Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1990, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1990, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1990. Fréttir__________________________________________ Staða peningamálanna: Ólafur Ragnar ábyrgur fyrir hækkun raunvaxta Það kostaði í sumar hækkun raun- vaxta, vaxta umfram verðbólgu, um eitt prósentustig að varðveita þjóðar- sáttina. Bæði ríki og Seðlabankinn hafa innsiglað þjóðarsáttina með slíkum aðgerðum, sem telja verður raunhæfar. Þessi hækkun raunvaxta var þess virði til aö hemja verðbólg- una, enda hefur verðbólgan orðið lít- il í ár að meðaltali. Menn skyldu at- huga, að fjármálaráðuneytið átti mestan hlut í þessari hækkun raun- vaxta. Allt tal ráðherra um baráttu gegn vaxtahækkunum ber að skoða ■ í ljósi eigin gerða. Fyrir Olafi Ragnari vakti auðvitað að koma spariskírteinum ríkissjóðs í sem mesta sölu með því að hækka vextina á þeim. Ríkissjóður er rekinn með geysílegum halla eins og kunn- ugt er. Því þarf ríkið auðvitað að taka stór lán. Ef slík lán eru tekin erlend- is, lifum við að sjálfsögðu sem þjóð um efni fram. Þetta veldur verð- bólgu, þegar fjámagni er sullað inn í landið. Með því að ríkið fjármagni halla sinn mestmegnis með lánum innanlands, það er til dæmis sölu spariskírteina, verður ekki til nýtt ijármagn. Peningar eru þá hérlendis teknir úr einu og settir í annað. Halli ríkissjóðs er í sjálfu sér verðbólgu- valdur. Vaxtahækkunin, sem ríkið hefur boðið nú á sumum spariskírt- einum sínum, kostaði. að sala hús- bréfa varð minni en ella. Ávöxtun húsbréfa varð þá lægri en ávöxtunin, sem ríkið bauð af spariskírteinum. Þetta hefur breytzt að nýju með hækkun á ávöxtun húsbréfa. Margir sérfræðingar, sem DY hefur rætt við, álíta, að jafnvægi eigi aö komast á, þannig að umrædd bréf geti öll þrifizt á markaðinum. Inn bakdyramegin Hækkun raunvaxta hefur að undan- fómu orðið með þeim hætti, að spari- skírteini frá fjármáþaráðherra hefur lekið „bakdyramegin inn á mark- aðinn. Þetta gerðist þannig, að ráöu- neytið, ríkið, hafði gert stórum kaup- endum tilboð að kaupa spariskírteini með 7,05 prósent raunvöxtum. Frá þessum stóru kaupendum hafa skírt- einin nú borizt inn á markaðinn al- mennt. Ráðherrar hafa á sama tíma staðið að hækkun á vöxtum húsbréfa. Jafn- Fjármálaráðu- neytið og Fjár- hags-og hag- sýslustofnun verði sameinuð Lagt hefur veriö fram á Alþingi stjórnarfrumvarp þess efnis að fjármálaráðuneytið og Fjárhags- og hagsýslustofnun verði sam- einuð. Samkvæmt núgildandi lögum er Fjárhags- og hagsýslu- stofnun sjálfstæð stjórnardeild innan fjármálaráðuneytisins sem lýtur stjórn hagsýslustjóra. Forsætisráðherra heimilaði með bréfi 1. febrúar síðastliðinn að hagsýslustjóra yröi, jafnframt embætti sínu, falið að gegna starfl ráðuneytisstjóra í hinu almenna fjármálaráðuneyti. Hann átti jafnframt aö vinna að samein- ingu fjármálaráðuneytisins og Fjárhags- og hagsýslustofnunar. Sem rök fyrir sameiningunni eru nefndar breyttar aöstæður og sú skoðun að með henni náist fram hagræöing í rekstri ráðu- neytisins. -S.dór framt þessum hækkunum raunvaxta hefur Seðlabankinn stigið á brems- umar í ýmsu. Þannig hefur bankinn aukiö lausafjárskyldu viðskipta- bankanna. Mikið fé hefur með því verið tekið frá, fé sem ella hefði getað komið til almennra útlána. Framan- greindar aðgerðir allar stuðluðu að því að hafa hemil á verðbólgu, sem hefði getaö vaxið viö aukningu út- lána. Deiltum áhrif vaxta Menn deila um, hvaða áhrif vaxta- hækkanir hafi á