Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1991, Blaðsíða 8
8
MÁNUDAGUR 7. JANÚAR 1991.
Utiönd
Nær þrjátíu fórust í óveðri
[ÍÖTtUft;
Frá Blacpool i Englandi.
Simamynd Reuter
Aö minnsía kosti tutfugu og átta
manns létu lífiö í óveöri sem geis-
aöi á jlretlandseyjum um helgina.
Meðal hinna látnu eru sex sviss-
neskir fcröamenn, tíu sjómenn á
skipi skráðu í Möltu og spænskur
sjómaður aí' öðru skipi. ;
Þúsund tonna flutningaskipi á
leið frá Spáni til Liverpool hvolfdi
viö Bretlandsstrendur snemma í
gærmorgun. Strandgæslumenn í
Wales sögöu að tíu sjómenn hefðu
látíst eöa væru taldir af. Tveimur
sjómönnum var bjargað.
Á írlandi létu tjórtán manns lifiö, þar á meðal svissneskir ferðamenn.
Svisslendingamir létust er tré féll á bifreið þeirra. Pleiri banaslys urðu
af völdum trjáa sem rifnað höfðu upp meö róturn.
Daniroffeitir
Yfir helmingur allra fullorðinna karla í Danmörku er feitur eöa of þung-
ur. Sömu sögu er að segja um þriðjung allra danskra kvenna.
Að sögn dansks sérfræðings eru Danir vepjulega tíu árum á eftir Banda-
ríkjamönnum í ýmsum efnum og hið sama virðist gilda um ofíitu. í Banda-
ríkjunum hafa heilbrigöisyfirvöld varað við vandamálum vegna offitu sem
nú virðist vera að verða landlæg í Danmörku. Danski sérfræöingurinn
segir aö allar deildir sjúkrahúsanna verði varar við offitu borgaranna.
Ekki verði aðeins um að ræða hjarta- og æöasjúkdóma, sykursýki og of
háan blóðþrýsting af völdum offitunnar heldur einnig krabbamein í legi
og verki í baki og liðum.
Menn eru taldir of þungir ef þeir vega á milli tíu og tuttugu prósent
méira en kjörþyngd og of feitir ef þeir vega yfir 20 prósent meira en kíör-
þyngd.
Kaupsýslumaður með forystu
Jorge Serrano sem samkvæmt fyrstu tölum leíðlr í forsetakosningakosn-
ingunum i Guatemala. Slmamynd Reuter
Samkvæmt fyrstu opinberu niðurstöðum frá seinni umferð forsetakosn-
inganna í Guatemala hefur kaupsýslumaðurinn Jorge Serrano yfirburði
yfir blaðaútgefandanum Jorge Carpio.
Ekki bárust neinar kvartanir um ofbeldi eða svindl í kosningunum en
svo virtist sem almenningur yrði ekki við beiðni Serranos og fráfarandi
forseta Guatemala, Vinicio Cerezo um að fjölmenna á kjörstaði. Sagt er
að aðeins 30 prósept allra kjósenda hafi tekiö þátt í kosningunum. Sums
staðar var kosningaþátttakan aðeins 10 prósent. Þessi litla þátttaka er
skýrð með þvi að kjósendur hafi veriö leiðir á persónulegum árásum í
kosningabaráttunni auk þess sem þeim hafi þótt lítill munur á stefhu
frambjóðendanna.
Sigurvegari kosninganna mun taka við embætti af Cerezo þann 14. jan-
úar. í fyrri umferð kosninganna um miðjan nóvember hlaut enginn for-
setaframbjóðendanna tólf yfir 50 prósent atkvæða og varð því að kjósa
aftur milli tveggja þeirra efstu.
Létust í skriduf alli -
Að minnsta kosti sautján manns biðu bana í Guatamala í gær er skriða
féli af völdum jarðgassprengingar. Sprengingin varð rétt fyrir miðnætti
á laugardagskvöld utan við bæinn Zunil.
Pjögur hús uröu undir tonnum af aur og gtjóti. Sautján lík voru grafin
undan rústunum en sex manns er enn saknað. Rafmagnsveiturnar í
Guatemala voru að reisa jarðhitaver á svæðinu sem sprengingín varð.
Á Ben Gurion flugvelli í ísrael í gær. Hundruð útlendinga, sem óttast stríð við Persaflóa, flykkjast nú frá ísrael.
— Simamynd Reuter
Saddam Hussein íraksforseti ítrekar afstöðu sína:
Yfirgefum
aldrei Kúvæt
Bæði írösk og bandarísk yfirvöld
ítrekuðu í gær að þau hygðust ekki
breyta afstöðu sinni í Persaflóadeil-
unni. Báðir aðilar tilkynntu að herir
þeirra væru reiðubúnir til orrustu.
Saddam Hussein íraksforseti kom
fram í íraska sjónvarpinu í gær og
tilkynnti að Kúvæt hefði verið end-
urheimt og því yrði ekki breytt. Ge-
orge Bush Bandaríkjaforseti hefur
skrifað íraksforseta bréf þar sem
hann varar hann við stríði.
