Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1990, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1990, Blaðsíða 21
FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1990. 21 ög góðan leik síðustu mínúturnar er íslenska liðið skoraði 11 mörk gegn 4. Sameinaðir Þjóðverjar eiga enn eftir að vinna landsleik á útivelli og ef þeir senda gi eftir útisigri. DV-mynd Brynjar Gauti ar f lengdir á ný legu þýsku landsliði í handknattleik, 26-19. Móðgun að senda slíkt lið til Islands maður með fullri meðvitund í fyrri hálfleik og þá náði þetta mjög svo slaka þýska lið að halda í við okkar menn. Reyndar aðeins fram í síðari hálfleik- inn þangað til að staðan var 15-15. Góður lokakafli hjá íslenska liðinu þegar það skoraði 11 mörk gegn 4 tryggöi hins vegar sigurinn. Fyrstu landsleikir sameinaðs Þýska- lands á erlendri grundu verða ekki skráðir á spjöld sögunnar. Reyndar virðast Þjóðverjar ekki hafa lagt mikla áherslu á þessa leiki enda sendi þeir c-Uð sitt í leikina og varla það. Hrein móðgun við íslenskan handknattleik og vonandi verður bið á því að svo slök landslið komi til íslands. Konráö Olavsson var besti leikmað- ur íslenska liösins og er þar ótrúlega skemmtilegur handknattleiksmaður á ferð. Geir Sveinsson átti einnig ágætan leik og Sigurður Bjarnason á lokakafl- anum. Þá varði Hrafn Margeirsson þokkalega í síðari hálfleik. • Mörk íslands: Konráð Olavsson 7, Sigurður Bjarnason 6/2, Geir Sveins- son 3, Valdimar Grímsson 3, Stefán Kristjánsson 3, Einar G. Sigurðsson 2, ,og Jón Kristjánsson 2. • Hjá Þjóðverjum var Heinrich Oc- hel markahæstur með 5 mörk. Þjóðirnar mætast aftur í tveimur landsleikjum í Þýskalandi á morgun og laugardag og flugu bæði liðin til Þýskalands snemma í morgun. Þá tefla Þjóðverjar fram sínu sterkasta liði. -SK íþróttir Sport- stúfar • Tony Adams, enski lands- liðsmaðurinn í knattspymu og fyrirUði Arsenal, á ekki sjö dag- ana sæla framundan. Hann var í gær dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir ölvunarakstur. Mikið magn áfengis mældist í blóði kappans eftir að hann eyði- lagði bfl sinn í útafkeyrslu á dög- unum. • Sovétmaöurinn Sergei Bubka, semá heimsmetið í stang- arstökki, hyggst flytjast búferlum til Berlínar. Fjölskyldu hans hef- ur einnig verið veitt leyfi til að flyijast frá heimafandinu. Bubka mun ekki skipta um ríkisborg- ararétt og heldur þvi áfram að keppa fyrir Sovétrikin á alþjóð- legum mótum. Bubka á bæði heimsmetin í stangarstökki, ut- anhúss 6,06 metra og innanhúss 6,05 metra. • Pólverjar báru í gærkvöldi sigurorð af Grikkjum í vmáttu- landsleik í knattspymu. Pólveri- ar sigraðu 2-1 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 1-1. • Af málum Franz Becken- bauer hjá franska liðinu Mar- seilfe er það nýjast að frétta að forseti félagsins, Bernard Tapie, sagði í gærkvöldi að ef Becken- bauer færi frá iiðinu yrði frábær þjálfari ráðinn til liðsins í hans stað sem hefði meðal annars unn- ið Evrópukeppni með liði sínu. Hann nefhdi hins vegar engin nöfh. Arnórer í Belgíu Kristján Bemburg, DV, Belgni: Milli Arnórs Guðjohnsen og forráðamanna belgíska knatt- spyrauliðsins Anderlecht virðast fýrri deilur vera gleymdar. Amór er þessa dagana staddur í Belgíu og er að ganga frá málmn sínum við félagið en eins og kunnugt er þá lék Arnór með Anderlecht áður en hann fór til Bordeaux í Frakklandi. Anderlecht dróst gegn Róma frá Ítalíu í Evrópukeppni félagsliða en ítalarnir höfðu áður slegiö út Bordeuax. Amór fylgdist með báðum leikjum Róma og Borde- aux úr áhorfendastúkunni þar sem hann var ekki orðinn lögleg- ur til að leika í Evrópukeppní. Arnór hefur nú gefið Aad De Mos, þjálfara Anderlecht, mikil- vægar upplýsingar um Róma liö- ið og segja Arnór og De Mos aö Anderlecht éigi góða möguleika á að komast í undanúrsliL ijá íslensku liðunum em hófst í Laugardalshöll í gær. Leikið í Keflavík 1 kvöld Svava 3, Heiða, Auður og Herdís, eitt mark hver. Spánsku stúlkurnar höfðu betur í síðari leiknum áttust við A-lið íslands og Spánar. Þetta var 12. leikur þjóðanna í handknattleik og í gær höfðu þær spönsku betur, sigruðu, 18-22, og um leið í 7. skipti sigur á íslendingum. Spánn byrjaöi betur, skoraði þrjú fyrstu möriún en eftir að íslensku stelp- urnar höföu náð að hrista taugaveikl- unina af sér skoraði liðið íjögur mörk í röð og náöi forystu, 4-3. Um miðjan hálfleikinn var staðan jöfn, 6-6, en þær spánsku sigldu fram úr og yflr í leik- hléi, 7-11. Þetta bil náði íslenska liðiö aldrei að brúa í síðari hálfleik og spánska liðið hélt öruggri forystu, náði mest að kom- ast sex mörkum yfir en ísland náði að rétta sinn hlut undir lokin þegar Björg Gilsdóttir skoraði þrjú glæsileg mörk af línunni. „Ef ég ber þessa tvo leiki saman þá sást greinilegur munur. Yngri stelp- urnar höfðu mun meiri vilja en þær eldri sem vantar nokkurn neista. Stelp- urnar eru ekki nægilega sterkar í vörn- inni, maður á móti manni, og í sókn- inni háir það A-liðinu að við höfum ekki nægilega öflugar skyttur. Eg er samt bjartsýnn, þetta er góður undir- búningur fyrir yngra liðið sem keppir á móti hér heima milh jóla og nýárs,“ sagði Gústaf Björnsson, þjálfari kvennalandshðsins eftir leikina í gær. Inga Lára Þórisdóttir lék best í ís- lenska liðinu í gær og þær Guðný Gunnsteinsdóttir og Björg Gilsdóttir sýndi góð tilþrif. • Mörk íslands: Inga Lára 5/1, Rut 4/2, Björg 3, Guðný 2, Brynhildur 1, Kristíri 1, Andrea 1, Inga Huld 1. • íslensku liðin leika í Keflavík í kvöld og strax á eftir Spánn og Portúg- al. -GH • Inga Lára Þórisdóttir lék best íslensku stúlknanna gégn Spáni og hér er hún i þann mund að skora eitt af fimm mörkum sínum í leiknum. DV-mynd GS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.