [J^-TOPPURINN í DAG, NIICHEUN. "fK FLESTAR STÆRÐIR FYRIRLIGGJANOI. HUÓÐLÁT OG RÁSFÖST. HALLANDI GRIPSKURÐIR. VEL STAÐSETTIR SNJÓ- NAGLAR. MJÚKAR HLIÐAR, MEIRI SVEIGJA. ÁKVEÐIN SNÚNINGSÁTT, 0PNARA GRIP. ÖLL MICHELIN ERU RADlAL. LAUSNARORÐIÐ S-200. MERKIÐ TRYGGIR GÆÐIN. MICHELIN. TVÖFÖLD ENDING. MICHELIN HJémmmŒ m SKEIFUNNI5. SfMAR 687517 OG 689660 MICHELIN TILKYNNING FRÁ OSTA- OG SMJÖRSÖLUNNI sf. í nýútkomnu jólablaði okkar, Á JÓLARÓLI nr. 2, átti sér stað misprentun í tveimur uppskriftum. Jólakaka í sérflokki: Hér skal nota 1/2-1 tsk. aflyftidufti en ekki 6 tsk. Myntuábætir: Hér eiga að vera 2 bollar af súkkulaðikexmylsnu en ekki súkkulaðimylsnu. Við biðjumst hér með velvirðingar á þessum mistökum. LÁTTU EKKI 0F MIKINN HRAÐA A VALDA ÞÉR SKAÐA! yujrERÐAR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.