Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1990, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1990, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1990. Útlönd Thalland: Unglingur dæmdur í 25 Dómstóll í Thailandi dæmdi í morgun 19 ára gamla breska stúlku í 25 ára fangelsi fyrir aö smygla heróíni. Sú dæmda heitir Karyn Smith og játaöi hún á sig sakir. Stúlkan var handtekin á flugvellinum í Bangkok í júlí í sumar ásamt vinkonu sinni 17 ára gamalli. Hún brast í grát þegar hún heyrði niðurstöðu dómsins. Móö- ir hennar var viðstödd og sagði að Karyn hefði gert sér grein fyr- ir aö refsingin yrði þung. Faðir- inn sagöi aö ekki stæöi til aö áfryja dómnum og mætti raunar þakka fyrir að hann var ekki enn þyngri. í Thailandi er heimilt að dæma til dauða fyrir eíturlyíja- smygl. Heutcr (Fókus) Ljósmynda- og gleraugnaverslun Lækjargötu 6B - s. 15555 TENBA UÓSMYNDATÖSKUR eru vatnsheldar og I sterkar, hannaðar af j atvinnuljósmyndara með sem flesta val- kosti í huga. Verð frá | kr. 2.200. NIKON | UÓSMYNDAVÉLAR FYRIR ALLA Afífcoi»Íp2/lED>2 iNikon Ijósmynda- jvélar fyrir alla fjölskylduna iFullkomin en ein- föld í notkun Gott verð Höfum ennfremur Ijósmyndavélar f rá Vivitar Verð frá kr. 4.500. Slik þrífætur fyrir Ijósmynda- og videovélar bjóóa upp á ýmsa möguleika Verð frá kr. 3.415. Týli Austurstræti 6 Sími 10966 DV Möguleiki á samkomulagi um sameiginlegt efnahagssvæði í sumar: Enn ósamið um veiði- réttindi og f iskverslun - verslun með landbúnaðarvörur einnig ásteytingarsteinn Stjórnir ríkja EFTA og Evrópu- bandalagsins ætla að taka sér sex mánaða frest til að ná samkomulagi um sameiginlegt efnahagssvæði fyrir löndin 19 sem eiga aðild að þessum tveimur samtökum. „Ég er bjartsýnn á að samkomulag náist fyrir mitt næsta sumar og sam- eiginlegt emfnahagssvæði verði að veruleika í ársbyrjun 1993,“ sagði Gianni De Michelis, utanríkisráð- herra Ítalíu, í lok viðræðna utanrík- isráðherra landanna um efnahags- svæðið. Þrátt fyrir að bjartsýni ríki nú eftir þessa lotu viðræðnanna er sameign- lega efnahagssvæðið ekki i höfn. Enn er ósamið um nokkur atriði sem geta ráðið úrslitum. Þar á meðal er versl- un með fisk og landbúnaðarvörur og réttindi til veiða í flskveiðilögsögum einstakra ríkja. EFTA-löndin vilja að verslun með fisk verði fijáls innan alls efnahags- svæðisins þar sem nærri 380 milljón- ir manna búa. Evrópubandalagið vill ekki fallast á þetta nema fiskveiði- flotar aðildarríkja þess fái á móti veiöiheimildir í flskveiðilögsögum EFTA-ríkjanna. í reynd er þarna um að ræða að íslendingar og Norðmenn opni land- helgi sína fyrir skipum frá Evrópu- bandalaginu. Þetta mál er óleyst og lausn á því ekki í sjónmáli því hvorki Noregúr né ísland geta fallist á hug- myndir Evrópubandalagsins. Þá er ekki samkomulag um hve vítæk fríverslun með landbúnaðar- vörur eigi að vera. Þar er ekki von á samkomulagi milli Evrópuþjóðanna fyrr en einhver hreyfing hefur komið á GATT-viðræðumar, sem sigldu í strand í síðasta mánuði. Ýmislegt bendir til að GATT-við- ræðurnar um niðurfellingu tolla í heimsviðskiptum með landbúnaðar- vörur verði teknar upp að nýju eftir áramótin. Niðurstöður þeirra viö- ræðna hafa áhrif viðræður EB og EFTA um verslun með landbúnaðar- vörur. Reuter og FNB Sjómenn frá ríkjum Evrópubandalagsins mótmæltu stefnu þess í sjávarút- vegsmálum með því að hauga síld niður síld við höfuðstöðvar bandalagsins í Brussel. Símamynd Reuter Fiskveiðistefna Evrópubandalagsins: Sjómenn mótmæla minnkandi kvótum Franskir sjómenn sturtuðu 20 tonnum af síld við anddyri höfuð- stöðva Evrópubandalagsins í Brussel í gær til að mótmæla fiskveiðistefnu bandalagsins. Til stendur að minnka sókn í helstu fiskistofna á miðum þess en sjómenn segja að það sé óþarfi. Um leið og kvötarnir verða minnk- aðir þá er ætlunin að stækka möskva og taka upp eins konar banndaga- kerfi. Þannig hefur sú hugmynd farið á flot að skip verði bundin við bryggju 10 daga í hverjum