veröbólgu. Hækkun vaxta eykur kostnað fyrirtækja, sem reyna að velta hækkuninni út í verð- lagið með hækkun á söluvörum sín- um. Á móti kemur, aö vextir dragá úr fjárfestingum og þenslu. Þeir draga úr eftirspurn eftir lánsfé eins og hverjum manni er ljóst. í tímarit- inu Vísbendingu var nýlega komizt að þeirri niðurstöðu, að „því kæmi ekki á óvart, að hækkunin yrði frem- ur til þess að draga úr verðbólgu en Sú regla gildir varðandi dagpen- inga ráðherra að þeir greiða skatt af helmingi þeirra. Það er gert ráð fyrir aö helmingur dagpeninga fari til hót- elgreiðslu, en þar sem ríkið greiðir allan hótelkostnað fyrir þá telst þessi helmingur dagpeninga hreinar tekj- ur. Hinn helmingurinn er talinnfara í beinan útlagðan kostnað og því er ekki greiddur skattur af honum. Þegar hsti DV frá því í sumar um mánaðartekjur ráðherranna árið 1989 er skoðaður kemur í ljós að þær eru míög misjafnar. Ráðherramir raðast á listann í samræmi við þá upphæð sem þeir hafa fengið í dag- peninga árið 1989 með einni undan- tekningu. Sú undantekning er Svav- ar Gestsson menntamálaráðherra. Steingrímur Hermannsson er tekju- hæstur ráðherra með 328 þúsund Sjónarhom Haukur Helgason hitt“, eins og þar sagði. í ritinu sagði ennfremur, að kröfu verkalýðsfélaga um vaxtalækkun svipaði til óskar- innar um niðurgreiðslur úr ríkis- sjóði, sem reynzt hafa tvíeggjað vopn í baráttu við verðhækkanir. Nýjungar á verðbréfamarkaði birt- ast stöðugt þetta árið. Nýjar aðferðir hafa verið reyndar við sölu hefð- bundinna verðbréfa eins og spári- skírteina ríkissjóðs, eins og getið var. Þau hafa að undanfornu verið boðin til sölu til áskrifenda, sem kaupa spariskírteini fyrir ákveðna fjárhæð í hverjum mánuði, með betri kjörum en almennir kaupendur. í nýútkominni skýrslu frá Seðabank- anum segir, að veigameiri sala spari- skírteina eigi sér stað til stórra kaup- krónur á mánuði. Sem forsætisráð- herra hefur hann líka hærri laun en hinir. Hann hafði 573 þúsund krónur í dagpeninga þetta ár. Jón Baldvin, sem hafði lang hæstar dagpeningagreiðslur allra ráðherra eða 1425 þúsund krónur, er í öðru sæti með 313 þúsund krónur á mán- uði. í þriðja sæti er Jón Sigurðsson með 294 þúsund krónur í mánaöartekjur. Hann hafði 874 þúsund krónur í dag- peninga. Næstur kemur Halldór Ásgríms- son með 287 þúsund krónur á mán- uði. Hann fékk í dagpeninga um 700 þúsund krónur. Þá kemur Guðmundur Bjamason með 273 þúsund krónur á mánuði. Hann hafði 574 þúsund krónur í dag- peninga. enda. Þeim bauðst aö kaupa spari- skírteini, sem fólu 1 sér allt að 7,05 prósent ávöxtun, eins og getið var hér að framan, og telur Seðlabank- inn, að það sé mikið þessum tilboðum að þakka, að ríkissjóði hefur tekizt vel aö afla sér lánsfjár á innlendum markaði. Upplýsingar um þessi við- skipti hafi þó verið af skornum skammti og hafi það valdið truflun- um á verðbréfamarkaðinum, til dæmis við sölu húsbréfa. Hæð vaxta skiptir okkur flest miklu. Að sjálfsögðu skiptist þjóðin í tvo, mjög andstæða hópa, í afstöðu til vaxta. Stjórnmálamenn og verka- lýðsforingjar höfða yfirleitt til hinna yngri og skuldugu landsmanna. Þar kjósa þessir foringjar að fá fylgi sitt í trausti þess, að hinir eldri skipti litlu, séu fastmótaðir í afstöðu til flokka og láti ekki að sér kveöa. Án þess að afstaöa sé tekin til þess- ara hópa, er réttast að líta á vexti út frá þjóðhagslegu mati, athuga, hvað eykur og hvað minnkar fram- Steingrímur J. Sigfússon er með 272 þúsund á mánuði. Hann hafði í dagpeninga 558 þúsund krónur. Svavar