Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1990, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1990, Blaðsíða 15
FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1990. 15 Börn alkóhólista og SÁÁ Undanfarið hefur farið fram nokkur umræða um starfsemi SÁÁ í fjölmiðlum. Af því tilefni vildi ég gjarnan íjalla aðeins um áfengis- vandann frá sjónarhóli mínum r sem barns alkóhólista. Umhverfi okkar, þ.e. þeirra barna sem alast upp á heimili þar sem annað for- eldrið er áfengissjúklingur, er á margan hátt gerólíkt umhverfi þeirra barna sem aldrei þurfa að velta því fyrir sér „hvernig ástand- ið sé nú“ áður en haldið er heim. Þessi börn fara heim með kvíðann og öryggisleysið í hjarta sínu og opna útidyrnar hrædd. Barn alkóhólista fær ekki við- brögð við einkunnum sínum, verk- efnum sem það er að vinna, í sam- ræmi við verkin sjálf eða einkunn- irnar. Viðbrögðin eru ævinlega í tengslum við drykkjuna, viö neyslu sjúklingsins og þeirra geðbrigöa og sveiflna sem hún kallar fram hjá neytandanum, hinu foreldrinu, systkinum og öörum. Mörg okkar fá vegna þessa brenglað sjálfsmat, önnur verjast með kjafti og klóm, jafnt innan heimilis sem utan, og sum dragast inn í skel sem er erfitt að komast út úr. En hvernig svo sem viðbrögðum við börnunum er háttað á heimili alkóhólista má fullyrða að þar sem virkur alkóhólisti er þjást allir fjöl- skyldumeðlimir á einn eða annan hátt. Daglega finna þessi börn fyrir ýmsum tegundum vorkunnlætis eða fá þau skilaboð beint og óbeint að þau séu nú eiginlega hálfgert undirmálsfólk. Og á meðan börnin eru lítil og eiga litla vini verða þau skotspónn vanþekkingar sem lýsir sér í stríðni sem enginn veit hversu sár getur verið. - Það er því ekki skrítið að börn alkóhólista komi með talsvert annað veganesti út í lífið en aðrir. Kjallariim Lára Stefánsdóttir kerfisfræðingur við Fjölbrauta- skólann við Ármúla Hjálpin er til Það hefur orðið mörgum ein- staklingnum til bjargar að geta nú loks eftir tilkomu SÁÁ leitað sér hjálpar sem aðstandandi, fengið leiðsögn og fræðslu um áfengissýk- ina. Það er nefnilega staðreynd að þó margir haldi að áfengissjúkling- urinn skaði aðeins sjálfan sig þá skaðar hann líka í ríkum mæli alla ástvini og alla sem þurfa að búa með honum. Þess vegna verður fólk aldrei hvatt nógsamlega til þess að sækja sér þá fræðslu og uppbyggingu sem hægt er og hana veitir SÁÁ. Við sem höfum fundið fyrir vanmættinum árum saman, erum jafnvel minni máttar vegna drykkju annarra, þurfum svo sár- lega á því að halda að skilja það sem er að gerast. Það var einmitt hjá SÁÁ sem ég lærði hvernig börn alkóhólista bregðast við vandamál- um síðar á lífsleiðinni - með sömu aðferðum og þau reyndu sem börn í sýktu andrúmslofti. Hjá SÁÁ vinnur fólk sem er í sömu sporum og ég sjálf og hefur kynnst þessu af eigin raun. Ég dreg ekki dul á þá skoðun mína að SÁA hafi bjargað fjölmörgum aðstand- endum frá andlegum veikindum með einstaklingsfræðslu, stuðningi og námskeiðum Eitt af mörgu sem lærist þarna er að skilja aö ekkert er „að“ þeim sem alast upp í umhverfi alkóhól- ista; en umhverfið, sem þeir eru í, verður alltaf beint og óbeint þeirra umhverfi því allt snýst á einn eða annan hátt um þá og þeirra sjúk- dóm. Ekki bara