Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1991, Qupperneq 42
50
LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 1991.
Afmæli
Jón Oddsson
Jón Oddsson hrl., Ásbúö 102,
Garðabæ, er fimmtugur í dag.
Jón er fæddur í Reykjavík og lauk
lögfræöiprófi í HÍ1968. Hann varð
hdl. 11 dögum seinna og hrl. 1972.
Starfsferill
Jón var fulltrúi framkvæmda-
stjóra síldarsöltunarstöövarinnar
Sunnuvers hf. á Seyðisfirði 1962-
1964, stærðfræðikennari í Kvenna-
skólanum í Reykjavík 1962-1965 og
fréttamaður hjá Ríkisútvarpinu
1966-1967. Hann var ritstjóri Stúd-
entablaðsins 1. des. 1963, Áramóta-
blaðs Stúdenta 1964 og Ulfljóts,
tímarits laganema, 1963-1964. Jón
var varaformaður og formaður ut-
anríkismálanefndar stúdentaráðs
HÍ1964-1965 og fulltrúi stúdenta í
háskólaráði. Hann var formaður
Orators, félags laganema, 1965-1966
og var einn stofnenda óháðra stúd-
entasamtaka er voru undanfari
Verðandi. Jón var í fyrstu íslensku
Víetnamnefndinni 1967-1969 og
sjórn Neytendasamtakanna 1969-
1971. Hann var forseti Loka 1986-
1989 og í landskjörstjóm 1987-1990.
Jón hefur auk þess starfað mikið
að samningu ýmissa lagaframvarpa
og verið ráðgjafi undirbúnings-
nefndar Heimastjómarsamtakanna
frá hausti 1990.
Fjölskylda
Jón kvæntist 5. maí 1977 Valgerði
Báru Guðmundsdóttur, f. 20. febrú-
ar 1936. Foreldrar Vaigerðar voru:
Guðmundur Jakobsson, útgerðar-
maður í Bolungarvík og kona hans,
Guðfinna Gísladóttir. Börn Jóns og
Valgerðar eru: Guðmundur Bald-
ursson, f. 24. maí 1954, rannsóknar-
lögreglumaður í fíkniefnadeild lög-
reglunnar í Rvík, kvæntur Bonnie
Laufeyju Dupuis, börn þeirra eru:
Bragi, María Sjöfn, Styrmir, Val-
gerður Bára og Jón Baldur; Björg-
vin, f. 17. mars 1964, laganemi og
alþjóðlegur skákmeistari, unnusta
hans er Sigríður Dóra Magnúsdóttir
læknir og Kristín Anna, f. 7. júlí
1969, menntaskólanemi í Álaborg í
Danmörku, unnusti hennar er
Lasse Petersen sjómaður.
Systur Jóns eru: Kristín, f. 28.
apríl 1945, hjúkrunarfræðingur og
ljósmóðir í Olsó, gift Odd Roald
Lund, viðskiptafræðingi og Marta
María, f. 3. ágúst 1950, tækniteiknari
og stærðfræðikennari, gift Þórði
Magnússyni, rekstrarhagfræðingi
og fjármálstjóra Eimskipafélagsins.
Ætt
Foreldrar Jóns eru: Oddur Jóns-
son, f. 15. júlí 1892, d. 7. nóvember
1975, framkvæmdastjóri Mjólkurfé-
lags Reykjavíkur, og kona hans,
Eyvör Ingibjörg Þorsteinsdótir, f. 2
október 1907. Föðursystkini Jóns
eru: Ólöf, gift Jóhanni Ármanni
Jónasyni, úrsmið; Sigríður Guðný,
ljósmóðir og skáld; Sofiía, gift Ara
Ó. Thorlacius endurskoðanda; Ní-
els; Oddný Halla ráðskona; Svava
ljósmóðir, gift Helga Ásgeirssyni á
Ökrum. Böm Mörtu Maríu og
seinni manns hennar, Haraldar
Bjarnasonar, eru: Jón og Hulda,
ekkja Jónasar Böðvarssonar skip-
stjóra, amma Jónasar Haraldsson-
ar, fréttastjóra DV. Oddur var sonur
Jóns, b. á Alftanesi, Oddssonar,
hreppstjóra á Álftanesi, Sigurðsson-
ar. Móðir Jóns var Halla, systir
Margrétar, langömmu Lárusar, fóð-
ur Katrínar borgarfulltrúa. Önnur
systir Höllu var Þórdís, langamma
Gunnars Bjarnasonar ráðunautar.
Halla var dóttir Jóns, b. á Háteigi,
Einarssonar, bróður Þorsteins,
langafa Bjarna Þorsteinssonar, tón-
skálds á Siglufirði.
