Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1990, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1990, Blaðsíða 32
40 FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1990. / Afmæli Egill Jónsson Egill Jónsson alþingismaður, Seljavöllum á Nesjavöllum í Horna- firði, er sextugur í dag. Egill er fæddur á Hoffelli í Hornafirði og ólstþarupp. Starfsferill Egill lauk búfræðiprófi á Hvann- eyri 1950 og varð búfræðikandidat 1953. Hann var ráðunautur hjá Bún- aðarfélagi íslands 1954-1955 og hef- ur verið b. á Seljavöllum frá 1956. Egill var starfsmaður Búnaðarsam- bands Austur-Skaftfellinga 1956- 195V og ráðunautur 1957-1980. Hann hefur veriö fulltrúi á búnaðarþingi frá 1954 og var í hreppsnefnd Nesja- hrepps 1962-1982. Egill hefur verið alþingismaður Austurlandskjör- dæmis frá 1979 og í stjórn Áburðar- verksmiöju ríkisins frá 1980. Hann hefur unnið að undirbúningi að margháttaðri löggjöf á sviði land- búnaðarins, m.a. búvörulögunum 1985. Hann er í nefnd stjórnmála- flokkanna er hefur haft eftirlit með- framgangi tveggja landgræðslu- áætlana. Egill er í skólanefnd Bændaskólans á Hvanneyri og for- maður frá 1990. Hann hefur unnið að útgáfustörfum, m.a. haft forystu að útgáfu á bókinni Jódyn, 1988- 1990. Egill hefur dálítið kynnt sér náttúrufar á íslandi, einkum í sam- bandi við jökla í Hornafirði. Fjölskylda Egill kvæntist 25. desember 1955 Halldóru Hjaltadóttur, f. 3. janúar 1929. Foreldrar Halldóru eru: Hjalti Jónsson, b. í Hólum, og kona hans, Anna Þorleifsdóttir. Börn Egils og Halldóru eru: Anna, f. 28. mars 1955, fóstra, á þrjá syni með Vigni Hjalta- syni múrara en þau hafa slitið hjú- skap, sambýlismaður hennar er Ari Guöni Hannesson, b. í Hólabrekku; Valgeröur, f. 13. nóvember 1956, kaupmaður, gift Ásgeiri Núpan Ágústssyni, bifvélavirkja á Selja- völlum; Hjalti, f. 11. apríl 1960, b. á Seljavöllum, sambýliskona hans er Birna Jensdóttir og eiga þau tvær dætur; Eiríkur, f. 13. júlí 1962, b. á Seljavöllum, sambýliskona hans er Elín Oddleifsdóttir. Systkini Egils eru: Hallgerður, f. 27. maí 1920, gift Benedikt Eiríks- syni, fyrrv. b. á Miðskeri, búa á Höfn; Björg, f. 14. september 1922, gift Þórólfi Einarssyni, er látinn, b. á Meðalfelli; Guðmundur, f. 16. jan- úar 1924, trésmíðameistari á Höfn, kvæntur Sigrúnu Eiríksdóttur; Skúli'f. 11. janúar 1926, b. á Akur- nesi; Anna, f. 10. ágúst 1927, gift Stef- áni Halldórssyni, b. á Hlöðum í Hörgárdal; Unnur, f. 25. janúar 1929, gift Karh Emilssyni, verkamanni á Djúpavogi; Ingibjörg, f. 28. maí 1933, gift Ingólfi Björnssyni, b. á Græna- nesi; Hanna, f. 5. október 1937, gift Einari Sigurbergssyni, b. á Þing- nesi; Pétur Haukur, f. 2. nóvember 1939, verktaki á Akurnesi; Drop- laug, f. 27. nóvember 1943, gift Arn- óri Kristjánssyni, sjómanni á Höfn, og Ragnar, f. 5. júlí 1946, b. á Akur- nðsi, kvæntur Ingunni Jónsdóttur. Ætt Foreldrar Egils voru: Jón J. Malmquist, f. 1888, d. 1956, b. í Akur- nesi, og kona hans, Halldóra Guð- mundsdóttir, f. 1901, d. 1985. Jón var sonur Jóns, b. í Skriðu í Breiðdal, Péturssonar, b. á Geirsstöðum, Jónssonar. Móðir Péturs var Geir- laug Öræfa-Péturssonar, b. á Litla- Hofi í