Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1990, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1990.
7
i
Reykjavíkurskáldið Megas og sagnfræðingurinn Þórunn Valdi-
marsdóttir hafa lagt bernskuminningar sínar, drauma og ímynd-
unarafl að veði í ævintýralega og töfrandi bók um litla písl sem ólst
upp í Norðurmýri í Reykjavík rétt upp úr síðari heimsstyrjöld.
í sögunni kannast margir við sjálfa sig, því hún er sannferðug úttekt
á lífi íslenskra barna á þessum árum. Hver man ekki sokkabandakotin
óþægilegu, skólahjúkkurnar skeleggu með lýsiskönnur á lofti, eða lysti-
reisur í Tívólí og Nauthólsvík? Þetta er ekki ævisaga, heldur fantasía eða
rabbsódía um^Reykjavík - umhverfi og atvik - í lífi lítillar píslar.
„...hafi höfundar þúsund þakkir fyrir skemmtilega
samfylgd um furðu- og kynjaveröld bernskunnar."
Úr ritdómi í DV
„Óvœnt (mig langar að segja kvenlegt) sjónar-
horn á liðna tíð, ísmeygilegur og kíminn stíll,
frumleiki í efnistökum, allt þetta gerir bókina að-
laðandi fyrir hvaða aldurshóp sem er."
Úr Fréttum, Vestmannaeyjum
«>
FORLAGIÐ
LAUGAVEGI18, SÍMI 91-25188
Björn pálssön á Löngumýri metur engan eiginleika meira en gam-
ansemi og frelsi. Hér rekur hann uppruna sinn og ættir, nám og
ferðalög yfir hnöttinn á unga aldri. Heimkominn hefur hann búskap
á ættaróðali sínu og stundár jafnframt umsvifamikla útgerð. Hann segir
frá sigursælli kosningaglímu sinni við kempuna Jón Pálmason á Akri
1959 og setu sinni á alþingi um 15 ára skeið, málaferlum og kynnum sín-
um af svipmiklum samtímamönnum.
Björn á Löngumýri lætur engan kúga sig eða kúska, hvorki banka-
stjóra, sýslumenn né ráðherra. Kímnin situr jafnan í fyrirrúmi og frá-
sagnargleðin er ósvikin. Gagnmerk heimild, tæpitungulaus saga.
„Björn Pálsson kemur klárt og vel í gegn.
Sérvitringur en skemmtilegur, hugsandi maður og
að mörgu leyti heilsteyptur með afdráttarlausar
skoðanir á mönnum og málefnum. Hann er ekkert
að draga undan...bók sem akkur er í. Karl sem
gaman er að kynnast."
Úr ritdómi í Morgunblaðinu
í
i
i