Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1991, Síða 6
6
MÁNUDAGUR 7. JANÚAR 1991.
Fréttit
500rafmagnsstaurar
brotnir á Norðurlandi?
- um 300 manns hafa gert við undanfama sólarhringa
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Engin leið er að gera sér grein fyr-
ir því heildartjóni sem óveðrið á
Norðurlandi og ísing á rafmagnslín-
um hefur valdið en ljóst er aö þaö
er gífurlegt.
Skemmdir eru enn ekki fullkann-
aðar en ljóst er að flutningskerfi raf-
magns er víða í rúst og tjónið geysi-
legt. Vitað er að á Norðurlandi vestra
eru á þriðja hundrað rafmagnsstaur-
ar brotnir, í Eyjafirði eru þeir nærri
150 og í S-Þingeyjarsýslu er ekki ólík-
legt að þeir séu talsvert á annað
hundrað talsins. Varlega áætlað má
því telja að um 500 rafmagnsstaurar
hafi sligast undan ísingu og brotnaö
eða hreinlega kubbast í sundur
vegna óveðurs.
Talið er að um 300 manns hafi tek-
ið þátt í viðgerðarstörfunum undan-
farna sólarhringa en víða hefur vant-
að menn sem eru vanir þessum störf-
um, eins og t.d. línumenn. Þó barst
aðstoð frá Suður- og Vesturlandi og
hjálparsveitarmenn og bændur hafa
víða aöstoðað við viðgerðarstörfm
og unnið ómetanlegt starf.
Arnar Sigtýsson hjá Rafmagnsveit-
um ríkisins á Akureyri segir að þótt
línur komist í notkun aftur sé mikið
starf framundan og línur verði aldrei
jafngóðar eftir'að þær hafi tognað og
teygst undan snjóþunga. Þær við-
gerðir, sem fram hafa farið undan-
fama sólarhringa, hafi fyrst og
fremst verið neyðaraðgerðir og því
þurfi að vinna þetta allt upp á nýtt
þegar um hægist og veður lagist.
Þegar við bætist að skipta þurfi um
fleiri hundruð rafmagnsstaura sé
Ijóst að eftirmálar þess sem gengið
hefur á á Norðurlandi undanfarna
sólarhringa muni standa allt fram á
næsta sumar.
Menn hafa hent sér
yf ir blánóttina
- segir Jóhann Hauksson hjá Laxárvirkjun
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyn:
„Viðgerðarstörfm hafa gengið vel
miðað við aöstæður sem hafa verið
mjög erfiðar," sagði Jóhann Hauks-
son í Laxárvirkjun er DV ræddi við
hann í gær. Jóhann sagði þá að raf-
magn væri komið á marga staði en
enn væri mikið verk óunnið og ein-
hveijir dagar væru þangaö til raf-
magnið yrði komið á alla staði.
„Ástandið er verst í Reykjahverfi
og það líða einhveijir dagar þangað
til allt verður komið í lag þar,“ sagði
Jóhann. Hann sagðist vonast til að
rafmagn yrði komið á Húsavík síðari
hluta dags í gær. Þá var komið raf-
magn á í Laxárdal, Aðaldal, Reykjad-
al Köldukinn og Bárðardal nema á
einstaka bæi. Hins vegar var enn
rafmagnslaust í Fnjóskadal.
Jóhann sagði að menn heföu lagt
mjög hart að sér við viðgerðarstörfm.
Þeir hefðu verið að til miðnættis á
hverjum degi að undanfornu og rétt
náð að leggja sig yfir blánóttina. Tölu
á rafmagnsstaurum, sem hafa brotn-
að á svæði Laxárvirkjunar, vissi Jó-
hann ekki en sagðist þó hafa vissu
um að þeir skiptu mörgum tugum.
