Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1991, Blaðsíða 26
34
LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 1991.
Kanadískur ævintýramaður:
Ók hringinn í
kringum ísland
- til að halda upp á útkomu bókar um metakstur norður eftir Amerí ku
---------------------------------------------------------------------------------------------- okkur. Síðan lögðust margir á eitt
að gera ferðina að veruleika, GMC
Truck, GM í Kanada, hjólbarðafram-
leiðandinn BFGoodrich, Flugleiðir,
Bosch, Ramsey Winch, sem framleið-
irspilájeppaogl04+ Octane Boost.“
Hér fagnar Garry Sowerby vel heppnuðum hringakstri um ísland sem hann kallaði „One lap of lceland" eins og sjá má á hlið bíisins. Strax að hring-
ferðinni lokinni hófst kapphlaup við að koma bilnum aftur til Kanada þar sem hann átti að vera „aðalnúmerið" í sýningarbás GM á alþjóðlegri bílasýningu,
en til þess að það gæti tekist þurfti Garry að fljúga til New York, þaðan áfram til Nýfundnalands og loks aka bílnum um 2000 mílna vegalengd á áfangastað.
Ljósmynd Rik Paul
Gekk á ýmsu
Það hafði gengið á ýmsu áður en
Garry Sowerby komst til íslands.
Fyrst át heimilishundurinn Bunny
flugmiðana, þá varð Garry að ferja
fjögurra dyra Blazerjeppann sinn til
Argentia á Nýfundnalandi þar sem
einn „fossinn“ tók hann með til ís-
lands. Þegar hann haföi skilað bíln-
um af sér í Argentia uppgötvaði
Garry að það var engan bíl að hafa
þær 90 mílur sem vegalengdin á flug-
völlinn við St. John var. Hann lagði
af stað fótgangandi og eini bíllinn,
sem kom eftir dágóða stund, var sjú-
krabíll. Hann fékk far með sjúkra-
flutningamönnunum tveimur og eft-
ir svolítinn spöl stöðvaöi lögreglan
þá fyrir of hraðan akstur. Þá sögðu
sjúkraliðarnir Garry að skella sér
aftur í og leggjast í sjúkrakörfuna og
þykjast vera veikur. Þetta gekk upp,
lögreglan trúði þeim en sagði jafn-
framt að betra væri að nota bhkkljós-
in í svona tilfellum. Garry var síðan
ekið með fullum ljósum á flugvöllinn
í St. John og segist hann þess fullviss
að enn megi sjá fingraförin sín grafm
inn í sjúkrakörfuna eftir hraðakstur-
inn.
„Meira kaffi"
Garry kom í snögga ferð hingað til
lands til að undirbúa hringferðina
um ísland. Hann sagðist hafa fengið
góða hjálp hjá Bjarna Ólafssyni og
mönnum hans hjá Jötni hf., umboðs-
aðila GM á íslandi, og upplifað ýmis-
legt sem kom á óvart. Meðal þess var
„Ég er einmitt að gera það sem mig
langar til og er spennand," sagði
Garry Sowerby þegar DV hitti hann
önnum kafinn í hádegi rétt fyrir jólin
fyrir utan Hótel Loftleiðir. „Fjöldi
manns treystir á að allt gangi upp
og þaö gefur ábyrgðartilfmningu.
Þegar þetta allt er yfirstaðið hefur
maður lokið við það sem ætlunin var
að ljúka og þar með afrekað nokkuð
sem flestir geta séð fyrir sér og veld-
ur engum skaða... en gæti gefiö ein-
hverjum drauma." Hér var Garry að
svara spumingunni um hvers vegna
hann stundaði glæfraferðir um
jarðkúluna þvera og endilanga.
En af hverju ísland?
„Hugmyndin fæddist í símtali við
vin minn, Tim Cahill frá Livingston
í Montana, blaðamanninn banda-
ríska sem fór í Ameríkuferðina, en
þá var ég að ræða við hann hve vel
hefði tekist til meö bókina sem hann
skrifaði um 23 daga ferð okkar frá
Eldlandi í Suður-Ameríku til íshafs-
ins. Þá fór Tim að ræða um það á
hvem hátt við gætum haldið upp á
útkomu bókarinnar sem kemur út í
febrúar hjá Random House útgáfufé-
laginu og heitir „Road Fever - A
High Speed Travelogue". Við urðum
ásáttir um að besta leiðin til að kæla
okkur niður væri einhvers staðar í
snjónum.
Ég hafði aétlað mér um árabil að
keyra hringinn í kringum ísland og
Tim hafði aldrei komið hingað þann-
ig að ísland virtist kjörinn staður.
Að vísu er miður desember dimm-
asti og sennilega óheppilegasti
tíminn tfl að heimsækja þetta land
en í símtalinu vai' þó ákveðið að
skella sér. Þetta ætti að vera verðugt
viðfangsefni, „Jirnmy" (Blazer-jepp-
inn) ætti að fá að reyna á sig enn
einu sinni og við að sjá hvemig lífið
gengur fyrir sig í landi elds og ísa
þegar íshafsvindarnir gnauða og sól-
in rétt kíkir upp yfir sjóndeildar-
luinginn fáar stundir á dag.
Þetta rann allt saman mjög snögg-
lega. Rik Paul, ljósmyndari frá Los
Angeles, sem komið hafði með okkur
í hringferð um „austurblokkina"
fyrr á árinu, féllst á að koma með
Á kortinu hér að ofan má sjá þrjár af ævintýraferðum Garrys. í fyrstu ferðinni árið 1980 fór hann umhverfis
jörðina og kom til baka stórskuldugur úr þeirri ferð. Þá var annaðhvort að hætta svona vitleysu og fara aftur
að vinna og vera 25 ár að borga skuldirnar eftir ferðina eða verða gjaldþrota því skuldirnar voru þá um 90
þúsund dollarar. Hann valdi hvorugt en safnaði nýjum styrktaraðilum og fór í nýja ferð árið 1984 og þá frá
suðurodda Afriku til norðurodda Noregs. Á þeirri leið lentu þeir í miklum ævintýrum, þar á meðal skotbardaga
í Kenía sem gerði það að verkum að þeir urðu frægir. Nú voru auglýsendur reiðubúnir að styrkja þá og
meðal annars notaði hjólbarðaframleiðandinn Firestone ferðina í auglýsingaskyni. í stað taps i fyrstu ferð-
inni stóð Garry eftir með svo miklar tekjur að hægt var að greiða skuldirnar af fyrstu ferðinni og þá var ekki
eftir neinu að bíða og þriðja stórferðin undirbúin en það var ferð frá suðurodda S-Ameríku allt til Alaska i
norðri. Þessi ferð var farin árið 1987 og í næsta mánuði kemur út bók vestra um þessa ævintýraferð. Það
var einmitt í tilefni af útkomu þeirrar bókar að Garry kom hingað til lands á dögunum, en hugmyndina fékk
hann þegar hann kom hingað til lands fyrir mörgum árum, nánar tiltekið 1983, til að reyna nýja bíla við ís-
lenskar aðstæður.