Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1990, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1990, Blaðsíða 20
20 FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1990. íþróttir Markaregn - Spánn vann Albaníu 9-0 Spánverjar voru í miklu stuði i gærkvöldi þegar þeir léku sér aö Albönum i leik þjóöanna i Eyrópukeppni landsliða en þjóðirnar leika sem kunnugt er í riðli með íslendingum. Spánn vann stórsigur, 9-0, og skoraöi „gammurinn“ Emilio Butragueno fiögur markanna. Munoz skoraði 2, Hierro eitt, Bakero eitt, og Amor eitt Staðan í leikhléi var 4-0. • Hollendingar gáfu Spánverjum litiö eftir i gærkvöldi er þeir léku gegn Möltubúum á Möltu í undankeppni Evrópukeppninnar. Holland sigraði, 8-0, og skoraði Marco Van Basten fimm markanna. Þrjú þeirra skoraði hann á 25 mínútum í fyrri hálfleik og tvö í síðari hálfleik, það síöasta úr vítaspymu á 80. minútu. Hin mörk Hollendinga skoruðu Dennis Bergkamp (2) og Aron Winters. • 20 þúsund áhorfendur mættu í gærkvöldi á heimavöil Stuttgart og sáu heimsmeistara Þjóðverja vinna næsta auðveldan sigur á Sviss- lendingum, 4-0, i vináttuiandsleik. Völler skoraði fyrsta markið á 1. minútu en í síðari hálfleik skoruðu þeir Riedle, Thom, og Matthaeus. -SK Valur stigahæstur annað árið í röð Þórhallur Ásmundsson, DV, Sauöárkróki: UMFÍ-bikarinn var afhentur í hófi í síöustu viku. Bikarinn var gefmn af UMFÍ þegar íþróttahúsið var tekið í notkun á sínum tíma með því for- orði að hann yrði veittur fyrir afrek í þeirri íþróttagrein sem mest væri stunduð í húsinu. Þar sem körfubolti er áberandi vin- sælust inniíþrótta á Króknum hefur verið tekin upp sú stefna að stiga- hæsti maQur meistaraflokks ár hvert hljóti bikarinn. Matthías Viktorsson félagsmálastjóri afhenti Val Ingi- mundarsyni bikarinn og er þetta annaö árið í röð sem Valur hlýtur hann. Við sama tækifæri færði Matthías dr. Milan Rosanik, þjálfara meistara- flokks, rósavönd frá íþróttaráði bæj- arins í tilefni glæstra sigra liðsins í úrvalsdeildinni í haust. Vöndurinn geymdi 11 rósir eða jafnmargar og sigra Stólanna í deildinni til þessa. • Matthías Viktorsson félagsmálastjóri afhendir Val Ingimundarsyni viður- kenningu í hófi í vikunni. Sport- stúfar í fyrradag var dregið til 8-liða úrslita í Evr- ópumótum félagsliða i knattspymu. I Evr- ópukeppni meistaraliða drógust saman eftirtalin lið: Spartak Moskva - Real Madrid AC Milan - Marseille Rauða Stjarnan - Dyn. Dresden Bayern Múnchen - Porto Evrópukeppni bikarhafa: Legia Varsjá - Sampdoria Dynamo Kiev - Barcelona Manch. United - Montpellier Liege - Juventus UEFA-bikarinn: Bologna - Sporting Lissabon Torpedo Moskva - Bröndby Atalanta - Inter Milano Roma - Anderlecht Missir Jón Þórir líka næsta tímabil? Óvíst er að Jón Þórir Jónsson, sóknarmaðurinn öflugi, geti leik- ið með Breiðabliki í 1. deildinni í knattspyrnu næsta sumar. Jón Þórir missti nánast af öllu síðasta tímabili vegna meiðsla á hné og fyrir stuttu gekkst hann undir uppskurð. Útlit er fyrir að hann geti ekki farið að æfa með Kópa- vogsliöinu fyrr en komið er fram á sumarið. Handboltamót fyrir yngstu krakkana Handknattleikssam- band íslands stendur fyrir EMS-móti í '6. flokki karla og 5. flokki karla á vegum Pósts og síma í Breiðholtsskóla og Laugardals- höll milli jóla og nýárs. Leikið verður í A-, B-, og C-liðum. Allir þátttakendur fá viðurkenningu frá Pósti og síma en auk þess verða bestu leikmenn mótsins í hvorum flokki heiðraðir. Enn er hægt að skrá lið í mótið en fjöldi þeirra er takmarkaður. Portland áfram á sigurgöngunni Portland