Móðir Odds framkvæmdastjóra
var Marta María, systir Hallgríms,
föður afa Hallgríms Helgasonar tón-
skálds, Sigurðar Helgasonar, stjórn-
arformanns Flugleiða. Önnur systir
Mörtu var Sesselja, móðir Ásgeirs
Bjarnþórssonar hstmálara, Sveins
B. Valfells forstjóra og amma Sturlu
Friðrikssonar erfðafræðings. Þriðja
systir Mörtu var Þuríður, móðir
Níelsar Dungal, prófessors, Bald-
vins Dungal í Pennanum, föður
Gunnars Dungal í Pennanum. Bróð-
ir Mörtu var Haraldur prófessor,
faðir Jónasar Haralz bankastjóra og
afi Haraldar Sveinssonar, fram-
kvæmdastjóra Árvakurs. Marta var
dóttir Níelsar Eyjólfssonar, b. á
Grímsstöðum, og konu hans, Sigríð-
ar, systur Hallgríms biskups, afa
Hallgríms Fr. Hahgrímssonar, for-
stjóra Skeljungs; Ehsabet, móðir
Sveins Björnssonar, forseta og Ólafs
ritstjóra fóður Björns fiðluleikara
og Péturs, hagfræðings og afa Ólafs
B. Thors, forstjóra Sjóvá-Almennra.
Sigríður var dóttir Sveins, prófasts
á Staðastað, Níelssonar, og konu
hans, Guðnýjar skálds, Jónsdóttur,
prests og læknis á Grenjaðarstað,
Jónssonar. -
Móðursystkini Jóns voru: Viggó
verslunarmaður; Svava kennari;
Kristrún, ekkja Gunnars J. Corts
læknis og Þorsteinn Halldór versl-
unarmaður. Eyvör var dóttir Þor-
steins, skipstjóra í Rvík, bróður Sig-
mundar, fóður Sesselju, stofnanda
og forstöðumans Sólheima í Gríms-
nesi. Þorsteinn var sonur Sveins, b.
í Gerðum í Garði, Magnússonar.
Móðir Þorsteins var Eyvör, systir
Guðrúnar, langömmu Ágústar, föð-
ur Guðrúnar, aðstoðarmanns
menntamálaráðherra. Önnur systir
Eyvarar var Ingibjörg, amma Inga
T. Lárussonar, tónskálds og lang-
amma Sveins Snorrasonar hrl.
Eyvör, dóttir Snorra prests á De-
sjarmýri Sæmundssonar, bróður
Jón Oddsson.
Einars, langafa Amþórs, föður Vals
bankastjóra. Móðir Eyvarar var
Kristín Tómasdóttir, sjómanns á
Bjargi á Akranesi, Erlendssonar.
Móðir Kristrúnar var Kristrún
Hahgrímsdóttir, b. á Veiðilæk í
Þverárhlíð, Högnasonar. Móðir
Hahgríms var Kristrún Loftsdóttir,
systir Þorláks, afa Þorláks Johnsen,
kaupmanns í Rvík. Móðir Kristrún-
ar var Helga Ásmundsdóttir, b. í
Elínarhöfða, Jörgenssonar, b. í Elín-
arhöfða, Hanssonar Klingenbergs,
b. á Krossi á Akranesi, ættföður
Klingenbergsættarinnar. Móðir
Jörgens var Steinunn Ásmunds-
dóttir, systir Siguröar, langafa Jóns
forseta.
Jón og Valgerður taka á móti gest-
um í félagsheimili Kvenfélags
Garðabæjar á Garðaholti í Garðabæ
á afmælisdaginn kl. 17-19.
Skúli Helgason
Skúli Helgason, Óðinsgötu 32,
Reykjavík, verður sjötíu og fimm
ára á morgun, 6. janúar.
Skúh er fæddur á Svínavatni í
Grímnesi og dvaldist þar að mestu
th 1946.
Starfsferill
Skúh vann jöfnum höndum við
almenn sveitastörf og smíðar og
fékk thsögn í járnsmíði 18 ára gam-
all hjá Kristjáni Kristjánssyni, járn-
smíöameistaraí Reykjavík. Hann
lærði sérstaklega skeifusmíði hjá
Kristjáni Kristjánssyni og var um
tvítugsaldur hluta úr tveimur vetr-
um við ná'm hjá Guðmundi Einars-
syni, presti á Mosfelli í Grímsnesi.
Skúli var einkabílstjóri Guðmundar
Einarssonar á Mosfelh 1937-1946 og
vartn aðallega við smíðar, einkum
jámsmíðar, á Selfossi 1946-1956.
Honum var fahð af sýslunefnd Ár-
nessýslu 1955 að safna gömlum
munum th væní mlegs byggðasafns
í sýslunni og vann að því öðru
hverju um þrjú ár. Skúli ferðaðist
hluta úr þremur sumrum um sýsl-
una við það starf og annaðist svo
uppsetningu safnsins með ígripum
fram um 1970,Hann var bókavörður
á Héraðsbókasafni Ámessýslu á
Selfossi 1956-1961 og reisti torfkirkj-
una í Árbæjarsafni í Reykjavík
sumrin 1959 og 1960. Skúli var um-
sjónarmaður á Árbæjarsafni 1960-
1965 og vann þar að smíðum og upp-
byggingu gamalla húsa. Hann reisti
m.a. skrúðhús undir torfþaki við
kirkjuna en varð að hætta störfum
vegna vanhehsu af völdum umferö-
arslyss 1966.