Að því er James Baker, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, sagði í
gærkvöldi lofar Bandaríkjaforseti þó
að ráðast ekki á írak ef íraskir her-
menn verði kallaðir heim frá Kúvæt
fyrir 15. janúar. Baker sagði enn-
fremur að flestir bandamanna
Bandaríkjanna væru reiðubúnir til
styrjaldar við íraka færu þeir ekki
frá Kúvæt í næstu viku. Baker sagði
fund sinn með utanríkisráðherra Ír-
aka, Tareq Aziz, í Genf á miðviku-
daginn vera síðasta tækifærið fyrir
íraka til að skilja að stríð væri yfir-
vofandi og að Bandaríkjamönnum
væri alvara. Baker er nú kominn til
London og mun nú fara til tíu Evr-
ópulanda á næstu dögum til að end-
urskoða hernaðaráætlanir með
bandamönnum Bandaríkjanna.
Baker tjáði fréttamönnum að hann
væri ekki bjartsýnn á að fundurinn
með Aziz bæri árangur. Það væri þó
möguleiki á að írakar kæmu á óvart.
Hann kvaðst vera með bréf frá Bush
Bandaríkjaforseta til Saddams Hus-
sein íraksforseta. Embættismenn
sögðu að hann kynni einnig að hafa
meðferðis loftmyndir og önnur gögn
Fahd, konungur Saudi-Arabíu, heimsótti óvænt fjölþjóðaherinn í eyóimörk-
inni þar i gær. Símamynd Reuter
til að sýna íraska utanríkisráðherr-
anum samstöðuna gegn honum og
reyna þannig að hafa áhrif á afstöðu
íraka.
Meðlimur fyrrum Hashemitekon-
ungsfjölskyldunnar í írak bauðst í
gær til að setjast á valdastól í Bagdad
til að reyna að koma í veg fyrir stríð.
Hashemiate, sem er frændi síðasta
konungs íraks, Faisals II, fæddist í
Kúvæt og ólst þar upp en fluttist til
Bretlands 1983.
Yitzhak Shamir, forsætisráðherra
ísraels, sagði í gær að ísraelsk yfir:
völd vildu friðarviðræður í Jerúsal-
em við arabaríki, þar á meðal írak,
ef Saddam Hussein íraksforseti kall-
að heim hermenn sína frá Kúvæt.
Shamir lagði þó áherslu á að ekki
yrði um að ræða alþjóðlega ráð-
stefnu. Hann varaði sömuleiðis ír-
aksforseta við að reyna að fá ísraela
til að láta undan með hótunum. írak-
ar vilja tengja lausn Persaílóadeil-
unnar lausn á deilu ísraela og Palest-
ínumanna.
Hundruð útlendinga fóru frá ísrael
í gær en einnig nokkrar ísraelskar
fjölskyldur. írakar hafa hótað að
beita efnavopnum gegn ísrael og hafa
sagt að Tel Aviv verði fyrsta skot-
mark þeirra ef ráðist verði á írak.
Reuter
Hermenn stöðva námumenn
Tyrkneskar öryggissveitir stööv-
uöu göngu fimmtiu þúsund námu-
manna meö vatnsþrýstibyssum og
vinnuvclum í gær. Námumcnnírn-
ir lögðu af staö fótgangandi á föstu-
daginn frá bænum Zonguldak viö
Svartahaf og er ferðinni heitiö til
höfuöborgarinnar Ankara. Ákveð-
ið var að ieggja af stað fótgangandi
eftir að lögregla stöövaði bílalest
námumanna.
Leiðtogi göngumanna talaöi í
síma við vinnumálaráðherrann en neitaði að stöðva gönguna. Námumenn
fóru í verkfall 30. nóvember og krefjast þeir um 800 prósent launahækkun-
ar á daglaunum sem eru um 180 íslenskar krónur. Samtök námumanna
höfnuðu í síðustu viku boð stjómarinnar um 250 prósenta launahækkun.
ReuterogBitr.au
Konur í kröfugöngu tyrkneskra
námumanna. Símamynd Reuler
Dani grunaður um svarta-
markaðsbrask í írak
Danskur sendiráðsstarfsmaður,
sem áður starfaði á'danska sendiráð-
inu í Kúvæt, hefur mánuðum saman
verið í haldi í Bagdad í írak grunaður
um svartamarkaðsbrask með notaða
bíla. Rannsóknardómari hefur mál
hans til meðferðar þó að íraska utan-
ríkisráðuneytið eigi aö hafa viður-
kennt að það byggist á misskilningi.
Sendiráðsstarfsmaðurinn má ferðast
um Bagdad en hann vinnur nú í
danska sendiráðinu þar. Þetta kemur
fram í danska blaðinu Jyllands-
Posten í dag.
Samkvæmt frásögn danska sendi-
herrans í Bagdad hafði sendiráðs-
starfsmaðurinn aöstoðað átta
danska gísla við að selja bíla þeirra.
Hann er nú eini Daninn sem ekki fær
heimfararleyfi. Danska utanríkis-
ráðuneytið kveðst ekki hafa fengið
formlega útskýringu af hálfu íraskra
yfirvalda.
Flestir dönsku gíslanna óku frá
Kúvæt til Bagdad á einkabílum sem
þeir fengu leyfi til að' selja áður en
þeim var leyft að fara úr landi. Bíl-
ana mátti hins vegar aðeins selja
þeim sem voru með dvalarleyfi í ír-
ak. Ritzau