mánuði. Þetta segja sjómenn að gangi af út- gerðinni dauðri. „Það er útilokað að lifa af fiskveið- um við þessar aðstæður,“ sagði Ric- hard Banks, formaður breska sjó- mannasambandsins, við mótmælin. Annar fulltrúi Breta sagði að sjó- menn óttuöust mjög um afkomu sína ef hugmyndirnar um takmörkum fiskveiða ná fram að ganga. Sjávarútvegsráðherrar flestra bandalagsríkjanna sögðu að of langt væri gengið með tillögunum en emb- ættismenn þar gegja að bandalaginu sé nauðugur einn kostur að draga úr sókninni til að koma í veg fyrir ofveiði. Búist er við að málið valdi miklum deilum sem ekki er séð fyrir endann á. Manuel Marin, formaður fiskveiði- nefndar bandalagsins, er staðráðinn í að draga úr sókninni í ýsu- og þorskstofnana sem hann segir að séu í hættu vegna ofveiði. Hann hótar að bandalagið hafi sjálft frumkvæði að minnkun kvóta nái aðiidarríkin ekki samkomulagi um málið. Reuter Thatcher flutt í lúxusíbúð Margrét Thatcher, fyrrum forsæt- isráðherra Breta, hefur skipt á húsi sínu í einu af suðurhverfum Lund- únaborgar og rándýrri íbúð í Belgravia-hverfinu. Það er fínasta og dýrasta hverfi borgarinnar. Húsið sem Denis og Margrét áttu er metið á um 500 þúsund pund eða um 50 milljónir íslenskra króna. Ekkert fréttist af þessum skiptum fyrr en sást til Denis þar sem hann bar ferðatösku inn í nýju íbúðina. Hánn sagði við það tækífæri að ekki stæði til að setjast að á nýja staðnum til langframa. Blaðafulltrúi þeirra hjóna segir að þau hafi ákveðið að flytja um set vegna þess hve langt gamla húsið er frá miðborginni. Hann sagði áð úti- lokað væri fyrir Margréti að þeytast oft á dag milli miðborgarinnar og heimilisins þegar það væri svo langt í burtu. íbúðin sem nú verður heimili Thatcherhjónanna hefur áður hýst stórmenni. Þar hélt Stanley Baldwin heimili þegar hann var forsætisráð- herra nokkrum sinnum á árunum milli stríða. Reuter Margrét Thatcher hefur flutt sig um set í Lundúnum þvi henni likar illa að búa í Úthverfi. Símamynd Reuter Tæplega áttræð sænsk amma Gamla konan brást vel við og kom hefur verið dæmd fyrir eiturlyfia- með 50 grömm af efninu og bar það smygl. Eitursins neytti hún þó ekki á sér hmanklæða þegar hún heim- sjálf því að smyglíerð sína fór hún sótti dóttursoninn næst. til að aðstoða bamabarn sitt. Dóm- Ekki var hún gripin við smyglið urinn var vægur. Su gamla þarf að heldur fannst hassið síðar á strákn- greiða 4.000 sænskar krónur í sekt. um í fangelsinu. Þegar yftrvöid Það eru um 40 þúsund islenskar tóku að rekja máliö bárust böndin krónur. Þá fékk hún skilorðsbund- fijótlega að ömmunni. inn fangelsisdóm. Fyrir réttinum sagðist hún vera Tildrög málsins voru þau aö dótt- saklaus því að hún vissi ekki hvað ursonur konunnar var dæmdur í var í pakkanum sem dóttursonur- fangelsi fyrir neyslu oiturlyfia. inn vildi fá að heiman. Dómarinn Hann bar sig illa í fangavistinni og tók afsökunin ekki gilda og dæmdi bað ömmu sína að færa sér lítil- gömlu konuna fyrir brot á fíkni- ræði af hassi sem hann ætti heima. efnalöggjöfinni. tt Nýr forseti á Haiti: Rekinn úr kirkjunni Skrifstofa Páfagarðs í Róm hefur látið þau boð út ganga að Jean-Bertr- and Aristide, nýkjörinn forseti á Haiti, hafi fyrir tveimur árum verið rekinn úr reglu sinni innan kaþólsku kirkjunnar. Fréttamönnum var sýnt bréf frá 8. desember árið 1988 þar sem Aristide var vikið úr Salesian regl- unni. Aristide var gefið að sök að hafa stuðlað að hatri og ofbeldi í heima- landi sínu. Forsetinn hefur lengi þótt vinstri sinnaður og háði harða bar- áttu gegn yfirstéttinni á Haiti. Ka- þólska kirkjan leggst gegn því að prestar hennar taki beinan þátt í. starfi stjórnmálaflokka. Aristide fór ekki eftir þessu boði. Enn hafa úrslit í forsetakosningun- um ekki verið tilkynnt opinberlega. Þó er fastlega gert ráð fyrir að Ar- istide hafi farið með sigur af hólmi. Hann ætlar þó ekki að fagna sigri fyrr en talningu er endanlega lokið. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.