Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1990, Qupperneq 35
MÁNUDAGUR 17. DESEMBER 1990.
43
dv Viðtaliö
Manneskjan
eraffskaplega
forvitnileg
7
Nafn: Helga Hjörvar
Aldur: 47 ára
Starf: Formaður Listahátíð-
ar og skólastjóri Leiklistar-
skóla Islands
Helga Hjörvar, skólastjóri Leik-
listarskóla íslands, hefur veriö
ráöín formaður Listahátíðar sem
verður næst árið 1992.
Helga er ættuð vestan úr Ön-
undarfirði í móðurætt og af Eyr-
arbakka í fóðurætt. Hún er fædd
að Kirkjubóli í Valþjófsdal í Ön-
undarfirði. Skólagangan hófst í
barnaskóla Laugarnesskóla og
síðan lá leiðin í Kvennaskólann
þaðan sem Helga útskrifaðist
1960. Eftir það fór hún í Leiklíst-
arskóla Leikfélags Reykjavíkur.
Um skeið nam hún einnig leik-
húsfræði í Háskólanum í Kaup-
mannahöfn.
Eftir útskrift úr Leikiistarskóla
LR 1966 lék Helga svolitið, leik-
stýrði úti á landi og kenndi leik-
list. „Ég kemidi á vegum Æsku-
lýðsráðs í skólum borgarinnar og
þegar ég kom heim frá Kaup-
mannahöfn 1972 var nýbúið að
stofna SÁL-skólann og ég byrjaði
að kenna þar. Ég hef svo kennt
leiklist óslitið síðan.“ Með þess-
um störfum var Helga fram-
kvæmdastjóri Bandalags ís-
lenskra leikfélaga í 8 ár.
Sem formaður Listahátíðar
mun Helga, ásamt fimm manna
stjórn, marka stefnu og fram-
kvæmd næstu hátíðar. „Starf
okkar er að gera áætlanir um
hvemig Listahátíð 1992 og Kvik-
myndahátíð 1991 eigi að vera í
samvinnu viö innlenda og er-
lenda aðila.“ Helgu líst vel á þetta
nýja starf. „Mér fmnst þetta af-
skaplega skemmtileg tilhugsun
og mér fmnst list vera mjög mik-
ilvægur hluti lifsins og vildi óska
þess að sem flestir hefðu mögu-
leika á að pjóta listar. Listahátíð
hefur verið mjög kærkomið tæki-y
færí til að sýna það besta sem við
höfum sjálf fram að færa og að
flytja inn það besta sem við get-
um.“
Leiklistin er spegill lifsins
Áhugamál Heigu eru mannlíflð
almennt og menntun. „Maimlíf
og þjóðfélagsmál eru náttúrlega
mjög tengd leiklist, því Ieiklist er
spegill lífsins. Mér fmnst rnann-
eskjan afskaplega forvitnileg og
hef gaman af aö kynna mér hinar
ýmsu Miðar mannlegs eðlis og
mannlífsins. Ég er líka mjög upp-
tekin af skólamálum og mér
finnst þau leggja grunn að velferð
einstaklingsins, þaö er að segja
ef vel tekst til.“
Lambalæri steikt við hæfilega
lítinn hita er mikill uppáhalds-
matur hjá Helgu. Bílar sldpa hins
vegar ekki of stóran sess í lífi
hennar því Helga setur eingöngu
tvö skilyrði um þá. „Ég á litla
Ford Fiestu sem uppfyllir þessi
tvö skilyrði. Þau eru að bíllinn
flytji mann örugglega á rnilli
staöa og svo að hann gangi ekki
alltof nærri budduimi hvað bens-
ineyðslu varðar.“
Helga er gift Úlfi Iljörvar, rit-
höfundi og þýðanda og þau eiga
tvö börn, Helga 23 ára og Rósu
Maríu 10 ára. -as
Fréttir
Sæberg eignast meirihluta
í Hraðfrystihúsi Ólafsfjarðar
Helgi Jónsson, DV, Ólafefirði:
Gengið var frá sölu hlutabréfa
Hlutafjársjóðs byggðastofnunar í
Hraðfrystihúsi Olafsíjarðar hf.
föstudaginn 7. desember.
Það var Sæberg hf. Ólafsfirði,
sem gerir út togarana Sólberg og
Mánaberg, sem keypti og var kaup-
verðið 29 milljónir króna. Nafnverð
bréfanna var 96 milljónir króna,
sem er um 49% af hlutafé í félag-
inu. Jafnframt var samkomulag
um að Sæberg auki hlutafé í hrað-
frystihúsinu um 50 millj. króna á
næstu tveimur árum.
Hraðfrystihús Ólafsfjarðar hf. er
aðaleigandi Útgerðarfélags Ólafs-
íjarðar sem gerir út togarann Ólaf
bekk. Ennfremur á félagið frysti-
hús, rækju- og mjölverksmiðju.
Þá hefur verið gengið frá kaupum
Sæbergs á hlut bæjarsjóðs Ólafs-
fjarðar í hraðfrystihúsinu, sem er
að nafnverði rúmar 32 milljónir
króna, og í Útgerðarfélagi Ólafs-
fjarðar að nafnverði rúmar 3 millj.
króna.
Hlutdeild bæjarsjóðs í útgerðar-
félaginu er 30% af heildarhlutafé
en 17% í hraðfrystihúsinu. Kaup-
verð er 18.1 milljónir króna og
greiðist allt á einu ári.
Aaá liálfa væri nóg, lífssaga Þórarins Tyrfingssonar, yfirlæknis SÁÁ.
Guárún Guðlaugsdóttir Uaáamaður skráði. Mannlíf í Aáa lvík óg fl eiri
minningatrot eftir Gunnar Friðriksson. Atliyglisverð frásögn af liorfnu
mannlífi við ysta kaf. Ævisaga Margrétar Þórfiildar Danadrottningar.
Einlæg og opinská frásögn, skráð af Anne Wolden-Rætkinge.
Minningar úr Mýrdal eftir Eyjólf Guðmundsson ritliöfund
og kónda á Hvoli í Mýrdal. Hluti af Jjjóðarsögu.
MlNNlNGABROT
’mucsoóttir
Síðumúla 11 • Sími 84866