Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1990, Qupperneq 21
FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1990.
29
DV
< að meðaltali i leik í vestur-þýsku úrvals-
phafi.
iur 11.
alandi
eildarinnar frá upphafi
Tólf markahæstu leikmenn úrvalsdeild-
arinnar frá upphafi eru eftirtaldir, fyrst
mörk, síðan meðalskor í leik:
Arno Ehret 1275 6,54
Erhard Wunderlich 1224 6,12
JerzyKlempel 1184 7,74
JochenFraatz 1162 5,87
Uwe Schwenker 1118 3,78
Andreas Dörhöfer 940 5,03
Milo Mijatovic 873 5,78
Martin Schwalb 867 4,38
ManfredFreisler 861 3,29
Harald Ohly 859 4,47
RúdigerNeitzel 853 5,02
Sigurður Sveinsson 832 5,78
Sigurður er þriðji markahæsti útlend-
ingurinn frá upphafi, aðeins Pólverjinn
Klempel og Júgóslavinn Mijatovic eru fyr-
ir ofan hann á listanum.
-VS
þriðja liðið
HM í Bandaríkjunum
sem fékk leik gegn Eyjaálfuliðinu.
í Bandaríkjunum keppa því 12 Evrópu-
þjóðir, 3 frá Afríku, 2 frá Suður-Ameríku,
2 frá Norður- og Mið-Ameríku, 2 frá Asíu,
auk heimsmeistaranna, Þýskalands, og
gestgjafanna, og sigurliðsins úr leik Eyja-
álfu og 3. hðs Norður- og Mið-Ameríku.
• Á fundinum fékk Costa Rica tveggja
ára bann frá keppni unglingalandsliða og
ólympíukeppni vegna ólöglegs leikmanns.
Þá má ekki leika landsleiki eða aðra milli-
ríkjaleiki í Kólombíu, en deildakeppninni
þar var hætt fyrir ári eftir að dómarar og
leikmenn fengu morðhótanir.
-VS
íþróttir
Miklar breytingar hjá úrvalsdeildarliði IR í körfuknattleik:
Shouse rekinn
Björn aftur í ÍR
ÍR-ingar mæta með mikið breytt lið í úrvalsdeildinni eftir áramótin
Miklar breytingar eiga
sér stað þessa dagana
hjá úrvalsdeildarliði
ÍR í körfuknattleik.
Ákveðið hefur veriö að reka Dou-
glas Shouse og átti að gera það í
gær. Þá hafa sterkir leikmenn
ákveðið að ganga til hðs við félag-
ið á nýjan leik.
Það vakti nokkra athygli fyrir
yfirstandandi keppnistímabil
þegar Björn Steffensen ákyað að
skipta yfir í KR. Hann hefur nú
ákveðið að ganga á ný til liðs við
ÍR og verður löglegur með ÍR-
ingum þann 17. janúar þegar ÍR
leikur gegn Snæfelli. Björn sagði
í samtali við DV í gær: „Að mínu
mati eru aðstæður nú gerbreyttar
hjá ÍR. Nýir leikmenn hafa komið
til liðs við félagið og sterkar líkur
eru á því aö Tommy Lee, sem lék
með liðinu í fyrra, komi aftur til
liðsins. Mér líkaöi einfaldlega
ekki nógu vel í KR og ákvað því
að fara aftur í mitt gamla félag.
Og auðvitað munum við setja
stefnuna á að halda sæti okkar í
úrvalsdeildinni."
Ragnar Torfason er
byrjaður að æfa með ÍR
Ragnar Torfason, sem fyrir
nokkrum árum var einn sterkasti
leikmaður ÍR-inga í körfunni, er
byrjaður að æfa með liðinu að
nýju og mun hann ásamt Birni
Steffensen styrkja ÍR-liðið mikið.
Þá má geta þess að Karl Guð-
laugsson, sem æft hefur lítið með
ÍR að undanförnu, hyggst æfa á
fullu með liðinu og mun hann
einnig styrkja það mikið.
Hver tekur sæti
Douglas Shouse?
ÍR-ingar eru að leita að erlendum
leikmanni þessa dagana til að
leysa Douglas Shouse af hólmi.
Ástæður þess aö ÍR-ingar ákváðu
að reka Shouse er nokkrar. Helst-
ar eru þær að hann er lítill sem
enginn varnarmaður og svo hef-
ur hann haft slæm áhrif á lið-
sandann og þótt beinlínis leiðin-
legur.