Ljóst er að gífurlegt eignatjón hefur orðið á Norðurlandi. Þar er taliö að
um 500 rafmagnsstaurar hafi brotnað og línur slitnað. Myndin var tekin í
Eyjafirði, innan við Akureyri, þar sem unnið var að viðgerð. DV-mynd gk
N-Þingeyjarsýsla:
Húsavík:
„Menn geta bara
lif að á jólamörnum“
Við getum alls
ekki kvartað
- segir Ingunn St. Svavarsdóttir á Kópaskeri
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Það var skammvinn sæla hjá Hús-
víkingum þegar rafmagnið kom aftur
á hjá þeim um kvöldmatarleytiö á
laugardag. Rafmagnið fór aftur af
síðar um kvöldið en í gær benti allt
til þess að viögerö yrði lokiö síöari
hluta dags og rafmagnið kæmist á
aftur.
Húsvíkingar fengu þó skammtað
rafmagn eftir hverfum í klukku-
stund í senn og gátu því eldað og
hitað sér vatn. „Það er ekki það
versta að geta ekki eldað þegar menn
vilja, við höfum jólamörinn og menn
eiga að geta lifað eitthvaö á honum,“
sagði björgunarsveitarmaður á
Húsavík sem DV ræddi við í gær.
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Við höfum haft rafmagn hér nær
allan þann tíma sem þetta vandræða-
ástand hefur staðið yfir og getum því
alls ekki kvartað," sgði Ingunn St.
Svavarsdóttir, oddviti á Kópaskeri,
er DV ræddi við hana í gær.
Ingunn sagði að rafmagnið hefði
farið af Kópaskeri í um 4 klukku-
stundir á fóstudag vegna bilunar í
þétti í Laxárvirkjun en að öðru leyti
hefði allt verið í lagi þar. Sömu sögu
er að segja frá öðrum stöðum í N-
Þingeyjarsýslu, þar hefur ástandið
verið gott og ef eitthvað hefur brugð-
ið út af hafa menn gangsett dísfi-
stöðvar eins og gert var á Þórshöfn
í einhvern tíma fyrir helgina.
Um 140 staurar eru
brotnir í Eyjaf irði
- viðgerðirnar núna bráðabirgðaviðgerðir sem vinna þarf upp aftur
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Talið er að á Eyjafjarðarsvæðinu
séu um 140 rafmagnsstaurar brotnir
eftir óveðrið og ísinguna undanfama
daga. Þá séu um 80 þverslár brotnar
og á um 80 stöðum séu rafmagnslínur
slitnar.
„Við getum ekki lofað fólki neinu
en vinnum eftir þeirri reglu að reyna
að koma rafmagni á til sem flestra á
sem stystum tíma,“ sagði Amar Sig-
týsson hjá Rafmagnsveitu rikisins á
Ákureyri er DV ræddi við hann í
gær.
Amar sagði að um 100 manns hefðu
unnið við viðgerðir á Eyjafjarðar-
svæðinu undanfarna daga og þá
meðtaldir sjálfboðaliðar, eins og
bændur og hjálparsveitarmenn.
„Þetta er afar erfið vinna við erfið
skilyrði og menn endast ekki lengi í
einu. Þó vinna menn langan vinnu-
dag eða framundir miðnætti hvern
dag,“ sagöi Arnar.
Þegar DV ræddi við Arnar í gær
var rafmagnslaust á Svalbarðseyri,
að hluta til innan Akureyrar, í Glæsi-
bæjarhreppi, Arnarneshreppi, á
Hjalteyri og i Svarfaðardal. Arnar
sagði að vonast væri til að takast
myndi að koma rafmagni á flesta
þessara staða í gær en þó væri nokk-
uð ljóst að eitthvað yrði eftir, eins
og t.d. hluti bæja i Glæsibæjarhreppi.
Þótt takist að koma rafmagninu á
að nýju er einungis um bráðabirgða-
viðgerðir að ræða ogtr talið að vinna
þurfi allt upp á nýtt þegar aðstæður
leyfa. Þá liggur fyrir að rafmagnslín-
ur, sem eru búnar að sligast af snjó,
verða aldrei jafngóðar aftur, þær
hafa teygst og togast og eru mun við-
kvæmari ef eitthvað verður að veðri.
