Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1990, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1990, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1990. 5 GUÐML'NDUR ÞORSItlNSSON FBÁ LVjNOI <*■' sröKf Un*OG-M0 >0GUinURFRÁLmNUMÖl.DUM Fréttir Bækur • Jólakort • Bækur • Leikföng • Bækur • Jólaskraut • Bækur i Bækur • Jólakort • Bækur • Leikföng • Bækur • Jólaskraut • Bækur Gífurleg fjölgun smábáta lendir á alvöru trillukörlum: 1200 nýir bátar á f imm árum Enn á ný hafa umræður um kvóta- kerfið blossað upp. Nú er það vegna kvótaúthlutunar til trillukarla. Standa umræðurnar nú yfir bæði á Alþingi og meðal trillukarla um allt land. Deilur um kvótakerfiö hafa verið í gangi nær látlaust síðan kerf- ið var sett á og hefur þeim nú verið gefið viðeigandi nafn, „Sagan enda- lausa“. Manniegi þátturinn í þeim umræðum, sem átt hafa sér stað á Alþingi undanfarið um þetta mál, hafa menn bent á mannlega þáttinn í þeim niðurskurði á kvóta til trillukarla sem átt hefur sér stað. Einar Valur, varaþingmaður Al- þýðubandalagsins, sem hóf umræð- ur utan dagskrár um máhð síðastlið- inn mánudag, benti á að sá niður- skurður á kvóta til hvers einstaks trillukarls mundi leiða til þess að heilu byggðarlögin legðust af. Hann nefndi sem dæmi Bakkafjörð og Grímsey, staði sem eingöngu byggja á smábátaútgerð. Aðrir þingmenn, sem til máls tóku, bentu á aðra staði, hver í sínu kjördæmi. Nefnd voru fjölmörg dæmi um hvemig trillukarlar hefðu verið „teknir af lífi", eins og sumir komust aö orði. Þingmenn nefndu dæmi um menn sem fá nánast engan kvóta vegna þess að af ýmsum ástæðum, misgildum að vísu, hefðu viðmiðun- arárin verið slæm hjá þessum mönn- um. Allt er þetta satt og rétt. Alveg það sama gerðist með einstaka báta þeg- ar kvótakerfinu var komið á í upp- hafi. Meðal annars stóð þannig á þá Fréttaljós: Sigurdór Sigurdórsson að viðmiðunarár báta frá Ólafsvík höfðu veriö mjög slæm. Bátafloti Ól- afsvíkinga var því skorinn niður við trog og hefur ekki náð að rétta sinn hlut síðan. Fjölgun smábáta Eitt atriði hefur lítið verið rætt í þeim umræðum sem átt hafa sér stað um kvóta trillukarla, en það er fjölg- un smábáta undanfarin ár. Árið 1985 voru um það bil 900 smábátar gerðir út frá íslandi. í dag eru þeir um 2.100. Fram til þessa hafa trillur landsins verið að veiða úr sameiginlegum potti, ef svo má að oröi komast, vegna þess að ekki hefur verið úthlutað kvóta til hvers og eins fyrr en nú. Ný kvótalög taka gildi um áramót og þau gera ráð fyrir kvóta á hverja trillu. Þessi gífurlega fjölgun smábáta hefur það aö sjálfsögðu í fór með sér að minna kemur í hlut hvers og eins þegar farið er að úthluta kvóta á hvem bát. Þeir sjómenn, sem höfðu gert trillubátaútgerð að ævistarfi áður en þessi mikla fjölgun smábáta hófst, em nú manna reiðastir. Þeir segja að fjölgunin bitni á þeim sem fyrir vom árið 1985 þegar flóðbylgjan reis. Trillukarl, sem DV ræddi við, hélt því fram að vanda íslensks skipa- smíðaiðnaðar heföi verið velt yfir á trillusjómenn. Til að bæta skipa- smíðastöðvum upp verkefnaskort á sínum tíma hafi þær fengið góða fyr- irgreiðslu við að smíða hina svo nefndu 9,9 tonna báta. Sökum þess hvað fyrirgreiðslan var góð og að ekki þurfti kvóta á þessa smábáta keyptu menn þá í hrönnum með þeim afleiðingum að nú em smábát- amir orðnir 2.100 og enginn þeirra fær viöunandi kvóta. 