IR-ingar hafa verið í sambandi
við Tommy Lee sem lék vel með
liðinu í fyrra og mun hann gefa
ákveðið svar fyrir jól. Hann hefur
hins vegar tilkynnt ÍR-ingum að
hann viti um tvo leikmenn sem
séu tilbúnir að koma til ÍR með
stuttum fyrirvara. Þeir eru báðir
bandarískir. Annar þeirra var
valinn eftir háskólanám til að
leika með New Jersey Nets í
NBA-deildinni og hinn hefur ný-
lokið námi í háskóla.
-SK
• Douglas Shose er á förum frá
ÍR en ákveðið heiur verið að
reka hann frá félaginu.
• Ragnar Torfason er byrjaður
að æfa aftur með ÍR en hann var
einn besti maður ÍR á árum áð-
ur.
• Tommy Lee lék meó ÍR-ing-
um i fyrra og líklegt er að hann
leiki með liðinu eftir áramótin.
• Björn Steffensen skipti yfir í
KR fyrir keppnistimabilið en er
nú aftur genginn til liðs við ÍR.
Saga Hauka
erkominút
- Haukar í 60 ár, rúmar 400 blaðsíður
Haukar í 60 ár, nefnist nýútkomin
saga Knattspyrnufélagsins Hauka í
Hafnarfirði en 12. apríl á næsta ári
eru 60 ár síðan félagið var stofnað.
Hér er um að ræða mjög vandað og
glæsilegt rit sem Lúðvík Geirsson
blaðamaður skráði en ritnefnd undir
forsæti Hermanns Guðmundssonar,
fyrrum formanns félagsins, hafði veg
og vanda af útgáfynni.
Bókin er upp á rúmar 400 blaðsíður
og í henni eru á sjötta hundrað
mynda, þar af margar í lit. Hátt í 100
Hafnfirðingar koma við sögu í bók-
inni. Henni fylgir ítarleg nafnaskrá
og segja þeir í ritnefndinni að þetta
sé hin eiginlega saga íþróttalífs í
Hafnarfirði, merkt framlag • til
íþróttasögu bæjarins og reyndar
landsins alls.
Haukar í 60 ár rekur ekki ein-
vörðungu sögu og starfsemi Hauka
heldur er og komið víða við sögu í
íþróttasögu Hafnarfjarðar. Þanniger
meðal annars greint frá upphafi og
þróun knattspyrnunnar í bænum frá
árinu 1909 og upphafsárum hand-
knattleiks í Hafnarfirði en Haukar
voru fyrsta íþróttafélagið í landinu
sem byrjaði að æfa og keppa í hand-
knattleik, í ársbyrjun 1934. Þá eru
viðtöl við nokkra af helstu forystu-
mönnum Hauka í gegnum tíðina um
ferðalög, fjáröflun, almennt félags-
starf svo að eitthvað sé nefnt.
Það er ekki ofsögum sagt að bókin
Haukar í 60 ár sé eitt vandaðasta og
veglegasta rit sem íþróttafélag á ís-
landi hefur gefið út. Haukar gefa
bókina út sjálfir meö góðum stuðn-
ingi frá bæjaryfirvöldum í Hafnar-
firði, Sparisjóði Hafnarfjarðar og
ýmsum fleiri stofnunum og fyrir-
tækjum í Hafnarfirði. Bókin er unnin
og prentuð hjá Prentbæ h/f í Hafnar-
firði og kostar hún 4.000 krónur.
Hægt er að nálgast bókina í Bókabúð
Olivers Steins, Bókabúð Böðvars í
Hafnarfirði, Bókaverslun Sigfúsar
Eymundssonar og hún er einnig til
sölu í Haukahúsinu. Þar er að hægt
að panta hana og sjá Haukamenn um
póstþjónustu um allt land.
Til hamingju Haukar!
-GH
Aðalfundur knatt-
spyrnudeildar Fram
Aðalfundur knattspyrnudeildar Fram verður haldinn
í félagsheimilinu í kvöld, föstudaginn 14. desember,
kl. 20.30.
Dagskrá samkvæmt félagslögum.
VÍS-keppnin
í kvöld
í Laugardalshöll kl. 20.00
Mætum og styðjum okkar menn