Sandkom dv
Enn á baki
Dagblaðið
DaguráAkur-
eyrisagðifrá
: jiví fj rir hek:-
: innað„tvi-
buraspreng-
ing“væriyfir-
í vofandiáSauð-
; árkrókiaarinu
y ogværigertráð
fyrirþremur
tvíburafæðmg-
um þar sem er óvenjulegt Blaðið
sagði í yfirfyrirsögn þessarar fréttar
að Skagfirðíngar væru ekki af baki
dottnir og má það til sanns vegar
færa. Þá mun jafhvel vera von á
fjórðu tvíburunum siðar á árinu að
sögn blaösins. Og hver veit nema
fleiri Skagfirðingar, sem ekki eru af
baki dottnir, eigi eftir að láta til sín
taka og uppskera tvíbura áður en
áriðverðurallt.
Verðiaunin
Effréttann-
arrarsjón-
varpsstöðvar-
innarádögun-
um héfurveriö
réttskilinhef-
urveriðákveð-
iðaðverölaumi
Póst ogsima :
fyrirgóðan
rekstur oggóða
afkomuásið-
tveggjagjald-
skrárhækkana á nýbyrjuðu ári. Sig-
hvatur Björgvinsson, formaður fjár-
veitinganefhdar Alþingis, gerði góð-
an rekstur fyrirtækisins að umtals-
efni við afgreiðslu fiárlaga og var
sagt ffá því í fréttmni. Síðan fylgdi
að fyrirtækið hefði fengið samþykkt-
ar hækkunarbeiðnir sínar og var
ekki annað að skilja á frétfinni en
verið væri að verðlauna fyrirtækíð
fy rir góða afkomu með gj aldskrár-
hækkunum! Viöbrögð almennings
við þessu geta auðvitað ekki verið
önnur en undrun en slíkt telst varia
lengur til tíðinda þegar fregnir berast
Ur „leikhúsinu" við Austurvöll.
íþróttaannállinn
Undirritaður
vareinnþeirra'
semætluðuað
rifiaupp
íþróttaatburði
sl.úrsásami :;;
Biarna Eel. i :;
íþróttáarinál ::
Sjónvarpsinsá
gamlársdag,
Vissulegavar
þarumupprifi-
un að ræða en Bjarni Fel. sá ekki
ástæðu til að nfia upp aðra iþrótta-
viðburði en heimsmeistarakeppnina
í knattspymu, rétt eins og ekkert
annað hefði gerst í íþróttum á árinu
1990. íþróttaþáttur Sjónvarpsins hef-
ur oft verið kallaöur knattspymu-
þáttur Sjónvarpsins manna á milli
en nu keyrði al varlega um þverbak
hjá Bjarna Fel. við að skoða uppá-
haldsíþróttagrein sína. Að vísu var
Sjónvarpið svo með „annál“ íþrótta-
frétta sl. fimmtudag en þótt sá þáttur
væri að mörgu ley ti vel unninn var
harrn allt of stuttur og „aðrar grein-
ar“ fengu mun minna pláss en HM í
knattspymu sem mörgum fannstþó
ekki það merkileg keppni að ástæða
væri til að hampa henni endalaust.
Síendurtekið efni
Þaðerauð-
vitaðekken : ;
gamanað
senda „kölleg-
unr sínum
svona.skeytien
þeirerumargir
sem hreinlega
botnaekkerti
þessuenda- :
lausa knatt-
spymudekri
Sjónvarpsins á kostnað annarra
íþróttagreina. Ekki er ástandið betra
á Stöð 2 sem sýnir nánast engar aðr-
ar íþróttir en bandarískan körfuboita
og italska knattspyrnu og er umfiöll-
un stöðvarinnar um ítölsku knatt-
spymuna reyndar kapítuli út af fyrir
sig. Sýndur er leikur í beinni útsend-
ingu á sunnudögum og siðan er veriö
að endursýna úr þeim leik og mörk
úr öðrum leikjum fram aö næstu
helgi. Þetta er ekki beint spennandi
efni svona sjendurtekið.
Umsjón: Gylll Kristjánsson