Öræfum, Þorleifssonar, lög- réttumanns í Skaftafelli, Sigurðs- sonar, sýslumanns á Smyrlabjörg- um, Stefánssonar. Móðir Péturs var Sigríður Jónsdóttir, lögréttumanns í Selkoti, ísleifssonar, ættfóður Sel- kotsættarinnar. Móðir Jóns Péturssonar var Ragn- heiður Friðriksdóttir, prests í Ás- um, Guðmundssonar og konu hans, Önnu, systur Sveins, fóður Bene- dikts alþingismanns, foður Einars, skálds. Anna var dóttir Benedikts, prests í Hraungerði, Sveinssonar. Móðir Benedikts var Anna Eiríks- dóttir, systir Jóns, konferensráðs. Móðir Jóns Malmquist var Björg Sveinsdóttir Malmquist, b. í Lóni, bróður Péturs, langafa Eðvalds, fóð- ur Guðmundar Malmquist, fram- kvæmdastjóra Byggðastofnunar. Systir Sveins var Guðíinna, iang- amma Gísla lektors og Jóhannesar, formanns Neytendasamtakanna Gunnarssona. Sveinn var sonur Jó- hanns, smiðs á Stekkum, Peders- sonar Malmquist, sænsks beykis á Seyðisfirði. Halldóra var dóttir Guðmundar, b. í Hoffelli, Jónssonar, b. í Hoffelli, Guðmundssonar, b. og læknis í Hof- felli, Eiríkssonar, bróður Stefáns alþingismanns og Önnu, langömmu Þórbergs Þórðarsonar. Móðir Jóns^ í Hoffelli var Sigríður Jónsdóttir, systir Eiríks, langafa sandgræðslu- stjóranna Páls Sveinssonar og Run- ólfs Sveinssonar, föður Sveins land- græðslustjóra. Móðir Guðmundar, fóður Hall- dóru, var Halldóra Björnsdóttir, b. á Flugustöðum, Antohíussonar, b. á Hálsi, Sigurðssonar, b. í Hamarseli, Antoníussonar, b. á Hamri, Árna- sonar, ættföður Antoníusarættar- innar. Móðir Aritoníusar á Hálsi var Egill Jónsson. Ingibjörg Erlendsdóttir, b. á Ásunn- arstöðum, Bjarnasonar, ættföður Ásunnarstaðaættarinnar. Móðir Halldóru Guömundsdóttur var Kristín Sigurðardóttir, b. í Múla, Brynjólfssonar, prests í Heydölum, Gíslasonar, bróður Halldórs, langafa Gísla, afa Guðmundar H. Garðarssonar, alþingismanns. Móðir Halldóru Guðmundsdóttur var Valgerður Sigurðardóttir, b. á Kálfafelli, Sigurðssonar, b. á Kálfa- felli, Eiríkssonar. Móðir Sigurðar Eiríkssonar var Þórdís Eiríksdóttir, systir Jóns konferensráðs. Móðir Valgerðar var Bergþóra Einarsdótt- ir, b. i Horni, Jónssonar og konu hans, Halldóru Nikulásdóttur, b. á Keldunúpi, Sverrissonar, bróður Þorsteins, afa Jóhannesar Kjarvals. Egill tekur á móti gestum í Sjálf- stæðishúsinu á Höfn laugardaginn 15. desember kl. 19. Ásrún Sigfúsdóttir Ásrún Sigfúsdóttir húsfreyja, Ytra-Álandi, Svalbarðshreppi, er níræðídag. Starfsferill Ásrún fæddist í Krossavík í Þistil- firði en ílutti á ööru árinu með for- eldrum sínum að Flautafelli og síð- an í Brekknakot þar sem hún ólst upp fram að fermingu en allir þess- ir bæir eru í sömu sveit. Hún fór að vinna fyrir sér fjórtán ára í Borg- um í sömu sveit en húsbóndinn þar, hafði fallið frá mjög skyndilega. Ásrún aðstoðaði ekkjuna, Vil- borgu Guðmundsdóttur við uppeldi barnanna og vann þar öll almenn sveitastörf, úti og inni til sjós og lands fram til ársins 1928 en þá gift- ist hún og flutti í Ytra-Áland. Fjölskylda Ásrún giftist 16.6.1928 Ragnari Eiríkssyni, f. í Kollavík 3.5.1904, d. 25.8.1949. Þau hófu búskap á Ytra-Álandi og brátt varð þar mann- margt, börnin urðu ellefu og far- skóli á bænum í marga vetur svo oft voru tuttugu til