Skúli hefur ritað: Sögu Kolviðar-
hóls, 1959; Þættir úr Árnesþingi,
1960; Sagnaþættir, 1971, og Sögu
Þorlákshafnar, þrjú bindi, 1988.
Hann hefur safnað gömlum manna-
myndum og myndum af öhum eldri
bæjum í Grímsneshreppi, auk þess
ahmiklum heimhdum til sögu sveit-
arinnar á 19. og20. öld.
Ætt
Foreldrar Skúla voru: Helgi Guð-
mundsson, f. 1877, d. 1958, b. á Apa-
vatni í Laugardal, og kona hans,
Helga Jóndóttir, f. 1894, d. 1967:
Helgi var sonur Guðmundar, b. á
Apavatni, Guðmundssonar, b. á
Brekku í Biskupstungum, Guð-
mundssonar, b. í Austurhlíð, Magn-
ússonar. Móðir Guðmundar, b. á
Apavatni, var Helga Jónsdóttir
Bachmanns, prests í Klausturhól-
um, Hallgrímssonar Bachmanns,
læknis í Bjarnarhöfn, Jónssonar.
Móðir Jóns var Hahdóra Skúladótt-
ir landfógeta Magnússonar. Móðir
Helga var Kristín Guðmundsdóttir
Hanssonar, b. í Efstadal í Laugar-
dal, sonar Guðmundar prestslausa,
prests í Reykjadal, Guömundssonar,
bróður Jóns, ritstjóra Þjóðólfs. Móð-
ir Kristínar var Sigríður Jónsdóttir.
Skúli Helgason.
Helga var dóttir Jóns, b. á Svína-
vatni, Jónssonar, b. á Látalæti á
Landi, Jónssonar, b. á Látalæti,
Jónssonar, b. á Látalæti, Jónssonar,
b. á Látalæti, Magnússonar, b. í
Hvammi á Landi, Gunnarssonar.
Móðir Helgu var Sigurleif Þorleifs-
dóttir, b. á Syðri-Brú í Grímsnesi,
Bjarnasonar. Móðir Sigurleifar var
Sigríður Jónsdóttir, b. á Fossi í
Grímsnesi, Þorkelssonar, b. á Fossi,
Ásgrímssonar. Móðir Sigríðar var
Sólveig Jónsdóttir, silfursmiðs á
Bíldsfelh, Sigurðarsonar, ættföður
Bíldsfellsættarinnar.
Skúli verður að heiman í dag.
afmælið, 5. janúar
ara
Jóhanna K. Kristjánsdóttir,
Kjartansgötu 10, Reykjavík.
Hansína Sigfmnsdóttir,
Hafharbyggð 11, Vopnafirði.
Ásta HelgaBergsdóttir,
Smárahlíð 8D, Akureyri.
Sigríður Gísladóttir,
Stuðlaseli 10, Reykjavík.
Guðrún Hansdóttir,
Rauðalæk 45, Reykjavík.
Hún er að heiman á afmælisdag-
inn.
Kristbjörg Jóhannesdóttir,
Æsufehi2, Reykjavik.
Þorbj örg Magnúsdóttir,
Sveinsstöðum, Sveinsstaðahreppi.
Broddi Þorsteinsson,
Hahveigarstíg4, Reykjavík.
Petrea Hahmannsdóttir,
Þormóðsstöðum, Saurbæjar-
hreppi.
Áslaug F. Guðmundsdóttir,
Finnstungu, Bólstaðahlíðarhreppi.
Valdimar Harðar«-on,
Kleifarseli 27, Reykjavík.
Þorsteinn Jónasson,
Hreinn Melstað Jóhannsson,
Espigerði 6, Reykjavík.
Petra Guðný Konráðsdóttir,
Erkhundi 25, Akureyri.
Ólafur Pr. Hólm,
Hverfisgötu 102B, Reykjavík. Rauðafelli IV, Austur-Eyjafjalla-
Unnur Leifsdóttir, hreppi.
Skagabraut 39, Akranesi. Margrét Magnúsdóttir,
Jón Trausti Pálsson, Selvogsgötu 20, Hafnarfiröi.
Hólum í Hjaltadal, Hólshreppi. Finnbogi G. Kristinsson,
Leifsgötu 12, Reykjavik.
Studioblóm
ÞönglabaKKa 6
Mjódd, sími 670760
Blóm og
skreytingar.
Sendingarþjónusta.
Munið bláa Kortið.
Þuríður
Stella
Ottósdóttir
Þuríður Steha Ottósdóttir, Vest-
mannabraut 10, Vestmannaeyjum,
er sextug í dag, 5. janúar.
Þuríöur og eiginmaöur hennar,
Gunnar Ólafsson, verða hjá syni
sínum og tengadóttur í Rofabæ 47,
Reykjavík, á afmæhsdaginn.
Breytt símanúmer
Frá mánudeginum 7. janúar 1991 verður símanúmer
umhverfisráðuneytisins
609600
Umhverfisráðuneytið
Þuriður Stella Ottósdóttir.
Erum fluft
Georg Ámundason og Co
Bíldshöfða 18, sími 67820 - 687821, fax 681180
Glamox Ijós og Kathrein loftnetsefni