sjúklingum sjálfum Ég hef ekki komist hjá að veita eftirtekt vandamálum aðstandand- ans í starfi mínu sem leiðbeinandi í tölvukennslu. Þetta „foreldra- vandamál“ lýsir sér oft í eirðar- leysi, skorti á einbeitingu og örygg- istilfirtningu. Þessir nemendur eru alveg jafngreindir, dugmiklir og skapandi eins og jafnaldrar þeirra en áfengissýkin og ummerki henn- ar, sem bíða alltaf heima á einn eða annan hátt, setja óneitanlega mark sitt á þessi ungmenni. ' Það er fátt sem einn leiðbeinandi getur gert annað en hlusta og reyna að koma því einhvern veginn á framfæri að hann skilji málið. Stöku sinnum gerist það þó að nemandi fréttir að þetta hlutskipti hafi einmitt verið mitt í uppvextin- um, kemur og segir sem svo: „Hvað gerðir þú eiginlega? Ég er að gefast upp!“ þá segi ég þeim frá minni reynslu, stuðningi SÁÁ og starfi Al-Anon. Það gerir sjálfsagt ekki kraftaverk en það hjálpar og bend- ir á þá leiö sem er ungmennum fær . þegar svona er komið. Sú hjálp, sem fæst við að ræða við þann sem þekkir hlutina af eigin raun, er oft það sem skiptir máli. Ég hef haft svolitlar áhyggjur af því undanfarið aö fólk sé jafnvel að sofna eitthvað á verðinum hvað varðar starfsemi SÁA. Kannski er það óþarfi en á meðan ég þekki allt- af nokkra einstaklinga, sem fara í sína fyrstu meðferð ár hvert og á meðan nemendur mínir halda áfram að þjást í hljóði - margir hverjir - þá vil ég leggja mitt af mörkum til að minna á tilvist SÁÁ og það ómælda starf sem þar er unnið. Það starf gagnast ekki aðeins sjúklingunum sjálfum heldur einn- ig ástvinum þeirra og þá ekki síst börnum og ungmennum sem geta oftar en ekki fagnað nýju og heil- brigðara heimilislífi en þau þekktu áður. Þess végna hvet ég nú þá sem hafa verið aö „hugsa um að fara jafvel í viðtal" til að láta verða af því; enginn veit fyrr en reynir hví- líkur léttir getur skapast í einu við- tali hjá ráðgjöfum SÁÁ. Lára Stefánsdóttir „Það var einmitt hjá SAA sem ég lærði hvernig börn alkóhólista bregðast við vandamálum síðar á lífsleiðinni - með sömu aðferðum og þau reyndu sem börn í sýktu andrúmslofti.“ Fátt er kátt við þjóðarsátt Talsmenn rikisstjórnarinnar hafa hamrað á þvi að ef brábirgðalögin yrðu felld færi verðbólgan í 20-40%. - Ijetta er einfaldlega ósatt. Laugardagspistill hér í blaðinu fyrir skömmu bar yfirskriftina „Eru mennirnir orðnir ga ga?“. Mennirnir, sem kenndir voru þar við fuglakvak og ungbarnahjal, voru þingmenn Sjálfstæðisflokks- ins. Og af hverju voru þeir orðnir „ga ga“? Jú, af því að þeir ætluðu að greiða atkvæði gegn siðlausum bráðabirgðalögum sem sett voru til að svíkja samninga, svívirða niður- stöðu dómstóla og ganga þvert á stjórnarskrá íslenska lýðveldisins. Þetta var sá glæpur sem gaf mönn- um einkunnina „ga ga“ í Laug- ardagspistli sem oftar en ekki er um hjónaskilnaði og endurskins- merki. Verkalýðsforingjar Reyndar er þessi Laugardagspist- ill í samræmi við þann útbreidda misskilning í þjóðfélaginu að bráðabirgðalögin og rangnefnd „þjóðarsátt“ séu eitt og hið sama. „Þjóðarsáttin" er samningur nokk- uð stórs hóps um kjaraskerðingu. Þessi hópur gerði „þjóðarsátf ‘ um kjaraskerðingu löngu eftir að BHMR gerði sinn samning um um kjarabætur. Þeir vissu því alveg að BHMR fengi bætur en þeir sjálfir