'flKILJA Bóka- ritfanga- og gjafavöruverslun ATQREIÐSLUTÍMI HL JÓLA Fimmtudag 20. des. kl. 9-20 Föstudag 21. des kl. 9-22 Laugardag 22. des. kl. 10-23 Aðfangadag 24. des. kl. 9-13 Qleðileg jól TKILJA Miðbæ v/Háaleitísbraut 58-60 Sími 35230 Smábátum hefur fjölgað úr 900 í 2100 á fimm árum. Fyrirsjáanleg fækkun Það gefur augaleið að úthlutun kvóta á hverja trillu mun fækka þeim gífurlega. Hundruðum saman fá trillukarlar svo htinn kvóta að eng- inn vegur er fyrir þá að lifa af þeim afla. Öm Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda, hefur bent á að þetta muni leiða til þess að menn slái sér saman. í mörg- um tilfellum sé kvóti tveggja trillu- karla nægur til að gerandi sé að sækja hann á eina trillu. Margir trillusjómenn benda aftur á móti á að þetta sé engin lausn. Tilkostnaður við útgerð trillu sé svo lítill að það bæti ekkert úr að sækja lítinn kvóta tveggia sem slegið er saman á einni trillu. Eignaupptaka Alþingismenn bentu á að það hrikalegasta í þessu dæmi væri aö úthlutun þessa htla kvóta væri hrein eignaupptaka hjá trillukörlum. í fyrsta lagi væri trillan verðlaus eign sem engin leið væri að losna við. í örðu lagi væri ekkert annað fyrir fólk af smábátaútgerðarstöðum að gera annað en flytja burt th að leita sér atvinnu. Eftir stæðu í þorpunum hús fólks og ef til vih aðrar eignir sem ekki væri hægt að flytja brott. Þessar eignir yrðu vita verðlausar. TrUlukarlar og fjölskyldur þeirra standa eftir allslausar og þurfa byrja aUt upp á nýtt á öðrum staö á landinu. Þetta eru vissulega þung rök. HaUdór Ásgrímsson sjávarútvegs- ráðherra, sem öll spjót beinast að í þessu máh, hefur bent á að í öllu kvótakerfinu sé verið að úthluta of htlu tíl of margra. Flotinn væri ein- faldlega of stór, hvort heldur væri smábátar eða stærri bátar. Þetta er auðvitað alveg rétt. Eftir stendur í þessu máh aðeins K eitt. Er hægt að koma í veg fyrir að ° hundruö fjölskyldna vítt og breitt um landið verði allslausar vegna þessa máls? Það hlýtur að vera næsta verk- efni þeirra þingmanna, sem bera hag _ Skúli Alexandersson alþingismað- ur hefur bent á í umræðum að þessi fjölgun smábáta sé stjóm eða réttara sagt stjórnleysi í fiskveiðum aö kenna. Hann segir að auðvitað hefði átt að stemma stigu við taumlausri fjölgun smábátanna. Það hafi ekki verið gert og þetta sé afleiðingin. Eins hefur verið bent á að það eru ekki landkrabbar sem hafa veriö að kaupa þessar trillur. Það eru sjó- menn á bátum sem hafa ekki verk- efni nema hluta úr árinu vegna kvótakerfisins. Til að mynda hafa fjölmargir sjómenn af loðnubátunum keypt sér trillu til að hafa atvinnu þá mánuði sem loðnuskipin liggja verkefnalaus eða verkefnalítil. þessa fólks fyrir brjósti, að leita leiða í þeim efnum. Kvótinn verður ekki stækkaður. v. Kr. 3.900, SÖOU' ÞJÖBAR v-//)rfnir starfsKættir og leiftur frá liánum öldum efti Guámund Þorsteinsson frá Lundi. Ometanleg keimild um korfna starfskætti og mannlíf sem einu sinni var, með miklum fjölda ljósmynda sem margar kverjar kafa ekki kirst áður. ^emstan, svipmyndir úr leik og starfi íslenskra karna eftir Símon Jón Jókannsson og Bryndísi Sverrisdóttur. Prýdd á annað kundraá ljósmyndum. Kjörin kók til aá kynnast leikjum íslenskra kama fyrr og nú á skemmtilegan og lifandi kátt. Kr. 3.900, ORN OG ORLYGUR Siilumúla I I • Simi 848ú6

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.