tuttugu og fimm manns í heimili enda sat Ásrún aldrei auðum höndum, sívinnandi frá morgni til kvölds. Eftir að Ragnar lést bjó hún áfram með börnum sínum til 1966. Hún var þá eitt ár hjá dóttur sinni á Seyðis- firði en hefur síðan búið á Þórshöfn þar sem hún heldur heimili með Ákasynisínum. Ásrún er við óvenju góða heilsu, fer á fætur klukkan sjö á hverjum morgni og sinnir enn öllum heimil- isstörfum. Foreldrar Ragnars voru Eiríkur Kristjánsson, b. í Kollavík í Þistil- firði, og kona hans, Þorbjörg Guð- mundsdóttir. Börn Eiríks og Þorbjargar voru Eiður, Guðmundur, Kristján sem dó ungur, Auöur, Ragnar, Kristján, Atli, Nanna, Höskuldur og Margrét en hún er ein eftir á lífi. Börn Ásrúnar og Ragnars eru Kristján, f. 1930, vélgæslumaður á Þórshöfn, kvæntur Eddu Jóhanns- dóttur og eiga þau þrjú börn, Ás- hildi, Ragnar og Frey; Sigfús, f. 1932, d. 1965, b. á Ytra-Álandi; Þorbjörg, f. 1934, húsmóðir í Reykjavík og á hún tvö böm, Ásrúnu og Svein Loga; Eiríkur, f. 1935, skipaaf- greiðslumaður á Þórshöfn, kvæntúr Aðalheiði Jóhannsdóttur og eiga þau þrjár dætur, Jóhönnu Osk, Lindu Björk og Heiðdísi Dögg; Ari, f. 1937, búsettur á Akureyri; Áki, f. 1938, verkamaður á Þórshöfn; Hrólf- ur, f. 1939, verkamaður á Álftanesi, kvæntur Grétu Sædísi Jóhanns- dóttur og eiga þau tvö börn, Hildi og Smára; Marinó, f. 1941, verka- maður á Þórshöfn, kvæntur Krist- ínu Alfreðsdóttur og eiga þau þrjú börn, Sigrúnu, Sæunni og Almar; Guðný, f. 1942, starfsstúlkaá Sjúkrahúsi Seyðisfjarðar, gift Aðal- birni Haraldssyni stýrimanni og eiga þau tvö börn, Harald Ragnar og Hörpu Gunni; María, f. 1943, hús- Til hamingju með afmælið 14. desember 95 ára Tómas Guðmundsson, Illugagötu 1, Vestmannaeyjum. Sigurður Haukdal, Guðrún Jósefsdóttir, Hagamel 43, Reykjavik. ^ 90 ára Sigurbjörg Þorvarðardóttir, Mýrargötu 18, Neskaupstaö. 80 ára Kristrún Helgadóttir, Þiljuvöllum 33, Neskaupstað. 75 ára Siguröur Sturluson, Birkiteig 6B, Keflavík. Eiríkur Guðnason, Votumýri 2, Skeiðahreppi. 70 ára Herfríður Valdimarsdóttir, Brekku, Seyluhreppi. Herfríður og maður hennar, Óskar Lindarflöt 24, Garðabæ. 50 ára Guðgeir Matthíasson, Vestmannabraut 46A, Vestmannaeyj- um. (ieorg Elnarsson, Esjubraut 21, Akranesi. Hann tekur á móti gestum á heimili sínu eftir klukkan 20.00 á afmælisdag- inn. ; Jóhanna Kristjánsdóttir, Stífluseli 16, Reykjavik. Hreinn Sverrjsson, Ægisgötu 16, Akureyri. Unnur Jónsdóttir, Völvufelli 50, Reykjavík. 40 ára Birgir Sigfússon, Kvistási, Ólfushreppi. Ásrún Sigfúsdóttir móðir á Egilsstöðum, gift Magnúsi Ólafi Sigurðssyni múrarameistara og eiga þau þrjú börn, Sigurð Hjart- ar, Hlín Hjartar og Ríkarð Hjartar; Skúli, f. 1945, b. á Ytra-Álandi, kvæntur Bjamveigu Skaftfeld og eiga þau tvö börn, Helgu og Ragnar auk þess sem Bjarnveig á tvo syni frá fyrra hjónabandi, Jón Bjarna og Svein Steinar. Langömmubörn Ásrúnar era nú orðin ellefu talsins. Systkini Ásrúnar urðu fimm en hún er nú ein á lífi. Systkini hennar voru Jakobína, húsmóðir á Raufar- höfn; Vigfús, verkamaður á Raufar- höfn; Björn, b. á Brekknakoti; Jó- hanna, húsfreyja á Brekknakoti og síðar á Raufarhöfn; María, hús- freyja á Raufarhöfn. Foreldrar Ásrúnar voru Sigfús Vigfússon, b. á Brekknakoti, og kona hans, Guöný Sofíía Guðjóns- dóttir húsfreyja. Magnússon bóndí, verða heima og taka á móti gestum á heimiii sínu laugardag- inn 15.12. nk. Aðaibjörg Guðmundsdóttir, Bessastaðagerðí, Fijótsdalshreppi. Kristófer Eyjólfsson, Hlíðarvegi 146, Kópavogi- Guðmundur H. Andrésson, Fannafold 5, Reykjavík. 