skerðingu. Það er því furðulegt að sjá verka- lýðsforingja, sem nýlokið hafa við að semja um lakari kjör (þjóðar- sátt) handa sínu fólki, heimta að kjarabætur verði teknar af öðrum. Menn geta verið lyddur og vesal- ingar fyrir sig og sitt fólk, en að KjaHarinn Glúmur Jón Björnsson efnafræðinemi í HÍ heimta að aðrir verði skikkaðir með siðlausum bráðabirgðalögum til að lepja úr sömu sultarskel er fáheyrt. Er meirihluti fyrir stjórnarskrárbroti? I skoðanakönnun hér í blaðinu um afstöðu fólks til bráðabirgða- laganna var meirihluti aðspurðra fylgjandi bráðabirgðalögunum. Mér þætti fróðlegt að sjá þennan meirihluta fólks verða fyrir því aö samningur, sem það hefði gert, væri svikinn, það ynni málið fyrir dómstólum en sett væru bráða- birgðalög ofan í dóminn og þessi „lög“ stríddu gegn stjórnar- skránni. Eiður nokkur Guðnason tjáði sig um niðurstöður könunnarinnar og sagði m.a.: „Sú vísbending, sem þessi skoðanakönnun gefur, sýnir að það var rétt að setja bráða- birgðalögin í þessu tilviki." Ef Eið- ur er samkvæmur sjálfum sér kýs hann væntanlega Sjálfstæðisflokk- inn í næstu kosningum og hefur verið andvígur ríkisstjórninni eins og skoðanakannanir hafa sýnt að er „rétt“. Hringir í sjónvarpssal í umræðuþætti á Stöö 2 (eftir skoðanakönnunina) með Davíð Oddssyni og Halldóri Ásgrímssyni kom það reyndar vel í ljós hversu illa ríkisstjórnin stendur í þessu bráðabirgðalagamáli. Borgarstjóri sneri sjávarútvegsráðherra hring eftir hring og við lá að maður vor- kenndi ráðherranum. Blessaður maðurinn var nú þumbaralegúr fyrir en vonlaus málstaður hans og skemmtilegur málflutningur borgarstjóra gerðu ráðherrann kleinulegri en orð fá lýst. Það er ekki á hverjum degi sem ráðherra úr þessari voluðu ríkisstjórn fær það sem hann á skiliö. Talsmenn ríkisstjórnarflokk- anna hafa hamrað á því undanfarið að ef bráðabirgðalögin yrðu felld færi verðbólga í 20-40%. Þetta er einfaldlega ósatt. Verðbólgan mundi ekki hækka við það eitt að lögin yrðu felld og samningur BHMR tæki gildi. Hún gæti hins vegar hækkað ef ASÍ og BSRB fengju sömu hækkun og BHMR. En á því hef ég enga trú þar sem ASÍ og BSRB hafa samið um annað og hljóta að standa við sína samn- inga. Fasísk þjóðarsátt Hitler notaði á sínum tíma hatur á gyðingum til að þjappa þýsku þjóðinni saman um ímyndaðan óvin. Hann tók réttarríkið einnig úr sambandi. Þeir sem ekki vildu fórna mannréttindum sínum og siðferðisgrundvelli og taka þátt í dýrðarsöngnum voru teknir úr umferð. Og viti menn. Atvinnu- leysið sem hafði veriö aðalböl þýsku þjóðarinnar, minnkaði. Ég er ekki að segja að haturs- herferð íslenskra stjórnvalda gegn BHMR, siðleysi ríkisstjórnarinnar og vanvirðing hennar á dómstólum og stjórnarskrá sé komið á sama stig og hjá Hitler forðum. En hitt segi ég óhikað, aö eðlismunur er enginn. Þáttur ríkisstjómarinnar í þjóðarsáttin er fasismi. Og viti menn. Verðbólgan hefur hjaönaö í bili. En það er ekki vegna fasism- ans, frekar en fyrri daginn, heldur vegna fórna almennings. Glúmur Jón Björnsson „Þaö er furðulegt að sjá verkalýðsfor- ingja, sem nýlokið hafa við að semja um lakari kjör (þjóðarsátt) handa sínu fólki, heimta að kjarabætur verði tekn- ar af öðrum.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.