Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1991, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1991, Side 2
2 MÁNUDAGUR 7. JANÚAR 1991. Fréttir____________________________________________________________________________pv Eiginkonu ekki tilkynnt um slasaðan eiginmann sem þó var með öll skilríki: Lá slasaður á spítala með- an fjölskyldan leitaði hans „Maðurinn minn var að koma úr Kópavoginum um fimmleytið á ný- ársdag á leið heim og eftir því sem ég best veit var ekiö á hann. Hann kom stórslasaður, með alvarlegt lær- brot, skurði á höfði og hálfrænulaus, upp á slysadeild Borgarspítala og eft- ir þvi sem segir í skýrslu kom hann gangandi einn og óstuddur. Það þyk- ir mér afar ótrúverðugt. Það sem er þó verst er að mér var ekki tilkynnt um slysiö þrátt fyrir að maðurinn væri bæði með ökuskírteini og sjúkrasamlagsskírteini á sér,“ sagði Erla Þorvaldsdóttir í samtali við DV en hún leitaði eiginmanns síns á fjórða sólarhring áður en hún komst að því að hann lægi stórslasaður á Landspítalanum. „Ég fór að hafa áhyggjur á nýárs- dag þegar hann kom ekki heim. Ég spurðist fyrir um hann en enginn sem við þekktum hafði heyrt frá hon- um né séö hann. Þá fór ég aö verða verulega áhyggjufull og hringdi á - fannst eftir fjóra sólarhringa John Þórður Kristinsson liggur stórslasaður á Landspitalanum eftir að hafa lent i umferðarslysi á nýársnótt. Enginn veit þó um orsakir slyssins né hvar það var og eiginkonu hans var ekki tilkynnt um það. Hún fann eigin- manninn fjórum sólarhringum síðar á Landspítalanum. DV-mynd Hanna slysadeild til að spyrjast fyrir um hvort slys hefði orðið. Þar var mér sagt að enginn með þessu nafni hefði komið inn. Það var 3. janúar. Ég hafði þá samband við lögreglu og óskaði eftir að lýst yrði eftir honum. Að kvöldi þess dags fór ég með mynd til lögreglunnar, þá fóru þeir þar að kanna málið og komust að því að hann hefði komiö stórslasaður inn á slysadeild á nýársdag og lægi á Landspítalanum,“ segir Erla. „Ég hringdi á slysadeildina eftir að hafa fengið fréttina og náði þá sam- bandi við mann þar og bað hann að segja mér hvaö gerst hefði. Eigin- maður minn man ekkert sjálfur. Maðurinn vildi að ég hringdi á dag- vinnutíma en ég sagðist vilja upplýs- ingar strax. Þá sagði hann mér að ekkert hefði verið gert fyrir hann á slysadeild, sem ég veit að er ósatt því að hann var se,ttur í strekk og saum- aður í andliti, enda var hann á slysa- deild frá klukkan rúmlega fimm að deginum og til rúmlega sjö þess sama dags. Þessi maður var ákaflega dóna- legur. Hann sagði mér að hringja aftur á dagvinnutíma og spurði jafn- framt hvort ég væri að leita að ein- hverjum sökudólgi. Mér varð hverft við, enda ekki vön slíkum dónaskap. Ég hringdi aftur á laugardag og þá svaraöi mér vakthafandi hjúkrunar- kona sem var mjög almennileg. í ljós kom að nafn mitt var skráð á skýrsl- una og því undarlegt að ég hefði ekki verið látin vita um slysið." Erla segir að ekkert sé vitað um orsök slyssins og lögreglan virðist ekki hafa nokkrar skýringar. „Ég veit einungis að í skýrslunni stendur að ekið hafi verið á hann,“ sagði hún. „Ekki veit ég hver er ábyrgur fyrir svona löguðu. Fjölskyldan var í rusli í á fjórða sólarhring og enginn virðist bera ábyrgð á að ekki er til- kynnt um slys. Ég mun kæra þetta mál til rannsóknarlögreglu ríkisins í dag og óska eftir rannsókn." -ELA Trillukarlar í Hafnarfirði: Fáist ekki leiðrétting segi ég mig úr lögum við lýðveldið ísland - sagði Bjami Pálsson trillukarl „Ef við fáum ekki leiðréttingu segi ég mig úr lögum við lýðveldið ís- land,“ sagði Bjarni Pálsson trillukarl meðal annars á sameiginlegum fundi smábátaeigenda í Hafnarfirði, Reykjanesi og í Reykjavík en á hann var sjávarútvegsráðherra boðaður svo og þingmenn Reykjaneskjör- dæmis. Gífurleg reiði var greinileg meðal smábátaeigenda vegna tilraunút- hlutunar sjávarútvegsráðuneytisins á aflaheimildum til handa bátum undir 10 tonnum og sætti sjávarút- vegsráðherra, Halldór Ásgrímsson, harðri gagnrýni og óskuðu menn eft- ir auknum aflaheimildum. „Lögin segja að menn eigi að hjakka í sama farinu og það hefur nú aldrei þótt gott,“ sagði Sigurgeir Jónsson trillukarl. Höíð voru uppi stór orð og gagn- rýndu menn lögin harðlega svo og þær úthlutanir á veiðiheimildum