Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1990, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1990, Blaðsíða 10
10 FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1990. Útlönd Mörg hús hrundu í jarðskjálftanum á Sikiley i gær. Hann mældist þó ekki nema 4,7 á Richter. Símamynd Reuter Mikið tjón í jarðskjálfta á Sikiley: Sikileyingar héldu til utandyra í nótt í þaö minnsta 13 menn fórust í jarðskjálfta á Sikiley í gær. Mikil skelfing greip um sig á skjálftasvæö- inu og er talið aö milljónir manna hafi hafst viö utandyra í nótt. Taliö er að hundruö manna hafi særst þegar hús þeirra hrundu. Sterkasti skjálftinn var þó ekki til- takanlega öflugur eöa um 4,7 á Rich- ter-kvaröa. Skjálftarnir voru hins vegar margir með stuttu millibili og jók það á tjónið. Tjónið varö mest í bænum Carlent- ini og þar fórust flestir. Björgunar- menn fundu í rústum eins hússins látin hjón í faðmlögum með barn sitt á milli sín. Að sögn fórust einnig flestir ættingjar þeirra. Mikil rigning var á svæðinu þegar skjálftinn reið yflr. Torveldaði það mjög störf björgunarmanna. Talið er að einhverjir hafi látist af vosbúð áður en til þeirra náðist í rústunum. Enn er verið að leita að fólki í rústum húsa á Sikiley. Björgunar- menn nota til þess hunda en hafa enn ekki náð að kanna allar rústir. Því er óttast að fleiri lík eigi eftir að finnast í dag og jafnvel næstu daga. Þetta er einn versti jarðskjálfti á Ítalíu hin síðari ár. Jarðskjálftar eru þó tíðir á sunnanverðri Ítalíu og Sik- iley. Einn sá versti varð í nágrenni Napólí í nóvember árið 1980. Þá fór- ust nærri fimm þúsund manns. Reuter Bakpokar, kr. 5.400 Kælibox, kr. 1.100 Görxguskór, kr. 4.600 Pottasett, kr. 1.550 SEGLAGERÐIIM ÆGIR EYJARSLÓÐ 7, SÍMI 621780 Pólland: Lögfræðingur Samstöðu forsætisráðherra? Búist er við að Lech Walesa, hinn nýkjörni forseti Póllands, útnefni Jan Olszewski, lögfræðing Sam- stöðu, sem forsætisráðherra Pól- lands. Olszewski, sem er sextugur, er þekktur verjandi og hefur í langan tíma verið ráðgjafi Walesa. Hann var einn þeirra fáu menntamönnum inn- an Samstöðu sem studdi framboð Walesa í embætti forseta gegn Mazowiecki, fráfarandi forsætisráð- herra. Samkvæmt heimildarmönnum innan Samstöðu hefur Olszewski boðið tveimur ráðherrum í fráfar- andi stjórn, Balcerowicz flármála- ráðherra og Skubiszewski utanríkis- ráðherra, sæti í nýju stjórninni. Bal- cerowicz, sem er höfundur áætlana stjórnar Mazowieckis í efnahagsmál- um, er sagður hafa samþykkt að sitja áfram. Ekki er vitað hverju Skubis- zewski, sem studdi framboð Mazowi- eckis, svaraði. Ekki er gert ráð fyrir að Walesa, Lech Walesa, nýkjörinn forseti Pól- lands, er sagöur hafa valið þekktan lögfræðing Samstöðu i embætti for- sætisráðherra. Símamynd Reuter sem sver embættiseiö í næstu viku, tilkynni val sitt á forsætisráðherra fyrr en þingiö hefur samþykkt afsögn Mazowieckis. Reuter TelAviv: Þrír ísraelar stungnir til bana Þrír ísraelar fundust í morgun stungnir til bana í Tel Aviv. Að sögn lögreglunnar þykir augljóst að árás- armennirnir hafi verið Palestínu- menn. Lögreglan sagði að lík tveggja karla og einnar konu hefðu fundist í verk- smiðju. Krotað hafði verið á arabísku í nágrenninu. Virtist sem um væri að ræða nýjustu fórnarlömb hefnd- araðgerðanna í kjölfar morðanna á Musterishæðinni í Jerúsalem í okt- óber. Þá skutu ísraelskir lögreglu- menn til bana átján Palestínumenn. Lögregluyfirvöld tilkynntu að pa- lestínskur unglingur frá Gazasvæð- inu hefði verið handtekinn vegna morðannaáísraelunum. Rcuter Tambo fagnað við komuna til Suður-Afríku i gær. Simamynd Reuter Oliver Tambo heim eftir þrjá- tíu ára útlegð Forseti Afríska þjóðarráðsins, Oli- ver Tambo, sneri aftur til Suður- Afríku í,gær eftir þriggja áratuga útlegð. Var honum ákaft fagnað af stuðningsmönnum sínum og ekki síst varaforseta ráðsins, Nelson Mandela. Tambo, sem er orðinn 73 ára, hélt enga ræðu við komu sína þar sem honum er örðugt um mál eftir hjartaáfall sem hann fékk i ágúst í fyrra. Hann tjáði þó móttökunefnd- inni að sér liði ákaflega vel. Þegar hann steig inn í bíl Mandela fór að rigna og er það talið gæfumerki í Suður-Afríku. Það var vegna umbótastefnu de Klerk forseta sem Tambo gat snúið. heim. Hann mun nú verða í forsæti á fyrstu ráðstefnu Afríska þjóðar- ráðsins sem haldin hefur verið í Suö- ur-Afríku í þrjá áratugi. Ráðstefnan hefst í dag fyrir utan Jóhannesar- borg. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.