Trail Blazers heldur áfram sigurgöngu sinni í banda- ríska körfuboltanum. í fyrrinótt sigraði Portland lið Golden State auðveldlega á heimavelli. Lakérs, sem unnið hefur hvern leikinn af fætur öðrum upp á síðkastið, vann góðan útisigur í New York. Úrslit leikjanna í NBA-deildinni í fyrrinótt urðu annars þessi: New York - LA Lakers....97-100 76’ers - LA Clippers....110-99 Charlotte - Utah Jazz..100-105 Chicago - Miami Heat....112-93 Milwaukee - Detroit....106-101 Houston - San Antonio....95-96 Dallas - Phoenix........95-114 Sacramento - Minnesota.... 108-99 Portland - Golden State.122-94 Seattle - Orlando......122-105 Átta dagar til stef nu Nú eru átta dagar þar til að frestur til aö skila inn atkvæðaseðlum í kjöri íþróttamanns ársins hjá DV rennur út. Skilafrestur er til 28. desember. Heppinn lesandi DV fær Olympus myndbandstökuvél frá Hljómco í Fákafeni að verðmæti 65 þúsund krónur. Greint verður frá úrshtum í kjörinu í fyrsta blaði DV eftir ára- mótin, þann 2. janúar, í máli og myndum. -SK Iþróttamaður ársins 1990 Nafn íþróttamanns: íþróttagrein: 1._____________________________________ 2._____________________________________ 3. -___________________________________ 4. _______________:_____;______________ 5. Nafn:__________________________________r__ Sími: ___________ Heimilisfang:____________________________________________,__: Sendið til: íþróttamaður ársins - DV - Þverholti 11-105 Reykjavík. • Sigurður Bjarnason skoraði 6 mörk gegn Þjóðverjum í gærkvöldi og átti mj ekki betra lið í útileikina í framtíðinni geta þeir átt von á að þurfa að bíða len Þjóðverj - ísland vann stóran sigur á afspymulé „Þetta var ekki alveg nógu góður leikur hjá okkur, sérstaklega hvað varnar- leikinn snerti. En að vipna landsleik meö sjö marka mun er ekki slæmt og ég er ánægður með sigurinn. Hins vegar er ég ekki nægilega sáttur við leik okkar í heild. Við verðum að leika mun befur gegn Þjóðverjunum í leikjunum úti ef við eigum að geta stað- ið í þeim,“ sagði Geir Sveinsson í sam- »tali við DV eftir að ísland hafði unnið Þýskaland í landsleik í handknattleik í Laugardalshöllinni í gærkvöldi með 26 mörkum gegn 19. Staðan í leikhléi var 11-10, íslandi í vil. Eftir stórsigur íslenska liðsins í fyrri viðureign liðanna ætluðust leikmenn íslenska liösins til þess að þetta kæmi af sjálfu sér í gærkvöldi. Varla nokkur Sigurogtapl - á alþjóðlegu móti í handknattleik s Alþjóðlegt mót í handknattleik kvenna hófst í Laugardalshöll i gær- kvöldi með viðureignum unglinga- landsliðs íslands og Portúgals annars vegar og hins vegar A-landslið íslands og Spánar. Fyrri leikurinn í gær var leikur ungl- ingalandsliðs íslands og A-liös Portú- gals og höfðu íslensku stelpurnar betur og sigruðu með eins marks mun í spennandi leik, 14-13. ísland hóf leikinn af krafti og komst í 5-2. Léttleiki var yfir leik íslenska liðs- ins og leikfléttur liðsins gengu upp. Portúgal náði að minnka muninn í eitt mark fyrir leikhlé og staðan í hálfleik var 6-5. ísland byrjaði vel í síðari hálfleik og náðu mest fimm marka forskoti, 12-7, og allt virtist stefna í öruggan sigur. Portúgölsku stúlkurnar höfðu ekki sagt sitt síðasta orð og minnkuðu muninn jafn og þétt og þegar mínúta var til leiksloka var staðan 14-13. Síðustu mínútuna var spennan mikil en ís- 'lensku stúlkunum tókst að halda fengnum hlut og unnu sætan sigur. Hulda Bjarnadóttir, Auður Hermanns- dóttir og Herdís Sigurbergsdóttir stóðu sig best hjá íslenska liðinu. • Mörk íslands: Hulda 5, Hallá 3,

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.