60 ára Guðmundur Kristmannsson, Mánavegi 7, Selfossi. Soffía Gunnlaugsdóttir, Faxabraut 7, Keflavík. Heiga M. Jóhannesdóttir, Helömörk 17, Stöðvarhreppi. Vigdís Ólafsdóttir, Flúðaseli 69, Reykjavík. Anne Marie Reinholdtsen, Suðurgötu 15, Reykjavík. María Ragnarsdóttir, Skeijagranda 3, Reykjavik. Kári Halldór Þórsson, Bergstaðastrætí 17, Reykjavik. Þórunn Þórðardóttir, Svarfaðarbraut 30, Dalvik. Stefanía Jóhannsdóttir, Grundarási 2, Reykjavík. Arnbjörg Vignisdóttir, Fögrusíðu 13C, Akureyri. Agnes Agnarsdóttir, HeimavöUum 3, Keflavík. Svavar Bjömsson Svavar Björnsson, sjómaður og vélstjóri, Byggðavegi 145, Akureyri, eráttræðurídag. Starfsferill Svavar fæddist í Grenivík í Suð- ur-Þingeyjarsýslu og ólst þar upp. Hann lauk fullnaðarprófi frá Barna- skólanum á Grenivík og vélstjóra- námskeiði lauk hann frá Fiskifélagi íslands árið 1930. Svavar stundaði sjómennsku frá 1924, fyrst á smábátum frá Hrísey og Siglufirði og var vélstjóri á ýms- um stærri fiskiskipum frá 1930 en hann var vélstjóri á stríðsárunum og sigldi þá m.a. til Englands. Svavar var ásamt öðrum eigandi að smábátaútgerð sem rekin var frá Akureyri og kölluð „Nótabrúk". Hann stundaði síldveiðar á Eyjafirði um margra ára skeið og dragnótaveiðar ásamt mági sínum á milli vertíða á bát sem þeir áttu í félagi. Svavar var vélstjóri á Glerárraf- stöðinni á Akureyri í nokkra vetur. Hann starfaöi einnig nokkra vetur við Vélsmiðjuna Atla hf. en hóf störf hjá Slippstöðinni hf. árið 1956 og var þar fyrst verkstjóri og síðan af- greiðslumaður til ársins 1986 er hann lét af störfum fyrir aldurs sak- ir. Svavar sat um skeið í stjóm Vél- stjórafélags Akureyrar. Fjölskylda Svavar kvæntist 13.10.1934 Emel- íu Kristjánsdóttur, f. 26.10.1913, d. 27.3.1974, húsmóður. Emelía var dóttir Kristjáns Magnússonar, verkamanns á Akureyri en áður í Ólafsfirði, og Eugeníu Jónsdóttur húsmóðir. Svavar og Emelía eignðust íjögur börn. Þau eru Kristjana Ingibjörg, f. 6.5.1935, skrifstofumaður á Akur- eyri, gift Jóni Viðari Guðlaugssyni og eiga þau þrjú börn; Skúli, f. 24.3. 1939, kristniboði, búsettur í Reykja- vík, kvæntur Kjellrúnu L. Langdal og eiga þau fimm börn; Gylfi Anton, f. 1.7.1942, umsjónarmaður í Nor- egi, kvæntur Jóhönnu Sigríöi Guð- mundsdóttur og eiga þau sjö börn; Birgir Björn, f. 14.6.1945, banka- starfsmaður á Akureyri, kvæntur Ölmu Kristínu Möller og eiga þau þrjúbörn. Systkini Svavars: Ingibjörg, f. 24.8. 1905, d. 20.8.1930; Hallfriður, f. 4.11. 1908, d. 9.8.1984; Unnur, f. 14.6.1913, búsett í Hrísey; Helga Sigurlaug, f. 13.11.1919, búsett á Akureyri. Foreldrar Svavars voru Björn Jónas Ólafsson, f. 29.1.1878, d. 16.11. 1937, sjómaður og verkamaður á Grenivík og á Akureyri, og Kristín Ingibjörg Baldvinsdóttir, f. 4.5.1875, d. 13.3.1958, húsmóðir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.