sem stærri bátarnir fengu nú um áramótin. Sögðu menn að þær byðu ekki upp á neitt annað en kvóta- brask. „Menn eru að tala um að það vanti kvóta og það vanti kvóta en svo er verið að úthluta veiðiheimildum til báta og togara sem aldrei munu ná sínum kvóta, sagði Kristinn Gunnarsson í Garði meðal annars. Kristinn tók nokkur dæmi um stærri báta og togara sem fá úthlutað kvóta nú í ár en hafa ekki verið á veiðum undanfarin tvö ár. Sagöi hann að það hefði verð nær að taka þær aflaheimildir sem þessir bátar fengju og úthluta þeim til smábáta- eigenda sem bæru skarðan hlut frá borði. „Þetta eru nú vinnubrögðin í ráöuneytinu," sagði Kristinn. Hann gagnrýndi jafnframt að menn beittu nú stífri niðurtalningu til að bátar sem væru á milli 6 og 10 tonn fengju nú að fara á krókaveiöar og myndi þetta þýöa að ekkert yrði til skiptanna handa bátum undir sex tonnum. Jafnframt sagði Kristinn að ráðaleysið væri svo algert hjá ráöu- neytismönnum að það væri ekkert Um 200 manns sóttu sameiginlegan fund smábátaeigenda í Hafnarfirði, Reykjanesi og Reykjavik í gær. Horð gagnrýni kom fram á sjávarútvegsráðherra vegna tilraunaúthlutana á veiðiheimildum til smábátaeigenda. DV-mynd Hanna hægt að gera. Halldór Ásgrímsson tók þunglega undir kröfur smábátaeigenda um auknar aflaúthlutanir. „Það er ekki auðvelt að finna eina réttláta leið sem allir geta sætt sig við.“ Jafnframt sagði ráðherra að það ætti að skipta aflahlutdeildum upp á milli skipa því að það væri ekki hægt að takmarka aflann nema með því að snúa sér að hverju og einu skipi og að aflahlut- deildir hefðu verið skertar hjá öllum flotanum, ekki bara smábátaeigend- um. í lok fundarins var borin upp álykt- un þar sem segir: Samþykkir óska eftir að háttvirtir alþingismenn og þingflokkar þeirra beiti sér fyrir eft- irfarandi: Að farið verði eftir lögum um stjórn fiskveiða, þar sem ákvæði til bráðbirgða í kafla II, annarri og fimmtu málsgrein, kveði skýrt á um að aflahlutdeild báta sem veiðileyfi fá í fyrsta sinn eftir 31. desember 1989, án þess að sambærilegir bátar hafi horfið varanlega úr rekstri í þeirra stað, hafi ekki áhrif á úthlutun aflahlutdeildar þeirra smábáta er fyrir voru. Að efnd verði fastmæli sjávarút- vegsráðherra og Landssambands smábátaeigenda um þaö að búin verði til aukaaflahlutdeild handa smábátum. Að efnd verði fastmæli sjávarút- vegsráðuneytisins og Landssam- bands smábátaeigenda um að smá- bátar fái rétt hlutfall af þeim kvóta sem til skipta kemur við afnám sókn- armarksins. -J.Mar 73 ára einbúi án síma og vatns Magnús Ólafeson, DV, Sveinastöðum: „Það er ekki mikið mál aö vera rafmagnslaus í sólarhring eða svo en það er mjög slæmt að geta ekkert símasamband haft en ég gat ekki vitað hvernig móður minni leiö,“ sagði Alda Friögeirs- dóttir á Blönduósi. Móðir hennar er 73 ára gömul og býr ein á bæn- um Sviöningi á Skaga. Vitað var aö aftakaveður var þar um slóðir og þar var allt rafmagns- og sima- sambandslaust. Þess vegna var hvorki ekki hægt aö hringja í gömlu konuna eða fara í heim- sókn til hennar í þrjá sólar- hringa. „Það segir fátt af einum og svona fuUorðið fólk getur litla björg sér veitt ef eitthvað kemur upp á,“ sagði Alda. Næsti bær við Sviðning er Björg. Þangað er á fjórða kíló- metra og þar býr Ólafur Pálsson, mágur Öldu. Hann er lika einbúi og hátt á sjötugsaldrí. Það var loks í gær að samband náðist út á Skaga og þá fréttist að ekkert amaði að fólkinu. Gamla konan hafði hita í sínu húsi en kalt var orðið á bænum hjá Ólafi. Vatns- laust var á báðum bæjum þar sem rafmagnsdælur þarf á vatniö. Mikil umræða er manna á með- al í Húnaþingi hvernig standi á þeim miklu símatruflunum sem urðu innan héraös þótt Ijósleiöari væri bilaður á Þverárfjalli. Þykir fólki furöulegt að ekki sé hægt að tengja fi-amhjá bilmium og halda sima í lagi, svipað.og gert er hjá rafmagnsveitunum. Guðrún f orseti Hæstaréttar Guðrún Erlendsdóttir hæsta- réttardómari hefur verið kjörin forseti Hæstaréttar. Ráðningin er til tveggja ára og tók hún gildi 1 janúar síðastliðinn. Guörún var fyrst sett dómari viö Hæstarétt 1982 og skipuð dómari 1986. Eftir þvi sem næst verður komist er hún fyrsta konan til að gegna embætti forseta Norðurlöndum. Hæstaréttar á -GRS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.