Gestsson er með sömu laun og Steingrímur eða 272 þúsúnd krón- ur á mánuði. Hann fékk hinsvegar rúmar 800 þúsund krónur í dagpen- inga og er því undantekning í röðun- inni. Jóhanna Sigurðardóttir hafði 261 þúsund krónur á mánuði. Hún fékk í dagpeninga 263 þúsund krónur. Ólafur Ragnar var með 260 þúsund krónur á mánuði. Hann fékk í dag- pernnga 215 þúsund krónur. Þeir Júlíus Sólnes og Óh Þ. Guð- bjartsson eru ekki taldir hér með vegna þess að þeir voru ekki ráð- herrar nema hluta af árinu 1989. -S.dór leiðslu í landinu og fleira af því tagi. Karp um hæð vaxta ætti ekki að þurfa að vera mikið. Áherzlan verð- ur að vera á stöðugleika á markaðin- um , þannig að vextir breytist í sam- ræmi við þau atriði. Sjást ætti af framansögðu, að atferli stjórnmála- manna í vaxtamálunum hefur verið á annan veg en hefði mátt ætla í fljótu bragði. Peningamarkaður ÍNNLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán óverðtryggð Sparisjóðsbækurób. 2-3 lb Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 2,5-3 Allir 6mán. uppsögn 3,5-4 nema Bb Ib.Sb 12mán. uppsögn 4-5 Ib 18mán. uppsögn 10 Ib Tékkareikningar, alm. 0,5-t Bb Sértékkareikningar 2-3 Ib Innlan verðtryggð Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 1,5 Allir 6mán. uppsögn 2.5-3.0 Allir Innlán með sérkjörum 3-3,25 nema Ib Ib Innlángengistryggð Bandarikjadalir 6,5-7 Ib.Lb Sterlingspund 12-12,5 Bb Vestur-þýskmörk 7-7,6 Sp Danskar krónur 8,5-9 Sp ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst Útlán óverðtryggð Almennirvíxlar(forv.) 12,25-13,75 Sp Viðskiptavixlar(forv.)(1) kaupqenqi Almennskuldabréf 12,5-14,25 Lb Viðskiptaskuld^þréf(1) kaupgengi Allir Hlaupareikningar(yfirdr.) 16-17,5 Allir nema ib Utlán verðtryggð . Skuldabréf 7,75-8,75 Lb.Sb Utlántilframleiðslu Isl. krónur 12,25-13,75 Lb.Sb SDR 10,5-11,0 Lb.Sb Bandaríkjadalir 9,5-10 SB Sterlingspund 15-15,5 Lb.ib Vestur-þýsk mörk 10-10,7 4.0 Bb.Sb Húsnæðislán Lífeyrissjóðslán 5-9 Dráttarvextir 21,0 MEÐALVEXTIR óverðtr. nóv. 90 13,2 Verðtr. des. 90 8,2 VÍSITÖLUR Lánskjaravísitala des. 2952 stig Lánskjaravísitala nóv. 2938 stig Bytigingavísitala nóv. 557 stig Byggingavísitala nóv. 174,1 stig Framfærsluvísitala nóv. 148,2 stig Húsaleiguvisitala óbreytt l.okt. VERÐBRÉFASJÓÐIR Gengi bréfa veröbréfasjóða Einingabréf 1 5,215 Einingabréf 2 2,826 Einingabréf 3 3,430 Skammtímabréf 1,753 Auðlindérbréf 1,014 Kjarabréf 5,149 Markbréf 2.740 Tekjubréf 2.037 Skyndibréf 1.534 Fjölþjóðabréf 1,270 Sjóðsbréf 1 2,495 Sjóðsbréf 2 1,779 Sjóðsbréf 3 1,737 Sjóðsbréf 4 1,495 Sjóðsbréf 5 1,047 Vaxtarbréf 1,7615 Valbréf 1.6530 Islandsbréf 1,083 Fjórðungsbréf 1,057 Þingbréf 1,082 öndvegisbréf 1,074 Sýslubréf 1,089 Reiðubréf 1,065 HLUTABRÉF Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv • Sjóvá-Almennar hf. 688 kr. Eimskip 585 kr. Flugleiðir 259 kr. Hampiðjan 180 kr. Hlutabréfasjóöur 183 kr. EignféL- Iðnaðarb. 193 kr. Eignfél. Alþýðub. 145 kr. Skagstrendingur hf. 420 kr. Islandsbanki hf. 143 kr. Eignfél. A/erslunarb. 143 kr. Olíufélagið hf. 610 kr. Grandi hf. 230 kr. Tollvörugeymslan hf. 112 kr. Skeljungur hf. 670 kr. Armannsfell hf. 245 kr. Útgerðarfélag Ak. 360 kr. Olís 210 kr. (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Skammstafanir: Bb= Búnaðarbankinn, íb= íslandsbanki Lb= Landsbankinn, Sb = Samvinnubankinn, Sp = Sparisjóð- irnir. Nánari upplýsingar um peníngamarkaö- inn birtast í DV á fimmtudögum. Dagpeningar ráðherra: Skipta sköpum í árstekjum þeirra

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.